Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 31.05.1992, Blaðsíða 40
IW Reghjbundmn /• spamaður Landsbanki íslands Bögglapóstur um ollt lond MORGUNBLABID, ADALSTRÆTI C, 101 REYKJA VÍK SlMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Reykjavík og Akureyri: Mannfjöldi í miðbænum FJÖLDI fólks var samankominn í miðbæ Reykjavíkur og á Akureyri aðfaranótt laugardags en án veru- legra óhappa. Hjá lögreglunni á Akureyri feng- ust þær upplýsingar að mikið af fólki hefði safnast saman í miðbænum aðfaranótt laugardags og töluverður hópur hefði enn verið þar um 6 leyt- ið í gærmorgun. Mikil ölvun var í hópnum en engin meirháttar óhöpp. Sömu sögu er að segja í Reykja- vík. Mikið fjölmenni var í miðbænum og töluverð ölvun. Engin slys urðu á fólki en 18 gistu fangageymslur lög- reglunnar. -------♦----------- Búfé bannað í Múlasveit Miðhús- BÚFJÁRHALD hefur verið bann- SW-þar sem áður var Múlahreppur á Vestfjörðum. Hreppsnefnd sam- þykkti tillögu Bjarna P. Magnús- sonar sveitarstjóra þessa efnis eft- ir áskorun mikils meirihluta land- eigenda. Svæðið sem um er að ræða er Kvígindisfjörður, Skálmarfjörður, VattarQörður, Kerlingarfjörður, Mjóifjörður og Kjálkafjörður að hluta. Svæðið er talið heppilegt til skógræktar og útivistar. - Sveinn Mikill munur á greiðslum í félagslega íbúðakerfinu KAUPANDI almennrar kaupleiguibúðar að andvirði 7.500.000 kr. greiðir alls 13.721.300 kr. í afborganir og vexti af 6.750.000 kr. láni til 43 ára en eignast aldrei meira en 52,7% af andvirði hennar. Kaup- andi jafn dýrrar félagslegrar eignaríbúðar eignast jafn stóran hlut í henni að sama lánstíma loknum, en greiðir af jafn háu láni aðeins 8.367.140 kr. Þetta kemur fram í svari Húsnæðisstofnunar ríkisins við fyrirspurn frá Þórhalli Jósepssyni, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Húsnæðismálastjórn. Fleiri sækja um störf hjá Vinnuskólan- anum en áður ALLS hafa um 1.900 unglingar . sótt um vinnu hjá Vinnuskólanum samanborið við rúmlega 1.700 í fyrra. Að sögn Sigurðar Líndáls aðstoðarskólastjóra munu allir þeir sem sótt hafa um fá vinnu í sumar. Vinnuskólinn er starfræktur fyrir unglinga fædda árin 1977 og 1978. Starfsemin hefst 2. júní og verður út júlímánuð. Þeir sem fæddir eru árið 1978 fá vinnu hálfan daginn en þeir sem fæddir eru 1977 fá vinnu allan daginn. „Við erum með vinnuhópa um alla Reykjavík, t.d. við skóla og hjá Hita- veitunni. Þá erum við hópa sem hirða garða hjá ellilífeyrisþegum en aldrei hafa jafn margir ellilífeyrisþegar sótt um slíka þjónustu og nú,“ segir Sigurður. I svari Húsnæðisstofnunar, sem lagt var fram á miðvikudaginn, er gerð nokkur grein fyrir eignarmynd- un annars vegar í félagslega íbúða- kerfínu (félagslegar eignaríbúðir og almennar kaupleiguíbúðir) og hins vegar í húsbréfakerfinu. Lánstíminn í húsbréfakerfinu er 25 ár en 5 til 50 ár í félagslega kerfinu. í hús- bréfakerfinu er ekkert afborgunar- laust ár og sama gildir um almenn- ar kaupleiguíbúðir, en fyrsta árið er afborgunarlaust þegar keypt er félagsleg eignaríbúð. Framlag lán- takanda við kaup er 35% í húsbréfa- kerfmu en 10% í félagslega kerfinu. Vextir í húsbréfakerfinu eru 6% en 4,5% vegna almennra kaupleigu- íbúða, þar sem 70% kaupverðs eru lánuð til 43 ára en 20% til 5 ára, og vegna félagslegra eignaríbúða eru lánuð 90% til 43 ára á 1% vöxt- um. Vegna ofangreindra þátta er eignarmyndunin hraðari í húsbréfa- kerfínu heldur en í félagsíbúðakerf- inu. Ekki er munur á eignarmyndun milli almennra kaupleiguíbúða og félagslegra eignaríbúða þegar láns- tíma lýkur eftir 43 ár en nokkur munur kemur fram á lánstímanum. Vegna 20% lánsins til 5 ára verður eignarmyndunin hraðari í almenn- um kaupleiguíbúðum fyrstu árin en frá og með 18. ári verður hún meiri í félagslegum eignaríbúðum. Af þessu leiðir einnig að árleg greiðslu- byrði er mun hærri af húsbréfalán- um en lánum til félagslegra eignar- íbúða. Þyngsta greiðslubyrðin er af almennum kaupleiguíbúðum fyrstu 5 árin, en fer niður fyrir húsbréfa- lánin eftir það. I svari Húsnæðisstofnunar er tek- ið dæmi um íbúð sem kostar 7,5 milljónir króna. Eftir 25 ár hefur kaupandi í húsbréfakerfinu eignast hana að fullu en hefur þá alls borg- að 9.533.881 kr. í afljorganir og vexti af láninu,_ sem í upp'hafi var 4.875.000 kr. Á sama tíma hefur kaupandi félagslegrar eignaríbúðar greitt 4.810.151 kr. í afborganir og vexti af láninu, sem upphaflega var 6.750.000 kr., heildareign hans í íbúðinni er orðin 1.728.280 kr. eða Alþjóðlegar stafatöflur fyrir tölvur: Listahátíð í Reykjavík hófst á Lækjartorgi í gær með ávarpi Ólafs G. Einarssonar, menntamálaráðherra, kórsöng og fleiri atriðum. Á myndinni sjást nokkrir þeirra gesta sem viðstaddir voru athöfnina á torginu í veðurblíðunni. I gær var tónverk Hjálmars H. Ragnarssonar frumflutt í Þjóðleikhúsinu við texta Halldórs Laxness, opnunartónleik- ar hátíðarinnar voru í Háskólabíói og sýning á listmunum frá Jórdan- íu var opnuð í Listasafninu. í dag verða opnaðar sýningar með verkum eftir Kjarval og Miro á Kjarvalsstöðum, Buren í Listasafninu og einn- ig sýningar í Nýlistasafninu og Listasafni Siguijóns. Hver atburðurinn rekur síðan annan næstu þijár vikurnar, en Listahátíð lýkur 19. júní. Listahátíð á Lækjartorgi Morgunblaðið/Bjami Niðurstaða í atkvæðagreiðslu um þrjá íslenska stafi um miðjan júní Aðildarþjóðir ISO eru 25 og hefur atkvæðagreiðslan staðið frá því í janúar. Að sögn Þorvarðar Kára Ólafssonar hjá Staðlaráði íslands er vitað að nú þegar hafa sex þjóðir samþykkt alheimstöfl- una óbreytta en tvær fellt hana að tillögu Tyrkja. Lítið sem ekkert er vitað um ákvörðun hinna aðild- arþjóðanna 19. Island er áheyrnarfulltrúi að ISO og hefur því ekki atkvæðis- rétt í sambandinu. Staðlaráð ís- lar.ds íhugar nú að sækja um fulla aðild að ISO. Baldur Jónsson, forstöðumaður íslenskrar málstöðvar, segir af- leiðingar þess að íslensku stöfun- um verði skákað út úr stafatöflun- um geta orðið alvarlegar. „Ég ótt- ast einna mest þann möguleika að einhveijir landar okkar leggi til að stafírnir verði felldir út úr íslensku máli þar sem það taki því ekki að leggja í kostnaðarsamar breytingar. Slíkt myndi hreinlega umturna ásýnd íslensks ritmáls.“ Sjá Tyrkjaránið, bls. 10. Atkvæðagreiðslu innan ISO, Alþjóðasambands staðlastofnana, um stafatöflur í tölvum lauk í gær. Borin var undir atkvæði svo- kölluð alheimstafla en tyrkneska staðlastofnunin hafði sett fram breytingartillögu við töfluna þess efnis að fella ætti út þijá ís- lenska stafi fyrir tyrkneska. Verði tillaga Tyrkja samþykkt gæti það haft í för með sér milljarða útgjöld vlð breytingar á tölvum hérlendis. Ekki er að vænta niðurstöðu úr atkvæðagreiðslunni fyrr en um miðjan júní. 23% íbúðarverðsins. Sá sem keypt hefur almenna kaupleiguíbúð hefur hins vegar eftir 25 ár greitt 8.674.180 kr. í afborganir og vexti af upphaflegum lánum að andvirði 6.750.000 kr. og á þá 1.559.142 kr. í íbúðinni eða 20,8%. Eftir 43 ár hefur kaupandi í hús- bréfakerfinu átt íbúð sína skuld- lausa í 18 ár og fær fullt verð henn- ar við endursölu. Sá sem keypti félagslega eignaríbúð hefur þá alls greitt 8.367.140 kr. og á í íbúðinni 3.956.250 kr. eða 52,7%, en það er sú upphæð sem hann fengi greidda ef hann seldi hana. Kaupandi al- mennrar kaupleiguíbúðar hefur hins vegar eftir 43 ár alis greitt 13.721.300 kr. í afborganir og vexti, en eignarhlutur hans er þá 3.956.250 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.