Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 21 Joe Pass látinn JASS-gítar- leikarinn Joe Pass, sem m.a. gat sér orð fyrir að vinna með heimsþekkt- um listamönn- um á borð við Ellu Fitzger- ald, Count Basie og Duke Ellington, lést á mánudag úr lifrarkrabba, 65 ára að aldri. Pass deildi Grammy-verðlaununum árið 1975 með Oscar Peterson og Nils Henning Orsted Pedersen fyrir plötu þeirra „The Trio“. NATO gagn- rýnir Frakka AÐILDARÞJÓÐIR Atlants- hafsbandalagsins (NATO) gagnrýndu Frakka í gær fyrir að hóta því að hefja brottflutn- ing friðargæsluliða sinna frá Bosníu yrði ekki einhver árang- ur af friðarviðræðum. Sögðu allmargir fulltrúar á ■ fundi varnarmáiaráðherra NATO að Frakkar ættu að ráðgast við NATO-þjóðirnar áður en þeir gripu til aðgerða. Bakslag í brottför Rússa ANDREJ Kózyrev, utanríkis- ráðherra Rússlands, sagði í gær að Rússar myndu halda herliði sínu í Eistlandi þar til þeir teldu að réttindi yfirmanna á eftir- launum frá rússneska hernum hefðu verið tryggð. Tróðust undir í Mekka TALIÐ er að rúmlega 200 píla- grímar hafí látið lífið í troðn- ingi er varð við helgiathöfn á leiðinni til Mekka, helgustu borgar múslima. Atvikið átti sér stað á mánudag í borginni Mina, 15 km frá Mekka. Vilja fullnustu lífstíðardóms FORELDRAR James Bulger, sem tveir 11 ára drengir myrtu fyrir rúmu ári, krefjast þess að drengirnir verði látnir sitja í fangelsi til æviloka. Hafa þau safnað um 250.000 undirskriftum þessa efnis en dómari í málinu mæltist nýlega til þess að drengirnir sætu af sér 8-10 ár af lífstíðardómi sem þeir hlutu fyrir morðið. Kínversk kvennaeyja í ZUHAI í Suður-Kína hyggjast • menn koma á fót sérstakri „kvenna-eyju“ til að laða að kvenkyns ferðalanga. Mun eyj- an, sem er rétt hjá Macau, eiga að endurspegla allt það sem kvenlegt er. Þar verður leikin kvennatónlist, sýnd skemmtiat- riði kvenna, álfkonur munu svífa til jarðar og allt verða sveipað kvenlegri dulúð. James Bulger Neyðarástand við Viktoríu-vatn vegna drápa í Rúanda Tugþúsundum líka hefur skolað á land Kampala, París, Kigali. Reuter. TUGÞÚSUNDIR rotnandi líka hafa borist með fljóti frá Rúanda niður að Viktoríu-vatni og stjórnvöld í Úganda hafa óskað eftir aðstoð við að hreinsa vatnið. „Ástandið er hryllilegt. Þúsundir líka eru föst í flæðiengjum og fenjum við eyjarnar og við getum ekki náð þeim öllum upp,“ sagði Godfrey Kazibw, háttsettur embættismaður í Kalangala í Úganda. Kalangala er eyjaklasi Uganda-megin Viktoríu- vatns, stærsta stöðuvatns heims. Fregnir herma að allt að 50 líkum karla, kvenna og bama hafi skolað þar á land síðustu daga. Líkin eru mörg aflimuð og rotna í vatninu, sem skapar mikla hættu fyrir Ibúa sem drekka vatnið. Stjórnvöld hafa lýst yfir neyðarástandi á svæðinu og ráðið íbúunum frá því að drekka ósoðið vatn eða borða fiska úr vatn- inu. Margir neyðast þó til að drekka vatnið þar sem þeir eiga einskis annars úrkosti. Áætlað er að um 40.000 líka hafi skolað á land í Úganda en höfuðs- maður í her landsins sem fór í könn- unarferð um svæðið í flugvél sagði að sú tala kynni að vera alltof lág. Tútsar krafðir um borgun fyrir byssudauða Philippe Douste-Blazy, heilbrigð- isráðherra Frakklands, hefur verið í Rúanda og sagði að ástandið þar væri skelfilegt. Allt að hálf milljón manna héfur verið drepin og fórn- arlömbin eru aðallega tútsar, sem em í minnihluta í landinu. „Þetta er alvarlegasta þjóðarmorðið á síðari hluta aldarinnar," sagði ráðherrann. Douste-Blazy hafði eftir flótta- mönnum að hútúar krefðu tútsa um borgun fyrir að drepa þá með byss- um frekar en sveðjum. „Þeir sögðu „ef þú getur borgað drepum við þig með Kalashníkov, annars beitum við sveðjum“,“ hafði hann eftir flótta- fólkinu. ' Ráðherrann kvaðst hafa hlustað á útvarp hútúa og heyrt það skora á dauðasveitirnar að þyrma ekki lífi barna tútsa. Mannréttindahreyfing- ar hafa hvatt til þess að útvarpinu verði lokað. Iqbal Riza, sendimaður Samein- uðu þjóðanna, kom til Kigali, höfuð- borgar Rúanda, í gær til að ræða við stjórn landsins en uppreisnarher- inn gerði harðar sprengjuárásir á miðborgina og miðaði á hótelið þar sem viðræðurnar áttu að fara fram. Talið er að uppreisnarmennirnir hafi viljað koma í veg fyrir viðræðumar. Þeir eru nú í mikilli sókn, náðu flug- vellinum í Kigali og mikilvægri her- stöð á sitt vald um helgina. Reuter FISKIMENN í Úganda hafa slætt tugi líka upp úr Viktoríuvatni síðustu daga. Talið er að tugþús- undir líka hafa borist með Akagera-fljótinu frá Rúanda niður í vatnið og stjórnvöld í Uganda óska eftir aðstoð við að hreinsa það. A myndinni búa úgandískir sjómenn lík undir greftrun. Vill Hillary verða annað en húsmóðir í Hvíta húsinu? Hillary for- setaefni demókrata? Washington. The Daily Telegraph. TÍMARITIÐ New Forlcerhefur eftir nánum aðstoðarmanni Clin- ton-hjónanna, Betsey Wright, að samstarfsmenn þeirra hvetji nú Hillary Clinton til að stefna að framboði til forseta árið 2001 eftir að öðru kjörtímbili forset- ans lyki. Talsmenn Bandaríkjaforseta visuðu þessu á bug og sögðu að Hillary Clinton hefði engin áform um að taka við af eigin- manni sínum. „Mjög margir eru farnir að tala af alvöru um að hún taki við af Bill Clinton,“ hafði New Yor- ker eftir Betsey Wright. „Starfs- menn þeirra segja: „Við verðum að gera þetta svona og svona og þá verðum við hérna í að minnsta kosti 12 ár“.“ Ennfremur var haft eftir Wright að nánustu samstarfsmenn hjónanna teldu þetta „mjög raunhæfa áætlun“. Betsey Wright hefur neitað því að hafa sagt þetta en tímaritið kveðst standa við greinina. Greinin kemur forsetanum illa þar sem hann hefur verið að reyna að mýkja ímynd sína. Litið er á vísbendingar um að Hillary kunni að gefa kost á sér í f orseta- embættið sem lítillækkun við A1 Gore varaforseta, sem er talinn líklegur til að verða forsetaefni | demókrata á eftir Clinton. Rússiand með landamæri Sovétríkjanna Rútskoj vill Jelt- sín burt Moskvu.Reuter. FYRRUM varaforseti Rússlands, Alexander Rútskoj, hóf um helgina áróðursherferð sem miðar að því að koma Borís Jeltsín, Rússlands- forseta, frá völdum og endurreisa rússneskt ríki innan landamæra Sovétríkjanna sálugu. í ræðu, sem markaði endurkomu Rútskojs í rússnesk stjórnnml, lýsti hann formlega yfir því að engin von væri til þess að hann sættist við Jeltsín. „Stuðningur almennings við meðalveginn er enginn. Hvaða meðalvegur er á milli fórnarlambs og morðingja?" spurði Rútskoj í ræðu sinni og skoraði á alla stjórn- málaflokka að gera upp við sig með hvorum þeir stæðu. Rútskoj telur að flokkur sinn, Rússneski sósíal-demókratíski þjóðarflokkurinn eigi að vera Rútskoj laus úr fangelsi. grundvöllur fjöldahreyfingar þjóð- ernissinna og stjórnarandstöðu. Mun flokkur Rútskojs, ásamt öðr- um stjórnarandstöðuflokkum, halda ráðstefnu um næstu helgi, þar sem þeir munu ræða hvaða aðferðum eigi að beita til að koma Jeltsín frá völdum og leggja af markaðsbúskap. Rútskoj vann mikinn pólitískan sigur er hann var endurkjörinn leiðtogi flokks síns, sem virtist hafa snúið við honum baki eftir uppreisn þingsins í október sl. Tólf bíða bana í eldflauga- árás á Sanaa Sanaa. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 12 manns biðu bana og 90 særðust þegar eldflaug var skotið á Sanaa, höfuð- borg Jemens, að sögn talsmanna björgunarsveita í gær. Ekki var vitað um afdrif þriggja fjölskyldna tólf klukkustundum eftir árásina, sem var gerð á mánu- dagskvöld. Björgunarsveitirnar notuðu skóflur og berar hendurnar til að grafa í rústum húsanna sem eyðilögðust. Útvarpið í Aden sakaði ráða- menn í Suður-Jemen um árásina og stjórnvöld í Sanaa hótuðu að hefna árásarinnar. Daginn áður höfðu norðanmenn gert eld- flaugaárás á Aden, höfuðborg suð- urhlutans, sem kostaði átta manns lífið. Frá því stríðið hófst 4. maí hef- ur 20 Scud-eldflaugum verið skotið á norðurhlutann. Ein þeirra lenti á íbúðahverfi í Sanaa II. maí og varð 23 að bana. Varnarmálaráðuneytið í Suður- Jemen, sem lýsti yfir sjálfstæði á laugardag, neitaði því að hafa skotið eldflauginni á Sanaa. Dag- inn áður hafði þó nýr forseti Suður- Jemens sagt að ráðamenn í Aden kynnu að endurskoða þá ákvörðun sina að hætta að beita Scud-eld- flaugum. Her Norður-Jemens hefur reynt að ráðast á Aden og honum hefur tekist að ná Ataq, höfuðstað olíu- héraðsins Shabwa í suðurhlutan- um, á sitt vald. Nýja stjórnin í Suður-Jemen varð fyrir öðru áfalli um helgina þegar Bandaríkjastjórn kvaðst ekki ætla að viðurkenna sjálfstæði landsins, að minnsta kosti að svo stöddu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.