Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.11.1993, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 ÍÞRÚmR FOLK HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ Úrslitin í leik Aftureldingar gegn FH standa Dómstóllinn hafnaði kröfu FH Frá Gunnari Valgeirssyni i Bandaríkjunum ■ ÞRÍR'bestu leikmenn NBA-liðs- ins Golden State Warriors eru meiddir. Ljóst þykir að hvorki Tim Hardaway né Litháinn Sarunas Marciulionis verði nokkuð með í vetur, en þeir misstu einn- ig báðir af mest öllu síðasta leiktímabili. Fyrirliði liðsins, Chris MuIIin meiddust svo í vikunni; skarst á fingri í leik og verður frá í sex vik- ur, en hann missti af síðustu 37 leikjum sl. vetur vegna meiðsla. ■ DON Nelson, þjálfari liðs Gold- en State, sem þykir yfirleitt mjög málglaður á blaðamannafundum, var það ekki á mánudaginn. „Ég veit ekki lengur hvað ég á að segja,“ var það eina sem hann gat stunið upp, eftir að Muilin meiddist. ■ CLÝDE Crexler, aðalmaður Portland Trailblazers, hafði hótað að leika ekki með liðinu fyrr en hann fengi nýjan og betri samning, en nú er málið leist. Eigandi Port- land framlengdi samning kappans um eitt ár, og greiðir honum 8,7 milljónir dala aukalega fyrir það ár. Það jafngildirtæplega 720 millj- ónum króna. ■ ÞÝSKI leikmaðurinn ijölhæfi Detlef Schrempf, sem kjörinn var besti varamaður NBA-deildarinnar 1991 og 1992, er farinn frá Indi- ana Pacers til Seattle Super- Sonics, í skiptum fyrir tvo unga leikmenn: Derrick McKey og Ger- ald Paddio. Framkvæmdastjóri Indiana sagði aðalástæðu þess að Schrempf var látinn fara að samn- ingur hans rynni út næsta vor, og þá hefði félagið ekkj efni á að semja við hann á ný og hohum yrði fijálst að fara. Nú fengi félagið þó tvo unga leikmenn í staðinn. ■ SCOTT Wiltíams, miðheiji Chicago, verður frá keppni næsta tvær til fjórar vikur vegna meiðsla sem hann varð fyrir á föstudag. Williams tognaði er hann var að hita upp fyrir leik — teygða á vöðva í fæti með þessum afleiðingum. ■ MICHAEL Jordan, sem lagði skóna á hilluna á dögunum, mætti á æfingu hjá Chicago Bulls á mánudag. „Ég er bara að leika mér, og sakna þess ekki að þurfa að spila,“ sagði hann. ■ JOE Montana, leikstjómandi Kansas í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum, meiddist um helgina — tognaði í læri — og verður lík- lega ekki meira með í deildarkeppn- inni sjálfri í vetur. Hann ætti þó að ná úrslitakeppninni í vor. DÓMSTÓLL HSÍ tók ígær fyrir kæru FH, sem fór fram á að leikurinn gegn Aftureldingu í 4. umferð 1. deildar karla yrði leikinn að nýju, þar sem dóm- ari leiksins hefði gert mistök undir lok viðureignarinnar. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun dóm- arans hefði verið röng, en hafn- aði kröfu FH-inga og standa úrslitin óhögguð. Dómnum verður ekki áfrýjað. Eins og komið hefur fram var Afturelding marki yfir, 24:23, þegar aukakast var dæmt á liðið og um 15 sekúndur til leiksloka. Áður en aukakastið var tekið var leik- tíminn stöðvaður og liðsstjóra FH sýnt rauða spjaldið, en þá voru 11 sekúndur eftir. FH var svipt knettin- um og hann dæmdur Aftureldingu, sem náði að skora og vann því 25:23. FH taldi ákvörðun dómarans ranga, kærði hana og krafðist nýs leiks. í niðurstöðum dómsins segir m.a.: „I grein 18:13 í leikreglunum sem FH vísar til vegna kröfu sinnar seg- ir, að ákvarðanir dómara byggðar á mati þeirra á atvikum í leiknum séu endanlegar. Þá segir að heimilt sé að mótmæla úrskurði dómara, ef hann er ekki í samræmi við reglur. FH telur svo sem rakið var, að þetta ákvæði hafi að geyma heimild fyrir dóminn til að endurskoða ákvörðun dómara og láta leikinn fara fram að nýju hafi réttum reglum ekki verið beitt. Hvorki grein 18:13 í leikreglunum né aðrar greinar leikreglnanna hafa að geyma skýr ákvæði um það, hveiju það varði ef réttum reglum er ekki fylgt við dómgæslu í leik. í 13. grein laga HSÍ segir m.a., að öll kærumál varðandi landsmót heyri undir dómstól HSÍ og er meginregl- an sú, að úrskurðir dómstólsins séu fullnaðarúrskurðir eins og segir í þessari grein. í reglugerð fyrir dóm- aranefnd HSÍ o.fl. segir m.a., að nefndin sé æðsti innlendi aðilinn um túlkun leikreglna. Dóminum þykir ofanritað gefa vísbendingu í þá átt, að ekki sé tii þess ætlast að einstaka ákvarðanir dómara í Ieik sæti endur- skoðun af dóminum. í gögnum frá IHF, sem aflað var vegna máls þessa, kemur fram, að ekkert dómafordæmi um samsvar- andi tilvik sem hér um ræðir sé þekkt úr alþjóðlegum handknattleik, en ákvæði þau er vitnað hefur verið til að framan í leikreglum HSÍ eru sam- svarandi ákvæðum í reglum alþjóða- sambandsins, IHF. Dómurinn telur engu skipta í þessu sambandi, þótt sá aðili sem svaraði fyrir hönd IHF telji, að leikurinn sem mál þetta snýst um skuli leikinn að nýju þar sem líklegt orsakasamband sé á milli mistaka dómara og úrslita leiksins, enda var ekki bent á neina réttarheimild þessu til stuðnings. Vegna þessa má spyija hvað hefði gerst ef þau atvik sem lýst er að ofan hefðu átt sér stað er 10 mínút- ur voru liðnar af leik sem endað hafi með jafntefli. Dómurinn telur ekki fært að skýra reglurnar að ofan svo, að dóminum sé ætlað í hvert sinn er slík tilvik eða svipuð koma upp, að meta hvort líklegt eða sennilegt orsakasamband sé á milli mistaka dómara og úrslita leiks og þá eftir atvikum að dæma leiki ógilda. Slík réttaróvissa myndi leiða handknattleikshreyfinguna í algerar ógöngur enda alkunna að mörg mistök eru gerð í hita leiks- ins, jafnt af dómurum, leikmönnum og aðstandendum liða, en allt er þetta hluti leiksins. Dómurinn telur þannig í ljósi ofan- ritaðs, að gera verði kröfu til þess, að kveðið sé á um það í reglum hvaða afleiðingar mistök sem þau er lýst er að ofan eigi að hafa í för með sér eigi afleiðingar yfir höfuð að vera einhveijar. Dómurinn telur enga heimild til staðar til að ákveða að leikurinn skuli leikinn að nýju. Reglur þær sem FH vísar til til rökst- uðnings kröfum sínum hafa ekki að geyma slíkar heimildir og þær eru heldur ekki að finna í lögum eða öðrum reglum handknattleikshreyf- ingarinnar." í dómstólnum voru Guðjón St. Marteinsson, Hermann Björnsson og Sigurður I. Halldórsson. MARAÞON Daníel nálægt íslandsmeti Daníel Guðmundsson, Ármanni, náði næst besta árangri ís- lendings í maraþonhlaupi, þegar hann hljóp á 2:28.30 klst. í Dublin- maraþoninu. Daníel varð í 23. sæti af um 4.000 þátttakendum, en þetta var í fyrsta sinn, sem hann hleypur maraþon. Millitími hans var 1:12.50, en íslandsmet Sigurðar P. Sigmundssonar er 2:19.46 klst. FRJALSAR / REYKJAVIKURLEIKARNIR Alþjóðleg viðurkenning Reykjavíkurleikarnir í frjáls- íþróttum fengu viðurkenn- ingu sem alþjóðlegt frjálsíþrótta- mót á Evrópuþingi fijálsíþrótta- sambanda, sem fram fór í Éeneyj- um á Ítalíu á dögunum. Magnús Jakobsson, formaður FRÍ, Birgir Guðjónsson, formaður laganefnd- ar, og Knútur Óskarsson, fram- kvæmdastjóri FRÍ, sóttu þingið og sagði Knútur viðurkenninguna mikilvægan stimpil og góðan áfanga fyrir fijálsíþróttir á ís- landi. Reykjavíkurleikarnir verða næst 25. júní 1994 og verður Norðurlandamót í kastgreinum karla og kvenna hluti af leikunum. Slík keppni hefur ekki áður farið fram og verður hún óformleg fyrsta árið, en auk einstaklings- keppni verður einnig um stiga- keppni milli landa að ræða. BLAK / ISLANDSMOTIÐ Stúdentar knésettu meistarana Stúdentar mættu galvaskir til leiks gegn íslands- og bikar- meisturum HK í íþróttahúsi Haga- ■!■■■■■ skóla á mánudags- Guðmundur kvöld °K siKruðu 3:2. Helgi Flestir áttu von á að Þorsteinsson HK myndi hafa auð- skrifar veldan sigur en ann- að kom á daginn. Stúdentar mættu mjög einbeittir til leiks og fljótlega varð ljóst að lið meistaranna átti í vandræðum því ÍS vann fyrstu hrin- una fyrirhafnarlítið 15:4. HK vann aðra hrinuna með sama mun, en köflóttur leikur beggja liða í þriðju og fjórðu hrinu var hreint ótrúlegur. ÍS vann þriðju hrinuna 15:3, en HK svaraði í næstu 15:4. í úrslitahrinunni byijaði HK betur en Stúdentar reyndust sterkari og viljameiri á endasprettinum og tryggðu sér sigur, 15:11. Sigur Stúdenta var sætur en búlg- arski leikmaðurinn Zdravko V. Dem- irev, lék þó einna best á meðan Bandaríkjamaðurinn í liði HK, Andrew Hancock, átti í erfiðleikum með að skila „smössunum“ því Iág- vörn ÍS sá til þess. Stúdínu'r gáfu körlunum ekkert eftir og unnu HK 3:0 í leik sem stóð yfir í aðeins 44 mínútur. Móttaka HK Iiðsins var hvorki fugl né fiskur og réð ekkert við uppgjafir Mettu Helgadóttur uppspilara IS sem skor- aði grimmt. Hrinurnar fóru þannig: 15:10, 15:1 og 15:8. ÍS er efst í 1. deild karla með 17 stig eftir 6 leiki, KA er í öðru sæti með 13 stig og Þróttur Reykjavík í þriðja með 12 stig. HK er í fjórða sæti með 11 stig eftir 4 leiki, Stjarn- an í fimmta með 7 stig eftir 3 leiki og Þróttur Neskaupstað í sjötta með 2 stig eftir 8 leiki. Víkingsstúlkur eru efstar í 1. deild kvenna með 12 stig eftir 4 leiki, en Þróttur Neskaupstað í öðru sæti með jafnmörg stig eftir 6 leiki. ÍS er í þriðja sæti 11, HK í fjórða með 8, KA með 7 og Sindri rekur lestina, hefur ekkert stig hlotið í 4 leikjum. 38. SAMBANDSÞING UMFI AÐ LAUGARVATNI Þórír Jónsson kjörinn formaður Formannsskipti urðu á þingi UMFÍ á Laugarvatni fyrir skömmu. Pálmi Gíslason sem verið ■■■■■■■ hefur formaður sl. Kári 14 ár lét af störfum Jónsson og í hans stað var skrifar frá kjörinn Þórir Jóns- Laugarvatm gon frá Ungmenna- sambandi Borgarfjarðar. Hinn nýi formaður var ánægður með þingið, sagði það hafa verið starfasamt til framtíðar. „Árið 2007 verður UMFÍ 100 ára og nauðsyn- legt að hafa skýra stefnumótum til þess tíma.“ Þórir sagði ennfremur ánægjulegt að sjá að unglinga- landsmótin væru að festast í sessi og greinilega komin til að vera. Svo hefði auðvitað sjálft landsmótið á Laugarvatni næsta sumar borið hátt í umræðunni og greinilegt að aðstaðan yrði með besta móti. Eitt stærsta mál hreyfingarinnar sem fram kom var að skipa nefnd sem fjalla skal um framtíð og stöðu ungmennafélagshreyfingarinnar. Ný stjórn Á þinginu var kjörin ný stjórn UMFI, hana skipa nú Þórir Jónsson formaður, Þórir Haraldsson vara- formaður, Jóhann Ólafsson ritari, Kristján Yngvason gjaldkeri, Ólína Sveinsdóttir, Sigurjón Bjarnason og Sigurlaug Þ. Hermannsdóttir með- stjórnendur. I varastjórn eru Ingi- mundur Ingimundarson, Kristín Gísladóttir, Matthías Lýðsson og Sigurbjörn Gunnarsson. Sigurður Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi var sæmdur heiðursfé- lagakrossi UMFÍ, en hann var 16 ár framkvæmdastjóri samtakanna á einhveijum mesta uppgangstíma þeirra. Reynir G. Karlsson íþrótta- fulltrúi ríkisins var sæmdur gull- merki UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna. íslandsmót 1. deild karla í Laugardalshöll íkvöld kl. 20.00 KR-ingar! Fjölmennum og styðjum okkar menn. Handknattleiksdeild KR rmrs TRYGGINGA —1 MIÐSTÖÐIN HF. UMBOÐS OO HEILDSVERSLUN ÁlTTlÚta 36 Morgunblaðið/Kári Þórir Jónsson færir Pálma Gíslasyni blómvönd við tímamótin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.