Morgunblaðið - 24.10.1991, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÖBER 1991
A
Islenskur tónlistardagur 1991:
Utihátíð á Lækjartorgi
ÍSLENSKI tónlistardagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn
26. október. Upphaflegur tilgangur þess að halda sérstakan tónlistar-
dag var sá að vekja athygli á því tónlistarlífi sem dafnar í landinu,
hvort heldur er í starfi mótaðra tónlistarmanna eða hinna fjölmörgu
nemenda í tónlistarskólum en þeir munu vera nærfellt 9.000 um
þessar mundir.
Dagskrá Islenska tónlistardags-
ins í ár verður með sérstaklega
veglegum hætti, segir í fréttatil-
kynningu frá tónlistardagsnefnd.
Tónlistardagsnefnd Tónlistarband-
alagsins stendur að undirbúningn-
um og nýtur góðs stuðnings Reykja-
víkurborgar og íþrótta- og tóm-
stundaráðs. Söngatriði og fjöida-
söngur verða í fyrirrúmi þar sem
„Ár söngsins” verður sett þennan
sama dag. Gengið verður í skrúð-
göngu frá Hlemmi niður á Lækjart-
org og hefst gangan kl. 15.00.
Lúðrasveit Verkalýðsins verður í
fararbroddi og íjölmargir kórar
leiða fjöldasöng á göngunni niður
Laugaveginn. Á Lækjartorgi tekur
við skemmtun þar sem ýmsir helstu
tónlistarmenn og skemmtikraftar
þjóðarinnar koma fram. Þeir eru:
Kór Menntaskólans við Hamra-
hlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfs-
dóttur.
Hinir góðkunnu söngvarar Guð-
mundur Jónsson og Kristinn Halls-
son taka lagið við undirleik Hólm-
fríðar Sigurðardóttur.
Spaugstofufélagar við undirleik
Jónasar Þóris.
Hljómsveitin Ný Dönsk.
Dúett úr óperunni Töfraflaut-
unni. Undirleikari er Iwona Jagla.
Fjöldasöngur viðstaddra undir
stjórn Jóns Stefánssonar.
Stutt ávörp flytja Símon H.
ívarsson, formaður Tónlistarbanda-
lags íslands, og Valgeir Guðjóns-
son.
Kynnir verður Magnús Kjartans-
son.
Þeir sem fram koma gefa vinnu
sína.
Á laugardagsmorgni áettu borg-
arbúar ekki að láta sér bregða þótt
þeir vakni við lúðraþyt því þar eru
á ferðinni hópar úr lúðrasveitinni
Svani sem aka um borgina í vögnum
og leika á hljóðfæri sín. Með þessu
framtaki vilja þeir hvetja unga og
aldna til að minnast íslenska tón-
listardagsins og fylkja liði til hátíð-
arhaldanna síðar um daginn.
Opið hús í tónlistarskólum
Fjölmargir tónlistarskólar í
Reykjavík og úti á landi hafa opin
hús fyrrihluta tónlistardagsins og
gestum og gangandi er boðið að
koma í heimsókn og kynna sér
starfsemi sem þar fer fram. Kenn-
arar og nemendur leika jafnvel tónl-
ist og skýra fyrir gestum eðli hljóð-
færanna og tónlistarnámsins. Állir
sem hafa áhuga á að sjá hvað fer
fram í tónlistarskólunum eru hvatt-
ir til að mæta. Þeir skólar sem víst
er að Standi fyrir dagskrá eru:
Söngskólinn í Reykjavík:
Opið hús frá 14.30-17.00.
Tónskóli Sigursveins:
Opið hús í Hellsundi 7 frá 13.30-
14.30. Þaðan verður gengið saman
að Hlemmi. Einnig verður hljóðfær-
akynning í Hraunbergi 2 frá 13.00-
15.00.
Hafnarfjörður:
Kórar og tónlistarskólinn halda
saman tónleika í Þjóðkirkjunni.
Garður:
Opið hús í tónlistarskólanum.
Mosfellsbær:
Opið hús frá 10.00-12.00 í tón-
listarskólanum.
Akranes:
Tónleikar í Safnaðarheimilinu
Vinaminni. Samvinna kóra og lúð-
rasveita.
Stykkishólmur:
Opið hús í tónlistarskólanum.
Isafjörður:
Opið hús og tónleikar á klukku-
tíma fresti um daginn.
Bolungarvík:
Samvinna milli tónlistarskóla,
grunnskóla og kirkjukórs — sam-
söngur verður úti við ef veður leyfir.
Hvammstangi:
Opið hús í félagsheimilinu á veg-
um tónlistarskólans.
Sauðárkrókur:
Edda Erlendsdóttir leikur á tón-
Ieikum í tónlistarskólanum kl.
17.00.
Akureyri:
Tónfundur líkt og venjulega.
Húsavík:
Tónlistarskólinn verður með tón-
leika.
Borgarfjörður eystri:
Tónlistarskólinn og leikskóli
staðarins gangast fyrir skrúð-
göngu.
Seyðisfjörður:
Opið hús í tónlistarskólanum og
kaffiveitingar.
Hátíðartónleikar til styrktar
byggingu tónlistarhúss verða
haldnir í Háskólabíói sunnudaginn
27. okt. kl. 14.30. Á efnisskránni
eru verk eftir Dvorák, Mozart og
Prokofieff. Einleikari er Connie
Shih, en stjórnandi er Petri Sakari.
Tónleikarnir áttu upphaflega að
vera á íslenska tónlistardeginum
en voru færðir til vegna hátíðar-
halda dagsins.
Isafjörður:
Ráðstefna
um atvinnu-
mál kvenna
RÁÐSTEFNA um atvinnumál
kvenna á landsbyggðinni, verð-
ur haldin í Stjórnsýsluhúsinu á
ísafirði, helgina 26. og 27.
október næstkomandi.
Á ráðstefnuninni verður staða
kvenna hér og á Norðurlöndum
hugleidd, fjallað um átaksverkefni
á Austfjörðum, verkefni í ullar-
vinnslu og rætt um konur í land-
búnaði, segir í frétt frá undir-
búningshóp ráðstefnunnar. Að
loknu kaffihlé verður rætt um
stöðu kvenna á landsbyggðinni,
konur í fiskvinnslu og greint frá
tillögu að heimilisiðnaðarráðgjöf
og hugmyndum að gerð minja-
gripa.
Síðari dag ráðstefnunnar fara
fram almennar umræður og niður-
stöður verða kynntar úr vinnuhóp-
um. Frummælendur á ráðstefn-
unni verða Valgerður Bjamadóttir
Akureyri, Elísabet Benediktsdóttir
Reyðarfirði, Helga Thoroddssen
Selfossi, Helga Dóra Kristjáns-
dóttir Tröð, Unnur Kristjánsdóttir
Blönduósi, Aðalheiður Steinsdóttir
ísafirði, Snjólaug Guðmundsdóttir
Borgarfirði og Þorsteinn Geir-
harðsson arkitekt.
Ráðstefnan er öllum opin meðan
húsrúm leyfir.
Edda Erlendsdóttir
á EPTA-tónleikum
EDDA Erlendsdóttir píanóleikari heldur aðra píanótónleika vetrar-
ins á vegum EPTA (Evrópusambands píanókennara) í íslensku óper-
unni mánudaginn 28. október kl. 20.30. Þessi tónleikar verða um
leið útgáfutónleikar í tilefni útgáfu geisladisks með Ieik Eddu, sem
út kemur um sama leyti. Á geisladisknum, sem Skífan gefur út, leik-
ur Edda eingöngu píanóverk eftir C.P.E. Bach, en þetta er fyrsti
diskurinn með verkum eftir þennan höfund leikin á nútíma píanó.
Á fyrri hluta tónleikanna leikur Edda tvær sónötur og fantasíu eft-
ir C.P.E, Bach en á þeim síðari tuttugu valsa op. 9a og sónötu í
a-moll op. posth. 164 eftir Schubert.
49. þing Iðnnemasambands íslands:
Fagmennska til framtíðar
Edda Erlendsdóttir, sem fæddist
í Reykjavík, lauk námi sínu við
Tónlistarskólann í Reykjavík með
einleikaraprófi árið 1973, en aðal-
kennari hennar þar var Árni Krist-
jánsson. Ári áður hafði hún lokið
píanókennaraprófi. Edda hlaut
styrk til náms við Tónlistarháskól-
ann í París og lauk þaðan prófi
1978. Aðalkennari hennar var Pi-
erre Sancan, en auk hans hefur
Edda notið leiðsagnar Marie Franc-
oise Bucquet. Edda hefur haldið
fjölmarga tónleika og tekið þátt í
tónlistarhátíðum á íslandi, Frakk-
landi og flestum Evrópulöndum.
Hún hefur farið tónleikaferðir til
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna.
Hún hefur leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands, gert fjölda upp-
takna fyrir hljóðvarp og sjónvarp
og leikið inn á hljómplötu verk eft-
ir Schubert, Schönberg og Alban
Berg.
Edda Erlendsdóttir.
Edda hefur verið virkur þátttak-
andi í kammertónlist og átti frum-
kvæði að kammertónleikum á
Kirkjubæjarklaustri sl. sumar. Árið
1990 var Edda kosin' fulltrúi við
Yehudi Menuhin-stofnunina í París
þar sem hún er nú búsett. Hún
kennir við Tónlistarháskólann í Ly-
on.
Tónleikar Eddu verða að venju
endurteknir í Kirkjuhvoli, Garðabæ,
laugardaginn 2. nóvember kl.
17.00.
49. ÞING Iðnnemasambands ís-
lands verður haldið dagana 26.
og 27. október. Þingið sem ber
yfirskriftina „Fagmennska til
framtíðar” verður haldið á
Holiday-inn og verður þingið sett
kl. 9.00 laugardaginn 26. október
með ræðu formanns Iðnnema-
sambands íslánds.
Að því loknu munu gestir þings-
ins ávarpa það en það verða þeir
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og
Örn Friðriksson formaður Málm-
og skipasmíðasambands íslands,
varaforseti ASI og fyrrverandi for-
maður Iðnnemasambands íslands.
Á þessu 49. þingi Iðnnemasam-
bands íslands munu iðnnemar §alla
um kjaramál og iðnmenntun og
móta stefnu samtakanna í þeim
málaflokkum fyrir næsta starfsár.
Á þessu þingi verða einnig tekin
fyrir skipulagsmál samtakanna og
liggja fyrir þinginu tillögur að nýju
skipulagi Iðnnemasambandsins sem
munu hafa í för með sér mun nán-
ari tengsl iðnnema við sveinafélög-
um en verið hefur. Á þinginu munu
iðnnemar kjósa nýja forustu Iðn-
nemasambands íslands fyrir næsta
starfsár.
Á þinginu verða einnig flutt er-
indi. Á laugardag kl. 10.40 hefst
umijöllun um fagmennsku, gildi
hennar fyrir íslenskt samfélag og
gildi verknáms í samanburði við
bóknám, þróun verknámskennslu
og hvaða kröfur þarf að uppfylla
til að iðnnemar verði góðir fagmenn
að námi loknu. Málshefjendur verða
Sölvína Konráðsdóttir sálfræðingur
og Jón Hannesson formaður sveins-
prófsnefndar í húsasmíði. Að lokn-
um þessum umræðum og hádegis-
verði mun Benedikt Jóhannesson
fjalla um lífeyrissjóði, kosti þeirra
og galla.
Rétt til setu sem þingfulltrúar
eiga 107 iðnnemar. Þingið er hins
vegar opið til áheyrnar fyrir aila
sem vilja meðan húsrúm leyfir.
-------» ♦ «-----
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir vitn-
um að umferðaróhappi á Hafra-
vatnsleið þann 18. ágúst síðastlið-
inn.
Á blindhæð mættust grænn
Range Rover jeppi og ljós japanskur
fólksbíll. Jeppinn hafnaði utan veg-
ar og slasaðist fólk sem í honum
var. Fólksbillinn nam ekki staðar.
Skorað er á þá sem í fólksbílnum
voru að hafa tal af lögreglu.
FileMaker Pro8 Maeintesti
Þægilegt og öflugt verkfæri fyrir þá sem vinna úr upplýsingum.
Gerð spjaldskráa, lista, límmiða, viðskiptakerfa.
12 klst. námskeið um vinsælasta gagnasafnsforritið á Macintosh.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
©
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuö 1. mars 1986
»
Traust fyrirtœki sem tekur réttar
ákvarðanir, og er í góðu sambandi
við viðskiptavini sína. Það velur
traust, fullkomið og tœknilegt
símkerfi frá Goldstar.
Gæði, þœeindi OO tœkni. Rúmlega 800 fyrirtœki og stofnanir,
hafa kosið stmkerfi frá Istel.
GoldStcir
Örugg þjónusta.
Komdu við í Síðumúlanum, eða
sláðu á þráðinn.
Og tryggðu góðan árangur.
X
hu\
SIÐUMULA 37 SIMI 687570
Goldstar símkerfi, þar sem ekkert er gefíð efíir.