Morgunblaðið - 16.07.1992, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.07.1992, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992 41 MIÐAVERÐ KR. 300 Á 5 OG 7 SÝNINGAR ALLA DAGA Joe (Sylvester Stallone) er harðsnúin lögga í stórborg og lifir þægilegu piparsveinalífi. Mamma (Estelle Getty í KXASSAPÍUM) kemur í heimsókn. Hún tekur ærlega til hendinni. ÓBORGANLEGT GRÍN OG SFENNA Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. TÖFRALÆKNIRINN ***+ Fressan. Stórbrotiil mynd uni mann, sem finnur lyf við krabba- meini. Leikur Sean Conn- ery gerir þessa mynd ógleymanlega. Sýndkl. 5,7, 9 og 11. NÆSTUMÓLÉTT Eldfjörug gamanmynd um hjón sem eru barnlaus því eiginmaðurinn skýtur „púðurskotum". Sýnd kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan 14 ára. MITT EIGIÐIDAHO Frábœr verðlaunamynd meö úrvalsleikurum. ★ ★★ Mbl. Sýnd kl. 11. Bönnuð innan 16 ára. Börn að leik i sumarbúðunum í Varmalandi. Alþjóðlegar sumarbúðir bama em á Yarmalandi ALÞJÓÐLEGAR sumar- búðir barna eru nú á Var- malandi í Borgarfirði og standa til 22. júlí á vegum „Children’s International Summer Villages“, alþjóð- legrar friðarhreyfingar, sem tengist Sameinuðu þjóðunum í gegnum UNESCO. í sumarbúðir CISV í Var- malandi koma alls 48 börn, frá Bandaríkjunum, Brasilíu, Danmörku, Frakklandi, Gu- atemala, íslandi, Ítalíu, Jórd- aníu, Kanada, Mexíkó, Nor- egi, Svíþjóð og Tælandi. Börnin eru 11 ára gömul. Frá hverri þjóð koma tvær stúlkur og tveir drengir ásamt fararstjóra. Lífið í sumarbúðunum einkennist af leik, íþróttum, söng, dansi, skapandi vinnu, leiklist og ferðum. Rauði þráðurinn í gegnum allt starfið er þó til- litssemi og skilningur og börnunum verður fljótt ljóst að þau eru mjög lík. Sumar- búðirnar í Varmalandi eru þær fjórðu sem ísland held- ur. CISV var stofnað af bandarískum barnasálfræð- ingi, dr. Doris Allen. Hug- mynd Doris Allen var sú að böm frá ólíkum löndum kæmu saman, lærðu að lifa saman á grundvelli umburð- arlyndis og jafnréttis, að hugsa og draga ályktanir í anda alþjóðavitundar og vinna þannig að friði í heim- inum. Með aðstoð Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna var farið í fyrstu búðirnar í Bandaríkjunum 1951 og komu þangað 55 þátttakend- ur frá 9 þjóðum, en nú eru um það bil 70.000 félagar frá 89 þjóðlöndum í hreyf- ingunni. íslandsdeild CISV var formlega stofnuð 1981. Um 550 börn hafa farið á vegum félagsins auk farar- stjóra. ------♦ » ♦ ■ Framhaldsútgáfutón- leikar verða á Púlsinum í kvöld, fimmtudaginn 16. júlí, og hefjast þeir kl. 22 og standa til kl. 24. Þar koma fram hljómsveitirnar Þúsund andlit og SúEllen en báðar sveitirnar eiga lög á Bandalögum 5, safnplötu sem Steinar hf. hafa gefið út, en fyrri útgáfutónleik- arnir voru á Púlsinum sl. fimmtudag. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Bylgjunni í boði Flúða- sveppa. RCGNBOGINN SÍMI: 19000 Vitostíg 3, sími 623137 W Fimmtud. 16. júlí - opiö kl. 20-01 TÓNLISTARSUMAR '92 - PÚLSINN A BYLGJUNNI Bein útsending kl. 22-24 íboði FLÚÐASVEPPA ÞÚSUND ANDLIT Kl. 22: SÚ ELLEN Flutt verða m.a. lögin „TÁLSÝN" OG „FERÐ ÁN FYRIRHEITS" AF BANDALÖGUM 5. í tilefni íslensks tónlistarsumars ’92 skal bent á að FLÚÐASVEPPIR eru eingöngu ræktaðir úr is- lensku hráefni og bragðast frábærlega ferskir með smjörklípu og salti eftir smekk!!! PULSINN -y VELJUM ISLENSKT ÚS^L ■ *?SVEPPIR*f Lougov^gi 45 - ». 21 255 TÓNLEIKAR í KVÖLD: UPSTICK ms Áföstudagskvöld verðurmjög óvænt uppákoma. Fylgist vel með auglýsing- unni frá okkur á morgun. simrn LAUGARDAGS- KVÖLD ■ ROKKS VEITIN Lipstick Lovers verða með tónleika á Tveimur vinuin í kvöld, fimmtudaginn 16. júlí. Þeir sem sameina krafta sína í hljómveitinni eru Bjarki Kaikumo söngvari og gítar- leikari, Heimir bassaleikari, Ragnar Ingi trommari og Anton Már gítarleikari. Föstudaginn 17. júlí verður sveitin ásamt fleirum á tón- leikum í Þjórsárdal og laug- ardaginn 18. júlí hita Lipstick Lovers upp fyrir Sfðan skein sól í Miðgarði, Varmahlíð. ■ INGI GUNNAR Jó- hannsson leikur á tónleikum á Norðausturlandi um helg- ina. Hann kemur fram á Hót- el Tanga á Vopnafirði á föstudagskvöld og á Hótel Norðurljósumá Raufarhöfn á laugardagskvöld. Hann flyt- ur lög af nýrri hljómplötu sinni Undir fjögur augu. Ingi Gunnar Jóhannsson. Moeiður Júníusdóttir. Tónleikar íkvöld frá kl. 23-01 Méeiður Júníusdóttir skemmtir í kvöld ósamt Jóel Pálssyni og Karli Olgeirssyni. Opið fyrir mat frákl. 18-23.30 Borðapantanir í síma 681661. '/VEITINGAHUSIÐ JAZZ ÁRMÚLA 7 (við hliðina i Hótcl Islandi) ■ SÖNGKONAN Móeiður Júníusdóttir kemur fram á veitingahúsinu Jazz í Armúla 7 í kvöld, fimmtudaginn 16. júlí. Undirleik annast þeir Karl Olgeirsson á píanó og Jóel Pálsson á saxafón. Tón- leikarnir hefjast um kl. 23 en húsið er opnað fyrir matar- gesti kl. 18. Cterkurog O hagkvæmur auglýsingamiðill! fjtorgmWafeifo

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.