Morgunblaðið - 29.11.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1992
B 23
Heimkoma eftir Jónas Guðmundsson er á nýjasta kortinu með vatns-
litamyndum Jónasar.
skrifa og mála. Þetta hús er að
verða 100 ára gamalt og friðað,
en mikið átti eftir að gera við það.
Þar býr Jónína nú, enda tvö börn
hennar af fjórum enn í skóla á
Eyrarbakka. Hún leigir því stúd-
entum íbúðina sína á Sólvallagötu
á vetrum, en hefur þar innhlaup,
enda kemst hún ekki alltaf heim.
Móðir hennar er með bömunum
fyrir austan.„Hún er mitt akkeri,“
segir Jónína.„Hún skilur þetta vel,
enda varð hún sjálf tvisvar sinnum
ekkja með börn. Atti tvo sjómenn.
Ég ek svo á milli, í og úr vinnu
þegar hægt er. Er að reyna að
púsla þessu saman og leysa málin
eins og ég held að sé best fyrir
okkur öll. Það hefur verið rosalega
erfítt í vetur að aka á milli. Eg
má þakka fyrir að hafa svona góða
heilsu, andlega og líkamlega. Þá
gengur þetta allt saman.“
Jónína er lærð leikkona. Margir
þekkja hana úr útvarpinu, þar sem
hún m.a. var með barnatímann í
mörg ár. Nú starfar hún í Borgar-
leikhúsinu, auk þess að koma
stundum fram í útvarpi. Nú er hún
að æfa í helgileiknum Jólasögu
eftir Guðrúnu Asmundsdóttur sem
verður sýndur nú um jólin. I vetur
kennir hún ekki leiklist í skólum,
eins og hún hefur gert undanfarin
ár. Yfír ferðamannatímann á
sumrin er hún með gistiþjónustu í
húsinu sínu á Sólvallagötu 9. í
kjallara hússins hafði Jónas vinnu-
stofu og lítinn sal, sem mátti nota
til sýninga. Þar hefur Ingunn Jens-
dóttir tvisvar sinnum sett upp sýn-
ingu í salnum sem Jónína kallar
Gallerí Nína. Ætlar Ingunn enn
að sýna þarna í nokkra daga núna
í byijun desember.„Það er svo
gaman hjá okkur“, sagði Jónína
þegar við tókum hana tali á förnum
vegi og fréttum af högum hennar
og því sem hún er að gera. Nýja
kortið hefur tekið tíma að undanf-
örnu.„Kortin eru svona nokkurs
konar skerfur minn, sjómannsdótt-
urinnar og sjómannskonunnar, til
útgerðar og sjómanna,“ sagði hún.
DYRAHALD
Með rottu sem gæludýr
Músi Músarrindill líkist vissulega mús.
Hann er hins vegar rottuungi og þar
að auki gæludýr 11 stúlku, Ásrúnar Kolbrún-
ardóttur. Músi Músarrindill hefur verið
heimilsvinur í tæpa 3 mánuði en auk hans
búa kanína og páfagaukur hjá Ásrúnu og
móður hennar.
Ásrún fann rottuungann í bakgarðinum
en þar var köttur nágrannans á góðri leið
með að aflífa hann. Ásrún hrakti köttinn í
burtu og fór inn með ungann, sem tók fljótt
við sér. Hann var ekki nema um 5 cm á
lengd þegar hún fann hann en hefur nú
stækkað og er á við mús. „Mamma var fyrst
ekkert hrifín af því að fá rottu í húsið en
sagði svo, hvað munar okkur svo sem um
eitt dýr í viðbót," segir Ásrún, sem er mik-
ill dýravinur. Hún hefur átt margar algeng-
ar gæludýrategundir, svo sem mýs, hamstra
og kött og hefur í framtíðinni hugsað sér
að verða dýralæknir eða læknir.
Ásrún segir rottuna sériega fríða og henni
kemur sérstaklega vel saman við móður
Ásrúnar. Hins vegar telur Ásrún ekki skyn-
samlegt að Músi Músarrindill kynnist kanín-
unni of náið, þar sem það gæti endað með
ósköpum. Ásrún þvær rottuna annað slagið
með vatni en hefur ekki farið með hana til
dýralæknis. Músi hefur aðsetur í hamstra-
búri en fær einnig að valsa um. Honum
þykir þægilegt að láta klappa sér og klóra
v bak við eyrun. Þá kann hann ýmsar kúnstir,
svo sem að labba upp og niður stiga, teygja
sig og hoppa úpp í lófa manns o.fl. „Og
þegar Músi Músarrindill er reiður lætur hann
í sér heyra,“ segir Ásrún, „hann skríður út
í hom og gargar dálítið, ekki ósvipað og
mýs.“
Heimilisrottan Músi Músarindill hefur hreiðrað um
sig á höfði velunnara síns, Ásrúnar Kolbrúnardóttur. -
Marta Gaia á harðahlaupum á
Mæjorku, þar sem hún er búsett.
Konungur hefur orð á sér fyrir
að vera mikill kvennamaður. Þeg-
ar ákvörðun var tekin um að hann
giftist hinni grísk-danskættuðu
Soffíu fyrir 30 árum flutti hann í
skyndi út frá ástkonu sinn sem
hann deildi íbúð með í Róm. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar
og konungurinn kenndur við
margt merkra kvenna, þeirra á
meðal Díönu prinsessu.
A TILBOÐSVERÐI
i
ATLAS-RR247
ATLAS-VR245
ATLAS-RR154
II
•i= Kœlir 150 Itr.
* An frystihólfs
* Sjálfvirk afþíðing
* H:85cm B:58cm D:ó0cm
TILBOÐ % QAA.
Kr. 27.900-AW.7VVstgr
ATLAS-VR156
I . es . 4
* Kœlir 150 Itr.
* Frystihólf 14 Itr. innb.
* Hálfsjálfvirk afþfðing
* H:85cm B:58cm D:60cm
if.Sl9oo-27.9005.
* Kœlir 240 Itr.
* Án frystihólfs
* Sjálfvirk afþíðing
* H:120cm B:58cm D:60cm
TILBOÐ 00 QAA_
Kr. 34.700- OZ*7VVs7gr
* Kœlir 240 Itr.
* Frystihólf 27 Itr. innb.
* Hálfsjálfvirk afþíðing
* H:122cm B:58cm D:60cm
TILBOÐ OC QAA
Kr. 36.800- 0 J*7VV7gr
ATLAS-RR291
ATLAS-MR284
ATLAS-RF181/80
ye"'
* Kœlir 280 Itr.
* Án frystihólfs
* Sjálfvirk afþíðing
$ H:143cm B:58cm D:60cm
TILBOÐ 0C QAA
Kr. 37.900-OJ«7VVs7gr
* Kœlir 253 Itr.
* Frystihólf 27 Itr. innb.
$ Hálfsjálfvirk afþíðing
* H:145cm B:58cm D:60cm
TILBOÐ07QAA
Kr. 39.900-v/ .7VV7gr
* Kœlir 180 Itr.
* Frystir 80 Itr. að neðan
* Sjálfvirk afþíðing
H:144cm B:58cm D:60cm
TILBOÐ AO QAA
Kr. 45.900- Hj.7UUsm
J
RONNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68