Morgunblaðið - 30.04.1991, Qupperneq 8
roor Jifl'U .08 HUOOa'JtGIM GiaAJHMUOHOIÍ-
6S
Iþrmr
jltaiigtttiHaMfr
Stjaman rauf meist
araeinveldi Fram
Garðabæjarliðið batt endi á sjö ára sigurgöngu Framstúlknanna
NÝIR ÍSLANDSMEISTARAR voru krýndir íhandknattleik kvenna
á sunnudag, þegar Stjarnan batt enda á 7 ára samfellda sigur-
göngu Fram og tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í spennandi
úrslitaleik milli þessara tveggja liða. Stjarnan hefur undanfarin
ár verið meðal efstu liða, en oft mátt sætta sig við annað sætið
á eftir Fram. Gott dæmi um það er viðureign liðanna í bikarúr-
slitaleiknum fyrir mánuði síðan þar sem Stjarnan mátti þoia
stórtap. Það er hins vegar Ijóst að liðið er vel að íslandsmeistara-
titilinum komið, það er ekki lengur ungt og efnilegt lið úr
Garðabæ, heldur komið í hóp þeirra bestu og gott betur.
Morgunblaðið/KGA
Herdís Sigurbergsdóttir hefur leikið vörn Framliðsins grátt og sendir
knöttinn síðan í mark. Herdís er dóttir Sigurbergs Sigsteinssonar, sem varð
margfaldur íslandsmeistari með Fram á árum áður.
Morgunbidðið/KGA
Erla Rafnsdóttir og Fjóla Þórisdóttir hlaupa með nýja ísiandsmeistara-
bikarinn. Erla hefur áður orðið íslandsmeistari - þá sem leikmaður með Fram.
Stjaman hóf leikinn með mikilli
baráttu sem Framliðið virtist
eiga erfítt með að fínna svar við.
Varnarleikur Stjörnunnar var mjög
sterkur og liðið
gerði mikið af mörk-
um úr hraðaupp-
hlaupum eftir að
hafa unnið boltann
í vörninni. Sóknarleikur Fram var
að sama skapi ráðleysislegur á köfl-
um og frekar einhæfur. Guðríður
Guðjónsdóttir hélt liðinu á
mestan
Hanna Katrin
Friðriksen
skriíar
fvrri
part
.—».u...u. Hún gerði fímm fyrstu
mörk liðsins og aðeins ein önnur
Framstúlka komst á blað í fyrri
hálfleik, Ósk Víðisdóttir sem gerði
6. markið rétt fyrir leikhlé.
Sóknarleikur Stjömunnar var
mun fjölbreyttari, þó svo að liðið
gerði flest mörk sín eftir hraðaupp-
hlaup. Staðan í leikhléi var 6:10
fyrir Stjömuna, sem hafði töglin
og haldirnar í fyrri hálfleik. Fram-
liðið mætti öllu frískara til leiks
eftir hlé og hleypti spennu í leikinn
með því að gera þrjú fyrstu mörkin
á stuttum tíma. Þá komust Stjörn-
ustúlkur aftur inn í leikinn með
tveimur mörkum. Eftir það náði
Fram oft að minnka muninn niður
í eitt mark, en þrátt fyrir mörg
upplögð tækifæri lét jöfnunarmark-
ið standa á sér. Um miðjan hálfleik-
inn þurfti Guðríður að fara af
leikvelli vegna meiðsla, en hún hafði
þá gert bróðurpartinn af mörkum
Fram. Leikurinn var áfram í járn-
um, en í hvert skipti sem Fram
náði að minnka muninn í eítt mark
var sem Stjörnuliðið tvíefldist.
Framstúlkur voru um tíma tveimur
fleiri, en allt kom fyrir ekki.
Þegar tæpar þtjár mínútur voru
eftir var Erlu Rafnsdóttur vísað af
leikvelli í stöðunni 12:13. Fram fékk
dauðafæri til þess að jafna leikinn,
en Fjóla Þórisdóttir í marki Stjöm-
unnar varði glæsilega af
línu. Sókn Fram hélt
áfram, en Margrét The-
ódórsdóttir komst inn í
sendingu og jók forskot Stjörn
unnar rúmri mínútu fyrir leikslok.
Tvö síðustu mörk liðsins komu
einnig eftir hraðaupphlaup og
sætur sigur Garðabæjarliðsins í
höfn.
Guðríður Guðjónsdóttir var allt í
öllu hjá Fram þar til hún fór af
leikvelli. Sigrún var sterk á línunni,
en aðrar náðu sér ekki á strik í
sóknarleiknum. Vörnin var heldur
ekki eins og hún getur best orðið
og gi-einilegt að taugaspenna sem
fylgir úrslitaleikjum sem þessum fór
verr með Fram en Stjörnuna. Kol-
brún var ágæt í markinu.
Stjörnuliðið sýndi sterka liðsheild
leiknum og allar áttu góðan leik.
Margrét Theódórsdóttir átti þó
einna bestan leik, bæði í vörn og
sókn. Margrét og Erla Rafnsdóttir
stjórnuðu hraðaupphlaupum Stjörn-
unnar með góðum árangri og Fjóla
Þórisdóttir varði vel á mikilvægum
kafla undir lok leiksins.
Hvað sögðu
þær?
Guðríður Guðjónsdóttir,
fyrirliði Fram
Ég hefði að sjálfsögðu viljað
enda ferilinn með sigri. Mér fannst
þetta vera spegilmynd af bikarúr-
slitaleiknum, í dag vorum það við
sem áttum erfitt með að ná upp
baráttu. Vendipunkturinn fannst
mér vera í stöðunni 11:12 þegar
við fengum þijár sóknir, einni til
tveimur fleiri, til þess að jafna, en
það mistókst. Ef við hefðum jafnað
hefði pressan á Stjömuna aukist
og leikurinn hefði þróast öðruvísi,
en þama vom rúmar tíu mínútur
eftir.
Herdís Sigurbergsdóttir,
Stjömunni
Við sýndum og sönnuðum með
þessum leik að við eigum íslands-
meistaratitilinn fyllilega skiiið.
Vamarleikurinn var frábær hjá
okkur og gerði útslagið. Það var
kominn tími til þess að annað lið
en Fram hampaði bikamum, nú
ætlum við að taka við. Mér fannst
þetta góður leikur, en baráttan hjá
Fram var minni en ég átti von á.
Við réðum ferðinni allan tímann.
Eria Rafnsdóttir, Stjömunni
Loks uppskámm við það sem
sáð hefur verið til í kvennahand-
boltanum í Garðabæ undanfarin
ár. Það hefur verið lögð mikil vinna
í hann og við eigum mikið af ung-
um og efnilegum stúlkum. Stjarn-
an og Fram eru mjög jöfn lið og
í leikjum liðanna í vetur hafa úr-
slit alltaf ráðist á síðustu mínútum,
og þá í raun og vem á heppni. I
þessum leik gerði sterk vöm okkar
gæfumuninn. Við vomm hungrað-
ar í sigur. Margar í liðinu hafa
vanist því að Fram vinni alltaf og
eru hreinlega búnar að sætta sig
við að vera númer tvö. Skellurinn
í bikarúrslitunum gerði okkur gott,
því hann var ekki hægt að afsaka
með meistaraheppni Fram.
Sigrún Blomsterberg, Fram
Þetta er svo sem viðunandi ár-
angur í vetur, við eram Reykjavík-
ur: og bikarmeistarar og í 2. sæti
í íslandsmótinu. Samt er maður
engan veginn sáttur við þessa nið-
urstöðu þar sem við emm ekki
vanar að tapa. Það var meiri
taugaóstyrkur nú heldur en fyrir
bikarúrslitaleikinn við Stjömuna.
Þá unnum við stóran sigur og eft-
ir það höfum við verið spurðar úr
öllum áttum hvort að við myndum
ekki vinna með tíu mörkum í dag.
Það skapaði taugaspennu. Mótið
hefur líka spilast þannig að bæði
lið hafa lengi beðið eftir þessum
degi. Hjá Fram átti enginn góðan
dag. Við áttum lengi góða mögu-
leika á að jafna. Ef það hefði tek-
ist hefði það sett mikla pressu á
Stjömuna og breytt gangi leiksins.
Margrét Theódórsdóttir,
Stjömunni
Við bmtum upp allar hefði fyrir
þennan leik. Við emm vanar að
hittast fyrir leiki og fá okkur te
saman, en því var sleppt í dag.
Við getum þakkað þennan sigur
fyrst og fremst baráttu og góðum
vamarleik. Með sterki vöm og
hraðaupphlaupum náðum við að
stjóma hraðanum í leiknum. Ég
átti hins vegar von á Framliðinu
sterkara. Við fengum aðeins á
okkur 12 mörk og Fram er um
70% af leiktímanum í sókn. Það
er góður árangur. Það fór um
mann á tímabili í síðari hálfleik
þegar þær drógu á okkur. Það er
ekki á hverjum degi sem lið hafa
5 marka forskot á Fram og það
skapaði taugaspennu hjá okkur.
Við vomm hins vegar búnar að
ræða þetta í hléi og stóðumst
pressuna.
Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram
Þetta var spennandi leikur, en
hjá okkur gekk fátt upp. Hlutirnir
vom ekki gerðir af nógu miklum
krafti og ákveðni. Vömin var t.d.
ekki eins og hún á að sér að vera,
það vantaði baráttuna.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
GETRAUNIR: 121 221 112 1 1 X
LOTTO: 1 2 11 25 29 / 32