Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAI 1991
BfiERIJIST
Hjólsagarblöð
þau endast!
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 687222 -TELEFAX 687295
IVAKORTALISII
Dags. 7.5.1991. NR. 34
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8301
5414 8301
1192 2209
1486 2105
1564 8107
2013 1107
2675 9125
0314 8218
0342 5103
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka berúrumferð.
VERÐLAUN kr.5000.-
fyrirþann,sem nærkorti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.
Ármúla 28,
108 Reykjavík, sími 685499
@DEXI0N
MAXI-plastskúffur
varðveita smáhluti
r—j a—a tr i
l—10 tcr 10 1'
,—iir—io '0 1
Margar stœrðir
og litir
fyrirliggjandi.
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Stykkishólmur:
Guðrún Agn-
arsdóttir
ræðumað-
ur 1. maí
Stykkishólmi.
FYRSTI maí var hátíðlegur hald-
inn hér í Stykkishólmi eins og
að venju með hátíðarfundi í Fé-
lagsheimilinu kl. 14. Einar Karls-
son formaður Verkalýðsfélags-
ins flutti ávarp og stjórnaði sam-
komunni.
Lúðrasveit Stykkishólms eða
yngri hluti hennar, þ.e. 9-12 ára
börn, léku ýmis lög og marsa undir
stjórn Daða Þórs Einarssonar við
mikinn fögnuð áheyrenda.
Ræðu dagsins flutti Guðrún Agn-
arsdóttir íýrrum þingmaður og var
hún um gildi dagsins, samtaka og
hversu lengi verið væri að jafna
kjörin í þjóðfélaginu, hver svo sem
væri við stjórnvölinn. Benti á mörg
dæmi þessu til styrktar. Hún ræddi
um að þjóðfélagið hefði ekki efni á
að fólk gæti ekki lifað sæmilegu
lífi á daglaunum og þetta og annað
mætti bæta ef samtök með vilja
væru fyrir hendi. Bryndís Guð-
bjartsdóttir las upp. Og að seinustu
sungu þrettán félagar úr Lions-
klúbbi Grundarfjarðar nokkur lög
undir stjórn Friðriks Vignis Stef-
ánssonar sem einnig lék undir á
píanó. Friðrik er nú söng- og tónlist-
arkennari í Grundarfirði og hefur
þjálfað kórinn vel og söngurinn og
lögin ágæt. Var þetta góð heimsókn
enda vel fagnað af áheyrendum sem
klöppuðu svo dijúgt að kórinn söng
aukalag.
Á eftir bauð Verkalýðsfélagið
öllum sem mættu í kaffi og fínar
veitingar í Verkalýðshúsinu.
Og þannig lauk þessum góða
hátíðarfundi. - Árni
INNLENT
Frumkvöðlarnir að Kópavogsvikunni. Frá vinstri eru Sveinn Hjörtur Hjartarson, formaður atvinnumála-
nefndar Kópavogs, Daníel Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Kópavogs, Hrafn Sæmunds-
son, atvinnumálafulltrúi Kópavogs og Helgi Baldursson, formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Kópavogs.
Kópavogsvika hefst í dag:
Athygli vakin á at-
vinnulífi bæjarins
KOPAVOGSVIKA hefst í dag og
stendur fram á sunnudag.
Ahersla verður lögð á atvinnulíf-
ið, bæjarfélagið og æskuna í
bænum. Hápunktur vikunnar
verður sýningin Kópur ’91 sem
verður á laugardag og sunnudag.
Sigurður Geirdal bæjarstjóri set-
ur Kópavogsvikuna í Bókasafni
bæjarnins klukkan 17 í dag.
Atvinnumálanefnd Kópavogs og
Iðnþróunarfélag Kópavogs hafa
unnið að því að gera þessa Kópa-
vogsviku að veruleika. Að sögn
Sveins Hjartar Hjartarsonar, form-
anns atvinnumálanefndar Kópa-
vogs er Kópavogsvikan ætluð til
að vekja athygli á atvinnulífi í
Kópavogi og kynna æskunni í bæn-
um atvinnulíf bæjarins. Samstarf
hefur verið um ýmislegt þessari
viku viðkomandi við nemendur skól-
anna í Kópavogi.
Nemendur Menntaskólans gerðu
viðamikla skoðanakönnun meðal
íbúa Kópavogs, meðal annars um
neysluvenjur Kópavogsbúa.
Sérstök atvinnuvegakynning
verður fyrir nemendur grunnskóla
Kópavogs laugardaginn 11. maí og
myndlistarsamkeppni, sem tengist
atvinnumálum bæjarins, var haldin
í grunnskólunum og verður haldin
sýning á þeim verkum sem bárust.
Æskufólki er boðið að mæta við
sælgætisgerðina Freyju á fimmtu-
daginn klukkan 10 árdegis. Farið
verður í hjólreiðaferð að Hvelli í
Skemmuhverfi. Öllum verður boðið
uppá góðgæti auk þess sem nokkr-
ir heppnir fá reiðhjól þegar komið
er á áfangastað.
Skólasundmót verður haldið,
siglingar verða sýndar og margt
annað verður gert fyrir æsku bæjar-
ins.
Á morgun verður sérstakur
kynningarfundur um skipulag
Kópavogsdalsins þar sem bæjarfull-
trúar mæta auk fulltrúa frá þeim
sem unnið hafa að hönnun dalsins.
Rúsínan í pylsuendanum verður
sýningin Kópur ’91 sem hefst í
íþróttahúsinu í Digranesi á laugar-
daginn klukkan 10 árdegis. Þar
munu rúmlega 60 fyrirtæki og þjón-
ustuaðilar sem tengjast Kópavogi,
kynna starfsemi sína.
„Atvinnustarfsemi í Kópavogi er
blómleg og bærinn er ekki lengur
svefnbær, heldur lifandi samfélag
með íbúum og fyrirtækjum,“ sagði
Sveinn Hjörtur Hjartarson.
Ýmsar uppákomur verða á sýn-
ingunni. Fluguhnýtingar verða
sýndar, gestir geta látið litgreina
sig, hárgreiðslusýning verður á
svæðinu og kennarar úr Hótel- og
veitingaskóla íslands munu sýna
hvernig á að leggja á borð, en skól-
inn mun flytja í Kópavoginn á næst-
unni. Fulltrúar frá „Grænu fjöl-
skyldunum" verða þarna, Leikfáag
Kópavogs tekur þátt í sýningunni
og nemendur Menntaskólans í
Kópavogi verða með ýmsar uppá-
komur.
Kópavogsvikan:
Litaðar götur í Smiðjuhverfi
MERKING gatna í Smiðjuhverfi í Kópavogi hefur oft valdið rugl-
ingi og óþægindum. Menn hafa reynt að finna viðunandi lausn en
ekki hefur náðst samkomulag um aðferðir. Nú hefur það hins vegar
tekist og verða göturnar auðkenndar með litum.
í tengslum við Kópavogsvikuna
hefur merking á götum í Smiðju-
hverfi verið endurskoðuð. Núna
verða göturnar aðgreindar með
mismunandi litum. Númer húsanna
og skiltin sem vísa inn í göturnar
verða í viðkomandi litum þannig
að auðveldara ætti að vera fyrir
fólk að rata þar.
Göturnar við Smiðjuveg hafa
verið auðkenndar með bókstöfunum
A, B, C, D og E, og Skemmuvegur-
inn með K, L, M, N. Göturnar
munu halda þessum bókstöfum en
að auki verða þær auðkenndar með
ákveðnum lit.
Smiðjuvegur A og B verða grá-
ar, C verður græna-gatan, D verður
rauða-gatan og E verður gula-gat-
an. Skemmuvegur K verður svört-
gata, L verður blá-gata, M verður
bleik-gata og N verður brún-gata.
Að sögn Daníels Hafsteinssonar,
framkvæmdastjóra Iðnþróunarfé-
lags Kópavogs, var haft samband
við flest öll fyrirtæki við þessar
götur áður en ákvörðun var tekin
um að auðkenna göturnar með
ákveðnum litum.
„Númerin á götunum hafa valdið
ruglingi og menn hafa Iengi reynt
að finna lausn á þessu. Um þessa
tillögu voru allir sammála, enda er
ekki verið að gera stórvægilegar
breytingar. Það kemur aðeins auka
kennileyti við göturnar þannig að
menn geta t.d. sagst vera við
grænu-götuna,“ sagði Daníel.
Nemendur við Menntaskólann í
Kópavogi gerðu mikla könnun á
neysluvenjum Kópavogsbúa og þar
kemur margt forvitnilegt fram.
„Það sem vekur einna helst at-
hygli við fyrstu sýn er að tæp 80%
aðspurðra telja sig vera Kópavogs-
búa og 55% segjast ekki vilja búa
annars staðar. Þá kemur í ljós að
tæp 56% fylgjast með bæjarmálun-
um með því að lesa bæjarblöðin.
Enn eitt kemur ef til vill mörgum
á óvart. Þegar spurt var um hvar
fólk keypti matvöru kemur í ljós
að .tæp 71% segist kaupa matvöru
að staðaldri í Kópavogi," sagði
Daníel.
Um 74% eru hlynntir því að fá
yfirbyggða verslunarmiðstöð í bæn-
um, en það stendur til að byggja
slíka miðstöð í Kópavogsdalnum og
menn geta séð teikningar af henni
á kynningarfund um skipulag dals-
ins í Fé.lagsheimili Kópavogs á
morgun.
Aðstandendur Kópavogsvikunn-
ar hafa einnig beitt sér fyrir útgáfu
atvinnuvegaskrár þar sem öll helstu
fyrirtæki bæjarins eru tíunduð.
Upplýsingar um hvert og eitt fylgir
auk götukorts af bænum. Þessu
hefti verður dreift til allra heimila
í bænum og einnig til allra fyrir-
tækja og stofnana.
Kort úr viðskipta- og þjónustuskrá Kópavogs þar sem lituðu göturn-
ar í Smiðjuhverfi eru sýndar.
4 F%
—4
4A
'■»8
2 r