Morgunblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 35 Morgunblaðið/Rax i'áðuneytinu og bifreið sem því fylgir ð þakkaði Steingrími vel unnin störf 't frá Tækniháskólanum í Illinois. kiá kkandi Landbúnaðarstefnan verð- ur auglýst gjaldþrota í haust -segir Jón Baldvin Hannibalsson JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði að stærstu mál þessarar ríkisstjórnar væru að stöðva útgjaldaþenslu í ríkisbúskapnum, ljúka samningum um álver og aðild íslands að evrópska efnahagssvæð- inu og nýta auðlindir landsins í ríkari mæli meðal annars með orku- sölu um sæstreng. Þá sagði hann að uppskurður yrði gerður í landbún- aðarmálum sem hann nefndi útför landbúnaðarstefnunnar. „Stærstu málin eru þau að nýta kjörtímabilið í heild til þess að stöðva útgjaldaþenslu í ríkisbúskapnum, lækka ríkisútgjöld, breyta fot'gangs- röðun þeirra, stokka upp ríkiskerfið og taka út úr því þætti sem þar eiga ekki heima, breyta ríkisfyrirtækjum í hlutafélög og selja hluti ríkisins þar sem samkeppni nýtur við. Þetta er stóra verkefnið til þess að tryggja að skattar haldi ekki áfram að elta útgjöld með sjálfvirkum hætti. Sjálf- stæðismenn eiga að .hafa frumkvæði að þessu. Það á að nýta vannýttar auðlindir og byija að virkja fyrir austan. Það á að byggja upp öflugra dreifikerfi fyrir raforku, lúka samningum um Atlantsál, hraða undirbúningsstarfí fyrir vetnisframleiðslu. Það á í al- vöru að snúa sér að því að undirbúa og semja um, tæknilega og fjárhags- lega, orkusölu um sæstreng til út- landa. Alþýðuflokkurinn hefur frum- kvæði um þetta. Það á að stíga fyrstu skrefin í breytingarátt frá núverandi kvóta- kerfi sem er skömmtunarkerfi. Það er komið í ógöngur og það þarf að breyta því. Það er samkomulag um það í þessari ríkisstjórn að gera virkt það ákvæði í lögum um stjórn fisk- veiða að fiskistofnarnir eru sameign þjóðarinnar. En við ætlum að gera það hægt og rólega og ætlum ekki einhvetja kollsteypuleið. Fjórða stóra málið er að lúka samningum okkar við Evrópubanda- lagið, ná tollfrjálsum aðgangi fyrir sjávarafurðir sem mun bylta starfs- skilyrðum innlendrar fiskvinnslu. Það mun flytja vinnuna heim, draga úr útflutningi á hráefni sem gerir okkur kleift að byggja upp hátækni- matvælaiðnað undir íslenskum vöru- merkjum og greiða götu okkar inn á neytendamarkaði, auka vinnslu- virði og arðsemi í íslenskum sjávar- útvegi. Við eigum að hafa verkstjórn í þessu máli. Hvað svo sem líður örvæntingarfullum fréttum um að samningar um evrópska efnahags- svæðið séu í steik er ég afar bjart- sýnn á að þeir takist. Breyta þarf landbúnaðarstefn- unni. Hún verður auglýst gjaldþrota í haust, nánar tiltekið í september við sláturtíð, þegar 55 þúsund fjár verða felld ofan í fjöldagröf. Sú út- för verður útför landbúnaðarstefn- unnar. Halldór Blöndal bekkjarbróð- ir minn á að sjá um þá útför, ég ætla að vera viðstaddur," sagði Jón Baldvin. Hann sagði að óánægja hefði ver- ið meðal flokkstjórnarmanna í Al- þýðuflokki varðandi verkaskiptingu ráðherra hjá hluta flokksmanna. Fjórtán hefðu greitt atkvæði gegn tillögum sínum um ráðherra flokks- ins. Reyknesingum hefði þótt sinn hlutur of rýr með tilliti til þess að ,þeir unnu stærstan sigur í kosning- _unum. Þá hefðu virkir talsmenn ’flokksins í verkalýðshreyfingunni verið óánægðir með að ekki skyldi nást samstaða um að Karl Steinar Guðnason yrði ráðherra. Morgunblaðið/Sverrir Stefnuyfirlýsing undirrituð Stefnuyfirlýsing hinnar nýju ríkisstjórnar var undirrituð kl. 10 í gærmorg- un í Viðey af Davíð Oddssyni og Jóni Baldvin Hannibalssyni. Þeir sátu við borð, sem var í eigu Skúla fógeta Magnússonar. — Morgunblaðið/Árni Sæberg. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og Halldór Ásgrímsson fráfarandi sjávarútvegsráðherra ræðast við í sjávarútvegsráðuneytinu. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra: Byggt á þeim grunni sem hefur verið lagður ÞORSTEINN Pálsson nýskip- aður sjávarútvegs-, dóms- og Oddsson, irááherro. in Pálsson, reas. dóms- íálaráðherra Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. Eiður Guðnason, umhverfisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra. Jón Sigurðsson, iðnaðar og við- skiptaráðnerra Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðnerra kirkjumálaráðherra segir að við endurskoðun fiskveiði- stefnunnar, sem lögbundin er, verði byggt á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður. Hann segir að ekki sé á dag- skrá að taka upp leigugjald fyrir aflakvóta í sjávarútvegi. „Þetta starf leggst vel í mig. Það eru mikil verkefni sem þarna bíða. Það stærsta er að vinna að víðtækri sátt um fiskveiðistefn- una. Það verður hafist handa við að undirbúa endurskoðun hennar sem lögbundin er. Þar verður byggt á þeim grunni sem lagður hefur verið og fyrst og fremst miðað að því að skapa fasta umgjörð um fiskveiðistefnuna þannig að sjávarútvegurinn eigi að vita við hvaða aðstæður hann býr til næstu framtíðar. Það er mjög mikilvægt að ekki sé verið að hlaupa úr einu kerfi í annað á fárra ára fresti. Það leiðir til ringulreiðar og menn ná aldrei þeirri hagkvæmni við nýt- ingu auðlindarinnar, sem eigend- urnir, þjóðin, á kröfu á. Jafnframt verður farið að huga að ýmiskon- ar skipulagsbreygingum og mót- un heildstæðrar sjávarútvegs- stefnu," sagði Þorsteinn. Stefna Alþýðuflokksins hefur verið að taka upp leigugjald fyrir aflakvóta í áföngum. Þorsteinn hefur verið andvígur slíkum hug- myndum og sagðist vera óbreyttrar skoðunar. „Það er ekki mitt lausnarorð. Og Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ekki haft slíkt á dagskrá og það er ekki dag- skrárverkefni hjá okkur. En við höfum ákveðið að flokkarnir koma sameiginlega að þessari endurskoðun, og menn leitast við að ná sem víðtækastri samstöðu og sátt,“ sagði Þorsteinn. Um dómsmálin sagði Þor- steinn, að stærsta verkefnið sem þar blasti við væri að koma í framkvæmd aðskilnaði dóms- valds og framkvæmdavalds. Síðan væru þar í undirbúningi löggjöf á sviði réttarfars og fjöl- skyldumálefna og sifjaréttar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.