Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ 999 BARCELONA '92 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 Svekktur adþurfaad hætfta svona - sagði Bjarni Friðriksson eftir að hann datt úr keppni BJARNI Friðriksson tapaði fyrir franska Evrópu- og heimsmeistar- anum Stephane Traineau ífyrstu glímu sinni í 95 kg flokki í júdó á Ólympíuleikunum í Barcelona í gær. Það kom ef til vill ekki svo mikið á óvart, en hitt að sama skapi mikið að Frakkinn tapaði fyr- ir bandarískum júdómanni í næstu umferð og þar með voru vonir Bjarna um að fá frekara tækifæri — fá uppreisnarglímu — foknar út í veður og vind. Frakkinn Traineau, sem er aðeins 25 ára en gríðarlega sterkur, mætti Indónesíubúanum Hengky Pie 1 fyrstu umferð og Skapti vann glæsilegan Hallgrímsson fullnaðarsigur, ipp- skrífarfrá on, eftir eina og Barcelona hálfa mínútu. Bjami sat hjá í fyrstu umferð en mætti síðan Frakkanum, sem talinn var sigurstranglegastur í flokknum, enda hafði hann ekki tapað í tvö ár þar til í gær. Bjami byijaði mjög vel, náði Frakkanum fljótlega í gólfið en hann varðist vel þannig að Bjami fékk ekki stig. Þeir reyndu báðir grimmt að sækja, og eftir nákvæmlega eina af mínútunum fímm þurfti að gera stutt hlé vegna þess að Traineau meiddist á vinstri hendi; Bjami tók um hana, snéri upp á og reyndi að toga hann til sin með þessum afleið- ingum. En þetta var ekkert alvarlegt og áfram hélt slagurinn. Hart var barist. Frakkinn náði Bjama svo í gólfíð, hélt honum og fékk yuko. Fljótlega voru svo dæmdar vítur á Bjama, shito, þannig að sá franski fékk koka, 3 stig. „Dómarinn taldi mig þama vera í of mikilli vöm,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið á eft- ir. Frakkinn skoraði svo aftur yuko og undir lok glímunnar náði Traine- au að skella Bjarna í gólfíð og vann fullnaðarsigur, ippon. „Það var stutt eftir og ég var orðinn kærulaus er hann náði mér í gólfið, og í arm- lás,“ sagði Bjami. Ánægður „Ég er ánægður með glímuna. Ég reiknaði með miklu meiri bar- daga, meiri látum,“ sagði Bjami. „Ég komst vel að, náði tökum á honum. Hann vildi ekki í gólfíð, en ég náði honum þó þangað þrisvar eða fjórum sinnum." Bjarni tók fram, eins og áður hefur verið haft eftir honum, að hann hefði ekki reiknað með að vinna Frakkann en sagði glímuna hjá sér hafa verið betri en hann bjóst við. Auðvitað var hann svekktur eftir tapið, „en ég var miklu svekktari eftir að Bandaríkjamaðurinn vann Frakkann. Þetta kom mjög á óvart — enginn átti von á þessu. Já, ég er alveg ferlega svekktur yfir þessu því ég taldi mig eiga góða möguleika í framhaldinu ef Frakkinn _ynni og næði að toga mig áfram. Eg hefði mætt Indónesíumanninum og síðan Leo White frá Bandaríkjunum," sagði Bjarni sem taldi sig hafa átt góða möguleika gegn þeim báðum. Þess má geta að það var einmitt Leo þessi White sem sigraði Frakk- ann Traineau svo óvænt — fleygði honum, með svokölluðu Harai Dos- hi, og fékk ippon, fullnaðarsigur eft- ir aðeins hálfrar mínútu viðureign. „Traineau hefur greinilega vanmetið White mikið, Frakkinn er miklu betri júdómaður,“ sagði Bjarni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Bandaríkjamaðurinn White kemur á óvart á Ólympíuleikunum. í Los Angeles 1984 gerði hann sér lítið fyrir og sigraði Belgíumanninn Van der Walde, þáverandi Evrópumeist- ara og Ólympíumeistara frá því í Moskvu 1980. En Bandaríkjamað- urinn náði ekki langt á leikunum í heimalandi sínil því á vegi hans varð maður að nafni Bjarni Friðriksson ofan af íslandi og viðureign þeirra stóð ekki lengi yfir. „Bjami skellti honum auðveldlega og vann á ipp- on,“ sagði Tékkinn Michal Vachun, þjálfari íslensku júdómannanna við Morgunblaðið, er hann rifjaði þetta upp. Svekktur Bjarni Friðriksson hefur borið höfuð og herðar yfír íslenska júdó- menn undanfarinn einn og hálfan áratug, en nú telur hann komið mál að linni. Eftir Ólympíuleikana í Seo- ul fyrir fjórum árum sagðist hann reyndar ekki búast við að taka þátt í stórmóti framar, en hefur þó verið á fullri ferð síðan. „Maður á kannski aldrei að segja aldrei, en ég reikna þó með að vera hættur í stórmótun- um. Ég ætla að taka þátt í íslands- mótinu heima einu sinni enn ... og kannski í einhveijum minni mótum úti — því ég er svekktur að þurfa að hætta svona. Ég fann það í glím- unni við Traineau að þetta er svo jafnt, það vantar svo lítið upp á, að það kitlar mig svolítið að gera að- eins meira. Vera með aðeins lengur. En ég get Jofað þér því að þetta eru síðustu Ólympíuleikamir mínir,“ sagði Bjami, sem orðinn er 36 ára. „En það er heimsmeistaramót á næsta ári! Nei, annars. Ég hugsa ég nenni þessu ekki lengur,“ sagði Bjarni og brosti. Keppendur í flokki Bjarna voru 36 að þessu sinni, en hafa yfirleitt verið 24 áður að hans sögn. „Þetta er lang sterkasta júdómót sem nokk- urn tíma hefur verið haidið. Hér em til dæmis keppendur frá fimm lönd- um sem áður voru í Sovétríkjunum,“ sagði Bjarni. Þess má geta að áðurnefndur Leo White mætti Hollendingnum Meijers eftir að hafa sigrað Frakkann Tra- ineau, og átti ekki möguleika. Hol- lendingurinn er geysilega sterkur og spáði Bjarni því að hann myndi mæta Pólveijanum Pawel Nastula í úrslitum flokksins. Ekki gekk það eftir. Ungveijinn Antal Kovacs sigr- aði Bretann Raymond Stevens í úr- slitum, en Meijer, sem tapaði fyrir Kovacs í fimmtu umferð, og Dmitri Sergeyev frá Samveldinu hlutu bronsverðlaunin. Þaovarmögu leikiaðsigra - segir Sigurður Bergmann um viðureignina við Kúbverjann í íyrradag Eg byijaði mjög vel, náði að sækja stíft og hann komst ekki að. Fékk á sig víti og ég náði að halda þessari keyrslu í tvær og hálfa mín- útu en þá kom hann meira inn í myndina, náði tökum á glímunni og vann," sagði Sigurður Bergmann við Morgunblaðið í gær um glímu sína í +95 kg flokknum við kúbversa risann Frank Moreno í fyrradag. Varstu orðinn þreyttur? „Nei, engan veginn. Hann er bara mjög sterkur og erfítt að eiga við hann.“ En voru þetta ekki eðlileg úrslit? „Jú í sjálfu sér, en eins og þú sást héma áðan kom Bandaríkjamað- urinn (Leo White) og kastaði heims- meistaranum (Traineau, sem áður hafði sigrað Bjama Friðriksson), þannig að allt er hægt í íþróttum. Ég hefði átt að reyna að halda keyrsl- unni áfram eins og ég var búinn að gera fyrri helming glímunnar, ég sá fram á að það var möguleiki á að sigra því ég var kominn með foryst- una og hafði haldið henni í tvær og hálfa mínútu. En þá fór ég að hugsa, sem maður má auðvitað ekki gera í svona stöðu. Það þýðir ekkert að vera að velta hlutunum fyrir sér, heldur að keyra á fullu út glímuna. Þetta eru ekki nema fimm mínútur," sagði Sigurður Bergmann. raorgunDiaoio/iov BJarnl Frlðriksson sést hér í glímunni gegn Traineau (efri mynd) og af svip Bjama á m myndinni má sjá að hann er langt frá því að vera ánægður með að tapa fyrir hinum frar Evrópu- og heimsmeistara. 4- MORGUNBLAÐIÐ 999 BARCELONA '92 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 B 7 Of seinn ígang - sagði Broddi Krist- jánsson eftirtapið gegn Tælendingnum „ÉG fór allt of seint í gang,“ sagði Broddi Kristjánsson í samtali við Morgunblaðið eftir að hann hafði tapað fyrir Teer- anun Chiangta frá Tælandi í fyrstu umferð badminton- keppni Ólympíuleikanna. Broddi tapaði fyrstu hrinunni 15-2 og þeirri síðari 15-12. Það var ekki fyrr en undir lokin sem ég reyndi að gera eittnvað í málinu. Ég náði að jafna 12-A í síðari hrinunni og hélt þá að ég væri kominn í gang. Ég var alltof bráður í byijun, og leyfði Mlke Brown, þjálfari, Broddi Kristjánsson, Elsa Nielsen og Arni Þór Hallgrímsson. Morgunbiaðið/RAX boltanum lítið að ganga. Ég leyfði boltanum síðan að ganga er á leið og náði þá að jafna, en það voru mistök að byija ekki á því fyrr,“ sagði Broddi. Hann sagði að það hefði háð sér hversu óvanur hann væri að spila við Asíubúa. „Það tók sinn tíma að læra inn á hann, því maður fer sjaldan til Asíu að spila og hefur því litla reynslu á móti Asíubúum," sagði hann. Ámi Þór Hallgrímsson leikur í dag gegn S-Afríkumanninum An- ton Kriel og Elsa Nielsen gegn Bi- set frá Indlandi. Aðspurður sagði Broddi að Árni ætti nokkuð góða möguleika gegn Kriel. „Hann ætti að hafa hann ef allt er eðlilegt," sagði Broddi. Þeir félagarnir leika síðan á morgun gegn Hong Kong búum í tvíliðaleik. Broddi sagði að þeir væru sterkir en möguleikar þeirra væm einhveijir. BADIV31NTOIM ■ MARCUS Stephen, lyftinga- maður frá Nauru, er fyrstur landa sinna til að taka þátt í Olympíuleik- um. Nauru, sem er í Kyrrahafinu með um 8.500 íbúa, er ekki í IOC, en forsetinn sá til þess að Stephen fékk að vera í liði Vestur-Samoa- eyja. ■ ALÞJOÐA lyftingasambandið veitti leyfi fyrir því að Stephen keppti undir öðru þjóðerni og IOC Serði ekki athugasemd við það. I BANDARÍSK blöð eru ekki ánægð með framkomu Charles Barkleys í leik „Draumaliðsins" gegn Angólu, en þá sló hann veiklulegasta mótheijann viljandi. Liðið er nefnt „Nautin í Barcel- ona“ og lagt til að Barkley verði sendur heim, ef hann hagar sér ekki sómasamlega. ■ PETE Hamill skrifar í New York Post að „Draumaliðið" sé martröð Ameríku. Yfírburðimir komi í veg fyrir keppni og liðið ætti að sjá sóma sinn í að hætta. ■ VATNSDRYKKJA er meiri hjá íþróttamönnunum í Barcelona, en gert hafði verið ráð fyrir. „Draumaliðið" fékk senda 100 kassa til viðbótar við fyrri skammt frá frönsku fyrirtæki og banda- ríska blakliðið fékk 75 kassa. ■ GORAN Ivanisevic, tennis- spilari frá Króatíu, sagði að her- bergi sitt í þorpinu væri eins og gufubað. ■ HEIMSBIKARKEPPNI í sundi í 25 m sundlaugum fer fram á þremur vikum í janúar og febr- úar á næsta ári. Keppnin fer fram í Shanghai, París, Malmö, Gels- enkirchen í Þýskalandi, Sheffi- eld og Genóa á ftalíu. Sigurvegar- ar í hverri grein fá um 270.000 ÍSK, annað sætið gefur um 110.000 kr. og það þriðja um 55.000 krónur. Sigurvegarar í samanlögðu fá um 270.000 kr. í verðlaun að auki. ■ 200 áhorfendur á leikunum í Barcelona komust að því í vikunni að sæti þeirra voru þegar upptek- in. í ljós kom að 200 miðar höfðu verið tvíprentaðir, og fengu hinir óheppnu sæti annars staðar. ■ ÞÓ sagt sé að uppselt sé á hinar og þessar greinar eru víða laus sæti, þegar á reynir. Ástæðan er sú að fyrirtæki hafa keypt marga miða til að gefa, en þiggj- endur láta ekki nærri alltaf sjá sig. Hugmynd er um að hleypa fólki frítt inn í laus sæti með þeim fyrirvara að það fari, ef rétthafi kemur. ■ YURI Chechi var helsta von ítala í fimleikum, en hann sleit hásin fyrir þremur vikum og er í Barcelona sem áhorfandi. ■ ÓNAFNGREINDUR kepp- andi frá Spáni mældist með óvenju mikið magn af hormóninu testost- eron í óvæntu lyfjaprófi. Annað sýni sýndi að magnið var innan leyfílegra marka. Barcelona’92 Q&P DAGAR Styrktaraðili í slcóm Olympíutilboð 10- 40% afsláttur Kopavogs Hamraborg 20a Sími 641000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.