Morgunblaðið - 21.02.1992, Qupperneq 4
4
ÍJÍH Qr-IvHiM-l K i..ii . i , , i . , 1.1 i. I / i. ,VK u/
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1992
Útlit fyrir 15% fækkun
afleysingastarfa í sumar
••
Markús Orn Antonsson segir að borgin muni grípa til ráðstafana
ÚTLIT er fyrir 15% fækkun sumarafleysingastarfa næsta sumar,
5% á höfuðborgarsvæðinu en 35% á landsbyggðinni, ef marka má
niðurstöður könnunar sem Þjóðhagsstofnun gerði í janúar. Markús
Örn Antonsson borgarstjóri segir að um leið og það liggi ljóst fyrir
hver þörfin verði fyrir afleysingastörf í sumar muni borgin grípa
til ráðstafana með aukafjárveitingu.
í könnun Þjóðhagsstofnunar voru
atvinnurekendur beðnir um að meta
þörfina fyrir sumarafleysingar. Út-
koman var um 10.800 afleysinga-
störf en það eru 15% færri störf
en mældist í atvinnukönnun sem
gerð var í apríl í fyrra.
Að sögn Markúsar Arnar Ant-
onssonar er gert ráð fyrir að með
vorinu þegar fyrir liggi hve mikill
fjöldi skólafólks óski eftir störfum
hjá borginni verði það tekið upp í
borgarráði. „Undanfarin ár hafa
aukafjárveitingar verið ætlaðar til
þessa og svo verður einnig nú. Það
er hins vegar erfitt að segja nokkuð
til um þróunina þó að það líti út
fyrir að framboð á vinnu verði tak-
markaðra en verið hefur undanfarin
sumur,“ sagði Markús Öm í sam-
tali við Morgunblaðið.
Að sögn Guðmundar Friðjóns-
sonar, viðskiptafræðings hjá Þjóð-
hagsstofnun, eru kannanir stofnun-
arinnar gerðar þrisvar á ári, í jan-
úar, apríl og september. Yfirleitt
hefur verið spurt um sumarafieys-
ingar í könnunum sem gerðar eru
í apríl. Nú var hins vegar spurt að
þessu í janúar að ósk félagsmála-
ráðuneytisins.
„Þetta kann að hafa haft áhrif á
niðurstöðumar þar sem atvinnurek-
endur em ef til vill ekki búnir að
meta nákvæmlega þörfína fyrir
sumarafleysingar," sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Á höfuðborgarsvæðinu mátu at-
vinnurekendur að þörf væri fyrir
um 8.150 sumarafleysingastörf,
sem er um 5% minnkun frá því í
fyrra. Á landsbyggðinni var mat
atvinnurekenda að þörf væri fyrir
um 2.660 sumarafleysingastörf,
sem er um 35% minnkun frá því í
fyrra. Aðallega fækkar í byggingar-
starfsemi og á sjúkrahúsum.
Guðmundur benti á að í því sam-
bandi yrði að taka tillit til þess
óvissuástands sem nú ríkti í sjúkra-
húsrekstri. Þar virtist ekkert víst
um hvað gerast myndi á morgun
og því erfitt að meta þörfina fyrir
starfsfólk næsta sumar.
VEÐURHORFUR I DAG, 21. FEBRUAR
YFIRLIT: Vfir Grænlandshafi er 970 mb djúp og víðáttumikil lægð, sem
þokast norðaustur. UM 600 km norðaustur af Nýfundnalandi er vaxandi
lægð, sem hreyfist allhratt austnorðaustur. Yfir Suður-Englandi er 1.034
mb. hæð.
SPÁ: Fremur hæg sunnan og suðaustan átt um allt land. Smá él sunn-
an- og vestanlands, en úrkomulaust norðan- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg suðaustan átt um land allt.
Snjókoma eða slydda sunnan- og austanlands en úrkomulaust að mestu
annarstaðar. Frost 0 til 2 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan og suðvestan átt víðast hvar. All-
hvöss um vestanvert landið en mun hægari annarsstaðar. Sunnan- og
. vestanlands verða él en úrkomulaust annarsstaðar. Frost 3 til 5 stig.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað
* / * * * *
* / * *
/ * / * * *
Slydda Snjókoma
Skýjað Alskýjað
v ^ ý
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
FÆRÐ A VEGUM:
Sæmileg færð er á Suður- og Vesturlandi, en í dag hefur gengið þar á
með hvössum éljum. Veðurstofa.n spáir áframhaldandi éljagangi i þess-
um landshluta í kvöld og nótt. Á sunnanverðum Vestfjörðum er þung-
fært milli Þingeyrar og Flateyrar. Ófært er um Botns- og Breiðadalsheið-
ar, en fært milli Bolungarvíkur og Súðavíkur. Éljagangur og skafrenning-
ur hefur verið á Hoitavörðuheiði í dag, en heiðin þó talin vel fær. Fært er
til Hólmavíkur og Drangsness, en Steingrímsfjarðarheiði er ófær. Vegir
á Norðurlandi eru greiðfærir, og er fært um Þingeyjarsýslur með strönd-
inni til Vopnafjarðar. Á Austfjörðum er Breiðdalsheiði jeppafær, annars
eru vegir þar greiðfærir. Vegagerftin
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Hltl veður
Akureyri 0 úrkoma ígrennd
Reykjavík +3 hagléiástö. klst.
Bergen 4 skýjað
Helsinki +4 léttskýjaö
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Ósló 1 skýjað
Stokkhólmur 0 léttskýjað
Pórshöfn vantar
Algarve 11 hálfskýjað
Amsterdam 5 Skýjað
Barcelona 10 skýjað
Berlín 2 skýjað
Chicago 1 alskýjað
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 1 snjókoma
Glasgow vantar
Hamborg 6 hálfskýjað
London 3 mlstur
Los Angeles 14 alskýjað
Luxemborg 2 skýjað
Madríd 6 skýjað
Malaga 11 súld
Mallorca 11 suld á sfð.klst.
Montreal +3 snjókoma
NewYork 7 skýjað
Orlando 17 alskýjað
París 4 léttskýjað
Madeira 16 skýjað
Róm 8 léttskýjað
Vín -f'1 snjóél
Washington 8 alskýjað
Winnipeg +11 snjókoma
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Gönguleið um Vallarstræti
Búið er að rífa mannvirki í Vallarstræti, sem stóðu í sundinu milli Aust-
urvallar og Ingólfstorgs. Sundið er eingöngu ætlað gangandi vegfarend-
um og minnti Hjörleifur Kvaran framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórn-
sýsludeildar á, að borgarráð hefði samþykkt að Vallarstræti við Ausur-
völl yrði göngugata á meðan umferð er leyfð um Austurstræti. Eins og
sjá má er bifreiðum enn lagt við götuna þrátt fyrir að hún eigi að vera
lokuð fyrir allri umferð.
Ferðaskrifstofur:
Auglýsingar eru ekki
í samræmi við reglur
MISBRESTUR er á því að fullt
verð sé gefið upp í auglýsingum
ferðaskrifstofa, en samkvæmt
reglum, sem settar voru fyrir
skömmu, er skylt að fram komi
endanlegt verð sem viðskiptavin-
irnir verða að greiða. Verðlags-
stofnun ætlar að ítreka við ferða-
skrifstofurnar að þær fari að sett-
um reglum.
I verð, sem gefið er upp í auglýs-
ingum ferðaskrifstofa, vantar oft
ýmis gjöld, sem við bætast, s.s. flug-
vallarskatt heima og erlendis, for-
fallagjald og leiguflugsgjald. Ferða-
skrifstofum er nú í sjálfsvald sett
hvort þessi gjöld eru reiknuð inn í
ákveðin verðdæmi í auglýsingum,
en ef svo er ekki ber að tíunda ná-
kvæmlega hvaða gjöld er um að
ræða og hversu há þau eru.
Sigrún Kristmannsdóttir, lög-
fræðingur Verðlagsstofnunar, sagði
í samtali við Morgunblaðið að regl-
urnar væru skýrar, en allmikil brögð
væru að því að þær Væru virtar að
vettugi. Verðlagsstofnun myndi á
næstunni ítreka þessar reglur við
ferðaskrifstofurnar.
Karl Sigurhjartarson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
ferðaskrifstofa, sagði að reglurnar
væru nýjar og það tæki ferðaskrif-
stofurnar ef til vill einhvem tíma
að átta sig á þeim.
Kveikt í
fjórum rusla-
geymslum
ELDUR var borinn að sorpi í
sorpgeymslum fjögurra fjölbýlis-
húsa við Kjarrhólma í Kópavogi
síðdegis í gær. Slökkt var á
skömmum tíma og án þess að
verulegt tjón hlytist af, að sögn
lögreglu í Kópavogi.
Slökkviliðið var kallað að Kjarr-
hólma fjögur vegna elds í rusla-
geymslu en þegar að var komið log-
aði einnig í ruslageymslum húsa
númer 8 og 10 en íbúar í númer 2
höfðu þegar slökkt eld í sínu rusli.
Slökkvistarf tók skamma stund. Ekki
er vitað hveijir kveiktu eldinn, að
sögn lögreglu.
Útlánsvextir Lands-
banka 2-2,25% hærri
en hjá öðrum bönkum
ÍSLANDSBANKI lækkar nafnvexti og raunvexti á morgun, 21. febrúar
og sparisjóðirnir lækka óverðtryggða útlánsvexti um 0,75-1%. Lands-
banki og Búnaðarbanki breyta ekki vöxtum. Búnaðarbanki er áfram
með lægstu vextina en Landsbanki íslands með þá hæstu og munar
2-2,25% á óverðtryggðum útlánsvöxtum þeirra og hinna bankanna og
sparisjóðanna. Lánskjaravístala hefur verið óbreytt síðustu þrjá mánuði.
Raunvextir hjá íslandsbanka
lækka um 0,25% á inn- og útlánum
og verða útlánsvextir eftir lækkun
10% í b-flokki og innlánsvextir 6,75%
á reikningum bundnum lengur en til
15-24 mánaða. Sparisjóðimir breyta
ekki raunvöxtum og eru vextir þeirra
á bundnum reikningum til langs tíma
7,75%, en útlánsvextir í b-flokki 10%.
Þeir eru lægstir í Búnaðarbanka
9,75% og hæstir í Landsbanka
Nafnvextir lækka um 1% á öllum
flokkum útlána hjá íslandsbanka.
Forvextir víxla Islandsbanka og
sparisjóðanna verða 12,75% og
skuldabréfavextir í b-flokki 13,25%,
þeir sömu og hjá Búnaðarbanka ís-
lands, en Landsbankinn er með
skuldabréfavextina í 15,25%. Búnað-
arbankinn er með lægstu víxilvextina
12,5% en Landsbankinn er með víxil-
vextina í 14,75%.
10,25%.