Morgunblaðið - 21.07.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.07.1993, Blaðsíða 34
-34 MORGUNBLAÐIÐ SÞRÖTTIR MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1993 si, ¥ ■ KNATTSPYRNA Utlitið dökknar enn hjá Marseille Franska lögreglan renndi í gær frekari stoðum undir þær ásakanir flögurra leikmanna Valenci- ennes að þeim hafí verið mútað, að undirlagi Jean- Pierra Bernes framkvæmdastjóra Marseille, til að tapa leik gegn Marseille í frönsku’'l. deildinni á síð- asta keppnistímabili. Lögreglan hefur rakið símtöl frá hóteli þar sem Bernes dvaldi, og til hótelsins þar sem leikmenn Valenciennes dvöldu, auk þess sem í ljós hefur komið að umslagið sem innihélt mútu- greiðslurnar var af sjaldgæfri tegund, en eins um- slög fundust í höfuðstöðvum Marseille þegar lögregl- an gerði þar húsrannsókn fyrir skömmu. í dag verða Bemes og leikmennirnir fjórir sam- prófaðir fyrir rétti. ‘T~........ ..... ........... ................... Skagamenn fengu ekki leiguvél til Albaníu Skagamenn, sem mæta Partizan Tirana frá Albaníu í forkeppni Evrópukeppni meist- araliða, fengu ekki leiguvél til að fara með leik- menn liðsins til Tirana. Þeir reyndu að fá Fok- ker-vél frá Flugleiðum, en það var ekki hægt og þá reyndu þeir að fá leiguvél frá Luxem- borg, en það heppnaðist heldur ekki. Skaga- menn leika fyrri leikinn í Tirana sunnudaginn 16. ágúst og fara þeir héðan til Kaupmannahafn- ar á föstudegi og þaðan til Zúrich í Sviss. Það- an halda þeir á laugardagi til Tirana með milli- lendingu í Róm. Frá Tirana fara þeir svo til Zúrich, Kaupmannahafnar og heim. „Þetta em alltaf erfið ferðalög, en við verðum að koma okkur til Tirana og leika þar,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna. Er Indurain ofurmenni eða hinir huglausir? Reuter MIGUEL Induraln til hægri og félagi hans í Banesto liðinu Pedro Delgado tóku léttan snóker í gær í Andorra, meðan þeir hvíldu sig fyrir átök dagsins í dag. HJOLREIÐAR / TOUR DE FRANCE H TOMlSLAV Ivic, króatíski knattspyrnuþjálfarinn kunni, hefur verið ráðinn sem þjálfari portúg- alska félagsins Porto, eftir fimm ára fjarveru. Þegar hann þjálfaði félagið 1988 varð það bæði deildar- og bikarmeistari — og síðan Evrópumeistari. ■ DINO Zoff, þjálfari Lazio á ítal- íu, var ekki ánægður þegar enski landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne mætti á æfíngu eftir sumarfrí — hann var fimm kílóum of þungur og var skipað að fara í megrunarkúr til að ná þeim af sér sem fyrst. ■ EVERTON hefur mikinn hug á að fá Mark Hateley til sín frá Glasgow Rangers. Hann er metinn á 275 millj. ísl. kr. ■ SERGEI Aleinikov, fyrrum landsliðsmaður Sovétríkjanna, hef- ur gengið til liðs við japanska félag- ið Osaka Gamba. Aleinikov, sem hefur leikið með Lecce á Ítalíu, er 31 árs miðvallarspilari. Hann skrif- aði undir tveggja og hálfs árs samn- ing. ■ NEIL Ruddock, miðvörður Tottenham, hætti við að fara til Liverpool á síðustu stundu vegna þess að Tottenham skuldar honum peninga. Liverpool vonast þó eftir að fá Ruddock, en félagið var til- búið að borga 2,5 millj. punda fyrir hann. FRJALSAR Aftur fall hjá Bubka í TOUR de France hjólreiðakeppninni lýkur nk. súnnudag og virð- ist ekkert geta komið í veg fyrir sigur Spánverjans Miguels Indurains, sem er með rúmlega þriggja mínútna forskot á næsta mann. Keppnin, sem oft hefur verið ótrúlega spennandi fram á síðustu stundu, er langt frá því að vera spennandi þessa dagana, og velta menn þvífyrir sér hvort heldur er um að kenna yfirburðum Spánverjans eða hjugleysi helstu keppinauta hans. Hjólreiðamennirnir slöppuðu af í Andorra í gær en hjóla í dag frá Andorra.til St Lary Soulan, um 230 km erfiða fjallaleið. Frakkinn Bemard Hinault, sem fimm sinnum hefur sigrað í keppninni en sér nú um framkvæmd hennar, hefur gagn- rýnt helstu keppinauta Indurains fyr- ir að afhenda honum sigurinn á silfur- fati. „Það er auðvelt að vera sá besti þegar keppinautar þínir leyfa þér það,“ sagði hann. „Ég skil ekki hvað þeir eru að hugsa. Það eina sem Ind- urain þarf að gera er að hjóla á sínum .hraða án þess að nokkur reyni alvar- lega að stinga hann af.“ Gott dæmi um þetta var fimmt- ándi leggurinn sem hjólaður var á mánudaginn. Félagar Indurains í Banesto liðinu leiddu hópinn og Ind- urain fylgdi í kjölfarið, án þess að nokkur af keppinautum hans gerði alvarlega tilraun til að stinga hann af. „Hann veit fullkomlega hvemig hann getur hagnast á því hvemig hinir hjóla. Meðan enginn neyðir hann til að vinna, heldur hann þessu áfram,“ sagði Hinault. Mejia og Jaskula engin ógnun Fimm leggir eru eftir, leggimir í dag og á morgun era í Pýreneafjöll- unum og miðað við frammistöðu Ind- urains og keppinauta hans ætti for- skot hans ekki að vera í hættu. Á laugardaginn er hraðakeppni, og þar ætti Indurain að ná að auka forskot- ið enn frekar, fyrir lokasprettinn á sunnudaginn. Kólumbíumaðurinn Al- varo Mejia og Pólveijinn Zenon Jask- ula eru í öðra og þriðja sæti nokkuð óvænt og stefna ekki að neinu öðru íslandsmeistarainðtið í golfi í Lefru Bjóðum þótttakendum í meistaramótinu 50% afslótt af gistiverði. en að halda sér í þeim sætum. Einn af þeim sem átti að veita Indurain harða keppni er Tony Rominger frá Sviss. Hann stóð sig mjög vel í Ólpun- um, vann þar tvo leggi, en hefur ekki haft heppnina með sér í hraða- keppnunum og virðist í vonlausri stöðu, næstum sex mínútum á eftir Indurain. Ekki möguleiki „Það er ekki möguleiki að ná hon- um. Ég verð bara ánægður ef ég næ að halda forystunni í fjallastiga- Tourde France Staðan eftir 15. leggi: klst. 1. Miguel Indurain (Spáni)......71.50.08 2. Alvaro Mejia (Kól.)..3.23 mín. á eftir 3. Zenon Jaskula (Póllandi)..........4.45 4. Tony Rominger (Sviss).............5.44 5. Bjarne Riis (Dan.)...............10.26 6. Andy Hampsten (Bandar.)..........13.30 7. Claudio Chiappucci (Ítalíu)......14.11 8. Johan Bruyneel (Belgíu)..........14.54 9. Vladimir Poulnikov (Úkrainu).....15.08 10. Pedro Delgado (Spáni)...........16.09 11. Oliviero Rincon (Kólumbíu)......19.41 12. Antonio Martin (Spáni)..........22.33 13. Eric Breukink (Hollandi)........23.52 14. Jean-Philippe Dojwa (Frakkl.)..23.56 15. Gianni Faresin (Ítalíu).........24.06 16. Roberto Conti (jtaliu)..........24.27 17. Gianni Bugno (Ítalíu)...........25.30 18. Stephen Roche (írlandi).........26.15 19. Alberto Elli (ítaliu)...........26.58 20. Federico Echave (Spáni).........28.09 Staðan í stigakeppninni: stig T. Djamolidine Abdoujaparov (Úsbk.) ...228 2. Laurent Jalabert (Frakklandi)......190 3. Max Sciandri (Ítalíu)..............144 ■Sá sem hefur forystu í stigakeppninni klæðist grænni treyju. Stig fá menn meðal annars fyrir að vera í efstu sætunum á hveijum legg. Konungur fjallanna: 1. Tony Rominger (Sviss)............275 2. Oliveiro Rincon (Kólumbíu).......220 3. Miguel Indurain (Spáni)..........169 ■ Sá sem er efstur ( sérstakri fjallastiga- keppni klæðist rauðdoppóttri treyju. keppninni," sagði Rominger, en hann er efstur í henni og klæðist því rauðdoppóttri treyju í dag. Úsbekist- inn Djamolidine Abdoujaparov leiðir í stigakeppninni, en stig fá hjólreiða- mennirnir m.a. fyrir að vera í efstu sætunum á hveijum legg. Forystu- sauðurinn í stigakeppninni klæðist ávalt grænni treyju þegar hjólað er, en sá sem hefur besta heildartímann er í gulu treyjunni. Gula treyjan er sem límd við Ind- urain þessa dagana og enginn líkleg- ur til að ná henni af honum. Hann er á góðri leið með að tryggja sér sigur þriðja árið í röð, en það hefur aðeins þremur hjólreiðamönnum tekist áður; Frökkunum Louison Bobet og Jacqu- es Anquetil og Belganum Eddy Merckx. ‘tangarstokkvarinn snjalli frá * Úkraníu, Sergei Bubka, sem felldi byijunarhæð sína, 5.70 m, þrisvar á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992, var aftur í sviðs- ljósinu í Barcelona á mánudags- kvöldið — þá byrjaði hann á því að stökkva yfir 5.61 m, en náði síðan ekki að stökkva yfir 5.81 m í þrígang. Heimsmet Bubka utanhúss er 6.13 m. Þetta er mikið áfall fyrir Bubka sem hefur sett heimsmet 34 sinnum — sextán sinnum inn- anhúss og átján sinnum ut- anhúss. Bubka hefur átt í erfið- leikum á mótum að undanförnu. KNATTSPYRNA / HM Jafntefli hjá Brasilíu Undankeppnin hafin í S-Ameríku, en úrslita- keppnin í Afríku á lokastigi Bólivía vann stórsigur, 7:1, á Venezuela í B-riðli undan- keppni HM í S-Ameríku. Ekvador og Brasilía gerðu jafntefli 1:1. Fimmta þjóðin í riðlinum er Uragu- ay, sem hefur ekki leikið. Tvö efstu liðin í riðlinum komast til Bandaríkj- anna 1994. Lið Brasilíu og Uraguay era talin sigurstranglegust í keppn- inni um farseðlana tvo til Bandaríkj- anna. Úrslitakeppnin í Afríku er á loka- stigi, en keppt er í þremur riðlum þar og fara sigurvegaramir úr hveij- um riðli til Bandaríkjanna. Fílabeins- ströndin þarf aðeins jafntefli gegn Nígeríu í sínum síðasta leik í A- riðli, en ef Nígería nær að vinna Fílabeinsströndina og Alsír, kemst Nígería til Bandaríkjanna. Marokkó og Zambía beijast um farseðilinn í B-riðli. Marokkó er með fjögur stig eftir þijá leiki, en Zamb- ía tvö stig eftir einn leik. Senegal, sem er þriðja þjóðin í riðlinum, er með ekkert stig eftir tvo leiki. Kamerún stendur best að vígi í C-riðli, þarf sigur heima gegn Zimbabwe til að tryggja sér öruggt sæti, en ef Zimbabwe vinnur tvo síðustu leiki sína — heima gegn Guinea og úti gegn Kamerún, eru Zimbabwe-menn komnir með far- seðilinn til Bandaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.