Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.05.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ___________________FRÉTTIR____________________ Stórmeistararnir lágu á sögulegu helgarskákmóti Morgunblaðið/Jóhann Þórir Jónsson Teflt við tölvuna HELGI Ólafsson, t.h., teflir við tölvuna, sem hafði betur í viður- eigninni. Gegnt tölvunni situr Baldur Fjölnisson en hann aðstoð- aði við taflið. Kistanekki hjá Skagfjörð Enginn elztu starfsmanna fyrirtækis- ins man eftir tilvist hennar Tölva vann skákmót TÖLVUFORRITIÐ M. Chess Genius vann 44. helgarskákmót tímaritsins Skákar, sem haldið var á Suðureyri í samvinnu við taflfélagið þar í bæ. Fékk tölvan 9 '/2 vinning af ellefu mögulegum, en þetta er í fyrsta skipti sem tölva vinnur skákmót hér á landi. Alls voru tefldar ellefu umferðir á mótinu með hvatskákarsniði og hafði hver keppandi 30 mínútur til að ljúka skákinni. í 2.-3. sæti urðu stórmeistararnir Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar Stefánsson, sem báð- ir hlutu 8V2 vinning. Að sögn Jó- hanns Þóris Jónssonar, ritstjóra Skákar, var forritið M. Chess Genius gert eins öflugt og hægt var fyrir mótið og gat forritið valið á milli 2 milljóna skáka. Einungis einn keppandi vann tölv- una, alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason, sem varð í 3.-5. sæti með 7‘/2 vinning. Gunnar Guðmundsson og Guðmundur Halldórsson hlutu einnig 7'/2 vinning. Ungur Mosfellingur, Einar K. Ein- arsson, gerði jafntefli við tölvuna, en hann hlaut einnig unglingaverð- laun ásamt þeim Sigurbirni Björns- syni og Kjartani Guðmundssyni. Sigurður Daníelsson náði bestum árangri heimamanna en Magnús Magnússon frá Akranesi náði best- um árangri dreifbýlismanna. Öð- lingaverðaun hlaut Sturla Pétursson sem tefldi á Ólympíumótinu árið 1936 fyrir íslands hönd, þá 21 árs að aldri. EKKERT verður af fyrirhuguðu tónleikahaldi bandarísku rokk- hljómsveitarinnar Spin Doctors á Listahátíð í Reykjavík í sumar. Samkvæmt upplýsingum frá breska umboðsfyrirtækinu TKO, sem ráðgerði tónleika í Laugardals- höll 18. júní nk., er stefnt að því að hljómsveitin komi hingað til lands í októbermánuði. „ENGINN elstu starfsmanna Krist- jáns Ó. Skagfjörð man eftir þessari kistu og hún hefur sennilega aldrei verið hér í fyrirtækinu. Ef svo hefði verið, hefðu menn eflaust munað eftir því,“ segir Jónína Jónsdóttir forstjóri Kristjáns Ó. Skagfjörðs, er Morgunblaðið spurðist fyrir um dragkistu með um 40 málverkum eftir Kristján Magnússon, sem son- ur hans, Magnús Kristjánsson hóteleigandi á Spáni, heldur fram að eigi að vera í vörzlu fyrirtækis- ins. Steve Lewis, markaðsstjóri TKO í Bretlandi, segir að eftir að Björk Guðmundsdóttir hafi ákveðið að standa með Smekkleysu s.m. hf. að tónleikahaldi í Laugardalshöll 19. júní nk. í tengslum við 50 ára afmæli lýðveldisins, hafi orðið ljóst að ekki væri markaðslegur grund- völlur fyrir stórum popptónleikum tvo daga í röð. Jónína segir að Magnús hafí þrisvar sinnum komið í heimsókn í fyrirtækið þeirra erinda að spyijast fyrir um kistuna og hafi enginn kannast við hana. Jónína er afkom- andi stofnenda fýrirtækisins og hefur verið gjörkunnug húsakynn- um þess frá blautu barnsbeini. Magnús telur að hann hafi haft spurnir af kistunni árið 1972 og þá fengið upplýsingar um að hún væri geymd í húsakynnum fyrir- tækisins. Jónína var þá 16 ára og man ekki fremur en aðrir eftir umræddri kistu. Jónína sagði i samtali við Morg- unblaðið, að hún hefði m.a. spurt Magnús Kristjánsson, hvort hann hafi vitneskju um hvað í kistunni ætti að vesa, t.d. skrá yfir listaverk- in, en hefur engin svör fengið. Jafn- framt segir hún að Magnús hafi tjáð sér, að hann hafi lítið sem ekk- ert spurzt fyrir um, hvort hér hefðu verið á markaði málverk eftir Krist- ján Magnússon. Þannig virðist hvorki tangur né tetur finnast af umræddri kistu og innihaldi hennar. Spin Doctors kemur ekki AÐALFUNDUR 19. inaí 1994, kl. 17:15, Holiday Inn, Setrið HLUTABRÉFASJÓÐUR VÍB HF. 1. Fundarsetning 2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár — Kristján Oddsson, formaður 3. Ársreikningur fyrir reikningsárið 1. maí 1993 til 30. apríl 1994 4. Önnur aðalfundarstörf sbr. 14. grein samþykkta félagsins 5. Afkoma og arður íslenskra fyrirtækja — Vilhjálmur Vilhjálmsson, verðbréfamiðlun VIB 6. Önnur mál Hluthafar eru hvattir til að mœta! VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • ________Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 60 89 00. Myndspndir 68 15 26. MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994 9 Avaxtaðu peningana þína milli fjárfestinga meb ríkisvíxlum og ríkisbréfum Þrisvar í hverjum mánuði fara fram útboð á ríkisvíxlum og ríkisbréfum sem allir geta tekið þátt í. Með ríkisvíxlum og ríkisbréfum getur þú ávaxtað sparifé þitt til skemmri tíma sem er tilvalið ef þú þarft að brúa bilið milli ýmissa fjárfestinga, t.d. húsnæðiskaupa, og ávaxta peningana þína á traustan hátt í millitíðinni. Lánstími ríkisvíxla er 3,6 og 12 mánubir Lánstími ríkisbréfa er 2 ár Hafðu samband við verðbréfa- miðlarann þinn eða starfsfólk Þj ónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa og fáðu allar nánari upplýsingar um útboð á ríkisvíxlum og ríkisbréfum. ÞJONUSTUMIÐSTOÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.