Morgunblaðið - 24.10.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
Grunur um íkveikju íNorska húsinu í Heiðmörk
Morgunblaðið/Ingvar
Slökkviliðið var kallað að hinu svokallaða Norska húsi í Heiðmörk um
kl. 17.40 síðdegis í gær. Logaði þá verönd hússins og eldur var laus
í stofu. Töluverður eldur var í húsinu en greiðlega gekk að slökkva
hann og tókst að bjarga hluta hússins. Grunur leikur á að kveikt
hafi verið í húsinu. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur nú mál þetta
til rannsóknar en er slökkviliðið kom á staðinn voru för á húsinu eins
og eftir byssukúlur og vitni segjast hafa orðið vör við mannaferðir
við húsið skömmu áður en eldsins varð vart. Eldsupptök voru á ver-
önd hússins að suðvestanverðu en þaðan breiddist eldurinn út í stof-
una. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu voru skemmdir á hús-
inu talsverðar, eldskemmdir á verönd og í stofu en hita og reykskemmd-
ir í öðrum herbergjum. Húsið var reist árið 1950 en það er í eigu
Normannslaget. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að menn hafí
verið yfirheyrðir hjá RLR í gærkvöldi vegna gruns um íkveikjuna en
það fékkst ekki staðfest hjá rannsóknarlögreglumönnum.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Allur fiskur á markað
yki fer skfiskútflutning
Heyrir undir sjávarútvegsráðuneyti en ekki utanríkisráðuneyti
ÞORSTEINN PáJsson sjávarútvegsráðherra segir að spurningin um
fisksölu á innlendum markaði heyri alfarið undir sjávarúlvegsráðuneyt-
ið en ekki utanríkisráðuneytið. Sjávarútvegsráðherra sagði þetta þegar
Morgunblaðið spurði hann álits á tillögu Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra þess efnis að sú meginregla verði tekin upp að fisk-
ur sem veiddur er á íslandsmiðum verði boðinn til kaups innanlands.
Tillagan hefur verið kynnt í ríkisstjórn, en afstaða til hennar hefur
ekki verið tekin.
Kaupskipadeílan:
Hásetar neita
viðræðum
vegna verk-
fallsbrots
HÁSETAR á kaupskipum neituðu
í gær að ræða við viðsemjendur
sina á sáttafundi hjá ríkissátta-
semjara vegna meints verkfalls-
brots í fyrrinótt en þá var kaup-
skipið Haukur, í eigu skipafélags-
ins Ness, fært frá Hafnarfirði til
Reykjavíkur. Aðalfundur Sjó-
mannafélags Reykjavíkur sam-
þykkti einróma í gærkvöldi átykt-
un þess efnis að væri samningum
ekki lokið 15. nóvember yrðu
verkfallsaðgerðir hertar að mun.
Vinnveitendur neita að um verk-
fallsbrot hafi verið að ræða. Nýr
fundur hefur ekki verið boðaður í
deilunni en verkfall háseta stendur
til föstudagskvölds og þá iekur við
yfirvinnubann. Hásetar hafa aftur
boðað verkfall 11.-15 nóvember nk.
Birgir Björgvinsson, stjómarmað-
ur í SR, sagði að skipið hefði verið
fært úr Hafnarfirði tii Reykjavíkur
í leyfísleysi. Það væri brot á þeim
reglum sem giltu í verkfalli. Vinna
hófst síðan við skipið í Reykjavíkur-
höfn í gærmorgun en Dagsbrúnar-
menn stöðvuðu strax vinnu við það
er þeim var gerð grein fyrir hver
kyns væri. Sjómenn myndu ekki
ræða við kaupskipaútgerðir fyrr en
Haukur væri aftur kominn til Hafn-
arfjarðar.
Jón H. Magnússon hjá Félagi
kaupskipaútgerða sagði að þeir litu
ekki svo á að um verkfallsbrot væri
að ræða. Það hefði enginn háseti
úr SR verið um borð í skipinu og
það væri alvanalegt að skip væru
færð milli hafna án þess að öll áhöfn-
in væri um borð. Aðspurður um
hvort skipinu yrði siglt aftur til
Hafnarfjarðar sagðist hann ekkert
geta sagt til um það. VSÍ stjómaði
ekki rekstri skipafélaganna, þau
gerðu það sjálf.
Brids:
Guðmundur
og Þorlákur
spila á Italíu
GUÐMUNDUR Páll Arnarson og
Þorlákur Jónsson, munu taka þátt
í 16 úrvalspara bridsmóti á Ítalíu,
dagana 22.-24. nóvember.
Mótið fer fram í Campione á
Norður-Ítalíu, og hefur verið haldið
reglulega síðustu árin. Að jafnaði er
boðið til þess tíu erlendum bridspör-
um og sex ítölskum. Bridgesamband
íslands fékk boð um að senda eitt
paranna sem vann heimsmeistaratit-
ilinn í Yokohama á mótið og urðu
Guðmundur og Þorlákur fyrir valinu.
herra: „Aðilum vinnumarkaðarins
er mikill vandi á höndum að ná
samningum sem styrkja þá stefnu
sem aliir eru sammála um. Ríkis-
valdið verður nú eins og endranær
„Spuming um fisksölu er alfarið
mál sjávarútvegsráðuneytisins og
kemur utanríkisráðuneytinu ekkert
við," sagði sjávarútvegsráðherra, „en
þetta er hins vegar mál sem sjávarút-
vegsráðuneytið hefur verið með til
skoðunar. Eftir að ég tók þá ákvörð-
un að útvíkka verksvið sjávarútvegs-
mikilvægur aðili að kjarasamning-
um, bæði með beinum og óbeinum
hætti. Ég vil að það komi skýrt
fram hér við 1. umræðu um fjár-
lagafrumvarpið, að ríkisstjómin er
reiðubúin til viðræðna við aðila
stefnunefndarinnar, þá er það eitt
af verkefnum hennar að meta kosti
slíkrar tilhögunar og galla.”
Þorsteinn sagði að ýmislegt gæti
mælt með því að bjóða allan fisk til
sölu innanlands. „Á hinn bóginn,
verða menn að hafa það í huga, að
ef þetta yrði gert, myndu tvær mikil-
vinnumarkaðarins um frekari að-
gerðir til að lækka útgjöld ríkisins
og draga úr lántökum þess í því
skyni að stuðla að gerð ábyrgra
kjarasamninga.”
Einar Oddur sagði að VSÍ hefði
haldið því fram aðfyrirhuguð notk-
un ríkisins á peningum, samkvæmt
fjárlagafrumvarpi, væri svo mikil,
að við það yrði ekki unað. Fyrst
og fremst þyrfti að ná samkomu-
lagi um að minnka þessa peninga-
' notkun, til þess að vinna gegn við-
skiptahalla á næsta ári og stuðla
að lækkun raunvaxta. „Um þetta
vægar takmarkanir á útflutningi á
ferskum fiski, sem við höfum í dag,
falla út. í fyrsta lagi starfsemi Afla-
miðlunar og í öðru lagi útflutnings-
álagið sem skerðir kvóta þeirra sem
flytja út ferskan fisk. Það er því vel
hugsanlegt að breyting eins og þessi
leiddi til þess fið meiri óunninn fískur
yrði fluttur úr landi,” sagði Þorsteinn
Pálsson. Hann kvaðst því telja mjög
varhugavert að ana í að gera svona
breytingar, ef líkur væru á því að
sú yrði niðurstaðan.
„Það er ekki síst við þessar að-
stæður í dag, þar sem við höfum svo
takmarkað magn af fiski til ráðstöf-
unar að við verðum að fara að öllu
hafa menn ekki verið sammála og
því fagna ég mjög þessum ummæl-
um Ijármálaráðherra,” sagði hann.
„Ég er viss um að aðilar vinnu-
markaðarins taka þessu tilboði
fegins hendi og fara til viðræðna
við stjómvöld á þessum nótum.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
hefur einnig bent á nauðsyn þessa,
svo þar erum við sammála,” sagði
formaður VSÍ.
Sjá fréttir úr fj'árlagaræðu á
bls. 4 og miðopnu og frásögn
af umræðum á Alþingi á bls.
30.
með gát, því við verðum að tryggja
fiskvinnslunni sem mest hráefni,”
sagði sjávarútvegsráðherra.
Utanríkisráðherra:
Utlendur banki
mættiekki
halda þrotabúi
JÓN BALDVIN Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði á borgara-
fundi um Evrópska efnahagssvæð-
ið á Hótel Sögu í gær að ætti er-
lendur banki kröfu í þrolabú ís-
lenzks sjávarútvegsfyrirtækis,
gæti hann að sjálfsögðu gengið
eftír þeirri kröfu sinni, eins og
málum yrði háttað í EES. Hins
vegar væri fyrirvari íslands við
erlendu eignarhaldi í sjávarútvegi
afdráttarlaus, og bankinn mætti
ekki reka fyrirtækið, heldur yrði
umsvifalaust að selja eignina.
Á fundinum svöruðu Jón Baldvin
og Hannes Hafstein, aðalsamninga-
maður íslands í EES-viðræðunum,
fyrirspumum fundarmanna. Tveir
andstæðingar EES-samningsins,
Bjami Einarsson og Hannes Jónsson,
gerðu athugasemd við fundarformið,
þar sem Þröstur Ólafsson fundar-
stjóri meinaði þeim að halda rædur
og bað þá halda sig við fyrirspumir.
Jón Baldvin skýrði meðal annars
frá því að fyrir þau þijú þúsund
karfaígildi, sem Evrópubandalags-
ríkjum yrði leyft að veiða í íslenzkri
landhelgi, kæmi í raun ofgreiðsla af
hálfu EB. Á móti þeim ættu í raun
aðeins að koma 16.000 tonn af loðnu
samkvæmt íslenzkum reiknireglum,
en íslendingar fá 30.000 tonna
loðnukvóta við Grænland í staðinn
fyrir karfaígildin.
Formaður VSÍ:
Ríkisstj órnin réttir fram
sáttahönd í kjaramálum
FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráðherra, sagði þegar hann mælti
fyrir frumvarpi til fjárlaga, að ríkissfjórnin væri reiðubúin til við-
ræðna við aðila vinnumarkaðarins um frékari aðgerðir til að lækka
útgjöld ríkisins og draga úr lántökum þess í því skyni að stuðla
að gerð ábyrgra kjarasamninga. Einar Oddur Kristjánsson, formað-
ur Vinnuveitendasambands íslands, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að hann fagnaði því að ríkisvaldið rétti fram sáttahönd og að
aðilar vinnumarkaðarins ættu skilyrðislaust að ganga til samninga
á þessum grundvelli.
I ræðu sinni sagði íjármálaráð-
I
I
I
■
(
i
i
i
'