Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993 Félagshyggj unauðung Einnig má velta því fyrir sér hvort ríkið getur skilyrt þjónustu, sem skattgreiðendur hafa þegar greitt fyrir, því að menn greiði gjöld til félaga. Gæti það orðið skilyrði fyrir sjúkrahúsvist að greiða ein- hveiju sjúklingaráði gjöld? eftir Þorstein Arnalds Nú í upphafí árs hanans er farið að örla á árlegu hanaati stúdenta- pólitíkusa. Liðsmenn Röskvu og Vöku ata hvorir aðra auri hvað mest þeir mega. Undirritaður hefur aldrei gert skýran greinarmun á sósíalistum og sósíalistum. Svo gæti þó farið að þessu sinni þar sem annar hópurinn hefur lýst viija til að virða almenn mannréttindi. Er hér átt við það kosningamál Vöku að gefa „aðild að Stúdentaráði" fijálsa. Ég frábið mér hins vegar að vera talinn stuðningsmaður Vöku eða á nokkum hátt bendlaður við það sósíalistafélag. Ástæða þessa greinarkoms er vamarræða Helga Bjöms Kristins- sonar formanns Röskvu fyrir nauð- ungaraðild að félögum stúdenta í Morgunblaðinu 4. febrúar 1992. Finnst mér þar gæta ýmissa rök- leysa, þversagna og rangfærslna. Vökumaður! 1. Hveijir beijast fyrir fijálsri aðild? Helgi segir: „Boðberar þessara[r] skoðunar [að vilja fijálsa aðild að Stúdentaráði SHÍ) sem allir eiga það sameiginlegt að vera stuðnings- menn Vöku ef ekki innstu koppar í búri á þeim bæ...“. Hér er um einhvem lítilsháttar misskilning að ræða. Eins og kunnugt er tók Vaka það ekki inn í stefnuskrá sína fyrr en mjög nýlega að gefa fijálsa að- ild að SHI. Fyrir þann tíma vom margir sem börðust fyrir afnámi skylduaðildarinnar. Þeir eru margir hveijir orðnir langþreyttir á þessu aðgerðarleysi Vöku og næstversta skammaryrði í orðabók þeirra er „Vökumaður" (það versta er „Röskvumaður"). Að öðrum ólöst- uðum em þremenningamir sem nú nýlega var hótað brottvísun úr há- skólanum þar sem þeir neituðu að greiða til SHÍ og Félagsstofnunar stúdenta (FS) sennilega þeir sem ötullegast hafa barist fyrir fijálsri aðild. Mér er kunnugt úm að í þeim hópi er a.m.k. einn sem ekki hefur hingað til stutt Vöku. Stúfhamarrifað 2. Hveijir greiða hvað, til hverra og hvers vegna? í upphafí greinar sinnar segir formaður Röskvu að háskólinn „eymamerki“ FS og SHÍ hluta inn- ritunargjalda. Síðar í greininni seg- ir að háskólinn kjósi að „styrkja Stúdentaráð og Félagsstofnun með hluta þess skatts" sem felst í innrit- unargjöldum. Helgi segir einnig að um eitt inn- ritunargjald sé að ræða sem háskól- inn innheimtij FS og SHÍ innheimti engin gjöld. Ég tel talsverðan mun á eymamerkingu og styrk, reyndar tel ég eymarmerkingu vera nokkuð góða lýsingu á fyrirkomulaginu. Á kvittun minni fyrir greiðslu innrit- unargjalda segir að ég hafí greitt 22.350 krónur í innritunargjald, „þar af til háskólans krónur 17.000,00 til Stúdentaráðs krónur 2.150,00 og til Félagsstofnunar stúdenta krónur 3.200,00“ [leturbr. eru höfundar]. Af þessu fínnst mér koma alveg skýrt fram að ég greiddi til SHÍ og FS en að það var ekki háskólinn sem veitti þeim styrk. Það er aftur á móti laukrétt hjá Helga að SHÍ og FS innheimta engin gjöld. Það gera heldur ekki mörg önnur félög sem láta félagaþjónustu „Einnig má velta því fyrir sér hvort ríkið getur skilyrt þjónustu, sem skattgreiðendur hafa þegar greitt fyrir, því að menn greiði gjöld til félaga. Gæti það orðið skilyrði fyrir sjúkrahúsvist að greiða einhverju sjúklingaráði gjöld?“ banka og sparisjóða eða greiðslu- kortafyrirtækin annast slíkt. Þjón- ustu þessara stofnana þarf SHÍ ekki að nýta sér því að það hefur ókeypis í þjónustu sinni einn harð- asta „handrukkara“ landsins, Sveinbjöm Bjömsson rektor og fé- laga hans í Háskólaráði. Væri hér um styrki að ræða er annað ekki minna vert sem má velta fyrir sér. Að háskólinn væri tilbúinn til að henda 25 milljónum ut um glugg- ann í þennan „styrk“ hlyti að benda til þess að fjárhagur hans væri rúm- ur. Sjálfsagt væri þá að lækka fjár- veitingu háskólans sem þessu næmi. Sjúklingaráð? 3. Hveijum þjónar Stúdentaráð? Helgi Björn tínir til sem rök fyr- ir nauðungaraðild að SHÍ að ráðið beijist fyrir „hagsmunum" stúd: enta. Ekki veit ég til þess að SHÍ hafí barist sérstaklega fyrir mínum hagsmunum og skoðunum, þvert á móti. Ég er t.d. mjög ósammála baráttu Stúdentaráðs vegna LÍN og gegn fjöldatakmörkunum. Það 1 fógetatíð Skúla Magnússonar voru oft haldnar hinar veglegustu veislur og var þá og ólíkt íslensku réttarkerfi er allt afgreitt samstundis. vel veitL Hjá Fógetanum í Reykjavík í Aðal- stræti 10, fbgnum við Þorra með veglegu Þorrahlaðborði frá kl. 18.00 öll kvöld Lifandi og þjóðleg tónlist er leikin öll kvöld. GJÖRT í AÐALSTRÆTI10 meðan á Þorra stendur. Málskostnaður léttir vart pyngju svo nokkru nemi, aðeins 1.900 kr. pr. mann Sími 16323 Þorsteinn Arnalds vill stundum gleymast að allir námsmenn greiða skatt en einungis um helmingur þeirra tekur náms- lán. Það hljóta því frekar að vera sterk rök gegn skylduaðild að SHÍ að þar sé um pólitísk samtök að ræða. Það er í hæsta máta óeðlilegt að menn standi straum af kostnaði við baráttu gegn þeirra eigin skoð- unum. Mjög skín í gegn um málflutning félags- og samhyggjufólks að það telur mannfólkið vera einsleitan hóp með svipaðar þarfír og hagsmuni. Þannig dregur Helgi Björn þá álykt- un að mínir hagsmunir séu þeir sömu og hans og því eigi að skylda mig til að greiða til Stúdentaráðs. Fijálshyggjumenn (ekki get ég flokkað Vökumenn sem fijáls- hyggjumenn) telja öfugt að ef geng- ið er á hagsmuni eins þegar verið er að tryggja hagsmuni annarra sé ver af stað farið en heima setið. Öllu má nafn gefa 4. Er himinninn bleikur og mold- in græn? Helgi eyðir mörgum orðum í að sýna fram á að í raun sé Stúdenta- ráð illa skilgreint fyrirbæri og á það sé ekkert minnst í landslögum og reglugerðum. Vegna þessa telur Helgi lög ráðsins stóradóm um málefni þess. Athygli vert! En merkasta niðurstaða Helga held ég þó að sé sú að Stúdentaráð sé í raun ekki félag heldur „stúdenta- þing“ og því sé fjarstæða að skyldu- greiðsla til þess sé brot á félaga- frelsi! Með sömu orðafímleikum gætu olíufélögin og bifreiðaeigendur kall- að bensín og bíla mjólk og reiðhjól til að sleppa við aukna skattheimtu. Enn ein kostuleg þversögnin í málflutningi Röskvu er afstaða þeirra til innritunargjalda í fyrra. Þá lögðust þeir gegn innritunar- gjöldum og sögðu þau skerða ,jafn- rétti til náms“. Nú segja þeir að innritunargjöldin innifeli gjöld til FS og SHI, hér sé skilyrðislaust um óskipt gjald að ræða. Með því að vilja að greiddur sé sá hluti sem rennur til SHÍ geta þeir þá ekki lagst gegn því að hinn hlutinn af þessu óskipta gjaldi sé greiddur. Er Röskva hætt að vera á móti greiðslu innritunargjalda? Ef svo er gæti ég jafnvel hugsað mér að kjósa þá. Helgi Björn og félagar hans mega mín vegna leika sér í sínum félagshyggjusandkassa, en ég óska þess að standa utan hans og fá að sinna mínum hugðarefnum í friði, án þess að eiga það á hættu að korn úr skítkasti rauðliða í Vöku og Röskvu lendi í augum mínum. Höfundur er nemi í stærðfræði viðHÍ. Mannréttindamál í Bosníu-Herzegóvínu Nauðganir og önnur brot viðgangast enn MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Amnesty International hafa staðfest að konur í Bosníu-Herzegóvínu séu valdar sérstaklega út af herjum í landinu til að þola skelfilega valdbeitingu, nauðganir og aðrar kynferðislegar misþyrmingar, segir í fréttatilkynningu frá Am- nesty International. „Kynferðislegt ofbeldi er al- gengt og oft framið eftir fyrirfram ákveðnum áætlunum", segir í ann- arri af tveimur nýjum skýrslum samtakanna um Bosníu-Herzegóv- ínu, sem út komu fyrir skömmu. „Ofbeldið virðist fylgja mynstri kynþáttaofsókna sem því miður hefur einkennt stríðið í landinu, og konur hafa stundum verið tekn- ar til fanga af hermönnum sérstak- lega til að nauðga þeim.“ í skýrslunni eru nefnd dæmi um konur sem hefúr verið nauðgað á heimilum sínum, í fangabúðum eða á hótelum og öðrum byggingum þar sem þær hafa verið í haldi. Hermenn allra aðila hafa gerst nauðgarar og konur úr öllum stétt- um og þjóðfélagshópum hafa orðið fórnarlömb. Þó hafa múslímskar konur, sem nauðgað hefur verið af serbneskum hermönnum, verið í meirihluta. í einu slíku tilviki hefur 17 ára gömul múslírnsk stúlka sagt lækni frá því hvemig Serbar tóku hana ásamt fleiri konum úr þorpi þeirra og fluttu í húskofa úti í skógi. Henni var haldið þar í þijá mánuði ásamt 23 öðmm konum. Stúlkunni og 12 öðrum konum var nauðgað hvað eftir annað, fyrir framan hin- ar konurnar. Þegar þær reyndu að koma fórnarlömbunum til bjarg- ar voru þær barðar niður af her- mönnum. Þó erfitt sé að fullyrða með vissu um að nauðganir séu meðvitað notaðar af yfirmönnum heijanna sem vopn í stríðinu, er augljóst að foringjar hérdeilda vita af þeim og samþykkja þær. „Almenningur víða um heim hefur fengið nóg af ógnum þeim sem viðgengist hafa í fangabúðum í Bosníu-Herzegóvínu en herirnir sjálfir halda áfram að bijóta mann- réttindi“, segir í yfírlýsingu Amn- esty International. „Við óttumst að jafnvel nú þegar fulltrúar stríð- andi aðila sitja við samningaborðið geti mannréttindabrotum fjölgað vegna fjandskapar bosnískra Kró- ata og bosníska stjórnarhersins." En þrátt fyrir að herirnir og yfirmenn þeirra láti sig ástandið litlu varða stendur hundruðum þúsunda manna frá öllum heimin- um ekki á sama. Þegar Amnesty International fór fram á að fólk skrifaði bréf til að mótmæla mann- réttindabrotum í fyrrum Júgóslav- íu voru viðbrögðin gífurleg. Næst- um hálf milljón manns hvaðanæva að brást við kallinu og skrifuðu bréf, stíluð á fulltrúa friðarráð- stefnunnar í Genf. Nú er spurning- in bara hvort einhveijum sem hef- ur vald til þess er nógu annt um fólkið í þessum löndum til að stöðva mannréttindabrotin? (FréUatilkytiniiiK)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.