Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991 Jóhannes Jóhannesson Myndlist Bragi Ásgeirsson Á morgun, mánudaginn 27. maí, fyllir einn traustasti núlifandi málari þjóðarinnar, Jóhannes Jóhannesson, sjöunda áratuginn. Það hafa fleiri af okkar ágætu málurum fyllt þennan áratug á und- anförnum árum, án þess að þess hafi séð stað á opinberum vett- vangi, enda erum við Islendingar sér á báti á mörgum sviðum og þróunin um mannleg samskipti önnur en víðast hvar í álfunni. Hér segir einangrunin til sín. Sum merk tímaskil í lífí vina minna og samheija hafa þannig far- ið fram hjá mér eða ég uppgötvað þau of seint, sem mætti teljast nokk- uð eðlilegt, því að viðkomandi hafa verið í fullu fjöri í list sinni og starfi og langt frá því að sýnast svo aldn- ir, jafnframt því að afmælisdagar eru ekki mín sterkasta grein. En afmælisdegi Jóhannesar Jó- hannessonar gleymi ég síður, því að hann er nákvæmlega tíu árum og einum degi eldri en ég, og hefur það oftar en ekki orðið félögum okkar tilefni til skondinna athugasemda á stórafmælum beggja. Eg er þannig gerður að vilja veg þeirra sem mestan, sem hafa staðið í fylkingarbijósti í íslenzkri list, en andvaraleysi er því miður þjóðar- einkenni okkar á síðustu tímum, að ég segi ekki þjóðarlöstur, þannig að menn eru jafnvel mun mælskari á ávirðingarnar en sómann. Og í báð- um tilvikum vilja hlutirnir ganga út í öfgar. Minna og jafnara dettur mér í hug í þessu sambandi, og er það ein af fáum jöfnum, sem ég get verið sam- þykkur í þessu útjöfnunarþjóðfélagi. I gamla daga var meira lagt upp úr slíkum tímamótaafmælum lista- manna, sýningar voru haldnar þeim til heiðurs og barið í bumbur, sem er réttur gangur lífsins, enda hefur slíkt tíðkast um aldir alda í grónum samfélögum. Því þakka ber það sem vel er gert og hlú að heiðri og virðingu vina sinna. Jóhannes Jóhannesson er, svo sem allir innvígðir vita, einn af frum- kvöðlum óhlutlæga málverksins á íslandi, og var í framvarðasveit Septembersýningarhópsins forðum. Löngu seinna var hann einn aðal- hlekkurinn í hinum árlegu Septem- sýningum, sem nú hafa verið lagðar niður, eftir að hafa auðgað sýningar- flóru höfuðborgarinnar á hveiju hausti í 15 ár. Er Septembersýningunum var hleypt af stokkunum árið 1947, upp- hófust einhveijar mestu deilur sem hafa gengið yfir á vettvangi mynd- listarinnar hér á landi á öldinni. Um margt upplífgandi deilur en full hat- rammar og ómálefnalegar, enda var þessi nýi tjáningarháttur mörgum góðborgaranum skiljanlega fram- andi og skekkti, eða öllu heldur koll- varpaði viðtekinni fegurðarímynd. í dag er öldin önnur, en spurn er að því hvort listinni sé akkur að andvaraleysi tímanna, er öll tjáform hafa hlotið vissa viðurkenningu þó sitt sýnist hverjum svo sem fyrri daginn. Málefnaleg listumræða hefur ein- faldlega að mestu farið framhjá ein- Afmæliskveðia: Jóhannes Jóhann- esson listmálari í huga sjómannssonar er lífseig sú kennd að finnast allir skipsfélag- ar föður hans eða bræðra vera fé- lagar og vinir hans líka og allrar fjölskyldunnar. Ég held að þessi kennd hafí gert sig gildandi hjá mér gagnvart öllum hópi ungra listamanna, sem fengu far með flutningaskipinu Súðinni í febrúar 1949. Þar fóru saman í hópi söngv- arar og listmálarar og var ferðinni heitið til Ítalíu. Með í för var Ketill bróðir og einn af ferðafélögum hans var Jóhannes Jóhannesson listmál- ari og gullsmiður, sem er sjötugur á morgun, 27. maí. En það var fyrst seint á árinu 1951 að ég kynntist Jóhannesi, sem þá var alkominn til landsins eftir nám við Accademia di Belle Arti í Flórens á Ítalíu og dvöl í París. Hann, félagar hans og vinir höfðu það mikið seiðmagn, að ég varð fljótt eins og grár köttur' á vinnu- stofu hans í Kamp Knox, þessu mikla braggahverfi í vesturbænum, sem þá- var fullt af fjölskrúðugu mannlífi og list: Málaralist, tónlist og leiklist. Frá þessum tíma svífur enn í huga mér myndefni af barna- leikvelli hverfisins, sem Jóhannes tók til rækilegrar meðferðar í mörg- um myndum: Börn í rólum. Það ætti sannarlega að vera mörgum í árgöngum okkar Jóhann- esar til mikillar gleði að myndlist, sem fyrir 40 árum var að skapast í vinnustofum í Kamp Knox og síðar í misgóðu húsnæði víða um bæinn, hefur nú verið bundinn staður í góðum híbýlum margra samjanda, og í listasöfnum okkar, opinberum byggingum og bönkum. Jóhannes er fæddur undir þeirri heillastjörnu að sjá óskadrauminn um veglegt hús fyrir Listasafn ís- lands rætast á þann hátt að öllum er til sæmdar, sem að því stóðu. Hann lagði fram mikið starf með Selmu Jónsdóttur og mörgu öðru góðu fóiki til að láta þennan draum rætast. Listasafn Háskóla íslands hefur orðið mikill hvati fyrir þá sem þar starfa og ganga um garða. Það er alltaf sérstök ánægja að koma i salarkynni Lögbergs, hús lagadeild- ar Háskólans, og sjá þar kraftmikil myndverk eftir Jóhannes og Krist- ján Davíðsson. Það er leitt að dr. Albert C. Barnes hinum hugum- stóra og moldríka myndlistarfröm- uði Bandaríkjanna skyldi ekki auðn- ast að sjá, hve vel þessum tveim íslensku nemendum auðnaðist að ávaxta þá listmenntun, sem þeir sóttu til stofnunar hans í Fíladelfíu 1945. Kæri vinur: Þú tókst þannig til orða einhveiju sinni að „maður gæti nú verið að mála, þótt maður væri ekki með pensilinn". Mér hefur alltaf fundist hugverk úr formum og litum, sem við köllum málverk. Slík hugsmíð er dulúðarfull og á sér þróunarferil í sálarlífinu og áhrifum frá umhverfinu, sem oftast er erfitt að henda reiður á nema þá kannski fyrir suma innvígða. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN / Avallt mikið úrval af heilsuskóm, meðal annars fró Birkenstock, Ola-skóm, Tóp, Berkemann, Ara Fittnes og fleiri. erndið fæturna andið skóvalið Domus Medica, sími 18519 1212 5% staðgreiðsluafsláttur. Póstsendum. Kringlunni 8-12, sími 689212 Nokkru eftir upphaf geimflaugaald- ar og geimfara, þóttumst við sjá að þú og Þorvaldur Skúlason voruð ekki eins jarðtengdir í formsköpun og litameðferð og áður. Á fletinum fóru að birtast margskonar lithnett- ir og fjölbreytt kerfi af litgeislum. Þú gafst mér eina Spútnik-mynd til að gera mér kleift að fara í and- lega geimferð án þess að taka neina sérstaka áhættu. Mikið var að ske á þessum tíma. Þú rakst skartgripaverslun með verkstæði við Skólavörðustíginn og sá ég marga gripina verða til og skoðaði þá vandlega fullsmíðaða: Hringi, armbönd, hálsmen, bóka- hnífa, kaleika fyrir kirkjur, og silf- urhesta fyrir rithöfunda og skáld, sem valdir voru til verðlauna. I fyrstu hafði ég lítinn smekk fyrir þessum munum. Smátt og smátt fóru sumir gripirnir að vinna sér land í huga mér. Ég hef fyrir löngu gert mér grein fyrir því að silfur, gull og gimsteinar er kröfuharður efniviður fyrir listamann. Þrátt fyrir ýmsar annir varst þú allt í einu kominn í hálfgildings geimferð með menningarsendi- nefnd til Kína. Ég staldra við bréf frá þér í sept- ember 1961 skrifað í Hótel Peking. Þú segir: Nefnd frá Vísindaakadem- íunni í Peking á að gefa okkur stað- góðar upplýsingar um efnahagsþró- un Kína þau 12 ár sem liðin eru frá frelsun landsins. Síðan kemur í bréfínu ítarleg lýsing á uppbygg- ingu kommúnu, sem stofnuð var 1958 í nágrenni Peking og þið sendinefndarmenn heimsóttuð. Gaman væri að vita hvernig gengið hefur hjá blessuðu fólkinu. Vonandi hefur það ekki þurft að selja kron sitt og samband. Þegar þú komst úr þessu merki- lega ferðalagi hlaut vinahópurinn að skipa þér um tíma sess með stór- mennum eins og Marco Póló. Þegar ég horfi á líkneskið úr jaðisteini af fiskimanni, sem þú færðir mér frá Kína, vakna hjá mér ýmsar minn- ingar um veiðimennsku okkar á liðnum árum. Það hefur orðið nokk- urt hlé á stangaveiði okkar, þótt ég telji okkur ennþá fullfæra í íþróttinni. Ég tel mig þó síður fær- an núorðið til að detta í Þingvalla- vatn, eins og ég gerði við murtu- veiðar fyrir nokkrum árum að bestu vinum viðstöddum. Þegar ég hugsa til þess, hve margt ég hef fengið að sjá hjá þér, fæ ég stundum dálitla sektarkennd af því, hvað lítið þú fékkst að sjá af því, sem ég var að myndgreina í smásjánni. Eg hlýt þó að hafa sýnt þér ílöngu rauðu blóðkomin. Kæri vinur, við Erla óskum þér og Álfheiði, mömmu þinni og allri fjölskyldunni til hamingju með dag- inn. Ólafur Jensson Stykkishólmur: Reykj alundarkór- inn hélt tónleika Stykkisholmi. Reykjalundarkórinn í Mosfellsbæ undir stjórn Lárusar Sveins- sonar heimsótti Stykkishólm fyrir skömmu. Undirleikari var Ingi- björg Lárusdóttir. Söngskemmtun þessi var haldin í kirkjunni og sungu báðir kóram- ir, Reykjalundarkórinn og kirkju- kórinn í Stykkishólmi, enda var heimsóknin fyrst og fremst til hans. Jóhanna Guðmundsdóttir stjómaði kirkjukórnum en það hefur hún nú gert um langt skeið og vel til tekist. Reykjalundarkórinn söng 9 verk bæði innlend og erlend og síðar kirkjukórinn 5 lög bæði erlend og íslensk. Að lokum sungu báðir kórarnir saman og var það sannar- lega fjölmennur kór. Sungu þeir lag eftir Mozart og í lokin ísland ögrum skorið, eftir þá Eggert Ól- afsson og Sigvalda Kaldalóns, en þar áður voru tekin aukalög. Var sterkur rómur gerður að söng kóranna og verkum sem þeir fluttu og fóru áheyrendur ánægðir brott. - Árni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.