Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.11.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992 23 Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir Grunnskólanemar í áhaldahúsinu á Flateyri. F.v.: Guðjón Svanur Hermannsson, Birkir Jónas Einars- son, Þorsteinn Sigurðsson, Önundur Hafsteinn Pálsson, Kristján Torfi Einarsson, Margrét Ósk Jóhanns- dóttir, Hrefna Sigríður Reynisdóttir og Þórir Traustason, sitjandi. Bónuðu bíla til fjáröflunar Flateyri. SKAPAST hefur hefð fyrir því að nemendur 10. bekhjar Grunn- skóla Flateyrar fari í árlega menningarreisu til Reykjavíkur. Átta nemendur lögðu í ferðina mánudaginn 2. nóvember ásamt skólastjór- anum, Birni Hafberg. Skoðaðar voru ýmsar stofnanir, fyrirtæki og framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu. Krakkamir öfluðu sjálf fjár fyrir ferðinni og voru famar ýmsar leið- ir. Þeir unnu í frystihúsinu, einnig buðu þeir bæjarbúum upp á þvott og bón á bílum sínum fyrir veturinn og vom margir sem létu þrífa og bóna bíla sína gegn gjaldi. Það var mikið um að vera í áhaldahúsinu á Flateyri eina helg- ina er fréttaritari leit við hjá krökk- unum. Aðspurð af hveiju þau völdu þessa leið til að afla fjár til ferðar- innar sögðust þau hafa vilja gera eitthvað fyrir fólkið í þorpinu. - Magnea, Oskað rannsóknar á ummælum lögreglufltr. Saksóknari er með bréfið til skoðunar RÍKISSAKSÓKNARI hefur ekki tekið afstöðu til bréfs níu fyrrum starfsmanna fíkniefnadeildar lög- reglunnar sem óskað hafa eftir að opinber rannsókn fari fram á sannleiksgildi ummæla sem höfð eru eftir Birni Halldórssyni lög- reglufulltrúa fikniefnadeildar í tímaritinu Mannlífi þar sem hann segir að dæmi séu um lögreglu- menn sem hætt hafi störfum í deildinni og hafi leikið sér að því að spilla upplýsingasamböndum og breiða út óhróður og lygi um starfsmenn deildarinnar. Hall- varður Einvarðsson rikissaksókn- ari sagði .við Morgunblaðið að bréfið væri til skoðunar hjá emb- ættinu og kvaðst hann ekki geta um það sagt hvenær afstaða yrði tekin til þess. í bréfi því sem lögreglumennirnir hafa afhent ríkissaksóknara segir að óskað sé eftir því að í fyrsta lagi sé rannsakað hvaða einstaklingar það séu sem Björn Halldórsson saki um svo alvarlegt brot og þá hvort þessar ásakanir eigi við rök að styðjast. Komi það í ljós er þess farið á leit að málið fái þá eðlilega opinbera meðhöndlun þannig að þeir sem um ræðir verði látnir sæta ábyrgð lögum samkvæmt. Leiði rannsóknin hins vegar í ljós að ummælin séu tilhæfu- laus verði Björn Halldórsson látinn Mosfellsbær og Hafnarfjörður fá ekki tekjujöfnunarframlög í ár Bæjarstjóm Mosfellsbæjar hefur óskað eftir fundi með ráðherra BÆJARSJÓÐIR Mosfellsbæjar og Hafnarfjarðar fá ekki hátt í 100 miiyóna króna tekjujöfnunarframlög sem reiknað hafði verið með við gerð fjárhagsáætlunar. Bæjarstjórnirnar ákváðu að hækka útsvarsprós- entu m.a. til að geta notið þessarrra framlaga en samkvæmt nýrri túlkun ráðuneytisins á gildandi reglum á að miða útreikninga um út- hlutun framlaganna við útsvar af tekjum ársins á undan. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur óskað eftir fundi með félagsmálaráðherra um þetta mál. Túlkun reglnanna hefur í för með sér að leiðrétta þarf úthlutin tekjujöfnunarframlags á síðasta ári þar sem nokkrir sveita- hreppar hafa þá fengið of mikið greitt. Húnbogi Þorsteinsson skrifstofu- að leggja á 7,5% útsvar á tekjur stjóri í félagsmálaráðuneytinu sagði að reglum um úthlutun úr Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga hafi verið breytt í ágúst á síðasta ári og framlögum úthlutað samkvæmt þeim í október það ár. Nú hefði ágreiningur risið um framkvæmdina og ráðuneytið því leitað til lögfræðinga um túlkun á reglunum. Niðurstaða þeirra væri að miða ætti við álagt útsvar á tekjur síðasta árs. Hann sagði að hvorki Hafnarfjarðarbær né Mosfellsbær hefðu nýtt tekjustofna sína nægilega vel á síðasta ári, með því til dæmis ársins, og virtust því ekki koma til álita við úthlutun tekjnjöfnunarfram- lagsins. Húnbogi sagði að þessa dag- ana væri verið að undirbúa tillögur um úthlutun úr sjóðnum. Húnbogi sagði að komið hefði í ljós að 4-5 sveitahreppar hefðu feng- ið tekjujöfnunarframlög á síðasta ári án þess að hafa fullnægt öllum skil- yrðum. Bjóst hann við að það yrði leiðrétt við úthlutunina nú. Róbert Agnarsson bæjarstjóri í Mosfellsbæ sagði að ráðuneytið hefði breytt túlkun sinni á úthlutunarregl- unum frá því í fyrra. Bæjarstjómin væri ekki sátt við nýju reglumar og hefði óskað eftir fundi með félags- málaráðherra um málið. Sagðist hann vonast til að hægt yrði að hitta ráðherra í dag. Róbert sagði að Mosfellsbær væri tekjulægsti kaupstaður landsins, um 20% undir meðaltali kaupstaðanna. Sagði Róbert að fullt og óskert telq'u- jöfnunarframlag hefði fært Mos- fellsbæ 80 milljónir kr. og eftir þeim reglum sem unnið var í fyrra hefði Mosfellsbær átt að fá 40 milljónir í sinn hlut. Með þeirri fjárhæð hafí verið reiknað við gerð íjárhagsáætl- unar. Ef túlkunin breyttist eins og nú væri verið að tala um yrði sveitar- félagið alveg af þessum tekjum. Guðmundur Ámi Stefánsson bæj- arstjóri í Hafnarfirði sagði áð eftir hækkun útsvars sem ákveðin var fyrr á þessu ári hafi Hafnarfjörður fullnægt þeim skilyrðum sem sett voru fyrir greiðslu tekjujöfnunar- Rannsóknir á nýtingri birkis til landgræðslu Birkíplöntur njóta góðs af nálægðinni við víði RANNSÓKNIR á endumýjun birkis af fræi hafa meðal annars leitt í ljós að birkiplöntur sem vaxa upp af fræi sem fellur nálægt víðirótum njóta góðs af nálægðinni við víðinn og verða miklu stærri og kröft- ugri en birkiplöntur sem ekki vaxa í nálægð víðis. Greint er frá þess- um niðurstöðum í grein eftir þá Sigurð H. Magnússon og Borgþór Magnússon í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins, en þegar eru hafnar tilraunir á því hvort nýta megi þessar niðurstöður við landgræðslu. Borgþór Magnússon sagði í sam- birkiplöntur hreinlega smitist af tali við Morgunblaðið að þau tengsl sem virtust vera milli birkis og víðis samkvæmt athugunum þeirra Sig- urðar gætu haft verulega þýðingu í landgræðslu. Reynslan væri sú að birkisáningar við uppgræðslu gengju stundum erfíðlega, en ef víðir væri til staðar í því landi sem sáð væri í mætti búast við því að árangurinn yrði mun betri. „Okkur grunar að þarna sé um svepprótartengsl milli þessara teg- unda að ræða. Annaðhvort að ungar svepprótinni sem víðirinn hefur og myndi fyrr eigin svepprót, eða þá að birkið myndi tengsl við víðirótina og geti á einhvem hátt nýtt sér hana. Þetta eru okkar tilgátur, en maður sér það ekki á öðmm plöntum að þær hafi það neitt betra við víðinn, hvorki grastegundir eða annar gróð- ur,“ sagði hann. Borgþór sagði þegar vera hafnar tilraunir með að nýta þessar niður- stöður og í sumar hefði verið sáð birki í gömul uppgræðslusvæði fyrir norðan Gunnarsholt þar sem víði- plöntur hefðu fundist á stijálingi. Hann sagði árangur af þessari sán- ingu væntanlega koma í ljós strax næsta sumar. „Þetta er einnig svolítið spennandi við almenna gróðurfarsfræði og gróðurframvindu. Það er vitað mál að eftir ísöld þegar jöklarnir hörfuðu færðist skógurinn norðar á norðlæg- um slóðum, og það er spurning hvort víðirinn sem hefur meiri útbreiðslu- hæfni en birkið hafi plægt jarðveginn fyrir birkið að því leyti að hann hafi verið kominn fyrr á svæðin. Þetta em vangaveltur sem eru spennandi í þessum fræðum, en við höfum ekki vitneskju um að að áður hafi verið bent á tengsl þarna á milli þótt sýnt ahfi verið fram á svipuð tengsl hjá öðmm tegundum,“ sagði Borgþór. Loqeriœrfi iynr vönibretfí Ávallt tyrirliggjandi. Leitið uppiýsinga. UMBODS- OG HEItOVERSLUN BÍLDSHÓFÐA 16 SIMI 6724 44 sæta ábyrgð lögum samkvæmt. Ari Edwald, aðstoðarmaður dóms- málaráðherra, sagði aðspurður í samtali við Morgunblaðið að sér virt- ist að þær ásakanir sem fram komi í ummælum Bjöms í tímaritinu væm þess eðlis að sér virðist sem opinber rannsókn sé besti farvegurinn til að skera úr um sannleiksgildi þeirra. Hann sagði hins vegar aðspurður að ráðuneytið hefði engin afskipti haft af málinu. -----» ♦ «---- Héraðsdómur Keykjavíkur Meðferð máln- ingarmálsins að hefjast MÁL ákæruvaldsins gegn tveimur mönnum sem gefið er að sök að hafa staðið fyrir innflutningi á um 65 kg. af hassi til landsins á árun- um 1985-1987 var þingfest í hér- aðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Sverrir Einarsson héraðsdómari hefur mál mannanna til meðferðar. Aðalmeðferð málsins hefst 19. þessa mánaðar með yfirheyrslum yfir hin- um ákærðu. framlags. Hann sagðist ekki gera athugasemd við nýja túlkun regln- anna. Aðalatriðið væri að sömu lög og reglur giltu um Hafnarfjörð eins og önnur sveitarfélög,- en á tímabili hefðu verið umræður um annað. Guðmundur Ámi sagði að sér sýndist að Hafnarfjörður hefði fengið 75 milljóna kr. tekjujöfnunarframlag ef fyrri túlkun reglnanna hefði gilt. Hann sagði að við gerð fjárhagsáætl- unar hafi verið farið varlega og gert ráð fyrir 50 milljóna kr. framlagi. Hann sagði að það setti vissulega strik í reikninginn hjá bæjarsjóði að þessar telqur skiluðu sér ekki fyrr en á næsta ári. Sagði hann að verið væri að endurskoða fjárhagsáætlun bæjarins, sérstaklega vegna þess að farið hefði verið hraðar í ýmsar fram- kvæmdir til að auka atvinnu í bæn- um. Á móti sagði hann að kæmi spamaður vegna hagræðingar og til- færsla frá verkefnum sem hægar hefði verið farið í. Hins vegar væri Ijóst að til einhverrar lántöku þyrfti að koma vegna atvinnuframkvæmd- anna. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. 1 Kopavogi, sími 671800 Opið sunnudaga kl. 2-6 Toyota Corolla GTI 16v ’88, svartur, 5 g., ek. 69 þ., sóllúga, rafm. í öllu. V. 750 þús. stgr. Nissan Sunny 1300 ’89, 5 dyra, rauður, 5 g.f ek. 38 þ. V. 630 þús., sk. á ód. Jaguar XJ6 ’81, blásans, ek. 160 þ., sjálfsk., m/öllu, 2 eigendur. Hefur fengið mjög gott viðhald. V. 970 þús. Honda Accord EX ’88, blásans, sjálfsk., ek. 64 þ., sóllúga, rafm. í öllu. Toppein- tak. V. 890 þús., sk. á ód. M. Benz 190 ’87, rauður, 5 g., ek. 53 þ. Dekurbíll. V. 1280 þús. stgr. GMC Jimmy S-10 ’85, sjálfsk., m/öllu, ek. 80 þ. mílur. V. 980 þús., sk. á ód. Cherokee Laredo 4.0L '87, brúnsans, 5 dyra, sjálfsk., ek. 77 þ., ýmsir aukahlutir. V. 1490 þús., sk. á ód. Toyota Carlna II GLI '92, sjólfsk., ek. 11 þ. V. 1360 þús., sk. á ód. Peugout 505 GR '87, sjálfsk., ek. 90 þ. Gott eintak. V. 690 þús. Vantar diesel fólksbíl. Saab 900I ’88, sjálfsk., ek. 64 þ., 4 dyra. Vandaður bíll. V. 1280 þús. MMC L-300 4x4 8 manna ’88, 5 g., ek. 68 þ., sportf. o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód. Plymouth Laser RS Twln Cam 16v '90, 5 g., ek. 33 þ. mílur, rafm. í öllu o.fl. Sport- bíll í sórflokki. V. 1690 þús., sk. á góðum jeppa (ód). MMC Colt turbo '87, svartur, sóllúga, rafm. í öllu, álfelgur o.fl. ek. 104 þ. Falleg- ur sportbíll. V. 490 þús. Cherokee Laredo '91, einn m/öllu, ek. 16 þ. V. 2350 þús. Daihatsu Charade CX 5 dyra, '89, ek. 75 þ. V. 450 þús. Mazda 323 GLX Fastback ’92, 5 g., ek. 30 þ. Sem nýr. V. 1090 þús. MMC L-300 8 manna ’89, 5 g., ek. 113 þ. „Vsk-bíll". V. 850 þús. MMC Lancer GLX station 4x4 '90, g., ek. 38 þ. V. 980 þús. stgr. VANTAR GOÐA BILA Á STAÐINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.