Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.04.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1992 B 3 kvöldkulinu. Rudolfo og Mimi koma að, en dveljast fyrir utan tískubúð, fara þar inn og hann kaupir henni höfuðfat. Schaunard er að kaupa sér hljóðfæri, sem hann reyndar kveður vera falskt. Colline hefur fengið augastað á forláta frakka og einnig gamalli bók með rúna- letri. Marcello er að gantast við hispursmeyjar, sem þarna eru að spássera með stúdentum. Þeir finna sér loks borð og panta sér kónga- máltíð. Leikfangasalinn Parpign, þekktur um allt hverfið, leggur þarna leið sína og ærir börn. Rud- olfo og Mimi koma því að borði þeirra félagá og skáldið kynnir Mimi fyrir þeim sem skáldagyðjuna sjálfa. Þegar þau eru að snæða ber þar að Musettu, fyrrum ástkonu Marcellos, og ríkan vonbiðil hennar, Alcindoro de Mittonneaux. Hún er ekki lengi að snara sér niður við næsta borð. Þar lætur hún all ófrið- lega í því skyni að vekja athygli Marcellos á sér, Alcindoro til mikill- ar hrellingar. Marcello er tregur til, en þá syngur hún Musettu-vals- inn „Quando mi en vo“ og þá fer hjartað að bráðna. Hún gerir sér upp að annar skórinn meiði sig og varla er Alcindoro lagður af stað í skóleit en þau eru komin í faðmlög, Musetta og Marcello. Hergöngu- hljómsveit veldur nokkru uppnámi þarna á torginu og þjónarnir koma með reikningana í öryggisskyni. En það kemur þeim félögum ekki sérlega vel: þeir eru allir búnir að eyða hýrunni hans Schaunards í annað og þarfara og allir vasar tómir. En Musetta deyr ekki ráða- laus, hún lætur setja allt á reikning og sendir Alcindoro hann að skiin- aði, en öll þramma þau síðan af stað með öðrum göngupörum á eft- ir hljómsveitinni, en Alcindoro fær aðra kveðju en hann átti von á, þegar hann kemur aftur með nýja skó. :■{. þáttur Við borgarhliðin á leiðinni til Orleans. Þetta er mildur vetrar- morgunn, tollverðir við störf sín, kanna hvað fólk flytur með sér inn og út, götusóparar fara þarna um frá vinnu sinni, mjólkursölukonur og sveitakonur með varning sinn á leið á markað og mæla sér mót að honum loknum. Á krá er enn gleð- skapur, þar inni er Musetta að kenna gestum að syngja, en Marc- ello er að mála skilti, sem reyndar er hvorki meira né minna en Rauða hafið, sem hann var að glíma við, þegar við kynntumst honum fyrst; þannig hafa þau hjúin haft ofan af fyrir sér um mánaðartíma. Þarna kemur Mimi og er að leita uppi Rudolfo, en þau höfðu skilið í reiði. Hún spyr þó fyrst eftir Marc- ello og biður hann ráða, Rudolfo elski sig, en geri sér erfitt fyrir vegna afbrýðisemi. Þegar Rudolfo kemur út úr kránni þar sem hann hefur hallað sér í morgunsárið, Iæt- ur hún sem hún fari leiðar sinnar, að ráðum Marcellos, en í rauninni felur hún sig og verður áheyrandi að samtali þeirra Rudolfos og Marc- ellos, sem einmitt snýst um hagi þeirra elskendanna. Rudolfo segir í fyrstu að hann verði að yfirgefa Mimi vegna þess hve lauslát hún sé og hversu illa þeim komi saman af þeim sökum. En Marcello gengur á vin sinn og þá játar Rudolfo að hin raunverulega ástæða sé sú, að tæringarveiki Mimiar hafi ágerst og við þau kjör sem hann geti búið henni, sé henni dauðinn vís, vegna þess verði þau að skilja svo hún megi lifa og komast til heilsu á ný. Grátur kemur upp um felur Mim- iar og Rudolfo flýtir sér að slá úr og í, sér hætti svo til að taka sterkt til orða. Skyndilega verður hann var við að hún er að kveðja hann (arían: „Donde lieta“). Hann má ekki til þess hugsa þegar á hólminn er komið og enn ná þau saman í ástarsælu í eina stund. Þau ætla að vera saman veturinn, en skilja þegar vorar. Megi þessi vetur vara að éilífu, segir Mimi. En meðan á þessu stendur hefur Marcello heyrt hlátur Musettu inni á kránni og af reynslunni veit hann að nú er eitthvað á seyði. Það snarfýkur í hann og hann þýtur inn, en litlu síðar koma þau skötu- hjúin út í háarifrildi. Rifrildi þeirra blandast saman ástarjátningar hinna og á þessum fræga kvartett lýkur þriðja þætti. 4. þáttur Við erum aftur komin í þakíbúð þeirra félaga. Rudolfo og Marcello eru að myndast við að vinna að list sinni, en það eru nú lítið annað en tilburðirnir einir. Rudolfo er að segja Marcello frá því að hann hafi séð Musettu í hestvagni með þjóna og hann hafi átt við hana orðastað. „Hjartað í mér,“ sagði hún, „það slær ekki lengur, því það slær ekki lengur að því,“ sagðj hún og benti á loðfeldinn. Marcello borgar fyrir sig og segist hafa séð Mimi klædda eins og drottningu, enda sé hún ástmey einhvers varagreifa. „Verði þeim að góðu, sama er mér,“ tauta þeir báðir, en syngja síðan dúettinn fræga „0, Mimi,“ þar sem Rudolfo handfjatlar húfuna góðu, sem hann hafði gefið Mimi kvöldið sem þau hittust fyrst, en hún síðan gefið honum til minningar um sig að skilnaði. Og þó að liðnir séu margir mánuðir síðan þeir sögðu skilið við lagskonur sínar, er ástin og söknuð- urinn samur við sig. Shaunard og Colline koma með nokkrar brauðkollur og eina litla síld — og upp á vatn og brauð bregða þeir á leik eins og þeirra er vandi, þykjast vera í innsta hring við kóngahirðir, bregða á dans — og þegar þá greinir á um leikregl- umar, er heiðurinn í veði og varinn vopnum. Allt í einu er Musetta komin og segist vera með Mimi með sér frammi í stiga, hún hafi leitað hana uppi og fundið hana nær dauða en lífi. Þeir félagar draga fram legu- bekk og Rudolfo sest hjá henni og reynir að hlýja henni. Musetta send- ir Marcello til að selja eyrnalokkana sína og kaupa lyf fyrir og biður hann að kalla á lækni, en sjálf fer hún að leita uppi handskjólið sitt. Colline kveður gamla frakkann sinn í rómaðri aríu „Vecchia zimarra, senti,“ og fer af stað að koma hon- um í verð, svo hægt sé að greiða lækninum. Hann tekur Shaunard með sér svo elskendurnir megi vera einir; öllum er ljóst að hún á ekki langt eftir, nema einna helst Rud- olfo. Þau eiga þarna saman litla stund sársauka og sælu, þar sem hún segir honum að allt það sem hafí skipt máli í lífinu sé ást þeirra, hún sé það sem hafi gefið lífi sínu gildi og gert það þess virði að lifa því. Þau rifja upp þá stund þegar þau fyrst kynntust; Mimi trúir Rudolfo fyrir því að hún hafi reyndar séð þegar hann fann lykilinn löngu fyrr en hann þóttist, en látið sem ekk- ert væri — þegar hann var að fikra sig nær henni. Hin koma aftur en verður fljótt ljóst, að hér kemur allt fyrir ekki. Rudolfo verður síðastur til að gera sér grein fyrir því hvernig komið er — og lýkur óperunni á saknað- arópum hans, „Mimi, Mimi“. La Bohéme var frumflutt í júní 1955 í samvinnu Tónlistarfélagsins og Félags íslenskra einsöngvara. Önnur uppfærsla var í Þjóðleikhús- inu 1980-1981. Upptökur. Óhætt er að mæla með nokkrum upptökum ef áhugi er á að nálgast verkið á geisladiskum. 1. EMI, mono CD57 47235-8(2) [Ang. CDCB 47235] De los Angel- es, Björling, Merrit, Reardon, Tozzi, Amara, RCA Victor Ch.& 0, Beac- ham. 2. EMI, mono CD57 47475-8(2) [Ang. CDCB 47475] Callas, Di Stefano, Moffo, Panerai, Zaccaria, La Scala, Milano, Ch. & 0, Votto. 3. RCA RD 80371 [RCD2 03719] Chaballé, Domingo, Milnes, Sardinero, Raimondi, Blegen, Alldis Ch., Wandsworth School Boy’s Ch., LPO, Solti. Athugasemd: Efnisatriði óper- unnar eru fengin béint úr leikskrá Þjóðleikhússins frá 1980-1981. Höfundur er S.E. Haraldur G. Blöndal bankafulltrúi, íslands- banka. LJÓSTÝRA í MYRKRINU Þær eru allar að fást við sitt stærsta hlutverk á óperusviðinu til þessa, bakgrunnurinn ólíkur en þær eru á einu máli um að vinn- an við La Bohéme hafi verið dásamleg reynsla. Þetta eru þær Ingi- björg Guðjónsdóttir, Inga Backman, Jóhanna Linnet og Ásdís Krist- insdóttir. Ingibjörg og Inga fara með hlutverk Mimi og Jóhanna og Ásdis deila hlutverki Musette. Við komum okkur fyrir í holinu fyrir framan búningsklefana í Borgarleikhúsinu. Þær eru spenntar því framundan er lokaæfing fyrir þéttsetnum sal. n hveijar eru þessar persónur, Mimi og Mussetta? Ingibjörg: „Mimi er ósköp indæl stúlka um tvítugt og þjáist af berklum en það kemur þó ekki í ljós í fyrstu þáttunum. Hún hitt- ir Rodolfo og þau verða ástfangin við fyrstu sýn. Þau eru bæði mjög innilegar persónur, hún frekar saklaus, finnst mér.“ Inga: „Ég er ekki svo viss um að hún sé svo saklaus en hún er mjög spennandi persóna. Hún býr yfír sköpunargáfu sem hún nýtir til að sjá sér farborða." Og Ingi- björg bætir við: „Hún er yndisleg og ég held að þetta hljóti að vera draumahlutverkið fyrir lýrískan sópran. Þetta er að minnsta kosti draumahlutverkið mitt og mér finnst hreint alveg ótrúlegt að geta byijað á því. La Bohéme er líka fyrsta óperan sem ég virkilega hlustaði á og hún heillaði mig al- veg.“ Ásdís: „Musetta er töluvert hressari en Mimi og voða fín í tauinu. Hún er oftast með gamlan mann í eftirdragi í öðrum þætti og hann dressar hana upp. En hún er ástfangin af Marcello, sem er vinur Rodolfo, og þau taka saman en það verður svona haltu mér, slepptu mér samband." Jóhanna: „Innst inni er Musetta voða ljúf og trygg, með stórt hjarta. Hún er líka mjög skemmti- leg og mig langaði persónulega meira í hennar hlutverk.“ Ingibjörg: „La Bohéme er svo sniðug ópera að því leyti að hún gefur svo mörgum tækifæri. Hún deilist nokkuð jafnt niður á sex hlutverk, þannig að það eru ekki bara eitt eða tvö stjörnuhlutverk. Það er svo mikilvægt fyrir okkur sem erum að byija að fá svona karakterhlutverk en ekki bara hlutverk með einni setningu.“ Þær stöllur eru á því að að þetta fyrirkomulag, að tveir deili hlut- verki, hafí gefist mjög vel og myndast hafí séi-staklega sterk tengsl í hópnum. Söngvararnir læri hver að öðrum og samkeppn- in sé hæfileg enda geri hún ekk- ert nema gott. Þær segjast vera orðnar svo samtvinnaðar sýning- unni að þær geti ekki gert sér grein fyrir því hvort um mjög ólík- ar túlkanir sé að ræða en eflaust verði gaman fyrir fólk að bera það saman. Það er á þeim að heyra að það hafí verið „rúmlega spennandi", eins og Ásdís orðaði það, að fást við þessa uppfærslu á La Bohéme. Jóhanna og Inga hafa báðar tals- verða reynslu af leikhússtarfí en hvernig var að glíma við leiktúlk- unina? Ásdís: „Ég hef alltaf þráð að vera á sviði og mér líður voða vel þegar ég er komin í búninginn. Maður gleymir sér einhvern veg- inn þegar maður er komin í gerv- ið.“ Jóhanna. „Þetta er kúnstin, að komast út fyrir sjálfa sig, og ég held að það sé ekki öllum gefið." Veturinn hefur horfið Þær eru sammála um að það hafí komið þeim á óvart hversu mikill tími hafi farið í æfingar en það er ekki eins og þær sjái eftir honum, öðru nær. Ásdís: „Maður var í þessu af lífi og sál og fannst einhvern veginn ekki að maður væri að vinna, þetta var allt svo skemmtilegt." Ingibjörg tekur undir þetta: „Þetta er ljóstýran í þessu öllu. Hérna hefur maður verið lokaður inni í Borgarleikhús- inu í dimmasta skammdeginu og veturinn hefur bara horfið." Inga: „Þetta hefur verið svo skemmtilegur hópur, einn heimur sem maður fer inn í og glímir við þangað tii hann er fullskapaður og gleymir öllu öðru á meðan.“ Þær eru svo hamingjusamar með starfið í La Bohéme að það gengur erfiðlega að fá eitthvað frá þeim um hvað hafi verið erfiðast. Ásdís: „Það voru viðbrigði að fá hljómsveitina og þurfa að stilla sig inn á hana, eins þurfti maður að átta sig vel á salnum, stærð hans og hljómburði.“ Inga: Ég held að það hafi verið erfiðast að glíma við að fínna þessa persónu sem maður er að leita að og vinna hana áfram að einhveijum lokapunkti sem maður er ánægður með.“ Það er ár síðan þær Ásdís og Ingibjörg komu heim úr námi og stundum er talað um að sé áfall fyrir ungt listafólk að snúa heim eftir að hafa dvalist erlendis í vernduðu skólaumhverfí en þær eru ekkert á því. Ásdís: „Mér fannst alls ekki allt vera voða vonlaust þegar ég kom heim og maður þarf ekkert að leggja árar í bát. Maður þarf hins vegar að vera tilbúinn til þess að leggja á sig vinnu og mæta þar sem eitthvað er að ger- ast þá smá kemur þetta allt. Nú og svo hefði ég aldrei trúað því að það væri svona skemmtilegt að kenna, ég vildi helst geta gert stórsöngvara úr öllum nemendun- um mínum." Ingibjörg tekur undir orð Ásdísar um kennsluna og seg- ir það hafa verið gott að koma heim og rnelt-a námið en hins veg- ar hafí verið dýrmætt að fá að lifa og hrærast í þessum heimi í nokkur ár og námsárin séu ógleymanlegur tími. Þær eru þó allar sammála um að ekki gangi til lengdar að fólk þurfí að hafa sönginn sem áhugamál. Jóhanna: „Það er til háborinnar skammar í þessu menningar- þjóðfélagi að enginn söngvari skuli vera á föstum launum, þetta eru allt áhugamenn. Ég veit ekki hversu lengi er hægt að bjóða fólki upp á þessi kjör.“ Frumraun allra En frumsýningardagurinn nálg- ast og reyndar var hátíðarsýning í gærkvöldi, hvað skyldi standa upp úr eftir langan og strangan æfíngatíma? Jóhanna og Ásdís nefna strax þessa yndislegu tónlist sem er í verkinu og gleði yfír að vera þátt- takendur í þessari vinnu. Ingibjörg: „Það sem mér fínnst merkilegast er að þetta sé orðið að veruleika. Það var ekki fyrr en hljómsveitin kom að maður fann að þetta var alvara. Mér fannst ótrúlega gaman að taka þátt í þessu því þetta er svo mikil frum- raun fyrir alla, ekki bara okkur heldur lika hljómsveitarstjórann og svo er þetta frumraun í þessu húsi og það hefur svo sannarlega verið stjanað við okkur hérna.“ Inga: „Það var mikill léttir að fínna að allir höfðu vald á því sem þeir voru að gera. Og þegar hljóm- sveitin var komin og allt fór að smella saman í einn lokapunkt þá fann maður allt í einu mikla gleði og stolt. Okkur þykir mjög vænt um þessa sýningu og við höfum verið svo heppin með Guðmund Óla, Bríeti og ekki má gleyma Messíönu sem hefur hannað þessa dásamlegu leikmynd og búninga. Eins vil ég þakka gott samstarf við Leikfélag Reykjavíkur ekki hvað síst GG sviðstjóra.“ Óperuna La Bohéme þekkja lík- lega margir en þær stöllur segja að ef það er einhver ópera sem maður eigi að kynnast öðrum fremur þá sé það La Bohéme og lokaorðin á Inga: „Puccini hefur svo fallegar laglínur, hann túlkar svo fallega gamansemi og sorg, það er hans sterka hlið. Hann hefur mikla tónræna sköpunar- gáfu og það hjálpai' mikið við túlk- un á persónunum. Það er frábært að fá að syngja þessa tónlist." gþg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.