Morgunblaðið - 06.10.1992, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1992
fclk ■
fréttum
COSPER
FRÆGÐ
Vandræðadóttir Bills
Cosby snýr við blaðinu
- Frænka mín? Ég hélt að þetta væri frænka
þín.
Elsta bam grínarans Bill Cosby heitir Erin Cosby.
Hún er nú 25 ára gömul og hefur lengi vel ver-
ið fjölskyldu sinni mikið áhyggjuefni. Hún hefur verið
drykkfelld og auk þess verið ánetjuð eiturlyfjum um
margra ára skeið. Var ástandið um tíma svo slæmt
að hún neytti sterkra lyfja og var Bill nánast búinn
að gefast upp. Hann hafði oftar en einu sinni borið
kostnað af meðferðartilraunum hennar, en allt kom
fyrir ekki. Hún kom ævinlega út í þjóðfélagið full af
stórum orðum um betra líf með blómum í haga. En
var svo ævinlega komin út í sukkið áður en menn
gátu snúið sér við. En nú virðist kveða við annan og
nýjan tón.
Erin er nú „þurr“. Hún hefur ekki neytt áfengis
eða lyfja í all marga mánuði og segist vera búin að
fá sig fullsadda. Hún ætli ekki að bijóta sjálfa sig
niður. Hún hefur tamið sér hollt mataræði og byggt
sig upp í tækjasal. Hún er orðin hin glæsilegasta en
það er ekki langt síðan að hún líktist fremur skinhorð-
um svefngengli. Hún segir að hugur sinn stefni í
skemmtanabransann en vill ekki sjá að hinn frægi
faðir hennar kippi í spotta. „Þá væri það hann sem
hefði áorkað einhveiju en ekki ég. Ég gæti komist
langt bara á nafninu og með pabba potandi mér áfram,
en þannig vil ég ekki hafa það,“ segir Erin. Og hún
er að skrifa bók um hvemig það sé að vera meðlimur
í Cosby-fjölskyldunni.
Hún segir að það kenni margra grasa í bókinni.
Hún segir þar meðal annars að hún hafi alls ekki átt
við ávanalyfjavandamál að etja heldur hafi hún einfald-
lega átt lífsreynslu sem hún skilji nú að hafi ekki
verið nokkurs virði. í bókinni kemur einnig fram, að
hnefaleikatröllið Mike Tyson hafi reynt að nauðga
henni fyrir fímm árum, en ekki lukkast það. Sem
kunnugt er situr Tyson nú í svartholi dæmdur til langt-
ar betrunarvistar fyrir að nauðga fegurðardrottningu
á táningsaldri. Erin lýsir þessu atviki: „fjölskyldan
var boðin til fjölmenns mannfagnaðar á heimili Ty-
Erin Cosby.
sons. Ég var eitthvað að skoða mig um og ráfaði inn
í herbergi, en hrökk svo við er ég heyrði hurðinni
skellt i lás að baki mér. Þá sá ég að Tyson hafði elt
mig og hann hafði engar vöflur, heldur stökk á mig
og færði mig undir. Eg barðist um og æpti og það
var mér til happs að einhver frammi á ganginum
heyrði til mín. Hann hikaði og ég smaug þá undan
honum og hljóp fram í salinn. Foreldrar mínir töluðu
við hann í einrúmi stuttu síðar og samþykktu að aðhaf-
ast ekkert frekar ef hann samþykkti að leita sér að-
stoðar sálfræðings. Það er greinilegt að hann hefur
ekki látið verða af því. Það gleður mig að hann sitji
nú inni, en ég held að vistin hafi lítið að segja ef
hann fær enga sérfræðiaðstoð."
Skemmtileg og þroskandi ndmskeið
kefjast í nœstu viku fyrir stúlkur og pilta
I. Snyrting, framkoma, kurteisisvenjur, tjáning og sviðs-
framkoma. Verð kr. 7.300.
II. Framhaldsnámskeið í göngu, sviðsframkomu, tjáningu o.fl.
Verðkr. 4.500.
III. Herranámskeið 1 framkomu, kurteisisvenjum, göngu,
sviðsframkomu o.fl. Verð kr. 4.500.
Tískusýning og prófverkefni í lok námskeiðsins.
Ath.: Allir þeir sem hafa spurt um námskeið-
in hafi samband sem fyrst. ^
Innritun daglega frá kl. 17-19 í síma 643340 og 37878.
VÁKORTALISTI
Dags.06.10.1992. NR. 103
5414 8300 1326 6118
5414 8300 3052 9100
5414 8300 2772 8103
5414 8301 0407 4207
5421 72“
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4300 0004 4817
4507 4300 0014 8568
4543 3700 0005 1246
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0039 8729
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0029 3011
KREDITKORTHF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
Afgreiðslufólk vinsamlegast takiö ofangreind
kort úr umferð og sendið VISA Islandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klótesta kort og visa á vágest.
mæm VISA ISLAND
Höföabakka 9 • 112 Reykjavlk
Slmi 91-671700