Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 B 9 HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA Fram í úrslita- keppnina eftir siguráKA FRAMARAR tryggðu sér sæti í úrslitakeppni 1. deildar með góðum sigri á KA, 30:28, i bráð- fjörugum og hörkuspennandi leik í Laugardalshöll á sunnu- dagskvöld. „Við höfum ekki náð að sýna okkar rétta andlit í undanförnum leikjum, en nú small allt saman og það gat ekki gerst á betri tíma. Þetta var alveg meirháttar sigur fyrir okkur. Nú þurfum við ekki að treysta á aðra. Við kláruðum dæmið sjálfir," sagði Gunnar Andrésson, fyrirliði Fram. Mikil harka var í leiknum og ljóst í upphafi að bæði liðin ætluðu að selja sig dýrt enda stigin sem * boði voru mjög ömar dýrmæt. Norðan- Jóhannsson menn byijuðu leik- skrifar inn mun betur og höfðu fljótlega náð þriggja marka forystu og um miðj- an hálfleikinn hafði KA sex marka forskot, 8:14, og allt stefndi í stór- sigur KA. En með góðum kafla undir lok fyrri hálfleiks náðu Fram- arar að minnka muninn niður í eitt mark, 15:16, fyrir leikhlé. Þegar 10 mín. voru liðnar af síð- ari hálfleik náðu Framarar að kom- ast yfir í fyrsta sinn í leiknum, 21:20. Jafnt var síðan á flestum tölum þar til Fram komst í 25:23 og rétt um 10 mínútur til leiksloka. Þrátt fyrir mikla baráttu náðu KA-menn ekki að jafna leikinn eft- ir það. Framarar héldu haus allt til leiksloka og sigruðu, 30:28. „Hvað getur maður sagt? Ég er bara mjög svekktur með okkur að ná ekki að klára leikinn og senni- lega fauk þriðja sætið út í veður og vind með þessu tapi. Ég óska Frömurum til hamingju með sigur- inn, en þeirra vegna hefði ég viljað að þeir hefðu fengið minni hjálp frá dómurunum," sagði Alfreð Gísla- son, þjálfari KA. Hjá Fram voru þeir Gunnar Andrésson og Karl Karlsson bestir og áttu báðir afbragðsgóðan leik og var Karl sínum fyrri félögum erfiður. Davíð B. Gíslason lék einn besta leik sinn fyrir Fram og einnig kom Þór Bjömsson, markvörður, sterkur út í lokin. Alfreð Gíslason, Erlingur og Stefán Kristjánsson áttu allir góðan leik. Alfreð gerði mörg falleg mörk þrátt fyrir að vera í strangri gæslu allan tímann. Axel Stefánsson varði vel í fyrri hálfieik en náði sér ekki á strik í þeim síðari. Morgunblaöið/Bjarni Karl Karlsson átti afbragðsgóðan leik og var sínum gömlu félögum í KA erfiður. Hann gerði átta mörk. Selfoss slapp fyrir horn KÆRULEYSIÐ kom Selfyssing- um nærri í koll þegar þeir heim- sóttu HK í Digranesið á sunnu- daginn. Eftir frábæra byrjun Selfyssinga tók kæruleysið öll völd og þeir máttu þakka fyrir eins marks sigur, 31:32. m Areynslulaust náðu gestirnir fljótlega sex marka forskoti, en þá datt botninn úr leik þeirra. Michal Tonar tók Sigurð Sveinsson úr Stefánsson umferð og leikmenn skrifar Selfoss biðu eftir að leiknum lyki, en gættu þess alltaf að hafa forskotið þrjú til ljögur mörk. Með fjögurra marka kafla fjórum mínútum fyrir leikslok jafnaði HK í fyrsta sinn. Þegar mínúta var til leiksloka var enn jafnt, 31:31 og Selfyssingar með boltann. Hilmar Ingi Jónsson, markvörður HK, varði skot frá þeim og hinu megin missti HK af sigri með því að skjóta í þverslá. Þegar 10 sekúndur voru eftir varði Hilmar aftur en boltinn hrökk til Siguijóns Bjarnasonar, sem þakkaði fyrir sig með því að skora sigurmark Selfoss. Bestir í liði HK voru Jón Bersi og Hilmar Ingi Jónsson, sem er aðeins 16 ára gamall markvörður. Einar Gunnar Sigurðsson og Sigur- jón Bjarnason voru einu leikmenn Selfoss sem héldu haus í leik þar sem einbeiting og sigurvilji voru af skornum skamti. ■ Mörkin / B10 ■ Staðan / B10 KORFUKNATTLEIKUR / NBA LA Lakers jafnar met! LIÐ Los Angleles Lakers jafn- aði eigið met um helgina. Met, sem enginn hafði reyndar áhuga á að jafna því liðið tap- aði sjöunda leiknum í röð. Þeg- ar það gerðist síðast var Eisen- hower forseti. Þetta var 1958, og þá var leikmaðurinn kunni „Magic“ Johnson, sem hætti með félaginu í haust eftir að hafa smitast af alnæmisveir- unni, ekki fæddur. Lakers fékk Golden State Warri- ors í heimsókn í Forum höllina í Los Angeles um helgina og tap- aði 124:126. Liðið lék reyndar mjög vel, og sagði Gunnar Þjálfarinn Mike Valgeirsson Dunleavy að ef svo skrifar frá héldi áfram ynni lið- Bandankjunum ið mun fleiri leiki en það tapaði af þeim sem eftir væru. En þrátt fyr- ir það er ekki hægt að mála yfir þá staðreynd að liðið á í verulegum erfiðleikum, og er satt að segja í baráttu um að komast í úrslita- keppnina. Með sigrinum er Golden State komið með besta árangurinn í Vesturdeildinni, en Portland hefur reyndar unnið og tapað einum leik meira en Golden State. Þessi tvö lið virðast einna sterkust í Vestur- deild. Portland var í haust spáð velgengni og liðið er nú komið á fullt skrið eftir erfiða byijun. Larry Brown, sem var rekinn frá San Antonio Spurs fyrir hálfum mánuði, tók við þjálfun Los Ange- les Clippers á dögunum. Hann byijaði heldur betur vel því liðið vann fjóra fyrstu leikina undir stjóm hans, og hefur nú aðeins tapað tveimur fleiri en Lakers. Clippers sigraði m.a. Lakers í vik- unni, 125:94. Úr austurdeild er það helst að frétta að lið Chicago er á miklu skriði sem fyrr, og Cleveland virð- ist hið eina sem veitt getur liðinu einhveija keppni. Öllum sérfræð- ingum ber þó saman um að Chicago sé með yfirburðalið í deild- inni og fari með sigur af hólmi í henni. Cleveland sigraði reyndar í Chicago í vikunni, en það nægir ekki. Liðið hefur tapað sjö leikjum meira en Chicago. Þriðja besta lið- ið er New York Knicks, sem stend- ur sig vel undir stjórn Pats Riley, fyrrum stjóra Lakers. ■ Staðan / B10 ÍÞRÚmR FOLK ■ MOSES Malone, sem orðinn er 36 ára og leikur nú með Mil- waukee Bucks, hefur ekki leikið jafn vel í tíu ár og hann hefur gert undanfarið. Malone skorar nú að meðaltali 21 stig í leik og tekur 15 fráköst. ■ „MAGIC“ Johnson hefur samið við NBC sjónvarpsstöðina um að verða aðstoðarþulur í úrslitakeppn- inni. Sögusagnir höfðu verið á kreiki um að Johnson hygðist jafn- vel leika með Los Angeles Lakers í úrslitakeppninni, en nú er ljóst að ekkert verður úr því. ■ TVEIR snjallir leikmenn koma aftur á kreik í fyrstu viku mars; Larry Bird hjá Boston og Vlade Divad hjá Lakers. þeir eru báðir að jafna sig eftir bakmeiðsli. ■ HOUSTON rak í síðustu viku þjálfarann Don Chaney, en hann var valinn þjálfari ársins í NBA- deildinni í fyrra. ■ KARL Þráinsson lék á föstu- daginn síðasta leikinn fyrir Víking, í bili að minnsta kosti, því hann er á förum til Karlsruhe í Þýskalandi í framhaldsnám í byggingarverk- fræði. „Það er möguleiki á að ég spili handbolta þama,“ sagði Karl. ■ VEISLA var haldin Karli til heiðurs eftir leikinn gegn Haukum í Víkinni. ■ ÓSIGURINN gegn Haukum er fyrsta tap Víkinga í Víkinni, í fyrstu^ deild. ■ JÓN Freyr Egilsson , átján ára Haukamaður, gleymir Víkings- leiknum eflaust seint. Hann kom inná í fyrsta sinn í 1. deild og gerði fyrsta mark sitt þar í stórsigri Hauka. FRJALSIÞROTTIR Tuö heimsmet Tvö heimsmet innanhúss í fijálsíþróttum féllu á móti í Birmingham á Englandi á laugardag. Alsírbúinn Noureddine Morceli sló metið í 1.000 m hlaupi og Liz McColgan, Bretlandi, bætti metið í 5.000 m hlaupi kvenna. Morceli hljóp á 2 mín. 15,26 sek. en gamla metið, 2:16,4 átti Rod Druppers frá Hollandi. Það var sett 20. febrúar 1988. Tími McColgan í 5.000 metrunum var 15 mín. 03,17 sek. Þýska stúlkan Uta Pippig átti gamla metið, setti það í Stuttgart 10. febrúar á síðasta ári. BLAK Stúdentar ósigraðir Stúdentar eru enn með fullt hús stiga eftir leik sinn við Þrótt- ara úr Neskaupstað. Stúdentar tóku leikinn strax í sínar Guðmundur H. hendur °K höfðu Þorsteinsson töglin og hagldirnar skrifar til loka. Sigruðu í fyrstu hrinu með 15-6 og þeirri næstu 15-7. Þrótt- urum voru afar mislagðar hendur. og gekk fátt up, hvort sem var í sókn eða vörn. Þróttarar hresstust aðeins í þriðju hrinu og var þá nokk- urt jafnræði með liðunum en það dugði ekki til þegar upp var staðið. Þróttarar gerður mikið af smámi- stökunum og náðu aldrei að virka ógnandi. Stúdentar eiga að leika við KA um næstu helgi og þá kem- ur í ljós hvort sigurgangan heldur áfram. Annar ósigur Þróttarar úr Reykjavík bættu tveimur langþráðum stigum í safnið þegar þeir sigruðu nafna sína úr Neskaupstað á laugardaginn með þremur hrinum gegn engri. Það var- sama upp á teningnum og daginn á undan, mikið af smámistökum sem reyndust dýr. Austanmenn komust í 14-6 í annarri hrinu en á ótrúlegan hátt léku þeir sigurinn í hendur nafna sinna í Reykjavík sem sigruðu í hrinunni 16-14 og þá næstu 15-7. Þróttarastúlkur unnu í hrinu Stúdínur skelltu Þrótti N. í þrem- ur hrinum gegn einni á föstudags- kvöldið. Sigruðu í fyrstu hrinunni., nokkuð auðveldlega en Þróttara- stúlkurnar náðu að jafna leikinn í annarri hrinu, þar sem Stúdínur léku langt undir getu. Þróttara- stúlkurnar náðu ekki að fylgja þessu eftir þar sem Stúdínur vökn- uðu til lífsins og sigruðu í næstu tveimur hrinum, þar sem Jóna Harpa Viggósdóttir var frísk. Það var greinilega að leikurinn skipti Stúdínur ekki máli þar sem þær hafa þegar tryggt sér sæti í úrslita- keppninni ásamt UBK, HK og Vík- ingi. Víkingsstúlkur sigruðu síðan lið Sindra í Víkinni á laugardaginn með þremur hrinum gegn engri, en Víkingar eru á toppnum en lið Sindra í neðsta sæti. < ■ Úrslit / B10 ■ Staðan / B10 SUND Eydís bættitvö telpnamet EYDÍS Konráðsdóttir, 14 ára sundkona úr SFS, setti tvö telpnamet, í 50 og 200 metra baksundi, í Stjörnukeppninni 1992 í sundi sem f ram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helg- ina. Eydís Synti 50 metra baksund á 32,28 sek. og sigi-aði á nýju telpnameti. Hún endurtók leikinn í 200 metra baksundi er hún synti á 2:29.60 mínútum. Stigahæstu sundmenn mótsins. samanlagt úr þremur greinum voru eftirtaldir: Konur: Bryndís Ólafsdóttir, SFS............2207 ArnaÞórey Sveinbjömsd., Ægfi........2045 Eydís Konráðsdóttir, SFS............2015 Karlar: Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS..........2443 Arnþór Ragnarsson, SH...............2397 MagnúsMárÓlafsson, SFS..............2196 ■ Úrslit / B11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.