Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 8 B H----- Félag harmonikuunnenda heldurskemmtifund íTemplarahöllinni í dag kl. 15.00. Meðal gesta sem koma fram verða Högni Jónsson, Elías Davíðsson, Jón IngiJúlíusson, Þorleifur Finnsson, Magnús Jörundsson og margirfleiri. Garðar Jóhannesson leikur fyrir dansi. Allirvelkomnir. Skemmtinefndin. ----------------------------N Leikfimi Leikfimi fyrir konur á öllum aldri hefst í Melaskóla 11. janúar. Upplýsingarog innritun alla daga eftir kl. 18.00 í síma 73312. Ingibjörg Jónsdóttir, íþróttakennari. ^ ^ TILBOÐ ÓSKAST í Ford ExplorerXLT 4x4, árgerð '92 (ekinn 12 þús. mílur), Ford Aerostar Eddie Bauer, árgerð '88, Nissan King Cab SE V6 4x4, árgerð '87 (tjónabifreið) og aðrar bifreiðar er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 11. janúar kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA SÓLARKAFFI ÍSFIRÐINGA- FÉLAGSINS ísfirðingafélagið gengst fyrir sínu árlega SÓLARKAFFI föstudagskvöldið 21. janúar nk. að veitingahúsinu Hótel Islandi, Armúla 9, Reykjavík. Húsið opnar kl. 20.00, en kl. 20.30 hefst hefðbundin hátíðar- og skemmtidagskrá með kaffi og rjómapönnukökum. Borgardætur, Villi Valli & Co. og Lúdó- sextett leika fyrir dansi til kl. 3 e.m. Aðgangseyrir kr. 1.800,- Forsala aðgöngumiða fer fram að Hótel Islandi laugardaginn 15. janúar kl. 14-16. Borð verða tekin frá á sama stað og tíma. Miðapantanir auk þess í síma 91-687111 dagana 17.—21. janúar milli kl. 14 og 18. Greiðslukortaþ j ónusta. VISA wffimmm Níræð Kristín S. Helga dóttir frá Odda Þegar Kristín mín frá Odda fyllir níunda áratuginn leita æskuminn- ingarnar á hugann í fylkingum svo vandi er úr að velja að setja á blað svo að gagni megi koma að lýsa þeirri heiðurskonu. En skyldan kall- ar að sýna henni þakklætisvott þótt í litlu verði. Þegar ég hugsa til bernskuár- anna í Ögurvík við Djúp vestur fínnst mér eins og þar hafi oftast verið gott veður. Nú veit ég og all- ir kunnugir að vísu betur. A vetrum gengu á norðaustan stórhríðar dög- um og vikum saman og allt fennti í kaf. En það var ekki tiltökumál og því síður annálsvert. Ekki voru þar rafmagnsljósin að lýsa upp skammdegið. Samt var hlýtt og bjart um alla bæi vegna fólksins sem þar lifði og hrærðist. Ég verð að undanskilja bernskuheimili mitt á Svalbarði af auðskildum ástæð- um, en leitun mun hafa verið um endilangt ísafjarðardjúp að heimili, þar sem greiðvikni, glaðværð og góðsemi húsbændanna ríkti sem í Odda hjá Stínu og Þórði, seint og snemma. Undirrituðum er málið eiginlega of skylt til að geta borið heimili þeirra vitni sem vert væri, þar sem hann var hálft um hálft í fóstri á þeim bæ vegna órofa vin- áttu við einkasoninn Helga Guðjón frá blautu bamsbeini. Og svo við þau systkini öll. Þráfaldlega hefír verið spurt af ókunnugum: Var ekki mikil fátækt víða í þessum byggðum við Djúp, þar sem fjöldinn lifði af sjósókn á opnum bátum rónum lengst af, ein- staka með smávegis landnytjar, kýrbein og örfáar rolluskjátur? Sá sem hér heldur á penna gerði sér aldrei grein fyrir því, enda sá maður talinn þá bjargálna sem átti til hnífs og skeiðar. Aldrei heyrðist þess getið að menn liðu matar- skort, þótt menn ættu ekki margra kosta völ ef um menntun var að ræða t.d. En auðæfi voru þar og þá, reynd- ar ekki talin í því sem mölur og ryð fá grandað. Auðlegð þessa fólks fólst í auðlegð andans, þar sem menn undu glaðir við sitt í nánu sambýli við móður náttúru. Hennar atlot vom að vísu á stundum heldur harðneskjuleg, en því var líka tekið með æðruleysi. Þegar þessar aðstæður em rifjað- ar upp hljóta hjónin í Odda í Ögur- vík að verða einstaklega minnis- stæð. Þau voru alin upp við hart, en horfa nú að ævilokum yfir farinn veg sem glæsilegir sigurvegarar í lífsstríðinu. Kristín Svanhildur, sem hún heit- ir fullu nafni, var í heiminn borin 9. janúar 1904 á Skarði í Skötu- fírði og ólst þar upp. Foreldrar hennar voru hjónin Karitas María Daðadóttir, bónda á Borg í Skötu- fírði, Hallssonar, Arasonar í Skál- vík. Móðir Kristínar var Ásgerður Einarsdóttir, Magnússonar, bónda á Garðsstöðum í Ógurvík og Karit- asar Ólafsdóttur, hattamakara á Eyri í Seyðisfirði vestra, systir Þur- íðar í Ögri. Bróðir Ásgerðar var Jón Einarsson á Garðsstöðum, faðir Jóns Auðuns, alþm., og þeirra systkina. Faðir Kristínar var Helgi Guðjón Einarsson, Hálfdáharsonar, bónda á Hvítanesi, Einarssonar prests á Eyri í Skutulsfirði. Bræður sr. Ein- ars vom Helgi lektor faðir Jóns biskups og sr. Guðjón faðir Hálf- dapat vígslubiskups. Bræður Helga á Skarði vom m.a. Guðfinnur á Litlabæ, faðir Einárs í Bolungarvík, Vernharður á Hvítanesi og enn fleiri og er mikill ættbogi þessa fólks vestur þar og víða um land. Eins og fyrr segir ólst Kristín upp í foreldrahúsum, en missti móður sína aðeins þriggja ára göm- ul. Miðað við þeirra tíma aðstæður naut Kristín góðrar menntunar. 15 ára að aldri fer hún til Reykjavíkur og er þar lengst af á snæmm frænda síns, Jóns biskups. Biskup hvatti hana og studdi til náms í Kvennaskólanum, sem þá þótti ekki lítill frami fátækri stúlku frá Skarði í Skötufirði. Kristín stundaði kennslu í nokkra vetur við Djúp, en vorið 1927 ráð- ast örlög hennar þegar hún gerist fanggæzla á Óbótatanganum í Ög- urvík hjá ungum sægarpi frá Strandseljum, Þórði Ólafssyni. Þau giftust 15. september 1928 og reistu sér hús á Skothúsnesi í Ögur- vík og nefndu Odda. Oddi brann til kaldra kola á örskotsstundu vorið 1943. Árið eftir fluttu þau til ísa- fjarðar en 1947 flytjast þau búferl- um til Reykjavíkur þar sem heimili þeirra stóð til 1984 að þau fá inni hjá Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem þau voru sjálf sín allt til sl. vors 1993. Kristín og Þórður eignuðust fjog- ur börn og eru þessi í aldursröð: Helgi Guðjón, verkfræðingur, kvæntur Þorgerði E. Mortensen, hjúkranarfræðingi frá Færeyjum; Guðrún, kennari, d. 26. september 1984, gift Guðbjarti Gunnarssyni, kennara, þau skildu; Cecilía, deild- arstjóri, d. 27. mars 1990, ógift; Þórunn, starfsm. hjá Ferðafélagi íslands, gift Hjálmtý Péturssyni, kaupm., en hann er látinn fyrir all- mörgum áram. Auk þess ólu þau Kristín og Þórð- ur upp Sigurð Þ. Guðmundsson, stýrimann, sem sinn eigin son. Hann er kvæntur Kristínu Einars- dóttur. Hér hefir verið stiklað á því stærsta í lífshálupi Kristínar Helga- dóttur. Þess er undirritaður fullviss að fyrr en síðar muni ævi merkis- hjónanna frá Odda gerð miklu fyllri og verðugri skil. Þeim, sem nú lifa sín manndómsár, og léku á lófum aldamótakynsióðarinar og þeirra sem næstir tóku við, hvílir sú lág- marksskylda á herðum að sýna ræktarsemi lífi og starfi'þeirra, sem voru framkvöðlar þjóðlífsbyltingar- innar íslenzku, þegar fólkið reis úr örbirgð til bjargálna. Og svo er þá aðeins eftir að þakka Þórði og Kristínu fyrir mig og mína. Ég og mitt fólk stendur í óborganlegri þakkarskuld við höfðingshjónin frá Odda. Guð gefi þeim fagurt og friðsælt ævikvöld, héðan í frá sem hingað til. Sverrir Hermannsson. Sudurbæjarlaug Haf narf jaröar Innritun í síma 46208 MALASKOLI REYKJAVIKUR Tungumálakennsla í sérflokki - fyrir alla VISA STÖÐUPRÓF 10.-14. jan. frá kl. 12.00-20.00 SÍmÍ: 62 88 90 Fí IRO NÁMSKEIÐ HEFJAST 17.jan. Brautarholti 4 105 Reykjavík Pýska Spænska Almenn kenasla Einkatímar Sænska Danska Hollenska Einkatímar Rússneska Franska SKÓLAR ERLENDIS Tungumálakennsla fyrir alla aldurshópa Bell, Swan, Intemational House o. fl. Icelandic for Foreigners JACQUI KOOS rLnska Almenn enska, Bókmenntahópar, Kráarhópar, Viðskiptaenska, Einkatímar phone: 62 88 90

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.