Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.09.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1991 DAUÐINN Söguleg augnablik á örlaganóttu Meðfylgjandi myndir hafa ekki víða birst, en þær voru tekn- ar hina örlagaríku nótt er skrið- drekar freistuðu þess að brjóta 'a bak aftur varnir óbreyttra borgara sem höfðu slegið skjaldborg um rússneska þinghúsið í Moskvu er tilraun til valdaráns fór þar út um þúfur á dögunum. Eins og fram hefur komið í fréttum, féllu þrír menn er drekarnir sóttu að víg- girðingum og hér má sjá aðdrag- andann að því. Á fyrstu myndinni drífa nokkrir menn að drekanum og sjá að maður hefur orðið undir honum. Maðurinn iengst til hægri grípur um höfuð sér af skelfingu. Á næstu mynd hefur sá hinn sami stokkið til drekans og reynir kijúpandi að ná til mannsins. í sömu mund var drekanum ekið aftur á bak og maðurinn kramdist til bana, en hönd bjargvættarins festist í beltunum og sviptist af um öxl. Við þessa atburði trylltist fólkið og sótti mjög að drekanum með gijótkasti og mólótoff-bomb- um. Styggðust þá piltarnir í víg- vélinni og hófu skothríð. Féllu þá tveir til viðbótar. Loks tókst fólk- inu að breiða dúk yfir drekann þannig að útsýni hermannanna skertist nær algerlega og þeir hörfuðu með hraði. Lausnin er: Enzymnl JNýtt í Evrópu | BEngin hárígræðsla . aEngin gerfihi' p-- EURO-HAIR á Islandi ■ Engin lyfjameðferð ■ Einungis tímabundin notkun Eigid hár med hjálp lífefna-orku SSSa?**. ® 91 -676331e.ki.i6.oo NAUSTKJALIARINN i. Einkaumboð á íslandi: Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 Armula 29 • Rcykiavik ■ Simi 38640 Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Önnu Vilhjálms var vel fagnað í lok sýningarinnar. Fyrir aftan hana eru dansararnir Jóhannes Baclimann, Guðbjörg Jakobsdóttir, Ólöf Björnsdóttir og Ragnar Sverrisson og söngvararnir Bjarni Arason, Berti Möller, Stefán Jónsson og Einar Júlíusson. Lengst til hægri sér í Þorleif Gíslason saxafónleikara í Lúdó-sextett. Þijátíu ár í sviðsljósinu TÍSKU SÝNING IKVOLD KL 21 Cfiii H€RRflRIKI SNORRABRAUT 56 x 13505 14303 Rebekka Glæsibæ Aörar korkvörutegundir á lager: Undirlagskork i þremur þykktum Korkvélapakkningar i tveimur þykktum Gutubadstofukork Veggtötlu-korkplötur i þremur þykktum Kork-parkett venjulegt, i tveimur þykktum KRAFTUR Gamalt brýni lætur ekki deigan síga Gamla brýnið og hjartaknúsarinn Douglas Fairbanks yngri lætur ekki deig- an síga þótt kominn sé á níræðisaldurinn, en hann gekk í það heilaga fyrir skömmu og er eiginkona hans nokkrum áratugum yngri. Eiginkonan heitir Vera Shelton og er markaðsfulltrúi hjá kapalsjónvarpsstöð. Hun er þriðja kona Fairbanks. Ferill Douglas Fair- banks yngri er orðinn langur og spannar frá þriðja áratugnum og fram á þennan da. Hann er nú 81 árs gamall. Fyrsta kona hans var Joan Crawford, en sú sæla stóð aðeins í fjögur ár. Önnur kona hans var Mary Lee Epling, en þau voru far- sællega gift í 49 ár, en hún lést árið 1988. Vera Shelton er því þriðja kona kappans eins og að framan er getið. Douglas Fairbanks hefur verið kenndur við fleiri frægð- arkvendi í vesturheimi og má nefna Mariene Dietrich, Katherin Hepurn og Dolores Del Rio. Karlinn er nú að mestu sestur í helgan stein í heimaborg sinni New York. Hann var nýlega spurður hvort að ekki væri von á æviminningum hans. Hann svaraði því þannig, að lengi vel hefði hann fært dagbækur, en eftir nokkur ár hafi hann áttað sig á því að hann sagði aldrei allan sannleikann af ótta við að einhver kynni að lesa bækurnar síðar meir. Þar með hafi verið Ijóst að dagbæk- urnar voru ekki heiðarlega færðar og því hefði hann hætt að rita í þær. Douglas Fairbanks og brúður hans Vera Shelton. Kork-o-Plast Sænsk gæðavara KORK-gólfflísar meö vinyl-plast-áferð Kork-o-Plast: í 10 gerðum Skemmtanir Sveinn Guðjónsson Söngkonan Anna Vilhjálms hef- ur að undanförnu fagnað 30 ára starfsafmæli sínu með söng- skemmtun í veitingahúsinu K-17 í Keflavík. Undirtektir hafa verið afar góðar og vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að efna til aukasýningar laugardag- inn 5. október n.k. Að sögn for- svarsmanna sýningarinnar er ennfremur fyrirhugað að efna til sýninga úti á landi, þar eð ýmsir aðilar hafi lýst áhuga á að setja upp sýninguna. Tíðindamaður síðunnar var við- staddur frumsýninguna í Kefla- vík fyrir nokkru þar sem söng- konan vann hug og hjörtu við- staddra enda fór hún á kostum og skipti þá engu hvort hún fór með rólegar ballöður, villtasta rokk eða sígilda sveitasöngva. Bjarni Dagur Jónsson rakti feril Önnu í bland við söng hennar auk þess. sem söngvararnir Stef- án Jónsson, Bjarni Arason, Berti Möller og Einar Júlíusson tóku lagið, ýmist einir sér eða í dúett með Önnu. Allir þessir aðilar stóðu sig með prýði svo og hljóm- sveitin, Lúdó sextett, að ógleymdum dönsurunum, sem rokkuðu upp um alla veggi. Meðal gesta á frumsýningarkvöldinu voru dætur Önnu, þær Anna Margrét og Hrefna Harðardætur. A milli þeirra mæðgnanna má sjá Einar Júlíusson söngvara. Ekki er ástæða til að rekja hér í smáatriðum gang sýningarinn- ar því sjón og heyrn er sögu rík- ari. I lok sýningarinnar afhenti umboðsmaður Ónnu, Kolbrún Hjartardóttir, söngkonunni fyrsta eintakið af nýrri hljóm- plötu sem gefin hefur verið út í tilefni 30 ára starfsafmælis hennar. Þar er að finna bæði gömul lög og ný, meðal annars syrpu af lögum sem Anna hefur verið þekktust fyrir í gegnum tíðina. Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningarkvöldinu í K-17 í Keflavík. Veggkork í 8 gerðum. Ávallt til á lager fclk í fréttum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.