Morgunblaðið - 21.09.1991, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1991
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á fnilli
kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
lutMM tsuxswu Kiu
<2ír
VOC/
Dósakúlur um allan bæ.
Opiö:
Laugardagakl. 10-16
Sunnudagakl. 13-17
Virka daga kl. 9-18
Ifp -3
i—i i—ii—i i—i 1 1 BÓKAMARKAÐUR
HUNDRUÐ | \7 v
Barnabækur
Unglingabækur
íslenskur fróöleikur
Æviminningar
Viötalsbækur
Ljóöabækur
Þýddar skáldsögur
Ástarsögur
Sakamálasögur
Þaö ergaman að
lesa - og nú gefst
tækifærið að
eignast bækur á
einstöku verði.
BOKALAGERINN
Skjaldborgarhúsinu
Armúla 23
Vetrarstarf í Bústaðakirkju
Sunnudaginn 22. september hefst
vetrarstarf í Bústaðakirkju. Starfíð
verður fjölbreytt og líflegt og leitast
er við að allir megi í starfínu finna
eitthvað við sitt hæfi.
Barnastarf verður alla sunnudaga
klukkan 11.00 árdegis ogeru foreldr-
ar sérstaklega hvattir til þátttöku
með bömunum.
Almennar guðsþjónustur verða kl.
14.00. Félagar úr kirkjukórnum
munu syngja einsöng í messunum í
vetur. Þannigmun Kristín Sigtryggs-
dóttir syngja næstkomandi sunnu-
dag.
Starf aldraðra hefst með haust-
ferðalagi miðvikudaginn 25. sept-
ember. Aldraðir verða síðan á sam-
verum á miðvikudögum í vetur og
er starfið undir stjóm Áslaugar
Gísladóttur. Með henni starfar hópur
kvenna að fræðslu, handavinnu, spil-
um og sjálfsögðu ilmandi veitingum.
Þá er öldruðum boðið upp á fót-
snyrtingu á fímmtudagsmorgnum í
Safnaðarheimilinu og einnig hár-
greiðslu en tíma þarf að panta hjá
Aslaugu Gísladóttur.
Mömmumorgnar hefjast fimmtu-
daginn 3. október. Þar koma mæður
saman og eiga notalega samveru
með spjalli og kaffisopa og einnig
verða flutt fræðsluerindi. Enda þótt
nafnið höfði fremur til inæðra en
feðra, þá em þeir að sjálfsögðu vel-
komnir. Una Sveinsdóttir verður í
forsvari mömmumorgna.
Barna- og bjöllukórar verða starf-
andi í vetur undir stjórn organistans
Guðna Þ. Guðmundssonar og Ernu
Guðmundsdóttur. Þessir kórar verða
þátttakendur í helgihaldi safnaðarins
á margvíslegan hátt.
Þá er starf kirkjukórsins að helj-
ast en hann ber uppi safnaðarsöng
í almennum guðsþjónustum og tekst
auk þess á við stærri verkefni.
Þá er stefnt að því að halda áfram
með kirkjulega sveiflu með líkum
hætti og vinsæl var á síðasta vetri.
Einnig verða hljóðfæraleikarar ungir
sem eldri þátttakendur í helgihaldi í
vetur.
Fermingarstarfið hefst á næstu
dögum og verða fermingarbörrt skráð
í kirkjunni á þriðjudag milli klukkan
17.00 og 18.00. Þau fermingarbörn
sem eru í Réttarholtsskóla verða
skráð í skólanum.
Æskulýðsstarf unglinga verður á
sunnudögum síðdegis.
í vetur er einnig í ráði að bjóða
upp á kirkjukvöld, samverustundir
með tónlist og fræðslu, sem auglýst
verða jafnharðan.
Kvenfélag Bústaðasóknar hefur
þróttmikið starf sitt með félagsfundi
14. október. Síðan verða fundir ann-
an mánudag hvers mánaðar. Starf
félagsins hefur verið öflugt og heilla-
dijúgt í starfi kirkjunnar og eru kon-
ur sérstaklega hvattar til þess að
kyr.na sér starf félagsins.
Bræðarafélagið mun starfa á
sömu kvöldum.
Auk. þess er að framan greinir eru
starfandi mörg samtök og hópar í
kirkjunni, sem kalla fólk til starfa.
AA-samtökin eru með samverur á
miðvikudagskvöldum og laugardags-
morgnum. Vinafélagið, samtök til
að bijóta upp einsemd fólks, eru með
fundi fyrsta mánudag í hveijum
mánuði.
Þá verður hjónanámskeið um miðj-
an október þar sem norskur maður,
Ejrvind Fröen, verður fyrirlesari.
Námskeiðin verða auglýst síðar og
þátttaka skráð í kirkjunni. Nám-
skeiðin eru í samvinnu við Fjöl-
skyldufræðsluna.
Það er von mín að sem flestir finni
sig heima í starfí Bústaðakirkju í
vetur og njóti þar blessunar Guðs til
uppbyggingar í lífi sínu og starfi.
Pálmi Matthíasson,
sóknarprestur.
Netaupptakan í Hvítá:
Stjórnir Veiðifélags Borgarfjarðar
og netamanna semja til þriggja ára
STJÓRNIR Veiðifélags Borgar-
fjarðar og Samtaka netaveiði-
bænda við Hvítá undirrituðu ný-
lega samning um upptöku neta
næstu þrjú ár. Netakaupasamn-
ingurinn hljóðar nú upp á 12 millj.
króna, en á þessu sumri greiddu
bergvatnsbændurnir og leigutak-
ar ánna 9.750 þús. kr. Það bætist
við samninginn nú, að öll net
beggja vegna brúarinnar við Bor-
garnes hafa einnig verið keypt
upp. Samningurinn er þó gerður
með þeim fyrirvara, að hann verði
samþykktur á félagsfundum sem
haldnir verða á næstunni. Þetta
kemur fram í nýútkomnu tölublaði
Veiðifrétta, sem er fréttabréf
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en
það leigir tvær ár á svæðinu,
Norðurá og Gljúfurá.
í blaðinu er einnig greint frá end-
urleigu SVFR á Norðurá og kemur
fram að SVFR borgar 32,5 millj.
króna fyrir ána á næstu vertíð.
Hækkunin er úr 29,8 millj. á líðandi
sumri og er haft eftir Jóni G. Bald-
vinssyni að af þeirri upphæð séu um
600.000 krónur vegna netakaup-
anna. „Gjaldskrárhækkunin á Norð-
urá verður um 10% sem verður að
teljast viðunandi þótt veiðin í sumar,
1.270 laxar, hafi ekki verið neitt til
að hrópa húrra fyrir. En ég vil ekki
hugsa þá hugsun til enda hvernig
ástandið hefði verið í Norðurá ef
netin hefðu verið niðri. Líklega hefði
veiðin orðið 7-800 laxar. Það er ekki
vafi í mínum huga að netakaupin
munu á næstu árum valda gerbylt-
ingu í laxveiðinni til hins betra í öll-
um Borgarfjarðaránum og mér finnst
næstum ótrúlegt að þessi langþráði
draumur laxveiðimanna skuli hafa
ræst á svo skömmum tíma,“ segir
Jón G. Baldvinsson.
Þótt öll kurl séu ekki komin til
grafar, eru menn nokkuð sammála
um að netaupptakan í sumar hafi
haft jákvæð áhrif á laxagöngur á
Borgarfjarðarsvæðið. Þverá og
Kjarrá voru nú efstar yfir landið með
tæplega 2.000 laxa veidda og Grímsá
hefur gefíð helmingi meiri veiði en
á síðasta sumri, á fimmtánda hundr-
að fiska. í Norðurá var veiðiaukning-
in 20 prósent og í Flóku, Gljúfurá
og Reykjadalsá var veiðiaukningin
einnig merkjanleg.
Bylgjan:
Dagskrársljóri ráðinn
HALLGRÍMUR Thorsteinsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Bylgj-
unnar í kjölfar skipulagsbreytinga sem gerðar hafa verið á útvarpsstöð-
inni. Jónas R. Jónsson verður framkvæmdastjóri dagskrársviðs Bylgj-
unnar og Stöðvar 2. Snorri Sturluson hefur verið ráðinn tónlistar-
stjóri Bylgjunnar og þá hafa tónlistarmennirnir Einar Örn Benedikts-
son og Sigríður Beinteinsdóttir verið ráðin til að vinna að dagskrár-
gerð á útvarpsstöðinni.
„Við ætlum að setja í gang gott oft fylgja sameiningu fyrirtækja eru
vetrarprógramm til að tryggja að horfnir. Það er mikill hugur í fólki
Bylgjan verði leiðandi stöð og það enda er reksturinn kominn á réttar
verða fjölmargir nýir liðir í dag- kjöl,“ sagði Hallgrímur í samtali vic
skránni. Nú hafa Bylgjan og Stöð 2 Morgunblaðið.
hrist sig saman og þeir hnökrar sem
Tr ^ T32ár
Hressingarleikfími kvenna og karla
Haustnámskeið heQast fimmtudaginn 26. sept. nk.
Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og
Astbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.