Morgunblaðið - 21.03.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.03.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1991 37 Eiríksson 5-68 Haustið 1944 var mynduð hin svokallaða, nýsköpunarstjórn undir forsæti Ólafs Thors, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, en aðild að henni áttu auk flokks for- sætisráðherra Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn, er tekið hafði það nafn upp árið 1939, þegar Kommúnistaflokkurinn var lagður niður undir því nafni. Hafði utan- þingsstjórn setið við völd síðustu tæp tvö ár, því að eftir kosningar til Alþingis haustið 1942 hafði ekki fyrr tekist að mynda ríkisstjórn er nyti stuðnings meirihluta á þingi. Framsóknarflokkurinn einn lenti í andstöðu við nýsköpunarstjórnina, ekki þó vegna ágreinings um stefnu í efnahagsmálum, heldur, að því ég bezt veit, átti rót sína að rekja til óvildar, er skapast hafði milli for- ystumanna Framsóknar- og Sjálf- stæðisflokks þegar samstjórn þess- ara flokka undir forsæti Hermanns Jónassonar klofnaði út af kjör- dæmamálinu vorið 1942. Á stríðsárunum höfðu íslending- ar safnað miklum innstæðum í er- Iendum gjaldeyri. Hinsvegar höfðu framleiðslutæki landsmanna gengið mjög úr sér á styijaldarárunum, því að engin tök voru á því að end- urnýja þau, þar sem styrjaldar- ástandið kom í veg fyrir að hægt væri að útvega nauðsynjar til slíkrar endumýjunar. Reyndar var ástandið í þessum efnum orðið mjög slæmt við upphaf styrjaldarinnar. Þannig bendir Benjamín á það í fyrrgreindri bók sinni, að skip í togaraflotanum, sem var ein helzta undirstaða útflutnings okkar, hafi að meðaltali verið 18 ára gömul. Kreppan á fjórða áratugnum olli því, að ekki síst þau fyrirtæki er stunduðu framleiðslu til útflutnings töldu sig ekki hafa ráð á því að endurnýja framleiðslutækin. Eng- inn ágreiningur var því um það, að brýna nauðsyn bæri til þess fyrir íslendinga að gert yrði stórt átak til þess að endurnýja og auka fram- leiðslutækin og nýta þau tækifæri í þessu efni, sem hinn gildi gjaldeyr- issjóður, sem safnast hafði á stríðsárunum, bauð upp á. Hlyti það að vera forgangsverkefni hverrar þeirrar ríkisstjórnar, er að völdum sæti, að greiða fyrir þessu. En slíka fyrirgreiðslu mátti veita á fleiri en einn veg. Tvær leiðir hlutu þar einkum að koma til greina. Önnur var sú, að gera ráðstafan- ir til þess að koma á jafnvægi í efnahagsmálum, þannig að verð- bólga væri stöðvuð, gengi skráð þannig, að útflutningsframleiðslan gæti borið sig o.s.frv. Með því móti mætti skapa skilyrði fyrir því, að fyrirtæki teldu fýsilegt að ráðast í kaup á framleiðslutækjum og aðrar framkvæmdir í þágu atvinnurekst- urs. Að öðru leyti væru bein af- skipti hins opinbera af því, hvers- konar framkvæmdir skyldi ráðist í og hveijir það gerðu, ekki nauðsyn- leg. Hin leiðin var sú, að ríkisvaldið taki alla yfirstjórn þessara mála í sínar hendur og ákveði hvers konar framleiðsutæki skyldu keypt og hveijir fengju að kaupa þau. Þetta var sú leið, sem farin var af nýsköp- unarstjórninni. Komið var á fót svo- kölluðu Nýbyggingarráði, sem ann- ast skyldi yfirstjórn þessara mála, og skyldi það fá yfirráð yfir rúmum helmingi gjaldeyrisforðans til ráð- stöfunar í þágu nýsköpunarinnar. Svo virðist sem mjög víðtæk sam- staða væri um það meðal stjórn- málamanna, að þessi leið skyldi valin, því að Framsóknarflokkurinn, sem var einn í stjórnarandstöðu, vildi ganga enn Iengra í því en stjórnarflokkarnir að ráðstafa gjaldeyrisforðanum í þágu nýsköp- unar og þáði hann boð ríkisstjómar- innar um að fulltrúi þeirra tæki sæti í Nýbyggingarráði. En þó að góður árangur yrði af mörgum þeim ráðstöfunum, sem gerðar voru á vegum Nýbyggingarráðs, voru verulegir annmarkar á því að standa þannig að málum sem gert var við framkvæmd nýsköpunarinn- ar. Frá sjónarmiði þeirra, sem trúa á fijálsan markað og einkaframtak má í rauninni segja, að byijað væri á öfugum enda við lausn þess að- kallandi vandamáls, að tryggja á sem hagkvæmastan hátt endurnýj- un og aukningu framleiðslutækj- anna í íslensku atvinnulífi. Ríkis- valdið kom á fót valdamikilli nefnd eða ráði til þess að veita gjaldeyris- leyfi og aðrar opinberar fyrir- greiðslur til þeirra aðila, sem áhuga höfðu á þátttöku í nýsköpunarfram- kvæmdunum. En hveijir voru líklegir til þess að sýna slíkan áhuga? Vegna þess mikla ójafnvæg- is, sem var í íslenzkum efnahags- málum í lok stríðsins, var ólíklegt að einkaaðilar gætu sýnt slíku mik- inn áhuga. Erlendur gjaldeyrir var skráður á miklu lægra verði reiknað í íslenzkum krónum en raunhæft var, þannig að auðsætt var, að nær öll útflutningsframleiðsla yrði að öllu óbreyttu rekin með verulegu tapi. Svarið við ábendingum um þetta var það af hálfu formælenda nýsköpunarstjórnarinnar, að gera mætti sér góðar vonir um það, að hin nýju framleiðslutæki myndu auka svo afköst í framleiðslunni að hið skráða gengi gæti orðið raun- hæft og þyrfti því ekki að grípa til gengislækkunar eða annarra ráð- stafana, er hefðu kjaraskerðingu í för með sér. Ólafur Thors benti þeim flokksmönnum sínum, er ótt- uðust að nýsköpunin myndi leiða til meiri þjóðnýtingar framleiðslu- tækjanna en æskilegt væri, á það, að samkvæmt þeim reglum, er Nýbyggingarráði væri ætlað að fylgja, skyldi gera öllum formum atinnureksturs jafnhátt undir höfði, hvort sem um einkarekstur, sam- vinnurekstur eða opinberan rekstur væri að ræða. Þetta var út af fyrir sig rétt, .en breytti engu um það, að óvi'ssan um rekstrargrundvöll útflutningsframleiðslunnar gerði einkaaðila ófúsa til þess að ráðast í kaup á dýrum framleiðslutækjum svo sem togurum, þótt fáeinir, sér- staklega dugmiklir einstaklingar, svo sem Tryggvi Ófeigsson útgerð- armaður, gerðu kaup á nýjum tog- urum. Til þess að tryggja það, að hin nýju skip yrðu þó rekin þrátt fyrir allt réðust margar bæjar- stjórnir í það að koma á fót útgerð- um, er reknar voru af bæjarfélögun- um. Jafnvel í Reykjavík, þar sem sjálfstæðismenn voru í meirihluta, var stofnuð bæjarútgerð — en þá var Reykjavík kölluð bær en ekki borg. Ekki reyndust bæjarútgerð- irnar þó hentugt form fyrir rekstur útgerðar, en það er önnur saga, sem ekki verður rakin hér. Það urðu þannig opinberir aðilar, svo sem sveitarfélög og þó einkum ríkið, sem öðru fremur hlýddu því kalli að ráðast í nýsköpunarfram- kvæmdir. Á vegum ríkisins var sér- stök áherzla lögð á byggingu síldar- verksmiðja, þannig að hafist var handa um bygingu ekki færri en 5 síldarverksmiðja er reknar skyldu af ríkinu. En það reyndist auðveld- ara að byggja verksmiðjurnar en koma þeim í „ganginn" svo vitnað sé í ummæli er Skúli Guðmundsson, þingmaður Vestur-Húnvetninga, lét falla í eldhúsumræðum á Alþingi vorið 1946. Hafði þá borið á góma bygging glæsilegrar síldarverk- smiðju ríkisins, sem þá var verið Ólafur Thors Bjarni Benediktson að reisa á Skagaströnd í Austur- Húnavatnssýslu í nágrannakjör- dæmi Skúla. Honum fannst fátt um framkvæmdina og vitnaði í þjóð- sögu um frásögn íslenzks bónda, er kom til Danmerkur, af vindmyllu er hann sá þar og var hið mesta furðuverk í hans augum. Lýsti bóndi myllunni svo: „Fyrst er spýta, svo er spýta, svo er spýta í kross, svo er spýta upp, svo er spýta niður og svo fer allt í ganginn." En þessi verksmiðja mun aldrei fara í gang- inn, sagði Skúli svo að lokum. Því miður reyndist Skúli þarna sann- spár. Þessi verksmiðja, sem svo mjög hafði verið vandað til, fór í rauninni aldrei í ganginn, ekki vegna þess að vélakostur og annar útbúnaður væri ekki í góðu lagi, heldur að hún fékk aldrei neitt umtalsvert hráefni til vinnslu. Sem betur fer var saga þessarar síldarverksmiðju fremur undan- tekningardæmi um árangur ný- sköpunar, en breytir engu um það, að þær björtu vonir, sem fylgjendur hennar höfðu gert sér í upphafi hennar, rættust aðeins að takmörk- uðu leyti. Þannig brást vonin um það, að afkastaaukning sú, er leiða myndi af nýsköpunarframkvæmd- unum, gerði óþarfar ráðstafanir svo sem gengislækkun til þess að skapa útflutningsframleiðslunni rekstrar- grundvöll. Þegar á öðru ári nýsköp- unarinnar, eða árið 1946, varð að grípa ti! þess, þar sem samkomulag varð ekki um aðrar ráðstafanir, að ríkissjóður ábyrgðist lágmarksverð á fískafurðum og fóru þær ábyrgð- ir og uppbætur á útfluttar afurðir á grundvelli þeirra svo stöðugt vax- andi þar til árið 1950 þegar löggjöf var sett um aðgerðir í efnahagsmál- um á grundvelli álitsgerðar, er Benjamín hafði látið stjórnvöldum í té sumarið 1949. Það, sem hér hefir verið sagt um nýsköpunar- stjórnina, má ekki túlka þannig, að ég telji að Ólafur Thors hafí gert stjórnmálalega skyssu þegar hann ákvað að mynda stjórn með verka- lýðsflokkunum, sem svo nefndu sig. Þvert á móti tel ég, að myndun slíkrar stjórnar hafi á þeim tíma verið sterkur pólitískur leikur af hálfu hans og hygg ég, að sú hafi einnig verið skoðun þorra flokks- Ólafur Björnsson Eysteinn Jónsson manna hans og jafnvel líka and- stæðinga hans. Vissulega voru miklir gallar á efnahagsstefnu ný- sköpunarstjórnarinnar, en á þeim tíma voru varla stjórnmálaleg skil- yrði fyrir nokkru betra. Hefði Ólafi ekki tekist að mynda slíka stjórn hefði niðurstaða tilrauna til stjórn- armyndunar án efa orðið einhvers konar vinstri stjórn. Sú stjórn hefði að vísu sennilega fylgt svipaðri stefnu í grundvallaratriðum hvað efnahagsmálin snerti og nýsköpun- arstjórnin gerði, en frávikin frá stefnu hennar hefðu vafalaust verið í átt til meira ójafnvægis, meiri hafta og ofstjórnar. Sljórnarslitin haustið 1946, hagfræðingaálitið frá sama ári og Stefanía Haustið 1946 klofnaði nýsköpun- arstjórnin, ekki þó vegna ágreinings um stefnu í efnahagsmálum, heldur vegna utanríkismála. Eftir að mál það, sem olli stjórnarslitunum, en það var ágreiningur um samning við Bandaríkjamenn um afnot af Keflavíkurflugvelli vegna hernaðar- legra skuldbindinga þeirra í Evrópu, hófust viðræður milli stjórnmála- flokkanna um hugsanlega stjórnar- myndun. Tóku allir þeir flokkar, er áttu menn á Alþingi, þátt í þeim viðræðum í fyrstu, þannig að stefnt var þannig að þjóðstjórn, sem allir stjórnmálaflokkarnir ættu aðild að. Eitt af því, sem samkomulag varð um í upphafi viðræðnanna var það, að komið skyldi á fót hagfræðinga- nefnd er skipuð skyldi einum full- trúa frá hveijum þeirra flokka, er þátt tóku í stjórnarmyndunarvið- ræðunum. Skyldi nefndin gera út- tekt á íslenzku efnahagslífi og til- lögur um það, hvernig unnt væri að ná markmiðum í efnahagsmál- um, sem flokkarnir kynnu að verða sammála um. Ekki var þó um auð- ugan garð að gresja í þeim efnum enda varð ekkert af myndun þjóð- stjórnarinnar. Eitt voru flokkamir þó sammála um í þessu, svo sem fram kom í því erindisbréfi, sem nefndin fékk, en það var að megin- áherzla skyldi á það lögð af hálfu ríkisstjórnar þeirrar, er við völdum tæki, að ljúka nýsköpunarfram- kvæmdunu á sem skemmstum tíma. Þeir ijórir hagfræðingar, sem skip- aðir voru í nefnd þessa, voru sá er þetta ritar, tilnefndur af Sjálfstæð- isflokknum, Klemenz Tryggvason, síðar hagstofustjóri, tilnefndur af Framsóknarflokknum, Gylfí Þ. Gíslason, tilnefndur af Alþýðu- flokknum, og Jónas Haralz, til- nefndur af Sósíalistaflokknum. Nefndin hafði mjög skamman tíma til umráða, enda gerðu fáir ráð fyr- ir því að árangur yrði af starfi þeirr- ar nefndar stjórnmálamanna, sem vinna átti að myndum þjóðstjórnar- innar og var því ekki gert ráð fyrir langlífi hennar, en frá þeirri nefnd hafði hagfræðinganefndin umboð sitt. Við, sem sæti áttum í hagfræð- inganefndinni, skiluðum sameigin- legu riti og tillögum um það bil mánuði eftir að við hófum störf. Af þessari sameiginlegu niðurstöðu má þó ekki draga þá ályktun, að við, sem að henni stóðum, höfum verið sammála um allt, enda var slíks varla að vænta, eins og staðið var að skipun nefndarinnar, en við litum svo á, að meira mark yrði tekið á sameiginlegu áliti okkar en meira eða minna sundurleitum sér- álitum. Þó að lítil ánægja væri með álitið af hálfu þeirra stjórnmála- manna, sem valið höfðu hagfræð- inganefndina, hafði það þó sín áhrif á vettvangi stjórnmálanna, því að segja mátti að efnahagsstefna sú, sem fylgt var af ríkisstjórn þeirri, sem loks tókst að mynda eftir nokk- urra mánaða þóf í febrúar 1947, hafi í meginatriðum byggzt á tillög- um nefndarinnar. Það skal fúslega viðurkennt, að ekki voru tillögur okkar skemmtilegar frá sjónarmiði þeirra, sem aðhyllast fijálsan mark- að og efnahagslegt jafnvægi. Það átti enn að herða á höftum og mið- stýringu miðað við það, sem verið hafði í tíð nýsköpunarstjórnarinnar. Bezta dæmið um að svo væri voru tillögur okkar um það, að komið yrði á allsherjar stjórn á allri fjár- festingu. Þessa tillögu framkvæmdi svo hin nýja ríkisstjórn með því að koma á fót hinu svonefnda fjár- hagsráði, er varð svo næstu árin ein valdamesta stofnun þjóðfélags- ins. Eg vil þó nota þetta tækifæri, úr því að ég er farinn að ræða sögu- lega þróun íslenzkrar stefnu í efna- hagsmálum, til þess að leiðrétta misskilning, sem verið hefur ofar- lega a baugi þegar þetta tímabil hefir borið á góma í umræðum um þróun stjórnmála og efnahagsmála hér á landi. En sá misskilningur er í því fólginn, að þannig er litið á, að við hagfræðingarnir höfum verið frumkvöðlar þess, að komið var á meiri höftum og strangari skömmt- un var beitt árin 1947-50, en þjóð- in hafði áður þekkt. Svo var ekki. Við vorum aldrei til þess kvaddir að marka þá stefnu í efnahagsmál- um sem fylgt skyldi af hugsanlegri þjóðstjórn, heldur vorum við aðeins tæknilegir ráðunautar. í erindis- bréfi okkar var tekið fram, að það skyldi á næstunni verða forgangs- verkefni við stjórn efnahagsmála að ljúka þeim nýsköpunarfram- kvæmdum, sem hafnar voru, og þar sem aðeins var rúmt ár liðið frá því að styijöldinni lauk og nýsköp- unarframkvæmdirnar gátu hafíst fyrir alvöru, þá var verulegur hluti þeirra auðvitað eins skammt á veg kominn. Nú voru aðstæður orðnar mjög breyttar frá því að ferill ný- sköpunarstjórnarinnar hófst. Eins og við sýndum fram á, og það gekk fullkomlega eftir, þá var nú komið að því, að gjaldeyrissjóðurinn yrði upp urinn. Hygg ég að í þessu hafí legið megin ástæðan fyrir óánægjunni með álit okkar af hálfu þeirra flokka, sem að nýsköpuninni stóðu. Þá var og komið í ljós, að skipakaupin og aðrar þær nýsköp- unarframkvæmdir, sem lokið var, leiddu ekki til þeirrar aukningar framleiðslunnar, sem menn í upp- hafi höfðu gert sér vonir um. Ef framkvæma átti því hina mörkuðu stefnu varð að draga úr öðrum framkvæmdum en þeim, er taldar voru til nýsköpunarinnar. Það hefði að vísu verið hægt að SJÁBLS 48. T
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.