Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.11.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1993 t Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróðir, RÍKHARÐUR GUÐJÓNSSON bifvélavirki, Austurbergi 38, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum föstudaginn 5. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Vilborg Inga Kristjánsdóttir, Kristján Björn Rikharðsson, Guðjón Ásbjörn Rikharðsson, Ragnheiður Guðjónsdóttir. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN Þ. EINARSSON bóndi, Neðri-Dal, lést í Landspítalanum 5. nóvember sl. Aðalheiður Guðmundsdóttir, Birgir Jónsson, Guðmundur L. Jónsson, Grímur Bj. Jónsson, Kristján Bj. Jónsson, Einar Bj. Jónsson, Heiðar Bj. Jónsson, Þráinn Bj. Jónsson, Björn Bj. Jónsson, barnabörn og Elin Sigurðardóttir, Hólmfríður Halldórsdóttir, Sólveig Róbertsdóttir, Sigrún Jensey Sigurðardóttir, Guðlaug Pálsdóttir, Kolbrún Svavarsdóttir, Anna Soffia Björnsdóttir, Jóhanna Fri'ða Róbertsdóttir, barnabarnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHILDUR HAFLIÐADÓTTIR SNÆLAND, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðju- daginn 9. nóvember kl. 13.30. Baldur Snæland, Hafsteinn Snæland, Kristinn Snæland, Njörður Snæland, Jón Andrés Snæland, Pétur B. Snæland, Guðný Snæland, Jóna Snæland, Ragnheiður Baldvinsdóttir, Alma K. Friðriksdóttir, Helga Marfa Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SVANHVÍT SMITH, sem andaðist 30. október, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. nóvember kl. 13.30. Erna Smrth, Kristján Smith, Hrefna Arnkelsdóttir, Sigurbjörg Smith, Ólafur S. Guðmundsson, Ásta Egilsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GARÐARS E. FENGER stórkaupmanns, Hvassaleiti 67, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 10. nóvember kl. 13.30. Kristín F. Fenger, Kristjana Fenger, Þórður Hauksson, Jakob Fenger, Gunnhildur Emilsdóttir, Hjördfs Fenger og barnabörn. t Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR EMILSDÓTTIR, sem lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 1. nóvember, verður jarðsungin frá litlu kapellunni, Fossvogi, mánudag- inn 8. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Sigurður Kristjánsson, Hjördís Ólafsdóttir. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim mörgu, sem sýndu okkur samúð og vin- arhug við fráfall eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS HERMANNSSONAR, Furugrund 40, Kópavogi. Elín Jónsdóttir, Elínbjört Jónsdóttir, Tryggvi Páll Friðriksson, Petra Jónsdóttir, Kristján Jón Karlsson, Arnþrúður Jónsdóttir, Sveinn Magnússon, Hermann Jónsson, Guðrún Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS STEINSSONAR frá Kirkjulæk. María Jónsdóttir, Haildóra Ólafsdóttir, Svavar Ólafsson, Steinn Ólafsson, Sigurbjörg Ólafsdóttir, Jón Ólafsson, Hjálmar Ólafsson, Kristfn Ólafsdóttir, Álfheiður Ólafsdóttir, Grétar Markússon, Ingibjörg Sigurðardóttir, Vigdís Guðjónsdóttir, Valdimar Guðjónsson, Þrándur Arnþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Svava Magnúsdóttir, Sigurður K. Pálsson, Elsabet Baldursdóttir, Jónfna Pálsdóttir, Helen Svava Helgadóttir, Magnús Geir Pálsson, Áslaug Sif Gunnarsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, PÁLS HAUKS KRISTJÓNSSONAR, Árskógum 6, Reykjavík. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- konu minnar, móðurokkar, tengdamóð- ur og ömmu, VALGERÐAR JÓNSDÓTTUR frá Kollafjarðarnesi. Sérstakar þakkir færum við Heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins og Samkór Kópavogs. Guðmundur Eirfksson, Guðný H. Guðmundsdóttir, Heiðrún R. Guðmundsdóttir, Sigríður Erla Guðmundsdóttir, Jón Eiríkur Guðmundsson, tengdabörn og barnabörn. + Kæru ættingjar og vinir! Þökkum ykkur öllum auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför móður minnar, GUÐRÚNAR ELLIÐADÓTTUR frá Úlfarsfelli. Birna Kjartansdóttir Fisch og fjölskylda. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar, ÁRSÆLS KR. EINARSSONAR. Sérstakar þakkir til lögreglunnar fyrir söng og aðra veitta aðstoð. Guðmunda V. Guðmundsdóttir, Kristjana Ársælsdóttir, Einar G. Ársælsson. Sóley Tryggva- dóttír Hansen - Minning Fædd 24. september 1920 Dáin 12. október 1993 Mamma er búin að fá frið og komin til síns eilífðarhúss. Hún rennur saman við haf orkunnar, þaðan sem hún og við öll erum upprunnin. Hún skilaði sínu, skuld- aði engum neitt og stóð við það sem hún sagði en það er aftur annað mál hvort hún átti ekki betra skil- ið. Mín skoðun er sú að hefði Sóley Tryggvadóttir farið menntaveginn væri hún að minnsta kosti forstjóri Tryggingastofnunar í dag. Nóg um það. Sóley var allra .manna hressust á mannamótum, hún sló sér á læri og hláturinn komi gusum. „Jeeee ja ég skal segja ykkur það!“ Eins átti hún til að segja: „Guð minn almáttugur, Tryggvi!" Eða: „Ég var búin að segja ykkur þetta í 20 ár og enginn hefur hlustað á mig.“ Nú einhvem tímann rámar mig í að hún hafi sagt: „Tryggvi minn, hvenær ætlar þú að læra að taka ábyrgð?“ Þessar setningar og mörg þúsund aðrar setningar kann ég og hef ég inni í mínum orðaforða. Mamma var eina manneskjan sem nokkum tímann gat gert mig brjálaðan með einni yfirvegaðri athugasemd. Sóley Tryggvadóttir var ljónskýr í hugsun og hjartað var sterkt og gott. Þessi setning er mér minnis- stæð: „Tryggvi minn, ég er nú það sem ég sýnist og vel það.“ Vissu- lega var mamma miklu meiri en hún sýndist. Hún var fyrst og fremst móðir sem vildi bömum sín- um vel. Hún er inni í mér og okkur öllum sem streymdum með henni í tíma og blóði. Eins og tónlistin sem fyllti kirkj- una þegar við kvöddum lífsljós Sól- eyjar í hjarta okkar, eins og tónlist- in og ljóðin í laginu Til em fræ eftir Davíð hljóma að eilífu og streyma frá fiðlunni og endalaust út frá upphafspunkti hljóðöldunnar, þá mun Sóley aldrei gleymast, minningin og veran em alltaf á sín- um stað' í þessum undarlega og glundroðakennda heimi sem við upplifum nú og þó svo stórkostleg- um. En móðir mín sáði ekki í grýttan jarðveg, við erum mörg sem komum frá henni og okkar ást er hennar ást. En Til em fræ, texti Davíðs Stefánssonar, sem Sóley hafði mikl- ar mætur á er hugsjón móður minnar. Hún stóð alltaf með þeim sem inna mega sín. Hún lifir innra með okkur. Þess vegna get ég talað við þig og pabba og Hansa með því einu að hugsa til ykkar. Og ég hugsa til ykkar með ást og virðingu og með söknuði. Tryggvi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.