Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 13 Leitaði um allan heim „Við vildum vita hvað væri að gerast annars staðar í heiminurn," segir Guðrún Ruth. Og hún sýnir mér stóra möppu með lesefni og upplýsingum, sem hún hafði safn- að hvaðanæva. Ekkert af því kom þó að gagni, en hún tók heimilis- föng lækna og rannsóknastofnana og skrifaði eftir nánari upplýsing- um. Halldór segir að hún hafi skrif- að 35 bréf í allar áttir, flest til Bandaríkjanna, en líka til Japans, Ástralíu, Kanada og víðar. Japanir svöruðu um hæl og síðan komu önnur 20 svarbréf. „Þrír læknanna bentu á Nation- al Institute of Child Health and Human Development í Bethesda í Maryland í Bandaríkjunum, en það er eini staðurinn í heiminum sem er með slíkar rannsóknir í gangi. Þar er íslenskur læknir, Snorri Þorgeirsson, við krabbameinsrann- sóknir. Hann talaði við rétta aðila fyrir okkur og þeir sendu okkur upplýsingar og samning um með- ferð,“ segir Guðrún. „Þarna hafa tilraunir verið í gangi í tvö ár og beitt við 12 aðila. Sá yngsti er 18 ára, svo Halla Ruth verður lang- yngsti sjúklingurinn. Þetta hefur gengið vel og þeir eru bjartsýnir, þótt sá varnagli sé sleginn að hugs- anlega geti hún myndað mótefni. En í þessu felst vonin um að bjarga nýrunum, ef hún fær aðra meðferð en hún verður að lifa við í dag. Búið er að ákveða 3 ferðir þangað á næsta ári, í janúar, apríl og júlí. Síðan hugsanlega heimsóknir tvisvar sinnum á ári í framhaldi, ef vel gengur. Og á milli verðum við í stöðugu sambandi við þá og sendum þeim vikulega sýni.“ Meðan þau hjónin eru að segja mér frá öllu þessu, er alltaf að skjótast upp í hugann spurningin: Hvernig í ósköpunum fara þau að því að kljúfa þetta - og koma því fyrir í lífi sínu? Halldór segir að læknishjálpin og lyfin vestra verði ókeypis, þar sem þetta er rann- sóknarverkefni. Flugfarið kostar sjúkrasamlagið í Svíþjóð. En kostnaðurinn er engu að síður heil- mikill. Þau þurfa að vera þarna í hálfan mánuð í hvert sinn. Kiwan- isklúbburinn Esjan ætlar að styrkja þau og þau segjast reyna að kljúfa þetta með hjálp góðra manna. Kváðust þau vilja nota tækifærið til að þakka öllum sem hafa veitt þeim lið. Sjálfur verður Halldór að sjálfsögðu að taka sér fri úr vinnu. „Það sem er erfitt við þennan sjúkdóm, er að við höfum aldrei fundið . neinn annan með sömu reynslu til að bera okkur saman við. Læknarnir eru líka óöruggir, því að þeir hafa heldur enga viðm- iðun eða samanburð. Þetta er svo sjaldgæfur sjúkdómur. En við eig- um góða fjölskyldu og vini hér sem stappa í okkur stálinu. Þetta er auðvitað búið að vera mikið álag á alla fjölskylduna. Flutningurinn til Svíþjóðar var erfiður fyrir systk- inin. Við gátum lítið sinnt þeim meðan Halla hafði mestu kramp- ana og þá höfðum við enga vini og fjölskyldu nærri. Kerfið hér heima gerði ekki ráð fyrir svona tilfelli. Slíkt getur algerlega kippt fótunum undan einni fjölskyldu. En mér er nú sagt að það hafi eitthvað lagast síðan. Og ég er enn ekki sátt við þessi mistök sem urðu í upphafí og að ekki var hlustað á mig, farið með mig eins og „hyster- íska“ kerlingu. Það hefði getað sparað mikið álag á Höllu ef sjúk- dómurinn hefði fundist fyrr.“ Hjónin segja að Halla Ruth sé ákaflega duglegt barn, samvinnu- þýð og þroskuð. „Maður talar við hana og útskýrir, reynir að gera þetta eðlilegan þátt í lífinu og já- kvætt. Hún skilur og tekur hveiju sem er. Maður hefur einfaldlega ekki viljað gefast upp. Við höfum verið staðráðin í að Halla skyldi fá læknishjálp hvað sem það kost- aði og hvar sem hana væri að finna," segja þau hjónin að lokum. Sýning Sæmundar Gunnars- sonar Sæmundur Gunnarsson opnaði myndlistarsýningu í nýjum húsa- kynnum Bókasafns Keflavíkur 22. desember sl. Sæmundur hefur áður tekið þátt í samsýningum en þetta er fyrsta einkasýning hans. Hann sýnir aðallega vatnslitamyndir. Sýning Sæmundar stendur til 20. janúar nk. Fyrirhugaðar eru fleiri mynd- listarsýningar í Bókasafni. Kefla- víkur. Jólahraðskák Sævar sig- urvegari JÓLAHRAÐSKÁKMÓT Taflfé- lags Garðabæjar var haldið 27. desember. Sigurvegari varð Sævar Bjarnason með 13 vinn- inga af 13 mögulegum. I öðru sæti varð Róbert Harðar- son með 11 vinninga. í 3. sæti varð Jónas P. Erlingsson með 10,5 vinninga. í 4. sæti varð Björn Jóns- son með 9,5 vinninga. í 5.-7. sæti urðu Leifur Vilmundarson, Baldvin Gislason og Sindri Guðjónsson með 8 vinninga. Þátttakendur voru fjórtán. Kynningartilbob til Kanarí 26. janúar - Sí&ustu sætin til Kanarí 6. janúar - Með einstökum samningum geta Heimsferðir nú boðið 3ja vikna ferð með dvöl í þessum nýuppgerðu íbúðum á hreint ótrúlegu verði.^É Aðeins 8 íbúðir eru í boði á þessum einstöku kjörum. Gríptu tækifærið og bókaðu strax. HbMtcI 44.900 pr. mann m.v. 4 í íbúð. 54.900 pr. mann m.v. 2 í íbúö Innifalið í verði er flug, gisting í 3 vikur ferðir til og frá flugvelli á Kanarí og íslensk fararstjórn. HK IMM ímm Wm '1P Flugvallarskattar og forfallagjöld, kr. 3.630 f. fullorðna, kr. 2.375 f. börn B|. | I | 26. fanúar - 6 vibbótarsœti I U J I I I d ló.febrúar- uppselt Þessi glæsilega ferð er nú uppseld þann 16. febrúar og síbustu sætin að seljast 26. janúar. Verfc frá kr. 96.600 AUKAFERÐ 23. mars. Verb frá kr. 99.800 Flugvallarskattar og forfallagjöld, kr. 4.830 fyrir fullorbna. ■HMHMMMHHMHHHMHMMHMMMMMMHMMMHMMHMMMHnHMMMHMMMMMMMMMMMMMMMHMHHHHHHH^Mt*.^ air europa HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 TURAUIA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.