Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.01.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1992 29 Fyrri umræða fjárhagsáætiunar á þriðjudag: Morgunblaðið/Rúnar Þór í sílaleit Ungir og athafnasamir snáðar leita sér víða ævintýra. Félagamir tveir gerðu sér lítið fyrir og óðu út í sjóinn í dokkinni við Strandgötuna og ösluðu þar um í leit að sílum, sem þeir og fundu. Aætlimin sýnir að við er- um í sókn en ekki vörn - segir Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórnar FJÁRHAGSAÆTLUN bæjarsjóðs Akureyrar og stofnana verður tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Forsend- ur áætlunarinnar miðast við þriggja ára áætlun sem gerð var seinni hluta síðasta árs, en meginmarkmið hennar gerðu ráð fyr- ir að rekstrarkostnaður færi aldrei yfir 71% af tekjum bæjarins og þá var stefnt að því í áætluninni að lækka skuldir bæjarins, nema að því er varðar félagslegar íbúðabyggingar um 5% á ári og að rekstrarafgangi yrði varið til framkvæmda. Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórnar sagði að miðað væri við þessi markmið í fjárhagsáætl- un fyrir þetta ár, en óvissa vegna fyrirhugaðrar skattheimtu ríkisins vegna „bandormsins" svokallaða gæti vissulega sett strik í reikning- inn. Hann gæti kostað Akur- eyrarbæ allt að 40 milljónir króna, sem ekki hafí verið gert ráð fyrir við gerð fjárhagsáætlunar. Sigurð- ur sagði að vonast væri til að ljóst yrði fyrir síðari umræðu fjárhags- áætlunar, 4. febrúar næstkom- andi, hverjar álögur yrðu á sveitar- félögin vegna „bandormsins“ þannig að unnt væri að laga áætl- unina á milli umræðna. Helstu framkvæmdir sem ráðist verður í á árinu lúta að skóla- og öldrunarmálum. Reiknað er með að veija á milli 60 og 70 milljónum króna til öldrunarmála, m.a. með kaupum á sambýli fyrir aldraða, þá mun bærinn taka þátt í íbúða- byggingu aldraðra við Bugðusíðu auk þess sem gert er ráð fyrir að á árinu verði gengið frá kaupum bæjarins á kjallara Sjálfsbjargar- hússins, Bjargi, sem innréttaður verður sem þjónustumiðstöð í tengslum við byggingu íbúða fyrir aldraða þar. Hvað varðar skólamál verður um 50 milljónum króna varið til að ljúka byggingu kennsluálmu við Síðuskóla auk þess sem um 60 milljónir króna fara til bygg- ingaframkvæmda við Verkmennt- askólann. Þá er i fjárhagsáætlun gert ráð fyrir að byggja eina dag- vist á árinu og reiknað er með töluverðum framkvæmdum á sviði íþröttamáia, en samningar við íþróttafélög í bænum hljóða upp á sjötta tug milljóna. Reiknað er með að í ár verði keyptir bekkir í íþróttahöllina og að undirbúningur vegna endurbóta á Sundlaug Ak- ureyrar hefjist. „Þessi áætlun sýnir að við erum í sókn en ekki vörn, hér fjölgaði fólki umfram landsmeðaltal á síð- astliðnu ári og við erum að vona að Akureyri sé í sókn þrátt fyrir erfiðleika sem við okkur hafa blas- að í atvinnulífinu og þessi áætluií^ tekur mið af því. Það er langur vegur frá að svartnætti sé yfír þessari áætlun,“ sagði Sigurður. „Það er auðvitað mikilvægt að forsendur fjárhagsáætlunarinnar haldi, en þá er ljóst að við getum farið í töluverðar framkvæmdir á næstu þremur árum.“ Leikfélag Akureyrar: Saga leiklistar á Akureyri gefin út á 75 ára afmæli LA SAGA leiklistar á Akureyri eftir Harald Sigurðsson verður gefin út í tilefni 75 ára afmælis Leikfélags Akureyrar sem er hinn 19. apríl næstkomandi. Haraldur hefur unnið að efnisöflun í ritið í fjölda ára og verður það hafsjór fróðleiks um alla leiklistarviðburði á Akureyri í 132 ár. í útgáfustjórn bókarinnar eru Jón Kristinsson, Signý Pálsdóttir og Svavar Ottesen auk höfundar- ins sjálfs. Morgunblaðið/Rúnar Þór Léttklæddir við bílaþvott Fólki er gefínn kostur á að kaupa bókina í áskrift á mun lægra verði en í verslunum og fá um leið nöfn sín letruð í bókina sem sérs- takir styrktaraðilar. Þeir sem ætla að gerast áskrifendur að bókinni verða að hafa samband við miða- sölu Leikfélags Akureyrar fyrir lok janúar. Saga leiklistar á Akureyri verð- ur ítarlegt heimildarrit skreytt hundruðum mynda. Þar verður ekki einungis getið allra leikrita sem LA hefur sett á svið og ein- staklinga sem þar koma við sögu, heldur einnig allra gestaleikja á Akureyri og sýninga annarra félaga á svæðinu sem unnið hafa að uppsetningu leikrita allt frá fyrstu leiksýningum á Akureyri árið 1860 til væntanlegrar frum- sýningar á íslandsklukkunni í mars 1992. Frá aldamótum fylgir nær hveiju leikriti hlutverkaskrá, ljós- myndir og umsagnir úr bæjarblöð- unum og aftast er heildaryfírlit um allar sýningar LA og margvíslegar aðrar skrár. Þetta er saga þróunar, jafnt leik- listarinnar sem vaxtar bæjarins sjálfs, þar sem byijað var með tvær hendur tómar, en þetta hálfdanska þorp rétti úr kútnum og fékk kaup- staðarréttindi 1962. í kjölfar grósku bæjarins fylgdi leiklistin sem átti dijúgan þátt í menningar- lífí Akureyrar og hefur nú blómg- ast í fullgildu atvinnuleikhúsi. Messur á Akureyri AKUREYRARKIRKJA: Sunnu- dagaskólinn fer í heimsókn í Glæsibæjarkirkju á morgun, sunnudag. Farið verður á rútum frá Akureyrarkirkju kl. 10.40. Öll börn velkomin ásamt foreldrum sínum. Ferðin verður þátttakend- um að kostnaðarlausu. Messað verður í Akureyrarkirkju sunnu- dag kl. 14. Fermd verður í athöfn- inni Ásta Laufey Egilsdóttir, Mó- asíðu 4a. Bræðrafélagsfundur verður í Safnaðarheimilinu eftir messu. Æskulýðsfélagsfundur verður í kapellunni kl. 17. Bíbiíu- lestur verður í Safnaðarheimilinu á mánudag kl. 20.30. Sóknar- prestarnir. GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund í kirkjunni í dag, laug- ardag, kl. 13. Samkirkjuleg guðsþjónusta á sunnudag kl. 14 með þátttöku hvítasunnusafnað- ar, aðventista, Hjálpræðishers og rómversk-kaþólskra. Séra Halldór Gröndal predikar. Beðið fyrir einingu kristinna manna. Sr. Gunnlaugur Garðarsson. Það er létt yfír mönnum þessa blíðviðrisdaga og við liggur að veðrið hafí ruglað fólk svo í ríminu að það er farið að huga að því að setja niður kartöflur! Þessir ungu piltar dunduðu við það í góða veðrinu í gær að þvo bifreið sína og voru við þá iðju á stuttermabolum, sem telja verður fremur fátítt í janúarmánuði. rekstrar- GUNNAR Frímannsson hefur ver- ið ráðinn rekstrarstjóri við Tón- listarskólann á Akureyri. Gengið var frá ráðningunni á fundi stjórn- ar skólans á fimmtudag, að sögn Valgerðar Hrólfsdóttur, formanns stjórnarinnar. Valgerður sagði að jafnframt hefði verið ákveðið að Michael Jón Clarke yrði faglegur skólastjóri við skólann. Roar Kvam, sem ráðinn var skóla- stjóri síðastliðið vor, óskaði eftir leyfí frá störfum og hefur hann nú sett á stofn eigin tónlistarskóla, Tónmennt- askólann á Akureyri. Um þessar mundir eru því starfræktir þrír tón- listarskólar í bænum, þar sem annar einkaskóli, Hljómskólinn, var stofn- aður síðastliðið haust. Gunnar Frimannsson, sem verið hefur kennari við Menntaskólann á Akureyri undanfarin ár, mun taka við hinu nýja starfi innan skamms og gegna því út þetta skólaár eða til 1. ágúst næstkomandi. OPIÐ HÚS 18.-19. JANÚAR Laugardagur 18. janúar kl. 13.00-17.00. Sunnudagur 19. janúar kl. 13.00-17.00. Kynnt verður starfsemi Tölvufræðslunnar á komandi mánuðum t.d.: • SKRIFSTOFUTÆKNINÁMIÐ ásamt mörgum öðrum áhugaverðum námskeiðum. Komið og kynnið ykkur starfsemi Tölvufræðslunnar. ATH.: Sunnudaginn 19. janúar verður sérstök kynning á Windows og Windows-tengdum forritum. Innritun er hafin í síma 27899. Hafið samband og við sendum bækling. • Tölvunám „NÁM SEM NÝTIST" Allir velkomnir - veitingar Visa/Eurocard greiðslukjör. Tölvufræðslan Akureyri hf.f Glerárgötu 34, 3. hæð, 600 Akureyri, sími 27899. Tónlistarskólinn: Ráðinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.