Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 04.01.1994, Blaðsíða 76
MéiMydl MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SlMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKIJREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1994 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Björgunarafrek 18 ára stúlku að Stöllum í Biskupstungum á nýársnótt Gekk á hljóðið í gegnum kófíð með bamið í fanginu Selfossi. „ÉG hugsaði um það eitt að ná í börnin þegar ég hljóp inn í húsið,“ sagði Guðrún S. Eyvindardóttir, 18 ára, frá Kjóastöðum í Biskupstungum sem með snarræði bjargaði tíu mánaða stúlku- barni, Oldu Valentínu Rós Hafsteinsdóttur, á síðustu stundu úr brennandi íbúðarhúsinu á Stöllum í Biskupstungum skammt frá Geysi á nýársnótt er tvö börn brunnu inni. Guðrún er nú á skóla- ferðalagi í Orlando í Bandarikjunum með nemendum úr Fjöl- brautaskóla Suðurlands. „Ég var úti í bíl og ætlaði að fara heim. Þá tók ég eftir konu sem kom hlaupandi út úr húsinu og þegar ég leit upp sá ég eld koma út um þvottahúsgluggann. Um leið og ég sá eldinn hljóp ég beina leið inn því ég vissi að það voru börn í húsinu. Þegar ég kom inn á her- bergisganginn sló rafmagnið út. Ég hugsaði um það eitt að ná börn- unum og vonaði að þau væru öll niðri en svo var ekki. Ég kíkti inn í herbergin en þar var enginn og þá fór ég inn í hjónaherbergið. Þar tók ég litlu telpuna í fangið og fór fram á gang. Þá sá ég ekkert fyr- ir reyk og myrkri, þurfti að stoppa til að átta mig á því hvar ég væri en gekk eftir minni í áttina að úti- dyrunum. Ég öskraði þegar ég sá eldinn og spurði hvar dyrnar væru og þá svaraði einhver og ég gekk á hljóðið og komst út. Ég var nýkomin út þegar allt var orðið aielda og eldurinn kom út um alla glugga á húsinu. Mér var sagt að hin börnin væru uppi og þá ætlaði ég að snúa við, hélt kannski að við myndum hafa það, en það var alveg vonlaust. Haf- steinn, faðir barnanna, ætlaði inn en varð að fara út aftur. Ég vissi það reyndar þegar ég hljóp út með bamið að við næðum hinum ekki. Það var alveg ótrúlegt að sjá húsið hreinlega blossa upp. Ég hljóp með bamið inn í bíl og fór með það beina leið heim að Kjóastöðum. Ég er auðvitað von- svikin yfir að hafa ekki náð hinum börnunum en er að sjálfsögðu glöð yfir að litla barnið er á lífí,“ sagði Guðrún S. Eyvindardóttir. Að sögn móður Guðrúnar, Kristínar Ólafs- dóttur, ætlaði hún vart að fást til Guðrún S. Eyvindardóttir. að sleppa barninu þegar heim var komið svo mikil var hugaræsing hennar. Sjá einnig bls. 33: „Með snarræði..." Formaður LÍÚ um hugsanlega kvótasölu til Vestfirðinga í verkfallinu Sjómannafélögin geta ekki hindrað framsal aflakvóta VERKFALL sjómanna hófst á miðnætti 1. janúar og nær til á sjötta þúsund sjómanna alls staðar á landinu, nema á Vestfjörðum, en einn- ig hefur það áhrif á atvinnu á sjötta þúsund starfsmanna í fisk- vinnslu. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir að það sé ekki á færi verkalýðs- og sjómannafélaga að hindra framsal aflaheimilda til útgerða á Vestfjörðum. Forysta sjómannasamtakanna hefur hvatt félög að koma í veg fyr- ir að aflaheimildir verði framseldar til Vestfirðinga þar sem félögin eru umsagnaraðilar. Kristján sagðist ekki útiloka að slíkt framsal gæti gerst en kvaðst þó ekki eiga von á að það yrði vegna þess hversu litlar aflaheimildir væru til ráðstöfunar. „Ef sjómannafélögin hafa gefið um- sagnir sem ekki byggjast á faglegu mati hefur heimildin verið veitt burt- séð frá því,“ sagði hann. Amar Sigurmundsson, formaður samtaka fískvinnslustöðva, telur að ef verkfall sjómanna stendur í þijár vikur eða lengur geti það orðið til þess að þau fískvinnslufyrirtæki, sem eiga í rekstrarerfiðleikum geti ekki með góðu móti hafíð starfsemi á ný nema með aðstoð lánastofnana. Útgerðarfélagið Akkur hf. á Fá- skrúðsfirði, sem gerir út einn 300 tonna rækjutogara, og Verkalýðs- og sjómannafélag Fáskrúðsíjarðar, hafa gert með sér samkomulag þar sem Akkur hf. lýsir því yfír að fyrir- tækið muni aldrei láta sjómenn taka þátt í leigu eða kaupum á fiskkvóta. Kristján Ragnarsson sagði að þetta væri samskonar samkomulag og út- vegsmenn hefðu gert við sjómenn um að þeir tækju ekki þátt í kvóta- kaupum. Sjá bls. 32 Landsbanki og SR-mjöl Viðræð- ur í dag KAUPENDUR að hlutabréfum ríkisins í SR-mjöli hf. hitta bankastjóra Landsbankans að máli í dag þar sem rætt verður með hvaða hætti staðin verða skil á skuldum SR-mjöls við Landsbankann. Jónas Aðalsteinsson lögmaður, fulltrúi nýrra eigenda að SR-mjöli, . sagði að þeir hefðu nokkrum sinn- um átt viðræður við bankastjórn Landsbankans áður en kaupin áttu sér stað, til að kynna bankanum fyrirætlanir sínar, en Landsbankinn væri viðskiptabanki margra af kaupendunum. Jónas sagði að um helgina hefði svo verið óskað eftir viðræðum við bankastjórn Lands- bankans og myndu þær hefjast síð- degis í dag. Til skuldanna var stofnað af Síld- arverksmiðjum ríkisins áður en fyr- irtækinu var breytt í hlutafélagið SR-mjöl á síðasta ári. Landsbank- inn lítur svo á að lánin séu enn á ábyrgð Síldarverksmiðjanna og beri ríkisábyrgð en ráðherrar hafa mót- mælt því. Sjá bls. 75: „Ríkis- ábyrgðasjóð" ----»-♦--♦-- 250 miUjóna hagnaður Eimskips HAGNAÐUR Eimskips var um 250 milljónir kr. fyrstu ellefu mánuði síðasta árs eða sem nem- ur 3% af veltu. Útflutningur á vegum félagsins jókst um 12% á árinu. Félagið hefur selt skip sitt Selfoss til norskra aðila og var söluverð um 125 milljónir kr. A síðasta ári var tap Eimskips og dótturfélaga þess um 214 millj- ónir kr. fyrir skatta. Sjá viðskiptasíðu bls. 42 Morgunblaðið/Þorkell Viðræður um varnarstöðina PERRY varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna ræðir fyrirkomulag varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli við íslenska ráðamenn í dag. Myndin er tekin er hann kom á hótel sitt seint í gærkvöldi. Perry og Jón Bald- vin funda árdegis WILLIAM J. Perry, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom seint í gærkvöldi hingað til lands ásamt fulltrúum bandaríska herráðsins og utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Perry mun árdeg- is í dag eiga fund með Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra um fyrirkomulag varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Að afloknum þeim fundi er ráðgert að Perry gangi á fund Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra. Búist er við því að þeir Perry og Jón Baldvin haldi í sameiningu blaða- mannafund um hádegisbil í dag, þar sem fréttamönnum verða kynntar niðurstöður viðræðna íslenskra og bandarískra stjómvalda um varnar- stöðina á Keflavíkurflugvelli. Síðdeg- is í dag mun Perry, sem er starfandi vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, halda til Keflavíkurflugvallar á nýjan leik og þaðan áleiðis til Bandaríkj- anna. Sjá einnig bls. 2. Stefán íslandi er látínn STEFÁN íslandi, söngvari, lést á Borgarspítalanum á nýársdags- kvöld á 87. aldursári. Stefán fæddist 6. október 1907 í Krossanesi í Seyluhreppi í Skagafirði, sonur Guðmundar Jónssonar og Guð- rúnar Stefánsdóttur. Stefán söng með Karlakór Reykjavíkur áður en hann hélt út til náms hjá Ernesto Caronna í Mílanó 1930-33, fyrir tilstuðlan Richards Thors. Frumraun Stefáns að námi loknu var í hlutverki Cavaradossi í óperunni Tosea 1933 í borginni Flórens, sem hann síðan söng í Þýskalandi, Frakklandi, Austurríki, Svíþjóð, Noregi, Bandaríkjunum, Kanada, Ungvetjalandi og Tékkó- slóvakíu. Fyrsti konsert hans er- lendis var í Tívolí í Kaupmanna- höfn 1935 og debút í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn 28. apríl sama ár, en þar söng hann í Madam Butterfly. Hann var ráðinn að leikhúsinu 1940 og varð kon- unglegur hirðsöngvari 1949. Stef- án söng hlutverk hertogans af Mantua í Rigoletto við fyrstu ópemuppfærslu í Þjóðleikhúsinu 1951. Meðal annarra hlutverka sem Stefán söng á ferli sínum má nefna Rudolph í La Boheme, Faust í sam- nefndu verki, Turiddu í Cavalleria Stefán íslandi Rusticana, Lenskí í Évgení Ónegín, titilhluverkið í Werther, Pinkerton í Madam Butterfly, titilhlutverkið í Don Carlos, Don Jose í Carmen, Alfredo í La Traviata, Nodui í Perlefískeme, Almaviva í Rakaran- um í Sevilla, Nemorino í Don Pasquale, auk söngs í Requiem eft- ir Mozart, Requiem eftir Verdi, Stabat Mater eftir Rossini og Sta- bat Mater eftir Dvorak. Stefán var söngkennari við Kon- unglegu óperuna í Kaupmannahöfn frá 1959 og prófdómari við Kon- unglega danska tónlistarskólann í borginni 1961. Hann fluttist heim til Islands 1966 og kenndi við Tón- listarskólann í Reykjavík í nokkur ár. Stefán var í heiðurslaunaflokki Alþingis, riddari Hinnar íslensku fálkaorðu 1940, stórriddari 1952 og sæmdur dönsku Dannebrogs- orðunni 1960. Hann kvæntist tví- vegis; í fyrra skiptið Else Brems, konunglegri hirðsöngkonu, árið 1940 en þau slitu samvistir ári síð- ar, og Kristjönu Sigurðardóttur árið 1950 en þau slitu samvistir. Stefán eignaðist fimm börn og er eitt þeirra látið. Söngur Stefáns var valinn á safnplötu EMI-fyrir- tækisins fyrr á þessu ári með yfir- liti yfír helstu söngvara heimsins á tímabilinu 1939-1978.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.