Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 25.05.1994, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1994 47 BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNIIMGARNAR 28.MAÍ Markviss atvinnustefna í Hafnarfirði FRAMBJÓÐENDUR minnihlutaflokkanna hér í Hafnarfirði kepp- ast nú um að yfirbjóða hver annan með kosta- boðum um varanlegar lausnir atvinnuvand- ans. Kjósið okkur, segja íhaldsmenn á biðilsbuxum, og þá fáið þið meiri vinnu_en þið komist yfir. Ábyrgir menn vita sem er að uppbygging atvinnu- lífs er ekki mál sem leyst verður á kosn- ingafundi eða með skrautlegum kosn- ingabæklingi, heldur er það langt ferli sem tekur langan tíma, hug- rekki og samheldni atvinnulífs, bæjaryfirvalda, ríkisvalds og fleiri aðila. Hafnarfjörður hefur ekki farið varhluta af þeim erfiðleikum sem við er að etja í atvinnulífi lands- manna. Nú virðist hinsvegar heldur vera að rofa til í þeim efnum, eins og sést best á því að atvinnulausum fer nú ört fækkandi í bænum og í sumar fá um 800 manns, einkum skólafólk, vinnu hjá bænum og stofnunum hans. Hins vegar hefur íbúum í bænum fjölgað það mikið á síðustu árum, að erfiðara er en ella að finna öllum störf. Mikið átak hefur verið gert í at- vinnumálum í Hafnarfirði á undan- fömum mánuðum og misserum. Við framkvæmdirnar í miðbænum, sem ráðist var í fyrir kjark og framsýni Alþýðuflokksins í bæjarstjórn, hafa skapast hundruð árs- verka. Þegar fram- kvæmdunum er lokið, og fýrirtæki hafa tekið til starfa í bygging- unum sem verið er að reisa, munu um 100 ný framtíðarstörf skapast í miðbæ Hafn- arfjarðar. Fleira er gert í Hafn- arfirði fyrir frumkvæði bæj arstj órnarmeiri- hlutans. Vegafram- kvæmdir við Asbraut eru unnar á kostnað bæjarins þótt um sé að ræða þjóðvegafram- kvæmdir sem ætti að greiða úr rík- issjóði. Full endurgreiðsla kemur ekki fyrr en eftir nokkur ár. Á síðustu fjórum árum hefur bæjarstjórn varið með beinum og óbeinum hætti mörgum tugum milljóna króna til eflingar atvinnu- starfsemi í Hafnarfirði. Nægir að nefna að um fimmtíu milljónir króna hafa verið settar í verkefni á vegum hlutafélagsins Atvinnueflingar og svona mætti lengi telja. Meirihluti Alþýðuflokksins í bæjarstjórn beitti sér á sínum tíma fyrir stofnun fiskmarkaðar við Suðurhöfn, smábátahöfnin var stækkuð og bætt verulega, hafnar- bakkar í Suðurhöfn voru lengdir og athafnasvæðið aukið. Allt hefur þetta stuðlað að traustari stoðum atvinnulífsins í Hafnarfirði - og veitti ekki af eftir viðskilnað íhalds- ins fyrir átta árum, tímabil sem Hafnfirðingar kalla ísöldina. Raunhæf og markviss atvinnustefna bæjar- stjórnarmeirihlutans í Hafnarfírði verður auðsæ í sumar, segir Ingvar Viktorsson, sem boðar, að allir grunnskólanemar, sem til þess hafi aldur, fái vinnu. Helsta afrek Sjálfstæðisflokksins í atvinnumálum var að klúðra starf- semi Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, þar sem áður unnu hundruð manna, þannig að 5000 tonna kvóti var fluttur til Akureyrar og togarar bæjarins með, allt í nafni einkavina- væðingar. Örlög Bæjarútgerðarinn- ar eru minnisvarði um atvinnu- stefnu íhaldsins í verki. Raunhæf og markviss atvinnu- stefna núverandi bæjarstjórnar- meirihluta verður greinileg í bænum í sumar. Allir grunnskólanemar, sem til þess hafa aldur, fá vinnu hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Þar er um að ræða 450 8. og 9. bekkjar- nema, 150 10. bekkjarnema og 150 til viðbótar 17 ára og eldri. Þar fyrir utan eru um 60 manns í vinnu á vegum bæjarins á þessu ári. En Alþýðuflokksmenn í Hafnar- firði láta sér ekki nægja að bregð- ast við þeim tímabundna vanda sem nú er við að etja. Við horfum einn- ig til framtíðar. Verið er að vinna skipulagsvinnu Orkugarðs á Straumsvíkursvæðinu, þar sem fyr irhuguð er aðstaða fýrir orkufrekan iðnað. Þar er nánast allt til staðar sem þarf fyrir slíka starfsemi, gnótt landrýmis, rafmagn og flutningslín- ur, stutt í háhitaorku, fyrsta flokks hafnaraðstaða og góðar vegasam- göngur við stærsta markaðssvæði landsins. Fjölmargt fleira er í undirbúningi á vegum bæjaryfirvalda í Hafnar- firði sem of langt yrði upp að telja hér. Ástæða er þó til að minna á hugsanlegan vatnsútflutning en fróðum mönnum ber saman um að hvergi á landinu séu aðstæður fyrir slíka starfsemi betri en einmitt í Hafnarfirði, þar sem samgöngur á sjó og landi eru góðar - og vatnið óvíða betra. Það hvarflar þó ekki að mér að halda fram að Orkugarður og vatnsútflutningur muni leysa at- vinnuvanda Hafnfirðinga til fram- búðar fyrir kosningarnar eða strax eftir þær: skyndilausnir og yfirboð í þessum efnum eru ekki einasta ábyrgðarlaust bull, þær eru óheiðarlegar og hættulegar. En það vita Hafnfirðingar. Þeir vita að hvítt er ekki svart - og láta ekki blekkjast af áróðri íhalds- ins og yfirboðum. Þeir hafna nýrri ísöld. Höfundur er bæjarstjóri í Hafnarfírði. Ingvar Viktorsson Unga fólkið á vinnu skilið í DAG eru um 500 Hafnfirðing- ar á atvinnuleysisskrá. Það eitt er nógu slæm tíðindi, ef ekki blasti við sú staðreynd að á næstu dögum og vikum mun trúlega jafn fjöl- mennur hópur hafnfirskra skóla- nema á aldrinum 16-20 ára bæt- ast í hópinn. Þetta er sá aldurshóp- ur sem á ekki vísan aðgang að sérstökum verkefnum hjá bæjarfé- laginu og þessir unglingar sjá jafn- framt fæstir fram á að komast í störf á hinum almenna vinnumark- aði. í nýlegri samantekt félagsmála- ráðuneytisins um atvinnuástandið í landinu komu fram sláandi tölur um atvinnuleysi ungs fólks. Sam- kvæmt þeim voru unglingar og fólk á þrítugsaldri langfjölmenn- asti hópur atvinnulausra. Sömu sláandi niðurstöður komu í ljós í úttekt sem gerð var í Hafnarfirði sl. vetur. Það er unga fólkið sem stendur verst að vígi. Það er unga fólkið sem hefur síst von um trygga vinnu. Hún er því miður hvorki björt né glæsileg sú framtíð sem bíður þeirrar kynslóðar sem erfir landið. Hér verður að bregðast við og það skjótt. Það verður að tryggja þessu unga fólki störf nú í sumar og þar verða bæjaryfirvöld að leggja sitt af mörkum. G-listinn í Hafnarfirði hefur skýrar og mark- vissar tillögur frma að færa í þess- um efnum. Við leggjum höfuð- áherslu á, að nú þegar verði gerð skipuleg skráning meðal ungs fólks í bænum á raunveru- legu atvinnuástandi. Jafnhliða verði undir- búin og skipulögð fjöl- þætt verkefni sem eru bæði þroskandi og hvetjandi fyrir þessa ungu bæjarbúa til að tryggja þeim bæði verðug viðfangsefni og um leið tekjur til að kosta áfram skóla- nám sitt og létta undir á heimilum sínum, sem trúlega er víða brýn þörf á. Meðal þeirra verkefna sem blasa við eru m.a.: • Skógræktarátak á lýðveldisári. Gjöf bæjarins til komandi kynslóða með gróðursetningu og ræktunar- störfum á helstu útivistarsvæðum bæjarins. • Gerð göngustíga í samræmi við skipulagstillögur um framtíðarúti- vistarsvæði sem kynntar voru í nýjasta fréttablaði Skógræktarfé- lags Hafnarfjarðar. • Vinnuhópar ungs fólks fái fijálsar hendur með hönnun og endurskipulagningu á opnum leik- svæðum yngstu borgaranna, gæslu- og róluvöllum. • Sett verði á laggirnar sérstök vinnustofa ungs fólks, þar sem því sé gefinn kostur á að vinna að fjöl- breyttri listsköpun. Árangur sumarstarfsins verði framlag til sérstakrar mennta- og menning- arhátíðar ungra Hafn- firðinga í haust. • Tengsl atvinnulífs og skóla verði gerð að veruleika með því að hafa opnar vinnustof- ur í bæði Flensborg og Iðnskólanum þar sem þeir sem vilja spreyta sig á ýmsum sérverkefnum, s.s. hönnun, hugverka- smíði og annarri ný- sköpun og þróunar- vinnu, fái tækifæri til að starfa undir leiðsögn. Hér hafa aðeins verið nefndar nokkrar af þeim hugmyndum sem liggja á borðinu, en fjölmargar aðrar mætti nefna. Það sem skipt- ir mestu er að taka á þessu brýna vandamáli strax, bretta upp erm- arnar og hefjast handa. Einhver kann að spyija. Kostar þetta ekki stórfellda fjármuni og hvar á að taka þá? Ekki hafa bæjaryfirvöld gert ráð fyrir því að tryggja þurfi með einum eða öðrum hætti atvinnu fyrir unga fólkið I sumar. Það liggur hins vegar fyrir að skrautvinnan í miðbæ'num ein- um á samkvæmt samþykktum meirihluta Alþýðuflokks að kosta ekki undir 60 milljónum í sumar. Þar er hvergi til sparað og unnið jafnt daga sem nætur til að koma Lúðvík Geirsson G-listinn er með skýrar tillögur um lausn á at- vinnuvanda unga fólks- ins, segir Lúðvík Geirs- son, og mun hrinda þeim í framkvæmd strax og hann fær tæki- færi til. einhverri mynd á allt umrótið fyrir kosningar. Þær tillögur sem hér hafa verið kynntar kosta ekki nema brot af því grjóti sem hlaðið er í miðbæinn. G-Iistinn er með skýrar tillögur um lausn á atvinnuvanda unga fólksins og mun hrinda þeim í framkvæmd um leið og hann fær tækifæri til. Það verður hins vegar ekki nema Hafnfirðingar, allir sem einn, sameinist um að tryggja G- listanum það brautargengi í kom- andi kosningum, að hann fái í það minnsta tvo menn kjörna og um leið lykilhlutverk við myndun nýs meirihluta í bænum. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Tryggjum unga fólkinu í bænum farsæla framtíð en látum gijótið bíða betri tíma. Höfundur er blaðamaður og skipar 2. sæti & G-lista Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði við komandi bæjarstjórnar- kosningar. DU PONT bflalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bfllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONTlakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 38 000 HOaiOCK Garðúðarar Slöngutengi Garðslöngur Slöngustatív Áburðardreifarar Greinaklippur Limgerðisklippur Klórur - Sköfur Skófiur - Gaflar § -s ÁRMÚLA 11 - SÍMI 681500 BlLDSHÖFÐA 16 SlMI 672444 • FAX 672580 Sterkir plastkassar og skúffur. Fyrir skrúfur, rær og aðra smáhluti. Hægt að hengja á vegg, eða stafla saman. Öar stærðir gott verð. I fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN J|L Vantar allar geróir bifreióa á skrá og á staóinn - Mikil sala Jl „ SIMI670333 MMC Lancer 4x4 GLX, árg. '89, hvítur, ek. 87 þ. km, sumar-/vetrardekk. Verð 730 þús. stgr. Cherokee Laredo 4,0 L, árg. '91, blár, ek. 41 þ. km, sjálfsk., Verð 2.190 þús. Einnig: Cherokee Laredo 4,0 L, árg. '91, grænsans, ek. 91 þ. km, sjálfsk. Verð 1.950 þús. Dodge Grand Caravan SE, árg. '90, brúnsans, ek. 45 þ. km, sjálfsk., rafm. í rúðum, central- læs., cruise control, álfelgur, aukadekk á felg- um, 7 manna. Verð 1.850 þús., sk. á ód. MMC L-300 4x4, árg. '93, grár/tvilitur, ek. 5 þ. km, 5 g., sæti fyrir 8. Verð 2,3 millj. Mazda 626 2,0i, GLX, árg. '92, vínrauöur, ek. 112 þ. km, sjálfsk. Verð 1.400 þús., sk. á ód.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.