Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 t Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, SVEINN KRISTÓFERSSON, frá Litla Bergi, Skagaströnd, lést á Héraðshælinu á Blönduósi fimmtudaginn 9. maí. Teitný Guðmundsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Margrét Guðbrandsdóttir, Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, RAGNAR Þ. GUÐLAUGSSON blikksmiður, Hátúni 10, andaðist í Borgarspítalanum 12. maí. Fyrir hönd aðstandenda. Kristín L. Guðjónsdóttir. t Móðir okkar, SIGURRÓS SVEINSDÓTTIR, fyrrum formaður Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði, lést á Sólvangi 13. maí. Sveinn Magnússon, Kristín Magnúsdóttir, Erna Fríða Berg. H TTT' T77T Kveðja: GuðmundurF. Þor- kelsson, Bjargi Fæddur 23. júní 1987 Dáinn 23. apríl 1991 Nú er elsku litli frændi og vinur okkar horfinn af þessum heimi. Okkur hlakkaði alltaf til að sjá hann og systur hans þegar við vor- um á leiðinni í sveitina góðu. Við eigum margar góðar minningar um Guðmund okkar. Til dæmis þegar við löbbuðum niður í fjöru og óðum í sjónum og tíndum söl. Við fórum stundum á hestbak á Lísuhól og það fannst Guðmundi gaman. En nú vitum við að Guðmundi litla líður vel uppi hjá Guði og við kveðjum lítinn frænda og vin með þessu versi: Hvi var þessi beður búinn, barnið kæra, þér svo skjótt? Svar af himni heyrir trúin hljóma gegnum dauðans nótt. Það er kveðjan: „Kom til mín!“ Kristur tók þig heim til sín. Þú ert blessuð í hans höndum, hólpin sál með ljóssins öndum. (B. Halld.) Elsku Haddý, Geir og Margrét litla. Megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfíðu tímum og trú á að birti upp um síðir. Samúðarkveðjur. Ninja Björk frænka og Nanna Björk. Þegar lítill drengur er óvænt burtkallaður úr þessu lífi, vaknar spurningin hvers vegna? Þá verður oft fátt um svör. En minningin um lítinn bjartan hrokkinkoll lifir áfram hjá okkur sem eftir sitjum með sorg í hjarta. Þótt ævin hafi ekki verið löng þá gaf hann okkur öllum sem þekktum hann eitthvað gott og dýrmætt. Ég sé fyrir mér fallega mynd af tveim systkinum sem leidd- ust í heimsókn til okkar sem bjugg- um á Sjónarhóli á sumrin. Ég minn- ist lítilla fóta sem trítluðu um tún og móa á eftir pabba eða mömmu í daglegum störfum, sem hann vildi fá að taka þátt í þótt ungur væri. Það er tilgangur með öllu í heimi hér og einnig með dauða lítils drengs, þótt erfitt sé að skilja það. En lífíð er eilíft og Guðmundur litli lifir áfram í nýrri veröld, umvafinn kærleika Guðs og þar þroskast hann áfram og hefur sitt hlutverk. Minn- ingin um hann gerir okkur öll ríkari. Elsku Haddý, Geir og Margrét litla. Við vottum ykkur innilega samúð okkar og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Þið eignuðust lítinn gimstein og þið eigið hann enn á himnum. Vort traust er allt á einum þér, vor ástarfaðir mildi. Þín náð og miskunn eilíf er, það alla hugga skyldi. í hveiju, sem að höndum ber, og hvað sem bágt oss mætir, þín hjálp oss nálæg ætíð er, og allar raunir bætir. (Páll Jónsson) Sigga og börn, Sjónarhóli t Ástkær eiginkona mín, móöir, tengdamóðir og amma, ÞORGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Háaleitisbraut 16, andaðist á heimili sínu mánudaginn 13. maí. Hólmsteinn Hallgrímsson, Sigrún Hólmsteinsdóttir, Richard Appleby, Guðmundur Hólmsteínsson, María Kristín Thoroddsen, Hallgrímur Óli Hólmsteinsson, Guðrún Hólmsteinsdóttir, Einar Erlingsson og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn og faðir, SIGURBJÖRN LEIFUR BJARNASON rafvirkjameistari, Jöklaseli 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju miðvikudaginn 1 5. maí kl. 15.00. Elínborg Sigurðardóttir, Svava Björg Sigurbjörnsdóttir, Kent L. Ellard, Eva Sigurbjörnsdóttir, Sigurður Bjarni Sigurbjörnsson, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir. t Áskær eiginmaður minn, JOHN FLEMMING HANSEN, Austurbrún 4, Reykjavík, lést þann 9. apríl sl. í Landspítalanum. Að ósk hins látna hefur minningarat- höfn farið fram í kyrrþey. Fjóla Tryggvadóttir og aðstandendur. t Eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, HRÓLFUR KR. SIGURJÓNSSON, frá ísafirði, Krummahólum 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 15. maí kl. 13.30. Njála Guðjónsdóttir, Sigurjón Hrólfsson Kristjana Jónsdóttir, Erla Hrólfsdóttir, Helgi Jóhannesson, Bára Hrólfsdóttir, Torbjörn Haug, Jóhanna Tómasdóttir, Þorsteinn Laufdal, barnabörn og barnabarnabörn. Baldvin Ólafsson, Akureyri - Minning Baldvin Ólafsson, góður æfínga- félagi okkar eldri drengja í Val, er fallinn frá í blóma lífsins. Hörmu- legt bílslys í Englandi 2. maí varð þess valdandi og okkur félaga hans setti hljóða. Minningar þyrluðust upp og við minntumst þess er Beggi eins og hann var kallaður, mætti fyrir nokkrum árum til æfinga hjá okkur í innanhússknattspyrnu. Þarna var hann þessi þrekni ljós- hærði Þórsari frá Akureyri og lét móðan mása um menn og málefni. Við minnumst eldmóðs og ákveðni sem geisluðu af honum, hann var fastur fyrir á leikvelli en fljótur að brosa og afsaka sig ef hann braut á mótheija. Ákveðnar skoðanir hafði hann á flestum hlutum og þurfti oft mikinn tíma til að ræða málin. Þessi ákveðni hans mun hafa hjálpað honum fyrr á lífsleiðinni, er hann gekk gegnum mikla erfið- leika og vann hann bug á þeim svo t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, lést á Hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 9. maí. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 16. maí kl. 15.00. Páll Jónsson, Svala Jónsdóttir, Sigurður Karl Sigurkarlsson, Sindri Karl Sigurðsson, Þórunn Sigurðardóttir, Anna Sigríður Sigurðardóttir. t Bróðir okkar, ÞÓRÐURJÓNSSON cand. mag., sem lést 7. þ.m., verður jarðsunginn frá nýju kapellunni í Foss- vogi miðvikudaginn 15. maí kl. 13.30. Jórunn Jónsdóttir, Bryndís Jónsdóttir, Halldór Ó. Jónsson, Guðrún S. Jónsdóttir, Þuríður J. Sörenssen. t Elskuleg systir mín og móðursystir, SIGRÚN MARIA SCHNEIDER, Reynimel 51, verður jarðsungin frá Kristkirkju, Landakoti, fimmtudaginn 16. maí kl. 15.00. Þeirh, sem vildu minnast hennar, er bent á Kristkirkju, Landakoti. Fyrrr hönd ættingja og vina, Lydia Schneider Jörgensen, Valgarð Jörgensen, Guðrún Barbara Tryggvadóttir, Guðjón Sigurbjartsson. til óstuddur. Nú á síðari árum blómstraði íþróttaáhugi hans. Hann stundaði innanhússknattspyrnu með okkur í Valsheimilinu en golfíð var alltaf skammt undan. Eftir æfingar fór oft mikill tíma í umræð- ur um golf og nú undir það síðasta talaði Beggi með mikilli tilhlökkun um væntanlega golfferð, sem síðan varð hans síðasta í þessu lífi. Beggi var þrátt fyrir góðan hug sinn til Vals, Þórsari og ekkert gat breytt því, hann var tryggur sínu félagi. Eldri drengjahópur Vals minnist góðs félaga með söknuði og sendir öllum aðstandendum og ástvinum innilegar samúðarkveðjur. F.h. knd. Vals, Hilmir Elisson. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SlMI 76677
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.