Morgunblaðið - 25.01.1994, Page 20

Morgunblaðið - 25.01.1994, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1994 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Sigurður J., Björn Jósef og Þórarmn B. í efstu sætunum SIGURÐUR J. Sigurðsson mun skipa fyrsta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar í vor, en hann hlaut flest atkvæði í efsta sæti listans í prófkjöri flokksins sem haldið var um helgina. Alls tóku 845 manns þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ellefu voru í framboði. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 1. Sigurður J. Sigurðsson 337 atkv. í sæti 1 2. Björn Jósef Arnviðarson 283 atkv. í sæti 1-2 3. Þórarinn B. Jónsson 352 atkv. í sæti 1-3 4. Valgerður Hrólfsdóttir 462 atkv. í sæti 1-4 5. Jón Kr. Sólnes 480 atkv. í sæti 1-5 Sigurður fékk 337 atkvæði í fyrsta sæti listans, en hann gegnir nú stöðu forseta bæjarstjórnar Akureyrar. í öðru sæti varð Björn Jósef Arnviðarson sem hlaut 283 atkvæði í 1. og 2. sæti listans og í þriðja sæti varð Þórarinn B. Jóns- son með,352 atkvæði í 1. til 3. sæti. Þórarinn hefur ekki áður tek- ið þátt í stjórnmálum, en Björn Jósef var í 2. sæti lisfcdns fyrir síð- ustu bæjarstjómarkosningar. Valgerður Hrólfsdóttir fékk 462 atkvæði í 1. til 4. sæti og verður í fjórða sæti listans,' en hún var í því fimmta í síðustu kosningum og Jón Kr. Sólnes hlaut 480 at- kvæði í 1. til 5. sæti og verður í fimmta sæti. Hann var í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síð- ustu kosningar, eftir að hann gaf 3. sæti sem hann var í eftir til Bimu Sigurbjörnsdóttur. Aðeins munaði einu atkvæði á Jóni og Þórarni um 3. sætið, en Jón fékk 351 atkvæði í 3. sæti. Jón hefur óskað eftir endurtalningu og fer hún fram í dag. Þá á eftir að úr- skurða um nokkur vafaatkvæði. Kjömefnd hefur ákveðið að birta ekki röð og atkvæði annarra fram- bjóðenda en samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins varð Guð- mundur Jóhannsson í 6. sæti og Birna Sigurbjörnsdóttir bæjarfull- MTC SLDfiLW-jnjl PENINGASKÁPAR trúi í 7. sæti. Aðrir frambjóðendur voru Anna Björg Björnsdóttir, Borghildur Blöndal, Einar S. Bjarnason og Ólafur Rafn Ólafs- son. Sjálfstæðisflokkurinn á fjóra fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar, Sigurð J., Björn Jósef, Birnu og Jón Kr. Á brattann að sækja Bjöm Jósef Arnviðarson lög- maður sagðist vera ánægður með að halda öðru sætinu, sérstaklega með tilliti til aðstæðna í þessu próf- kjöri. Hann hefði orðið þess var að beinlínis hafi verið stefnt að því að velta honum úr þessu sæti. Björn Jósef sagðist vera hæfi- lega bjartsýnn á komandi bæjar- stjórnarkosningar. Sagði að vísu að alltaf væri á brattann að sækja fyrir þá flokka sem stæðu að meiri- hluta þegar ástandið væri erfitt en hann væri þó hæfilega bjart- sýnn á útkomuna. Fólk vildi breytingar Þórarinn B. Jónsson er umboðs- maður tryggingafélagsins Sjóvár- Almennra á Akureyri en því starfi hefur hann gegnt um árabil. „Ég bjóst við þokkalegri útkomu úr prófkjörinu, en niðurstaðan var vonum betri,“ sagði Þórarinn. Ein- ungis munaði nokkrum atkvæðum að hann næði öðru sæti listans. „Mér sýnist að fólk hafi viljað breytingar, ástandið er ekki gott hér á Akureyri, mikið atvinnuleysi og í raun varð kveikjan að því að ég ákvað að taka þátt í prófkjörinu sú að margir vina minna hafa gengið um atvinnulausir. Ég hef hug á að beita mér í atvinnumálun- um,“ sagði hann. Ékki náðist í Sigurð J. Sigurðs- son í gær. Deila Sjómannafélags Eyjafjarðar og Samherja um tvíburatrollveiðar Yilji til að ganga frá samningum Margrét EA farin á veiðar Með kortalásum, tölvulásum og talnalásum. Verð frá kr. 29.810,- Faanlegir með gólf- festingu og bjöllu TELVUTÆKI FURUVÖLLUM 5, AKUREYRI SÍMI 96-26100. fSE Tæknival SKEIFUNNI 17, REYKJAVIK SÍMI 91-681665. VILJI er til þess að ganga frá samningum sjómanna sem stunda svokallaðar tvíburatrollveiðar milli Sjómannafélags Eyjafjarðar og Samheija hf. en tvö af skipum félagsins, Margrét EA og Oddeyri EA, hafa stundað slikar veiðar. Margrét EA hélt til veiða síðdegis á laugardag, en Samherjamenn hafa ákveðið að leggja Oddeyrinni um tíma. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sagði að ætlunin væri að halda fund með forsvarsmönnum Samhetja í dag þar sem farið yrði yfir stöðuna og rætt um leiðir til lausnar deilunni. „Málið snýst um það að við viljum fá samning fyrir þessar veiðar, en slíkur samningur er ekki til. Ég held að sé vilji til þess að ganga frá slíkum samningum," sagði Konráð. Deilan verður leyst „Það endar með því að þessi deila eins og aðrar leysist," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Samheija. „Það er alltaf æskilegt að lifa í friði við Á stúdentagörðunum á Akureyri Til leigu einstaklingsherbergi. Góð aðstaða. Upplýsingar gefur Jóhanna í síma 96 30900, milli kl. 10 og 12 daglega. FESTÁ, Félagsstofnun stúdenta á Akureyri. sitt umhverfi og sína starfsmenn þannig að við vonum að þetta jafni sig og ró komist á í fyrirtækinu og að tekin verði upp eðlileg sam- skipti við stéttarfélag sjómanna innan skamms. Við erum með feikilega marga sjómenn í vinnu og höfum gert út í tugi ára í góðu samkomulagi við stéttarfélögin þannig að ég vona að svo verði áfram. Þetta er auðvitað ekki búið, en ég á von á að þetta fari að leys- ast og menn slíðri sverðin," sagði Þorsteinn. Stjóm Sjómannafélags Eyja- fjarðar kom saman til fundar í gærkvöld og eins var fundur með trúnaðarráði félagsins þar sem far- ið var yfir stöðuna. „Það er vilji til að undirrita samninga um þess- ar veiðar og eins hafa Samheija- menn lýst yfir vilja til að koma þeim mönnum sem ekki hafa feng- ið pláss í vinnu,“ sagði Konráð. >--------» ♦ ♦------- ■ KYRRÐARSTUND verður í Glerárkirkju á morgun, miðviku- daginn 26. janúar frá kl. 12 til 13. Orgelleikur, helgistund, alt- arissakramenti, léttur málsverður. Allir velkomnir. Morgunblaðið/Trausti Samfagnað MARGT gesta var til að samfagna Leikfélagi Dalvíkur á fimmtíu ára afmælishátið félagsins á laugadag, einkum félagar og þátttakend- ur í starfsemi félagsins fyrr og nú. Leikfélag Dalvíkur 50 ára Öflugt leiklistar- líf í hálfa öld Dalvík. ^ FIMMTÍU ár voru liðin 19. janúar síðastliðinn frá stofnun Leik- félags Dalvíkur og af því tilefni efndi félagið til afmælishátíðar í Víkurröst á Dalvík á laugardaginn. Boðið var upp á kaffiveitingar og fjölbreytta skemmtidagskrá. Margt gesta var til að samfagna félaginu, einkum félagar og þátttakendur í starfsemi félagsins fyrr og nú. Félaginu bárust margar heillaóskir og gjafir frá öðrum leikfé- lögum og vildarvinum þess. Dagskrá afmælishátíðarinnar var með fjölbreyttu sniði og stjórn- aði formaður afmælisnefndar, Guð- laug Björnsdóttir, hátíðinni. Fluttu leikfélagar stutt atriði þar sem fram komu allir helstu þættir leiklistar- innar, söngur, upplestur, látbragð o.fl. Flutt voru stutt söngatriði úr leikverkum sem leikfélagið hafði sett upp. Þórunn Magnea Magnús- dóttir flutti kveðjur Leikfélags Ak- ureyrar og afhenti félaginu mynd að gjöf og þá fiutti Jóhann Antons- son afmælisræðu þar sem hann greindi frá ýmsum spaugilegum atvikum í starfi sínu í félaginu, en hann var um nokkurn tíma í stjórn þess. Að dagskrá lokinni var stiginn dans fram eftir kvöldi. Öflugt leikiistarlíf Leikfélag Dalvíkur var stofnað 19. jánúar á lýðveldisárinu og fyrsta leikverkið sem félagið setti á íjalirn- ar var „Öldur" eftir sr. Jakob Jóns- son og sá Sigtýr Sigurðsson um uppsetningu á verkinu, en hann var um langan tíma virkur félagi í Leik- félagi Dalvíkur og sat í fyrstu stjórn þess. Um langan tíma hefur leiklist- arlíf á Dalvík verið mjög öflugt og athyglisvert er að þaðan hafa kom- ið margir kunnir leikarar sem gert hafa garðinn frægan í atvinnuleik- húsunum á Akureyri og Reykjavík. Engin ellimerki er að sjá á félag- inu þrátt fyrir nokkurn aldur því starfsemi þess er öflug og hefur félagið nú sem endranær á að skipa mjög frambærilegum leikurum og öðru listafólki. Fyrir fáum árum keypti félagið húsnæði til æfinga og annarrar aðstöðu fyrir starfsemi sína og á þessu ári gerði það samn- ing við bæjaryfirvöld um að annast rekstur samkomuhússins, sem er kvikmynda- og leikhús bæjarins. Vonast er til að það styrki starfsemi félagsins enn frekar. Lýðveldisafmælið Árlega hefur Leikfélag Dalvíkur tekið eitt til tvö verk til sýninga. Að þessu sinni hefur verið ákveðið að setja á fjalirnar „Hafið“ eftir Ólaf Hauk Símonarson, en það var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haustið 1992. Þá er ráðgert að á haustmán- uðum verði „Land míns föður“ eftir Kjartan Ragnarsson tekið til sýn- inga og mun það verða framlag félagsins til lýðveldisafmælisins, því verkið gerist að hluta til á lýðveldis- hátíðinni 1944. Æfingar á „Hafinu" eru hafnar og hefur Þórunn Magnea Magnúsdóttir verið ráðin til að leik- stýra því. Ráðgert er að frumsýna í lok febrúar. Formaður Leikfélags Dalvíkur er Birkir Bragason. Fréttaritari Staða rektors við Háskólann á Akureyri Haraldur Bessason dreg- ur umsókn sína til baka HARALDUR Bessason, rektor Háskólans á Akureyri, hefur í bréfi til menntamálaráðherra óskað eftir því að draga umsókn sína um stöðu rektors við skólann til baka. Haraldur sagði að ástæða þess væri tvíþætt, annars vegar þætti sér vænt um að ungt fólk með mikla reynslu af kennslu við há- skóla og sem hefði stundað út- gáfu vísindarita í miklum mæli sæktist eftir stöðunni og hins vegar „sé ég það nú að ég hef líklega ekki haft nægt tímaskyn, ég hef .verið sjö ár í rektorsemb- ætti og það er langur tími, þann- ig að ég endurskoðaði fyrri af- stöðu mína og ákvað að hætta við að sækja um endurráðningu í stöðuna," sagði Haraldur. Auk Har- alds sóttu um stöðu rektors við Háskólann á Akureyri þau Fanney Kristmunds- dóttir, lektor í líffærafræði við Háskólann í Edinborg í Skotlandi, og Þorsteinn Gunnars- son, vísinda- og menntamálafull- trúi við sendiráð Islands í Bruss- el.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.