Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 4
4 6 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐ.JUDAGUR 5'. FEBRÚAR 1991 B 5 BADMINTON / ISLANDSMOTIÐ 1991 MORGUNBLAÐIÐ IÞROI IIRÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 gerði tvö mörk í stórsigri Real Madrid. Loksins fótbolti! Real Madrid vann stórsigur, 7:0, á Sevilla um helgina „LOKSINS fótbolti1* var risafyr- irsögn eins spænsku blaðanna í gær eftir stórsigur Real Madrid á Sevilla, 7:0. Madrfd- arliðinu hefur gengið mjög illa en sigurinn um helgina bendiF til þess að loks sé að létta til, þótt litlar líkur séu á að liðið nái spænska meistaratitlinum sjötta árið íröð. Þjálfari Real, Alfredo Di Stef- ano, vildi þó sem minnst segja: „Við lékum vel og það var góð hreyfing á liðinu,“ sagði hann. Þrátt fyrir sigurinn er Real enn níu stig- um á eftir Barcelona, sem gerði jafntefli, 2:2, gegn Valencia. Aus- andi rigning var á meðan leikurinn fór fram og var völlurinn sem sund- laug. Michael Laudrup skoraði glæsilegt mark fyrir Barcelona - af 30 m færi. Leikmenn Atletico Madrid náðu ekki að saxa á forskot Barcelona þegar þeir urðu að sætta sig við jafntefli, 0:0, við Real Betis. Tveir leikmenn Atletico, Rennopes og Futre voru reknir af leikvelli. Mark- vörður félagsins setti nýtt met - hann hefur haldið marki sínu hreinu í 870 mín., en gamla metið átti Miguel Reina, fyrrum markvörður Barcelona. Hann hélt markinu hreinu í 824 mín. fyrir átján árum. Marco van Basten gerði fyrsta markið sitt í tæpa þrjá mánuði er AC Mílanó sigraði Cesena, 2:0, í ítölsku deildinni. Hann lagði einnig upp fyrra markið en hann hafði ekki leikið með liðinu í tvær vikur vegna deilna við þjálfara liðsins Arrigo Sacchi. „Það er ekki aðalat- riðið að skora. En þegar það tekst ekki svo lengi verður það vanda- mál,“ sagði Basten. AC er í efsta sætinu ásamt Inter og Sampdoría. Frönsku liðin gerðu aðeins ellefu mörk í tíu leikjum helgarinnar og mikið var um óvænt úrslit. Mont- pellier var eina af tíu efstu liðunum sem sigraði. Laurent Blanc gerði eina mark liðsins gegn Brest úr vítaspyrnu. Tvö efstu liðinu, Mar- seille og Mónakó, gerðu bæði jafn- tefli og Marseille heldur fimm stiga forskoti. Mikil spenna er í Marseille og Bordeaux. í Marseille er beðið eftir því hvort Bernard Tapie haldi áfram sem forseti félagsins en í Bordeaux hvort félagið verði lýst gjaldþrota en það skuldar andvirða um þriggja milljarða ísl. króna. Urslit / B6 Staðan/ B6 ÍÞRÚmR FOLX ■ JANMölby, danski leikmaður- inn hjá Liverpool, er líklega á för- um til Chelsea. Félagið er tilbúíð að greiða eina milljón punda fyrir hann. ■ PETER Beardsley, sem ekki hefur verið í náðinni hjá Kenny Dalglish hjá Liverpool, er orðaður við Leeds. Beardsley lék ekki með Liverpool gegn Man. United á sunnudaginn. ■ STEFAN Reuter, landsliðs- maður Þýskalands sem leikur með Bayern Miinchen, hefur gert þriggja ára samning við ítalska stói-veldið Juventus frá Tórínó. Hann fer til ítalska félagsins e.ftir þetta keppnistímabil; ■ LEO Beenhakker, þjálfari Ajax í Hollandi, hefur framlengt samning sinn þar til vorið 1993. ■ KARL Heinz Körpel, varnar- maður Eintracht Frankfurt, sem orðinn er 36 ára og ætlaði að leggja skóna á hilluna í vor, hefur ákveðið að verða við beiðni Jörg Berger, þjálfara síns, og leika eitt ár í við- bót. Ami Þór hnekkti einveldi Brodda ÁRNI Þór Hallgrímsson var maður íslandsmótsins í bad- minton í Laugardalshöll á sunnudag, varð þrefaldur meistari og stöðvaði sigur- göngu Brodda Kristjánssonar í einliðaleik karla. Broddi hafði verið nær ósigrandi síðasta áratuginn og hafði unnið ís- landsmeistaratitilinn íeinliða- leik ails níu sinnum, þar af síðustu þrjú árin. ÆT Arni Þór sýndi mikið keppnis- skap í úrslitaleiknum í einliða- leiknum gegn Brodda Krisjánssyni. Broddi átti tiltil að verja og það var mikil pressa á hon- ValurB. um þar sem hann Jónatansson gat unnið titilinn í skrífar tíunda sinn, en það hafði engum tekist. Arni Þór byijaði fyrstu lotu betur og komst í 3:1. Brodda tókst að jafna, 5:5, en þá fór allt í baklás hjá honum og Arni Þór hafði leikinn í hendi sér eftir það og gerði hvert stigið á fætur öðru án þess að Broddi ætti nokkuð svar. Önnur lotan var jöfn til að byija með en Broddi náði síðan góðu for- skoti, 10:3, og allt leit út fyrir sig- ur hans og oddaleik. En Broddi gerðist þá nokkuð bráður og lék djarft. Arni Þór lék af mikilli yfir- vegun og var ekki á því að gefa eftir og jafnaði leikinn, 10:10. Þá var eins og Broddi þyldi ekki spenn- una, gerð mistök sem Árni Þór færði sér í nyt og sigraði örugg- lega, 15:12. Árni Þór yfirvegaður " Árni Þór lék mjög vel og var yfirvegaður. Hann var mun sterk- ari upp við netið og það skipti sköp- um. „Broddi hefur verið mjög góður upp við netið og maður hefur ávallt passað sig á. því að lenda ekki upp við netið á móti honum. En í dag fann ég að hann var veikur þar og það notfærði ég mér,“ sagði Árni Þór. Hann hefur létt sig um 20 kg síðan á íslandsmótinu í fyrra og munar um minna. Broddi ekki upplagður Broddi var ekki vel upplagður, hann lét allt fara í taugarnar á sér og gerði mörg mistök. Um miðja fyrri lotina bað hann um að fá að fara í æfingabuxur þar sem honum fanns of kalt í salnum. I síðari lo- tunni skipti hann um spaða, en allt kom fyrir ekki. „Þetta var ekki minn dagur. Ég náði illa „smössun- um“ frá honum og eins gekk illa hjá mér upp við rietið,“ sagði Broddi. Það má fullyrða að Árni Þór hafi verið maður mótsins því hann varð þrefaldur íslandsmeistari, í tvíliðaleik með Brodda og tvenndar- leikinn ásamt Guðrúnu Júlíusdótt- ur. Rafmagnsleysi háði keppni Rafmagnsleysi háði nokkuð keppni á mótinu á sunnudag. Úrs- litaleikirnir áttu upphaflega að hefj- ast kl. 14.00, en fóru ekki fram fyrr en kl. 17.00 vegna rafmagris- leysis. Um tíma var reyndar búið að aflýsa mótinu þar til um næstu helgi. En það tókst að klára alla flokka nema í einliðaleik í A-flokki karla. ■ Úrslit / B6 Morgunblaöið/Bjarni Arni Þór Hallgrímsson, maður íslandsmótsins í badminton. Hann varð þrefaldur meistari og stöðvaði sigurgöngu Brodda Kristjánssonar í einliðaleik karla. Broddi Kristjánsson: Gekk ekkert upp hjá mér Broddi sagðist aldrei hafa fundið sig í úrslitaleiknum. „Þó ég hafi verið kominn í 10:3 í síðari lotunni náði ég ekki að komast inní leikinn. Ég var kaldur og stífur og það gekk bókstaflega ekkert upp hjá mér,“ sagði Broddi. Hann sagði að rafmagnsleysið hafi haft mikið að segja varðandi úrslitaleikinn. „Það var hrikalega erfitt að einbeita sér vegna hring- landa með leiktíma. Fyrst átti leik- urinn að vera klukkan tvö síðan fjögur og svo var ákveðið að fella leikinn niður, en síðan ákveðið að leika klukkan fimm. Þetta háði mér mikið því undirbúningur minn fyrir úrslitaleik er alltaf í mjög föstum skorðum.“ „Árni Þór hefur unnið mig tvívegis í vetur, en þess á milli hef ég unnið hann nokkuð örugglega. Ég veit að ef ég hef tilfinningu fyrir að taka „smössin“ hans á ég að vinna hann. En það tókst ekki í dag.“ Broddi segir að Árna Þór hafi farið mikið fram, en sagði jafnframt að hann hefði sjálfur ekki getað æft jafn mikið og áður þar sem hann stundar nám í íþróttaskólan- um að Laugarvatni og því erfitt að sækja æfíngar til Reykjavíkur. „Ég spilaði ekki með í tvenndar- leiknum þar sem ég ætlaði að ein- beita mér að einliðaleiknum. Ég hef á undanförnum árum leikið með Þórdísi Edwald, en þar sem hún ^r ófrísk kom það ekki til nú. En það er svolítið skrítið að ég hef einu sinni áður sleppt því að keppa í tvenndarleik og þá tapaði ég einnig í einliðaleiknum." Elsa hafdi lítið fyrir sigrinum í einliðaleik Guðrún Júlíusdóttir tvöfaldur meistari þrátt tyrir meiðsli ELSA Nielsen, sem er aðeins 16 ára gömul, þurfti ekki mikið að hafa fyrir fyrsta íslands- meistaratitli sínum í einliðaleik kvenna. Hún vann Guðrúnu Júlíusdóttur örugglega, 11:3 og 11:0. Guðrún meiddist á ökkla í undanúrslitum gegn Birnu Petersen og það háði henni verulega í úrslitaleiknum. Lengí var útlit fyrir að úrslita- leikurinn í einliðaleik kvenna færi ekki fram þar sem Guðrún Júlíusdóttir var á sjúkrahúsi vegna ökklameiðsla. En Guðrún mætti síðan vafin um ökklann og lék til úrslita við Elsu. Viðureignin var mjög ójöfn, enda haltraði Guðrún og gat ekki beitt sér að fullu. Elsa, sem keppti í fyrsta sinn í meistaraflokki á Islandsmótinu, sigraði Önnu Steinsen í undanúrslit- um örugglega, 11:3 og 11:0. Guð- rún lék við Birnu Peterse í undanúr- slitum og vann í jöfnum og spenn- andi leik, 5:11, 12:10 og 11:6. Hún tognaði í oddalotunni er staðan var 10:6, en náði að klára lotuna og sigra. • „Frekar auðvelt" „Þetta var frekar auðvelt, en það var leiðinlegt að fá svona úrslita- leik. Það hefur verið draumur minn lengi að verða íslandsmeistari í ein- liðaleik, en ég átti ekki von á að hann rættist núna,“ sagði Elsa. Guðrún var vonsvikin eftir úr- slitaleikinn í einliðaleik og sagði að það væri hrikalegt að vera komin í úrslit í öllum greinum og meiðast síðan. „Ég gat ekki beitt mér þar sem meiðslin háðu mér mikið,“ sagði Guðrún, sem lék einnig til úrslita í fyrra og tapaði þá fyrir Þórdísi Edwald. Guðrún tvöfaidur meistari Guðrún getur þó glaðst yfir því að hafa varið íslandsmeistaratitl- ana frá í fyrra því hún varð tvöfald- ur meistari þrátt fyrir meiðslin. Sigi-aði í tvíliðaleik ásamt Birnu Petersen og tvenndarleik ásamt Árna Þór Hallgrímssyni. Þórdís Edwald, sem hefur verið íslandsmeistari í einliðaleik kvenna síðustu fjögur árin, var fjarri góðu gamni á sunnudaginn þar sem hún gengur með barn. Urslit / B6 Stefni á Ólympíuleikana 1996 ELSA Nielsen var yngst kepp enda íeinliðaleik kvenna og gerði sér lítið fyrir og sigraði. „Það var leiðinlegt að hún [Guðrún Júlíusdóttir] var meidd í úrslitaleiknum og því varð hann ekki eins spenn- andi fyrir vikið," sagði Elsa. Elsa sagði að það hafi verið draumurinn að vinna, en bjóst ekki við að sá draumur rættist. Elsa er 16 ára og er á fyrsta áriu í Menntaskólanum við Sund. Hún segir að það gangi ágætlega að samræma skólann og badminton- ið. „Keppnin í kvennaflokknum hefur verið jöfn í vetur, enda erum við þijár mjög svipaðar, ég, Guð- rún og Birna Petersen. Við höfum verið að vinna til skiptis og því gat allt gerst á íslandsmótinu," sagði Elsa. Elsa byrjaði að æfa badminton 9 ára gömul úti í Danmörku, en þar bjuggu foreldrar hennar. Hún fluttist heim fyrir’tveimur árum og síðan hefur hún æft hjá TBR. „Mér finnst æfingamar hér miklu betri en úti í Danmörku. Úti var iðkendum skipt í flokka og það voru aðeins þeir sem höfðu hæfi- leika sem fengu góða þjálfun, en ég var ekki í þeim hópi. Núna æfi ég alla daga vikunnar, tvo til þijá klukkutíma í senn. Ég er ákveðin í því að ná lengra og stefni á að komast á Ólympíuleik- ana 1996.“ Morgunblaðið/Bjarni Elsa Nielsen er aðeins 16 ára en vann fyrsta Islandsmeistaratitil sinn í einliðaleik kvenna. Meiðsli háðu Guðrúnu Júlíusdóttur og Elsa átti ekki í erfiðleikum með að sigra hana. Elsa - Gudrún Einliðaleikur kvenna: ■ l. lota: 3:0, 3:1, 4:2, 5:3, 11:3. ■2. lota: 0:0, 11:0. KNATTSPYRNA Chelsea stöðvaði sigurgöngu Arsenal Speedie gerði það.sem Rush hefurekki tekist síðustu tíu árin — að skora gegn United ARSENAL hafði fyrir helgi ekki unnið á Stamford Bridge, heima- velli Chelsea, í 17 ár og það varð engin breyting þar á í leik lið- anna á laugardaginn. Chelsea sigraði, 2:1, og fyrsta tap Arsenal í deildinni í vetur var staðreynd. Liverpool mátti þakka fyrir jafn- tefli gegn Manchester United, 1:1, á Old Trafford á sunnudag- inn. Arsenal og Liverpool hafa bæði hlotið 51 stig og erforskot þeirra að minnka verulega og spennan eykst. Graham Stuart og Kerry Dixon gerðu mörk Chelsea en Alan Smith gerði 16. mark sitt í vetur er hann minnkaði muninn fyrir Arsenal. Stuart, sem er aðeins 20 ára, var hetja Chelsea er hann skoraði fyrsta mark- ið og kom liðinu á bragðið. Hann lék í fremstu víglínu fyrir Gordon Durie, sem var meiddur. „ Aftur á sigurbraut" George Graham, framkvæmda- stjóri Arsenal, bar höfuðið hátt þrátt fyrir tapið. „Allt gott hlýtur Frá Bob Hennessy íEnglandi einhvern tíma að taka endi og ég er viss um að við komumst aftur á sigurbraut. Ef einhver hefði sagt við mig fyrir tímabilið að við mynd- um ekki tapa fyrr en í febrúar, hefði ég þakkað honum kærlega fyrir,“ sagði Graham, Andreas Limpar,. sænski leik- maðurinn hjá Ársenal, lék sinn fyrsta leik á Stamford. „Tapið þýð- ir ekki heimsendi því enn er mikið eftir af mótinu. Liverpool á eftir að tapa líka,“ sagði Svíinn. Speedie gerði það ómögulega! Liverpool mátti þakka fyrir jafn- teflið gegn Manchester United, 1:1, á Old Trafford. Steve Bruce skor- aði fyrst fyrir United úr vítaspymu á 26. mínútu. Glenn Hysen, fyrirliði Liverpool, sem lék nú aftur eftir þriggja leikja bann, sló klaufalega í boltann eftir hornspymu. Nýliðinn David Speedie gerði síðan það sem Ian Rush hefur ekki tekist í tíu ár — að skora gegn United. Hann jafn- aði leikinn á 30. mínútu með fallegu marki. „Ég gat ekki klúðrað þessu góða tækifæri," sagði Speedie, sem var keyptur til Liverpool frá Coventry í síðustu viku fyrir 650 þúsund pund. Rétt fyrir leikslok gerðist um- deilt atvik er Bmce Grobbelaar, markvörður, hljóp út fyrir vítateig- inn og stöðvaði sókn United með því að slá knöttinn frá. Hann fékk að líta gula spjaldið hjá dómaran- um, en flestir voru á því að hann hefði átt að fá það rauða. „Ég segi ekki að Grobbelaar hefði átt að fá rauða spjaldið. En þessi sókn hefði getað ráðið úrslitum í leiknum og gæti líka kostað okkur meistaratitil- inn,“ sagði Alex Ferguson, fram- kvæmdastjóri United. Brian Rob- son, fyrirliði United, var útnefndur besti leikmaðurinn á vellinum. Chapman meiddist illa Tottenham, sem lék án Paul Gascoigne, gerði markalaust jafn- tefli við Leeds á heimavelli. Gasco- igne fór heim af æfingu á föstudag með hita, en á sama tíma og leikur- inn fór fram sást til hans að snæð- ingi á veitingahúsi í London! Lee Chapman meiddist illa á andliti eft- ir samstuð við Steve Sedgley strax á 2. mínútu leiksins. Hann var bor- inn af leikvelli og fluttur á sjúkra- hús. Hann fékk heilahristing og meiddist illa á andliti og missti mikið blóð. Hann verður frá keppni næstu tvær vikurnar að minnsta kosti. „Ég hef aldrei verið eins hræddur er ég sá hann liggja í gras- inu. Ég hélt að hann væri látinn," sagði Sedgley um atvikið. Stór dagur hjá Beagrie Það var stór dagur hjá Peter Beagrie, leikmanni Everton, á laug- ardaginn. Hann skoraði síðara markið í 2:0 sigri Everton á Sunder- land. Á sama tíma var konan hans að eignast barn. Beagrie, sem var keyptur frá Stoke fyrir 750 þúsund pund fyrir 18 mánuðum, hefur tek- ið upp þann skemmtilega sið að fara heljarstökk er hann skorar, líkt og Mexíkaninn Hugo Sanchez. En á laugardaginn fór hann þijú heljar- stökk svona rétt til að halda upp á fæðinguna í leiðinni. Sheffield United er komið úr botnsætinu eftir 4:1 sigur á Sout- hampton. Sheffield skoraði öll fjög- ur mörkin á níu mínútna kafla í byijun fyrri hálfleiks. Bob Booker skoraði fyrstu tvö, en síðan bættu Hodges og Deane tveimur mörkum við hvor. ■ Úrslit / B6 ■ Staðan / B6 Michel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.