Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRIL 1992 47 I I I ) > Vínsvelgurinn Frá Konráð Friðfinnssyni: „HVER æjar? Hver veinar? Hver á í deilum? Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu? Þeir sem sitja við vín fram á næt- ur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum veigum. Iiorf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður. Að síðustu bítur það sem högg'ormur og spýtir eitri sem naðra. Augu þín munu sjá kynlega hluti og hjarta þitt mun mæla fláræði. Og þú munt vera eins og sá sem liggur úti í miðju hafi, já, eins og sá er liggur efst uppi á siglutré. Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín. (Ok.: 23.29,35.) Þessi fleygu orð um vínsvelginn má finna í heiiagri ritningu, Biblí- unni. Já, það er mörg ógæfan er drykkjumaðurinn ratar í á þoku- kenndri göngu sinni um þokukennt og aumt líf sitt. Einnig er hann hættur að finna til þeirrar gleði er einkenndi drykkju hans á yngri árum, en hann gat stjórnað drykkju sinni að mestu sjálfur. En þeir dag- ar eru liðnir og munu aldrei koma Fermingar og söngur Frá Maríu J. ívarsdóttur: NÚ er tími ferminganna runnin upp. Aðstandendur fermingarbarna leggja mikið á sig til að gera ferm- inguna sem best úr garði. Keypt eru ný föt á fermingarbarnið, gjaf- ir, veisluföng o.s.frv. Allt er gert til að dagur þessi verði sem eftir- minnilegastur. Eitt vill þó gleymast í öllu þessu amstri. Þótt hugur barnsins snúist eðlilega fyrst og fremst um fermingarathöfnina, veisluföngin og gjafirnar, þá er fé- lagsiegi þátturinn, t.d. í formi söngs, ekki síður mikilvægur. A síðustu árum hefur dregið úr al- mennum söng, jafnt við fermingar sem og við önnur tækifæri. Nú er það mun sjaldgæfara en áður að öll fjölskyldan taki lagið saman á heimilunum. Söngurinn hefur veitt ánægju og stytt stundir um aldir um leið og hann hefur þroskað málkennd almennings og glætt þekkingu á Ijóðaarfi þjóðarinnar. Fullyrða má að söngur er öllum heilsusamlegur bæði fyrir sál og líkama. í sumum kirkjum tíðkast almenn- ur söngur við kirkjuathafnir, en þó mætti hann víðast hvar vera meiri. Er því vert að hvetja alla, sem standa að fermingarathöfnum, til að stuðla að almennri þátttöku kirkjugesta í söng. í fermingarveisl- um er oft stór hópur fólks sem hitt- ist sjaldan og þekkist lítið innbyrð- is. Söngur er tilvalinn til þess að sameina ólíka aldurshópa, stuðla að samkennd fólks og veita því ánægjulega og eftirminnilega stund. Framkvæmdanefnd um Ar söngsins vill því hvetja aðstandend- ur fermingarbarna til þess að efna til fjöldasöngs í fermingarveislum. Til að auðvelda fólki að standa að slíkum íjöldasöng hefur fram- kvæmdanefndin tekið saman nokk- ur þjóðkunn lög sem allir ættu að geta sungið. Fiest lögin eru tekin úr söngbókunum „Hvað er svo glatt“, sem Tónlistarbandalag ís- lands gaf út síðastliðið haust í til- efni af Ári söngsins. Blöð með þess- um lögum munu liggja frammi í Tónastöðinni, Óðinsgötu 8, 101 Reykjavík, og getur fólk fengið þau þar án endurgjalds. MARÍA J. ÍVARSDÓTTIR framkvæmdastjóri Árs söngs- ins, Ásholti 2 Mosfellsbæ til hans aftur. Þeir eru sem á er streymir framhjá. Hann reikar áfram á völtum og óstyrkum fótum og freistar þess að snuðra uppi „félagsskap" er hæfir hans líkum. Þar sem vínið flóir og þvoglukenndar drykkju- raddir karla og kvenna berast um húsakynnin eða strætin ef vera kynni að hann gæti sníkt þar sopa til að „hressa“ hijáða sál. Síðan vaknar hann að morgni, þunnur og þvældur, veskinu rænd- ur, ærunni rændur og öllu öðru er honum þótti vænst um. Ekkert stendur eftir hjá drykkjumanninum nema sektarkenndin, sjálfsvor- kunnin og hugsanir í þessum dúr: „Allir eru vondir við mig. Ég drekk minna en margur gerir. Ég er ekki sá versti. Hví baktala menn mig og kalla mig „aumingja". Og hann rennir augunum eftir gólfinu og þau staðnæmast við tómu bokkuna, við æluna á stólsetunni og við ruslið sem dreift er um allt gólf. Hann er vesæll á slíkum stundum. Af- skaplega lítill og smár. Og hann mun biðja um meira vín, til að full- komna blekkingarvefinn sem hann hefur syo kyrfilega fest sig í. Vegna þess að hann leitar ekki þangað sem hjálp er að fá. Finnur ekki leiðina til lífsins. Til lifandi Guðs, skapara himins og jarðar, sem ætíð er reiðu- búinn að aðstoða hvern þann sem leitar hans af öllu hjarta sínu. Og lifandi Guð mun svipta burt á auga- bragði, á sekúndubroti, fíkn þeirri er áfengið veldur þræli sínum og gefa þann frið sem drykkjumaður- inn, og við öll, þráum innst inni en finnum þó alltof sjaldan. Sökum þess að Guð einn megnar að veita fólkinu varanlega og falslausa frið- semd. Hver sá þegn er leitar til Drott- ins með vandamál sín bæði stór sem smá og trúir í hjarta sínu, mun fá lausn sinna mála. Þvf sannleikurinn er sá að það sem menn geta ekki, megnar Guð. Leyfið aðeins Drottni vorum Jesú Kristi að komast að og framkvæma það sem hann vill gera fyrir hvert okkar og þið munið reyna sjálf að Kristur er sá sem orð Guðs, Biblían, segir hann vera. Og það sem menn þreifa sjálfir á það er staðreynd. Og staðreynd er og verður áfram staðreynd þótt „vantrúargaurar“ er rangsnúa öll- um kenningum haldi öðru fram og reyni að gera trúað fólk hlægilegt í augum annarra með aðfinnslum sínum og opinbera þannig eigið þekkingarleysi á viðfangsefnum. KONRÁÐ FRIÐFINNSSON Þórhólsgötu la Neskaupstað Ferðamenn: Búið ykkur hlýjum fatnaði og verið ekki einir á ferð. Gerið öðrum grein fyrir hvert þið ætlið og áætluðum komutíma. OPID HflS í IBHSKðHNBM Næstkomandi laugardag hefur skólinn opið hús þar sem almenningi gefst tækifæri til að kynnast starfi nemenda. Húsin verða opin frá kl. 14.00 til 17.00. Á þeim tíma verða einnig kennarar til viðtals og upplýsinga um það nám sem skólinn veitir. Seglskútan „Dóra“ sem er 34 fet og liggur á suður Spáni, er til sölu ef viðun- andi tilboð fæst. Skútan selst með öllum tækjum og bún- aði, tilbúin til siglinga. Nánari upplýsingar gefur Þór Magnússon í síma 677424 í dag og eftir helgi í síma 27379 milli kl. 8-16. A Frá menntamála- w ráðuneytinu Fjárveiting úr íþróttasjódi H Samkvæmt lögum um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga nr. 78/1989 veitir Alþingi árlega fé í íþrótta- sjóð. Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga eða íþróttasamtaka í því skyni að þæta aðstöðu til íþróttaiðkana, sbr. reglugerð um íþrótta- sjóð nr. 609/1989. Tekið skal fram að ekkert liggur fyrir um fjárveitingar til sjóðsins 1993, en þær eru ákveðnar í fjárlögum hverju sinni til eins árs í senn. Felur árleg fjárveiting þannig ekki í sér skuldþindingar um frekari styrkveitingar. Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna fjárveit- inga ársins 1993 þurfa að berast fyrir 1. maí nk. íþróttanefnd ríkisins, menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík. Með umsóknum þarf að fylgja greinargerð um fyrirhugað verkefni. T1IIII ISLENSKA OPERAN ___11111 GAMLA BlÓ INGÓLFSSTRÆTI SÍÐASTA SÝNING ÍKVÖLD! Láttu ekki einn helsta listviðburð ársins framhjá þér fara! Sýning í kvöld kl. 20.00. SÍÐASTA SINN. Miðasalan er opin fráki. 15.00-19.00 daglega ogtil kl. 20.00 sýningardaga. Greiðslukortaþjónusta. Sími 11475.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.