Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Þjóðleikhús á Listahátíð Forsýningar á Sönnum sögum TVÆR forsýningar verða á Lista- hátíð á leikritinu Sannar sögur af sálarlífi systra eftir Guðberg Bergsson og Viðar Eggertsson. Frumsýning er fyrirhuguð á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í haust. Efni leikverksins byggist á svo- kölluðum Tangasögum Guðbergs Bergssonar: Anna, Hermann og Dídí, Það sefur í djúpinu og Það rís úr djúpinu. í fréttatilkynningu segir: Sögurnar lýsa veruleikanum í íslenskum sjávarþorpum, sem urðu til í skjóli stríðs og hermangs um miðja öldina. I leikritinu segir frá dagstund á Tanga, þar sem boðið er til jarðarfarar og erfis- drykkju og áhorfendur kynnast bjargráði fólksins á Tanga, órum þess, draumum og bágindum. Leikendur í Sönnum sögum af sálarlífi systra eru: Guðrún S. Gísladóttir, Ingrid Jónsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Kristbjörg Kjeld, Hjalti Rögnvaldsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Herdís Þor- valdsdóttir, Björn Karlsson, Jón St. Kristjánsson, Höskuldur Ei- ríksson og Sverrir Amarsson. Léikmynd er í höndum Snorra Freys Hilmarssonar, Asa Hauks- dóttir sér um búninga en lýsingu annast Ásmundur Karlsson. Höf- undur leikgerðar er Viðar Egg- ertsson, sem jafnframt er leik- stjóri. Forsýningar á Sönnum sögum verða á Smíðaverkstæðinu 2. og 4. júní og hefjast klukkan 20. Úr Tangasögunum ÞÓRA Friðriksdóttir og Kristbjörg Kjeld í hlutverkum sínum. VIGDÍS Finnbogadóttir forseti íslands tekur á móti fyrsta ein- taki bæklingsins „Lýðveldið ísland 50 ára“. T.v. Herdís Hall, Elías Snæland Jónsson og Gunnhildur Manfreðsdóttir. Lýðveldið ísland NÝKOMINN er út bæklingurinn Lýðveldið Island 50 ára. Bæklingurinn er 32 síður og mik- ið myndskreyttur, með blöndu af nýjum og gömlum myndum. Fjallað er um uppruna íslendinga, alþingi hið forna, sjálfstæðisbaráttuna, stjórnkerfi fyrr og nú, hlutverk for- seta, þingmanna og ráðherra og ýmislegt sem gott er að vita á hálfr- ar aldar afmæli lýðveldisins. Texta skrifaði Elías Snæland Jónsson og Soffía Árnadóttir sá um hönnunina. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, flytur þjóðinni af- mæliskveðjur. Útgefandi er Lindin hf., útgáfa og dreifing, og kostar hann 500 krónur. Nýtt leik- hús í burð- arliðnum ÞAÐ ER víða unnið hörðum hönd- um að undirbúningi Listahátíðar. Við Hlemm leggja hinir örfáu meðlimir Möguleikhússins nótt við dag, til að gera sitt nýja leik- hús tilbúið. Eins og fram hefur komið í fréttum hér í Morgunblað- inu hefst leiklistarhátíð barna þar 1. júní næstkomandi, með gesta- sýningu frá Danmörku. Það er leikhópurinn Mariehonen sem ríð- ur á vaðið og sýnir leikritið um Litlu nornina og á eftir fylgir ís- lenskt brúðuleikhús og leiknar sýningar, sem hafa nær eingöngu verið færðar upp á leikskólum borgarinnar. Nú þegar hefur rými Möguleik- hússins verið hreinsað, innréttuð herbergi fyrir leikmyndir, leik- muni og búninga, förðunarher- bergið er tilbúið og verið er að leggja síðustu hönd á innréttingu áhorfendarýmis. Hvað skiptir konur máli? Hittumst á Gauk á Stöng í kvöld miðvikudag 25. maí kl. 20:30 Fram koma: Stutt ávörp: Hallfríður Olafsdóttir Kristinn Hallson flautuleikari óperusöngvari Linda R. Michaelsd. kennari m Guðrún Zöega verkfræðingur Ingibjörg Rafnar hæstaréttarlögm. I \ , Elsa B.Valsdóttir Jóna Gróa Sigurðard. Þuríður Pálsdóttir læknanemi húsmóðir óperusöngkona Ingibjörg Marteinsd. Edda Borg óperusöngkona jazzsöngkona ásamt ásamt Olafi V. Albertssyni píanóleikara Agli B. Hreinssyni píanóleikara Sigríður Snæbjörnsd. Helga Hilmarsdóttir Inga Jóna Þórðard. hjúkrunarframkv.stj. atvinnurekandi viðskiptafræðingur ► l i ► ► áfram xi Reyltjavík ’ D! u u AÐSTANDEINDUR Möguleikhússins, Alda Arnardóttir, Pétur Eggerz, Bjarni Ingvarsson og Stefán Sturla Siguijónsson. Listaverk fyrir Hofsstaðaskóla Verk Sigurðar Guð- mundssonar og Krist- ins E. Hrafnssonar valin DÓMNEFND í lokaðri samkeppni um listaverk fyrir Hofsstaðaskóla í Garðabæ hefur valið útiverk eft- ir Sigurð Guðmundsson og inni- verk eftir Kristinn E. Hrafnsson til frekari úrvinnslu og fram- kvæmda. Þijátíu listamenn sendu inn gögn og voru fimm þátttakendur valdir til að gera tillögur í lokaðri samkeppni. Skilafrestur rann út 25. apríl sl., og var skilað sex til- lögum að inniverki, fimm tillögum að útiverki og einni að inni- og útiverki. Ákveðið var að veita ekki sér- stök verðlaun en hveijum þátttak- anda verða greiddar 70 þúsund krónur fyrir eina tillögu en fyrir tillögur að verkunum sem valin voru verða greiddar 100 þúsund krónur. Dómnefnd taldi verk Sigurðar vera „frumlegt, einfalt og skír- skotar sterkt til þeirrar starfsemi sem fram fer í húsinu. Verkið höfðar til hugarheims barna“. Um verk Kristins var sagt að í því væri mikill leikur og „skemmti- lega örvandi. Það skírskotar til náms og fróðleiksleitar. Verkið er stílhreint, frumlegt og formfag- urt.“ I dómnefnd sátu Brynjólfur Kjartansson, formaður, Sigurveig Sæmundsdóttir, Soffía Guð- mundsdóttir, Ingibergur Magnús- son og ívar Valgarðsson, en trún- aðarmaður var Ólafur Jónsson. Ráðgjafi dómnefndar var arkitekt skólans, Baldur Svavarsson. ANDRÉS B. Sigurðsson, forseti baejarstjórnar í Garðabæ, afhendir Kristni E. Hrafnssyni og Ivari Valgarðssyni, sem tók við verðlaununum fyrir hönd Sigurðar Guðmundssonar, viðurkenningar vegna niðurstöðu samkeppninnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.