Morgunblaðið - 29.10.1991, Blaðsíða 25
MOKGUNBI.AÐIÐ þriðjudagur
29. OKTOBER 1991
Ktí
25
Morgunblaðið/KGA
Ragnar Hall borgarfógeti ávarpar fundinn. Á myndinni má einnig sjá frá vinstri Jóhannes Gunnars-
son, formann Neytendasamtakanna, Mariu E. Ingvadóttur, varaformann Neytendasamtakanna, Erlu
Þórðardóttur, félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg, Tryggva Axelsson, lögfræðingur í viðskiptaráðuneyt-
inu og Sólrúnu Halldórsdóttur, viðskiptafræðing Neytendasamtakanna.
Opinn fundur Neytendasamtakanna um fjármál heimilanna:
Landakotsspítali:
Yfir 90% sjúklinga ánægð
með hjúkrunarþjónustuna
YFIR 90% sjúklinga á Landakotsspítala eru ánægð með þá hjúkrunar-
þjónustu sem veitt er á sjúkraliúsinu. Þetta kemur fram í viðhorfs-
könnun sjúklinga til gæða hjúkrunarþjónustunnar sem unnin var á
spítalanum í vor en niðurstöður hennar voru kynntar á ráðstefnu
hjúkrunarfélaga, Hjúkrun ’91, sem haldin var á Hótel Sögu um helg-
ina.
Að sögn Ingibjargar Sigmunds-
dóttur, hjúkrunarframkvæmda-
stjóra, sem umsjón hafði með gerð
könnunarinnar, voru þrír mismun-
andi spurningalistar lagðir fyrir
sjúklinga, einn á legudeild, annar á
barnadeild en þriðji á dag- og
göngudeildum. Alls voru 356 spurn-
ingalistar afhentir en svör bárust
við 272, eða um 75%.
„Niðurstöðurnar voru mjög góðar
en í ljós kom að yfir 90% sjúklinga
eru afar ánægð með þá þjónustu
sem veitt er á Landakoti. Það kom
hins vegar í ljós að það þarf að
undirbúa útskrift af sjúkrahúsum
betur t.d. með aukinni fræðslu, nú
þegar alltaf er verið að stytta legu-
tímann,” sagði Ingibjörg í samtali
við Morgunblaðið.
Hún segir að komið hafi í ljós
að tæp 20% sjúklinga hafi ekki
fundist heimkoman eins og þau
bjuggust við. Sjúklingarnisr hafi átt
í erfiðleikum með ýmsar daglegar
athafnir og fundið fyrir meiri van-
líðan en þeir áttu von á, þegar heim
var komið. Ingibjörg segir að þetta
mætti bæta með aukinni sjúklinga-
fræðslu.
Bú 435 einstaklinga tekin Si
til gjaldþrotaskipta í ar ByMjng ráðstefnu-
NEYTENDASAMTÖKIN efndu til opins fundar um helgina þar sem
fjármál heimilanna voru til umræðu undir nafninu „Hvers vegna eru
gjaldþrot svo mörg”. Þar kom m.a. fram að afleiðingar gjaldþrots
geta verið mjög alvarlegar og að yfirleitt fáist lítið upp í gjaldþrot.
Ragnar Hall borgarfógeti og Erla
Þórðardóttir félagsráðgjafi hjá
Reykjavíkurborg, ræddu um stöðuria
í dag. Ragnar Hall lýsti gjaldþrotum
og hvernig þau mál beri upp hjá
þeim sem um þau fjalla. í máli hans
kom m.a. fram að 10-15% beiðna
um gjaldþrotaskipti komi frá sjálfum
aðilunum en hin 85-90% frá kröfu-
höfum. Það sem af sé þessu ári hafi
601 bú verið tekið til gjaldþrota-
skipta, þar af 435 bú einstaklinga.
Þetta sé 157 búum færra en á sama
í fyrra. Ástæðan fyrir þessari fækkun
gæti verið sú, að 1. september hafa
þeir sem óska eftir gjaldþroti orðið
að leggja fram 150 þúsund króna
tryggingu, sem ekki sé endurgreidd
nema nægilegar eignir séu að finna
í viðkomandi búi.
Erla Þórðardóttir talaði um félags-
legar afleiðingar gjaldþrota á fólk.
Hún sagði að mun meiri stuðningur
við ijölskyldur væri nauðsynlegur en
nú væri í boði. Sagði hún að í gjald-
þrotum einstaklinga væri um miklu
lægri upphæðir að ræða en hjá fyrir-
tækjum eða félögum, en félagslegar
afieiðingar væru engu að síður enn
meiri.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Gunnþór Guðmundsson og kona hans Ingveldur Björnsdóttir á heim-
ili þeirra.
Hvammstangi:
Spakmæli og þankabrot
húnvetnsks bónda á bók
Hvammstanga.
„ÉG HEF aldrei getað neitað mér að hugsa,” segir Gunnþór Guðmunds-
son, fyrrum bóndi í Dæli í Víðidal, en Hörpuútgáfan á Akranesi hefur
gefið út bók eftir Guðmund, sem ber heitið Óðurinn til lífsins — Spak-
mæli og þankabrot., bók sem í útliti og ekki síst að innihaldi minnir
á íslenskar útgáfur fyrri alda spekinga. Morgunblaðið sótti Gunnþór
lieim, en hann býr nú í snotru húsi, sem iiann og kona hans, Ingveldur
Björnsdóttir hafa byggt sér á Hvammstanga.
Gunnþór sagðist hafa í nokkur ár
hripað niður hugleiðingar. Bókin kom
út í vor og sagð Gunnþór, að við-
brögð við henni hefði orðið mun
meiri en hann hafði geta gert sér
vonir um. Bókin var m.a. kynnt af
Guðrúnu Ásmundsdóttur leikkonu á
heilsuvikum á Reykhólum og hefðu
ýmsir haft samband við sig frá þeirri
dvöl. Bókin, sem prentuð er hjá
Hörpuútgáfunni á Ákranesi, fæst í
bókaverslunum.
Óðurinn til lífsins er ekki fyrsta
bók Gunnþórs, því fyrir nókkrum
árum kom út bókin Ilorft til nýrrar
aldar, sem eru hugleiðingar um
ástandið í heiminum. Gunnþór hefur
kynnt sér ýmsar stefnur í þjóðmálum
og trúmálum. Hann hefur sent frá
sér greinar og ljóð í ýmis tímarit.
Er þessi hálfáttræði bóndi þannig
viðsýnni og ferskari í hugsun, er
margur hyggur. Einnig ræktai
Gunnþór heilsu sína með sundi og
gönguferðum. Aðspurður sagð
Gunnþór að ekki vær von á bók frá
sér í bráð, þó gæti allt gerst.
Karl.-
miðstöðvar skoðuð
STARFSHÓPUR á vegum samgöngu- og fjármálaráðuneytis og
Reykjavíkurborgar hefur verið skipaður til að kanna hvort grund-
völlur sé fyrir byggingu ráðstefnumiðstöðvar í Reykjavík þar sem
unnt verður að taka á á móti 350-1.000 ráðstefnugestum í einu.
Eru þessar hugmyndir í tengslum við áætlanir þessara aðila um
lengingu ferðamannatímabilsins.
Sólrún Halldórsdóttir viðskipta-
fræðingur Neytendasamtakanna
ræddi um lán. Hún sagði orsök gjald-
þrota vera m.a. að greiðslugeta lán-
taka væri ofmetin og að alltof há lán
væru tekin í of skamman tíma. Hún
sagði að um síðustu áramót hefðu
íslensk heimili skuldað um 172 millj-
arða króna. Einnig lagði hún áherslu
á nauðsyn fjárhagsráðgjafar fyrir
heimili.
Jón Magnússon formaður Neyt-
endafélags höfuðborgarsvæðisins og
Tryggvi Axelsson lögfræðingur í við-
skiptaráðuneytinu töluðu um hvemig
fækka ætti gjaldþrotum einstakl-
inga. í máli Jóns Magnússo'nar kom
m.a. fram nauðsyn greiðsluaðlögun-
ar, þ.e. að fólk gæti snúið sér til
skiptaréttar sem gæti heimilað
greiðsluaðlögun sem yrði til þess að
fækka gjaldrotum. Fólk fengi tæki-
færi til þess að greiða skuldir sínar.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra, Markús Örn Antonsson
borgarstjóri og fulltrúar úr fjár-
málaráðuneyti funduðu um málið
í gær. „Við viljum átta okkur á
því fyrir hve marga menn slík ráð-
stefnumiðstöð myndi verða og fyr-
ir hveija hún yrði reist. Athugunin
verður gerð í samráði við þá sem
starfa að ferðamálum. Hugmyndin
er með öðrum orðum að safna sam-
an þeim upplýsingum sem til eru
um nauðsyn slíkrar ráðstefnumið-
stöðvar,” sagði Halldór.
Hann sagði að tilgangur starfs-
hópsins væri að meta starfsskilyrði
ferðaþjónustunnar hér á landi.
Spurningin væri með hvaða hætti
unnt yrði að bæta samkeppnis-
stöðu íslenskrar ferðaþjónustu.
Hann sagði að starfshópurinn ætti
að skila af sér áliti sem allra fyrst.
MAZDA „E“ bílamir em tilvalin
lausn á flutningaþörf flestra fyrir-
tækja og einstaklinga. Þeir em sér-
lega rúmgóðir, þýðir og léttir í
akstri og fást í tveim útgáfum sem
pallbílar eða sendibflar.
Hægt er að velja milli bensín- eða
dieselvéla, sendibílamir em með
vökvastýri og læstu afturdrifi og
fást einnig með ALDRM.
Við eigum til afgreiðslu strax
nokkra af þessum afbragðsbílum á
mjög hagstæðu verði.
Pallbíll frá
kr. 843.000 ánVSK
kr. 1.050.000 m/VSK
Sendibíll frá____________
kr. 988.000 ánVSK
kr. 1.230.000 m/VSK
Öll verð em staðgreiðsluverð og
innifela ryðvöm og skráningu.
Hafið samband við sölumenn
okkar, sem veita fúsiega ailar nán-
ari upplýsingar.
5<5^3UrU l 6^9T7o