Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.05.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1992 MI5 njósn- ar um IRA BRESKU’leyniþjónustunni MI5 hefur verið falið að afla gagna um hryðjuverkastarfsemi írska lýðveldishersins (IRA) en lög- reglan hefur haft þann starfa hingað til. Kenneth Clark, inn- anríkisráðherra Bretlands, sagði í gær að leyniþjónustan bvggi yfir mikilli reynslu og þekkingu eftir áralangt starf að því að fyrirbyggja hryðju- verk á alþjóðavettvangi og yrði sú þekking nú notuð til þess að reyna að draga vígtennurnar úr IRA. Walesa vill meiri völd LECH Walesa Póllandsforseti hvatti til þess í þingræðu í gær að forsetanum yrði fært aukið framkvæmda- vald og sagði að sníða ætti embætti hans að franskri fyrirmynd. Walesa sagði að pólska þjóðin horfðist nú í augu við stöðnun og stjómleysi vegna valdabaráttu milli þingsins og minnihlutastjórnar Jans Olszewskis. Á miðvikudag felldi þingið fjárlagafrumvarp stjórnarinnar. * Ihaldsmenn vinna sigur BRESKI íhaldsflokkurinn vann stórsigur í bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum sem fram fóru í fyrradag. Þegar einungis var eftir að telja atkvæði í tveimur sveitarstjómum höfðu íhaldsmenn fengið 3.780 menn kjörna í 207 bæjar- og sveitar- stjómum í Englandi, Skotlandi og Wales. Bætti flokkurinn við sig 309 sætum frá síðustu kosningum fyrir fjómm árum. Úrslitin eru áfall fyrir Verka- mannaflokkinn sem tapaði nú 364 sveitarstjórnarmönnum. Hlaut íhaldsflokkurinn 45% at- kvæða, Verkamannaflokkurinn 30% og Ftjálslyndir 19% en þeir unnu einnig á, bættu við sig 63 sætum. Leiðtogar Verk- amannaflokksins kenndu dræmri kjörsókn um ófarir sín- ar en hún var nánast sú sama og endranær eða um 40%. i einni sveit í suðurhluta Wales var hún þó aðeins 1,5%. Ómælanlegur efnahagsvandi? LEWIS Preston, forseti Al- þjóðabankans, segir að enginn geti gert sér fulla grein fyrir efnahagsvanda fyrrum sovét- lýðvelda en þó væri nú talið að þau þyrftu á a.m.k. 34 milljarða dollara efnahagsaðstoð (rúm- lega 2.000 milljarða ÍSK) að halda á næsta ári til þess að mæta brýnustu þörfum. Ríki heims hafa héitið Rússum 24 milljarða efnahagsaðstoð á þessu ári en að sögn Prestons er áætlað að önnur samveldis- ríki þurfí um 20 milljarða doll- ara aðstoð í ár. 37 bíða bana í uppþotum KYRRÐ var komin á í Afríku- ríkinu Malawi í gær eftir fjög- urra daga uppþot gegn harð- stjórn Kamuzu Banda forseta þar sem a.m.k. 37 manns biðu bana. Flestir féllu er lögregla hóf skothríð á þúsundir manna sem mótmæltu harðstjórn Banda með verkföllum. Banda hefur stjórnað með harðri hendi í Malawi í 28 ár en hann er talinn vera 93 ára gamall. N agor no-Karabakh: Síðasta vígi Azera fallið Moskvu. Reuter. SVEITIR Armena í Nagorno- Karabakh gerðu í gær mikla árás á síðasta vígi Azera í hér- aðinu þrátt fyrir vopnahléið, sem undirritað var samdægurs í íran. Að sögn azerska varnar- málaráðuneytisins voru bar- dagarnir mjög blóðugir en ekki var vitað nákvæmlega um mannfall. Armenska fréttastofan Pro Armenia staðfesti árásina og sagði, að hún hefði verið gerð til að þagga niður í eldflauga- og stórskotaliðsvopnum Azera í bæn- um Shusha, sem er aðeins í fárra km fjarlægð frá Stepanakert, höf- uðstað Nagorno-Kara’oakhs. Héldu Armenar uppi mikilli skot- hríð á hann í fyrrinótt en réðust síðan til atlögu í birtingu. Levon Ter-Petyrosjan, forseti Armeníu, og Yagub Hamedov, starfandi forseti Azerbajdzhans, undirrituðu vopnahléssamninginn í Teheran í gær en hann tekur raunar ekki formlegt gildi fyrr en næsta föstudag. Ætla íranskir eft- irlitsmenn og fulltrúar RÖSE, Ráðstefnunnar um öryggi og sam- vinnu í Evrópu, að fylgjast með framkvæmd samningsins en sam- kvæmt honum verður aflétt við- skiptabanni á Nagorno-Karabakh. Iransstjórn hefur reynt að miðla málum í deilu Azera og Armena og í gær undirritaði hún vináttu- samning við bæði ríkin. Þá var einnig samið um gassölu írana til þeirra beggja og önnur viðskipti. Reuter. Aftaka úti á götu Lögreglumaður skýtur til bana leyniskyttu úr röðum múslima á götu úti í bænum Brcko í Bosníu í gær. Leyniskyttan hafði tekið þátt í árás á bílalest serbneskra flóttamanna í norðurhluta Bosníu. Töfðu repúblikanar fyrir lausn gíslanna í Iran?: Upptökur á samtölum Reagans og Irana finnast í New York New York. Reuter. BANDARÍSKA alríkislögregl- an, FBI, hefur afhent rann- sóknarnefnd fulltrúadeildar < • »■- ■ "'í ' ý s* 11 Reuter Endeavour til bjargar gervihnetti Nýrri geimskutlu Bandaríkjamanna, Endeavour, var skotið á loft frá Canaveralhöfða á fimmtudag. Sex karlmenn og ein kona í áhöfn geimskutlunnar hafa það hlutverk að bjarga geryihnetti sem fór út . af braut sinni í um 370 km hæð yfír jörðu og stýra honum inn á réttan sporbaug í um 36.000 km hæð yfir Brasilíu. Þetta er í fyrsta sinn sem geimskutlu er skotið á loft í Bandaríkjunum síðan geim- skutlan Challenger fórst í flugtaki 1986. Bandaríkjaþings upptökur af leynilegum hlerunum á sam- tölum sem sögð eru vera meðal annars á milli Ronalds Reagans, þáverandi forsetaframbjóðanda repúblikana, og íransks manns. Upptökurnar geta hugsanlega skorið úr um hvað sé hæft í ásökunum þess efnis að repú- blikanar hafi talið írönsk stjórn- völd á að sleppa ekki bandarísk- um gíslum sem voru í haldi í Teheran fyrr en að loknum for- setakosningum árið 1980. Um er að ræða tíu klukkustunda langar upptökur á segulböndum sem hafa verið geymd í vöruhúsi í New York í rúman áratug. Þau fundust í fyrri hluta aprílmánaðar. Að sögn heimildarmanna innan FBI hafði leit að segulböndunum staðið í þijár vikur samfleytt og tóku 80 alríkislögreglumenn þátt í henni. Heimildarmennirnir upp- lýstu ekki um efni samræðnanna á segulböndunum. Kosningabarátta forsetafram- bjóðenda repúblikana og demó- krata 1980 snerist að miklu leyti um lausn bandarískra gísla í Te- heran. Gíslarnir voru leystir úr haldi á sömu stundu og Reagan sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Reagan hefur þvertekið fyrir að hafa reynt að tefja fyrir lausn gísl- anna. Hann kveðst þvert á móti hafa reynt að stuðla að því að þeir yrðu leystir úr haldi. Varafor- setaefni Reagans í forsetakosning- _unum 1980 var George Bush, nú- verandi Bandaríkjaforseti. Heimildarmennirnir kváðust ekki geta gefið skýringu á því hvernig á því stæði að FBI hefði hlerað símtök forsetaframbjóðand- ans, en þeir töldu líklega skýringu vera þá að viðmælandi Reagans hefði verið undir eftirliti alríkislög- reglunnar. Yfirheyrslur rannsókn- arnefndarinnar liefjast í næsta mánuði. Mikill fjárlagahalli í Noregi Ósló. Rcuter. HALLINN á fjárlögum norska ríkisins verður 34% meiri á fjárlagaárinu en búist hafði verið við eða sem nemur um 370 millj- örðum ÍSK. Er aðalástæðan minni tekjur af olíusölu en miklu meiri útgjöld vegna atvinnuleysisbóta. í fjárlagatillögum stjórnarinnar frá því í desember var gert ráð fyrir, að olíufatið seldist á 20,4 dollara en í raun hefur það verið 18,7 dollarar og engin hækkun fyrirsjáanleg. Er þessi tekjumissir næstum eina ástæðan fyrir aukn- ingu fjárlagahallans og aðrar fjárlagaspár standast nokkurn veginn. Almennt stafar fjárlaga- hallinn hins vegar af miklum út- gjöldum og tilraunum stjómvalda til að draga úr atvinnuleysi en það er nú nærri 5,6% og það mesta frá stríðslokum. Búist er við, að fjárfesting í öðrum iðnaði en olíuiðnaði minnki um 2% á árinu en Sigbjörn John- sen fjármálaráðherra sagði, að stefnt væri að 25% aukningu olíu- vinnslunnar á tímabilinu 1991 til ’96. Vegna þess meðal annars er staðið við fyrri spár um 2,5% hag- vöxt árlega fram til 1996 og allt bendir til, að greiðslujöfnuðurinn vérði áfram hagstæður. Kosningar á Filippseyjum: Herinn hót- ar uppreisn- armönnum valdbeitingn Manila. Reuter. YFIRMAÐUR hers Filippseyja, Lisandro Abadia hershöfðingi, skipaði í gær hermönnum sínum að vera hlutlausir í kosningunum í landinu á mánudag og sagði að herinn myndi beita valdi ef uppreisnarmenn reyndu að trufla þær. Þetta eru fyrstu fijálsu kosning- arnar í landinu frá 1969. Kosninga- baráttan hefur farið fremur frið- samlega fram en óttast er að blóð- ug átök kunni að blossa upp á kjör- dag. Þetta eru viðamestu kosningar sem efnt hefur verið til á Filippseyj- um. 80.000 manns eru í framboði til 17.000 embætta, allt frá forseta- embættinu til sæta í héraðsráðum. Sjö frambjóðendur eru í forseta- kosningunum og samkvæmt skoð- anakönnunum virðist enginn þeirra hafa náð afgerandi forystu. Coraz- on Aquino forseti er ekki í fram- boði en hún styður Fidel Ramos, fyrrverandi varnarmálaráðherra. Helstu keppinautar hans eru Mir- iam Santiago, fyrrverandi dómari, Ramon Mitra, forseti þingsins, og auðjöfurinn Eduardo Cojuangco, sem er sagður hafa verið einn af helstu stuðningsmönnum Ferdin- ands Marcos, fyrrverandi einræðis- herra landsins. Ekkja hans, Imelda Marcos, hefur lítið fylgi, ef marka má kannanir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.