Morgunblaðið - 29.06.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JUNI 1993
29
Minning
Guðrún Helgadóttir
Tengdamóðir mín, Guðrún
Helgadóttir, lést á heimili sínu 18.
júní síðastliðinn. Með fáum orðum
vil ég minnast hennar.
Guðrún var fædd á Akureyri 1.
september 1930, dóttir nafnkunnra
hjóna þar á bæ, Helga Pálssonar
bæjarfulltrúa, sem var þekktur at-
hafna- og atkvæðamaður um sína
daga og konu hans, Kristinar Pét-
ursdóttur, ættaðrar af Skaga-
strönd.
Dauðinn var hið síðasta sem
kunnugum hefði komið í hug í sam-
bandi við Guðrúnu Helgadóttur.
Það sópaði mikið að tengdamóður
minni í hversdagslífinu. Hún var
glæsikona í sjón og raun, stolt og
örugg í fasi og framkomu, opinská
og hreinskiptin í tali og viðskiptum,
ræðin og skemmtileg og framúr-
skarandi velvirk og dugleg.
Ennþá stendur mér skýrt fyrir
hugskotssjónum fyrstu kynni mín
af Diddu, en svo var hún nefnd af
vinum og vandamönnum. Fyrir hér
um bil 15 árum lá leið mín til Akur-
eyrar í heimsókn til dóttur hennar.
I húsi hennar var tekið á móti mér
af miklum höfðingsskap og hlýju.
Guðrún giftist ung Jóhanni Ingi-
marssyni húsgagnaarkitekti frá
Þórshöfn. Heimili þeirra í Austur-
byggð 15 bar þeim hjónum fagurt
vitni, bæði listhneigð húsbóndans
og fegurðarskyni og myndarskap
húsmóðurinnar sem hélt öllu
fáguðu, svo að aldrei sást blettur
eða hrukka.
Árum saman ráku þau hjónin
saman húsgagnaverslun í miðbæ
Akureyrar. Á því fyrirtæki var
HÓPFERÐIRVEGNA
JARÐARFARA
HÖFUM GÆÐA HÓPBIFRIilÐAR
FRÁ12TII. 65 FARÞEGA
IEITIÐ UPPLÝSINGA i
’ w
hópferðamÍðstöðin
Bildshöfða 2a,
sími 685055, Fax 674969
ERFIDRYKKJIR
myndarbragur, sem eftir var tekið.
Þeim Guðrúnu og Jóhanni varð
þriggja barna auðið, en þau eru
kona mín, Kristín, Helga gift Krist-
jáni Jóhannessyni og Guðrún, ógift.
Auk þess ólu þau Guðrún og Jó-
hann upp barnabarn sitt, Helgu
Sigurlaugu.
Guðrún hugsaði einstaklega vel
um hag og velferð fjölskyldu sinn-
ar, en nú á þessum björtu vordögum
hefur dregið fyrir sól við fráfall
hennar. Það er til marks um hug-
rekki og baráttuhug Diddu, hversu
hún barðist gegn illvígum sjúkdómi
með fyllstu reisn til síðasta dags.
Þá er það eitt eftir að kveðja
tengdamóður mína, og flytja henni
þakkir frá mér og mínum. Margir
bera hryggan hug við brottför henn-
ar. Þyngstur er harmur kveðinn að
eiginmanni hennar, börnum og
barnabörnum. Minningin um
trausta og umhyggjusama eigin-
konu, móður og ömmu mun þó létta
byrði sorgarinnar. Blessuð sé minn-
ing Guðrúnar Helgadóttur. Hvíli
hún í guðs friði.
Vilhjálmur Kr. Andrésson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERLA BENEDIKTSDÓTTIR BEDINGER,
Stanton,
Kaliforníu,
lést á heimili sínu þann 25. júnf.
Ceorge Michael Bedinger,
Benedikt Jónsson,
Joanne og Bob Luttrell,
Linda og Sean De Forrest,
og barnabörn.
t
Astkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VIKTORÍA KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Björk,
Sandvíkurhreppi,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, þann 26. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jón Gíslason,
Guðrún Jónsdóttir,
Sigriður Jónsdóttir,
Ólafía Jónsdóttir,
Guðmundur Jónsson,
Gréta Jónsdóttir, Erlendur Daníelsson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Jóhann V. Helgason,
Sigurður Jónsson, Anna Kristín Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
BENEDICTA K. GUNNARSSON
frá ísafirði,
verður jarðsungin frá Isafjarðarkapellu föstudaginn 2. júlí kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Úlfs Gunnarssonar.
Kort fást í bókaverslun Jónasar Tómassonar eða Sjúkrahúsinu
ísafirði, sími 94-4500.
Katharína Ú. Ranson,
Birgir Úlfsson, Brynja Jörundsdóttir
Gunnar Martin Úlfsson, Kolbrún Svavarsdóttir,
Kristín Úlfsdóttir, Egill Rögnvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
BLÓMIÐ
Blóm - Skrcylingar - Gjafavara
Kransar - Krossar - Kisluskrcytingar
Úrval af scrvícttum
OPIÐ FRÁ KL. 10-21
GRENSÁSVEGI 16 • SÍMI 811330
t
Eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
GUNNLAUGUR
ÞORSTEINSSON,
Ránargötu 1a,
Reykjavík,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 1. júlí kl. 15.00.
Blómastofa
Fnöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Slmi 31099
Opiö öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur
Guðlaug Sveinsdóttir,
Aðalheiður Gunnlaugsdóttir, Guðbjartur Guðbjartsson,
Guðrún Alexandersdóttir, Gísli Guðjónsson,
Anna Ragna Alexandersdóttir, JimmyTan,
Sveindís Alexandersdóttir, Guðmundur Óskarsson
og barnabörn.
t
Eiginkona min, móðir okkar og systir,
TORFHILDUR JÓSEFSDÓTTIR
frá Torfufelli,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri föstudagainn 25. júní, verður
jarðsungin frá Hólakirkju í Eyjafirði laug-
ardaginn 3. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Fjórðungssjúkrahúsið eða aðrar
liknarstofnanir.
Angantýr H. Hjálmarsson,
Sigfriður L. Angantýsdóttir,
Ingibjörg Angantýsdóttir,
Elinborg Angantýsdóttir,
Sigurður Jósefsson.
t
Eiginkona mín,
KRISTVEIG KRISTVINSDÓTTIR
(DIDÍ),
Miðtúni 2,
lést í Borgarspítalanum 26. júní.
Björn Guðmundsson.
t Móðir okkar, MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR, Lokastig 5, lést í Borgarspítalanum 28. júní. Guðjón Emilsson, Emilía Emilsdóttir, Gunnlaug Emilsdóttir, Gunnar Emilsson. «■*
t Þökkum hjartanlega aðstoð og vinarhug vegna fráfalls HARALDAR TRAUSTASONAR, Hrauntúni 35, Vestmannaeyjum. Ástvinir hins látna.
t Við þökkum innilega hlýhug og hluttekningu við andlát móður okkar, tengdamóður og ömmu, INGU ÞÓRARINSSON. Snjólaug Sigurðardóttir, Friðleifur Jóhannsson, Sven Þ. Sigurðsson, Mary Bache Sigurðsson, Jóhann Sveinn Friðleifsson, Sigurður Ingi Friðleifsson, Aileen Soffía Svensdóttir, Stefán Andrew Svensson.
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÞÓRUNNAR ÓLAFSDÓTTUR, _ Háholti 20, Akranesi. Silvía Georgsdóttir og fjölskylda.
t Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURBJARGAR KRISTJÁNSDÓTTUR frá Hjalteyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Kristnesspítala fyrir góða umönnun. Sigurður Kr. Baldvinsson, Magðalena Stefánsdóttir, Yngvi R. Baldvinsson, Þórunn Elíasdóttir, Margrét Baldvinsdóttir, Óli Þ. Baldvinsson, Halla Guðmundsdóttir, Ari S. Baldvinsson, Sonja Baldvinsson, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR,
Mánabraut 8,
Kópavogi.
Sigurgeir Jónasson,
Ágústa Rut Sigurgeirsdóttir,
Sigrún Margrét Sigurgeirsdóttir, Guðni
Halla Sigurgeirsdóttir, Rúnar
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson,
Jónas Björn Sigurgeirsson, Rósa C
og barnabörn.
Lokað
í dag vegna jarðarfarar VALDEMARS SÖRENSEN.
Flóamarkaður
Sambands dýraverndarfélaga íslands,
Hafnarstræti 17, kjallara.