Morgunblaðið - 24.10.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991
31
Biskupsritari:
Eignamál
kirkjunnar
þarfnast end-
urskoðunar
í UMRÆÐUM á Alþingi um Ieigu
presta á íbúðarhúsnæði hefur
komið fram að sumir þeirra greiði
aðeins nokkrar krónur í leigu. Að
sögn Þorbjörns Hlyns Amasonar,
biskupsritara, á þetta einungis við
um þau prestaköll þar scm sami
presturinn hefur verið frá því
áður en lög um þessi mál tóku
gildi árið 1968.
„Þeir sem nú greiða aðeins fáar
krónur í leigu eru þeir sem tóku við
prestaköllum fyrir 1968 og er þetta
örlítil prósenta prestsetra. Fyrir 1968
var ekki greidd leiga heldur afgjald,
sem ekki hefur verið hækkað í sam-
ræmi við verðlag. En langflestir
prestar búa við núgildandi lög og
greiða því leigu samkvæmt þeim.”
Þorbjöm Hlynur segir kirkjunnar
menn vera ósátta við lög um íbúðar-
húsnæði í eigu ríkisins þar sem þau
eru látin ná yfír prestsetur. Hann
segir þá líta á þau sem sjálfseignar-
stofnanir.
„Þessi mál snerta því eignarmál
kirkjunnar og það þarf að skoða þau
í samhengi við önnur eignarmál
kirkjunnar. Það er ekki biskups-
embættið sem fer með leigu eða af-
gjaldsmál prestsetra heldur kirkju-
málaráðuneytið.”
„Miðað við þann kost sem prestar
hafa af sínum embættum og miðað
við það að þeir leggja heimili sín
undir störf sín, þá er núverandi fyrir-
komulag síst of rausnarlegt hvað
presta varðar,” segir Þorbjöm Hlyn-
ur.
Aðspurður sagði Þorbjörn Hlynur
þessi mál ekki vera á dagskrá yfir-
standandi kirkjuþings.
Krónaí
húsaleigu
KRISTINN H. Gunnarsson (Ab-
Vf) telur að sýslumenn og prest-
ar njóti stundum góðra leigu-
kjara. I upplýsingum sem þing-
maður aflaði sér í allsherjar-
nefnd kemur m.a. fram að leiga
á sex prestsetrum er 1 króna.
Kristinn H. Gunnarsson kvaddi
sér hljóðs í umræðum um frumvarp
til fjárlaga fyrir árið 1992. Það kom
m.a. fram í hans ræðu að hann vildi
gleðja og aðstoða fjármálaráðherra
í því verki að afla ríkissjóði tekna.
Þingmaður taldi vissa möguleika
felast í endurskoðun á húsalegu til
veraldlegra og geistlegra embættis-
manna; sýslumanna og presta.
Kristinn hafði aflað sér nokkurra
upplýsinga í allshetjarnefnd um
húsaleigu sem fyrrgreindir embætt-
ismenn reiddu fram. í þessum upp-
lýsingum kemur m.a. fram að
hæsta húsaleiga sem sýslumaður
greiðir er í Stykkishólmi, 19.626
kr., en lægst er hún á Blönduósi,
11 kr. Á Bolungavík og Húsavík
er leigan 4.741 kr.
Þingmaðurinn lýsti samúð sinni
með prestastéttinni en taldi engu
að síður að ástæða væri til að skoða
leigu af nokkrum prestsetrum, t.d.
væri húsaleiga á sex prestsetrum 1
króna, Valþjófsstað, Kirkjubæjar-
klaustri, Saurbæ, Stafholti, Hofsósi
og Skútustöðum. Á þrem prestsetr-
um 2 kr., Eiðum, Holti og Breiða-
bólstað. í gögnum þingmannsins
kemur fram að hæst er leigan í
Grindavík, 11.320 krónur.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði leigu embættisbústaða
heyra undir hin ýmsu ráðuneyti en
lögð hefðu verið drög að því í fjár-
málaráðuneytinu að kalla eftir upp-
lýsingum um þessar tekjur. Hann
sagði spurningu hvort það væri
eðlilegt að ríkið greiddi niður húsa-
leigu fyrir suma embættismenn.
Skapast hefði hróplegt ósamræmi
og hér væru gffurleg fríðindi sem
í vissum tilvikum yrðu að teljast
óeðlileg.
Islenskur
skinnaiðnaður:
Eldur í gömlu
Sútunarverk-
smiðjunni
ELDUR kom upp í afskurði af
skinnum sem geymdur var i skúr
við gömlu Sútunarverksmiðjuna
á Gleráreyrum í gærmorgun.
Eldurinn var slökktur á skammri
stundu og varð tjón lítið sem
ekkert.
Slökkviliðið vaf strax kallað á
staðinn. Þegar það kom að reynd-
ust starfsmenn íslensks skinnaiðn-
aðar hafa brugðist skjótt við og
höfðu þeir að mestu ráðið niðurlög-
um eldsins.
Skemmdir urðu litlar sem engar.
Talið er að neisti frá sjálfbrýn-
andi hnífum í verksmiðjunni hafi
komist í afskurðinn með þeim af-
leiðingum að eldurinn gaus upp.
Aðalfundur
Samtaka um
sorg og sorg-
arviðbrögð
AÐALFUNDUR Samtaka um sorg
og sorgarviðbrögð verður haldinn
í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju í kvöld, fimmtudagskvöldið
24. október kl. 20.30.
Á vegum samtakanna hefur verið
haldið uppi öflugu starfí undanfarin
misseri og fram til jóla verða haldn-
ir nokkrir fundir. Karólína Stefáns-
dóttir, fjölskylduráðgjafí, flytur fyrir-
lestur um missi við skilnað á fundi
7. nóvember. Opið hús verður hjá
samtökunum 21. nóvember og hinn
5. desember kemur sr. Sigfinnur
Þorleifsson, sjúkrahúsprestur á
Borgarspítalanum, og flytur fyrir-
lestur um sorg og sorgarviðbrögð.
Þá verður jólafundur haldinn 19.
desember.
Yfirlýsing
frá Lands-
banka Islands
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Hall-
dóri Guðbjarnasyni bankastjóra
Landsbanka íslands:
„í frétt Morgunblaðsins um
gjaldþrot Álafoss hf. sem birtist í
dag (bls. 26) kemur fram að Lands-
bankinn hafí tapað 460 milljónum
króna vegna gjaldþrots fyrirtækis-
ins. Orðrétt segir í frétt blaðsins:
„I búið var lýst 156 almennum
kröfum, sem bústjórar tóku ekki
afstöðu til, þar sem ljóst var að
ekkert kæmi upp í þær, en þar má
nefna kröfur frá Landsbanka ís-
lands sem nema tæplega 460 millj-
önum króna...”
Þessi staðhæfíng um tap bankans
er röng. Samkvæmt mati bankans
mun tapið vera mun minna eða um
150 milljónir króna eins og áður
hefur komið fram í fjölmiðlum. Á
árunum 1989 og 1990 lagði bank-
inn til hliðar sömu fjárhæð til að
mæta slíku tapi.”
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Löndunarbryggjan lagfærð
Endurbætur á hluta gömlu löndunarbryggjunnar við Útgerðarfélag Akureyringa eru vel á veg komnar.
Þessi hluti bryggjunnar var afar illa farinn og því var ekki annað talið fært en gera bragarbót þar á. Settir
voru niður nýir burðarbitar og timburvirkið í bryggjunni verður allt endumýjað. Áætlaður kostnaður við
verkið er 11 milljónir króna.
Folda hf.:
Búið að safna hlutafé að
upphæð 62 miUjónir króna
BÚIÐ er að safna 62 milljónir króna hlutafé í Foldu hf., hið nýja
ullariðnaðrfyrirtæki á Akureyri, en heimild er fyrir að selja hlut-
afé í fyrirtækinu fyrir allt að 70 milljónir króna. Stjórn Byggða-
stofnunar hefur ákveðið að leggja fram 12 milljóna króna hlutafé
og í kjölfarið mun Akureyrarbær auka hlut sinn um 10,5 miHjón-
ir. Fyrrum kaupendur Álafoss í Evrópu og Japan vilja eiga við-
skipti við Foldu og hafa pantanir fyrir næsta ár þegar borist. Þá
er verið að leita leiða til að selja á Rússlandsmarkað.
Baldvin Valdimarsson, fram- milljónir króna og sagði Baldvin
kvæmdastjóri Foldu, sagðist vera
ánægður með afgreiðslu Byggða-
stofnunar um að leggja hlutafé í
fyrirtækið. Þegar er búið að safna
62 milljónum króna hlutafé í hið
nýja fyrirtæki, sem tók við rekstri
Álafossverksmiðjanna af rekstrar-
félagi Landsbankans um síðustu
mánaðamót.
í kjölfar þess að Byggðastofnun
leggur fram 12 milljónir í fyrirtæk-
ið mun Akureyrarbær auka hlutafé
sitt um 10,5 milljónir, úr 19,5 millj-
ónum í 30 milljónir. Heimild er
fyrir sölu á hlutafé að upphæð 70
að nokkrir aðilar væru að skoða
málið, Glæsibæjarhreppur myndi
væntanlega kaupa hlutafé í fyrir-
tækinu og starfsfólk hefði einnig
lýst yfír vilja sínum um hlutafjár-
kaup.
Guðmundur Malmquist forstjóri
Byggðastofnunar segir að ákvörð-
unin um hlutafjárkaup stofnunar-
innar hafí verið tekin til að reyna
að halda þessari starfsemi í ullar-
iðnaði gangandi. Það hefði legið
ljóst fyrir að ef þessi tilraun tæk-
ist ekki yrðu hátt á ahnað hundrað
iðnverkamenn atvinnulausir á Ak-
ureyri. „Þessi sjónarmið lágu til'
grundvallar okkar afstöðu í mál-
inu,” segir Guðmundur.
Fyrrum kaupendur Álafoss í
Evrópu og Asíu hafa látið í ljós
vilja sinn að eiga viðskipti við Foldu
og hafa sýnishomapantanir þegar
borist til fyrirtækisins. Jafnframt
er verið að leita leiða til að koma
á sölu til Rússlands, en þó var
ekki reiknað með við stofnun fé-
lagsins að það yrði háð viðskipum
á markaði þar eystra. Baldvin
sagði að áhugi væri fyrir kaupum
á vöm félagsins í Rússlandi, en
spumingin snerist um hvemig þau
yrðu fjármögnuð eða hvemig koma
ætti í verð vömm sem kæmu í
vömskiptum. „Við munum að sjálf-
sögðu leita leiða til að koma á
sölu til Rússlands og emm að vinna
í því máli núna, en hvað verður
er ekki vitað nú,” sagði Baldvin.