Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1994 21 LYKILMENN ráða ráðum sinum í upphafi vinnudags, f.v. Birk- ir Elmarsson veitingastjóri á Carpe diem, Krislján Þór Sigfús- son, Óskar Finnsson, Ingvar Sigurðsson yfirkokkur á Argentína og Stefán Guðjónsson yfirþjónn. svínahirðir, bankamaður, lögga og útkastari, skuli allt í einu finna sig í matreiðslunámi. Eins og Kristján útskýrir málið, er skýringin þó ein- föld. „Ætli það megi ekki segja að ég hafi þreyst á því að kasta fólki út af Hótel KEA og auk þess lék alltaf þessi fíni matarilmur um vitin í vinnunni. Það hlyti að vera skemmtilegra að elda handa þessu fólki en að henda því út!“ Var mikið að gera hjá útkastar- anum? „Nei, nei, ég er bara að grín- ast með það, það voru undantekn- ingar ef eitthvað svoleiðis kom upp á, en þetta með matarilminn i nös- unum öll kvöld réð miklu. Hann heillaði mig,“ segir Kristján bros- andi. Eldsvoði og skotvopn... Þeir félagar eru sammála um að starfið sé fjölbreytt, skemmtilegt og bjóði upp á margs konar uppá- komur, sem reyndar eru ekki allar jafn skemmtilegar, nema síður sé. Þeir höfðu t.d. ekki verið hæstráð- endur á Argentínu lengi er þeir voru vaktir með símhringingu um miðja nótt með þessum orðum: „Þetta er lögreglan, viltu koma sem skjótast að Barónsstíg lla, veit- ingahúsið þitt brennur!" Það hafði verið kveikt í rusli á bak við húsið og talsverðar skemmdir urðu af vatni og reyk. Tókst með miklu átaki margra ættingja og vina að standsetja húsið fyrir næstu helgi á eftir, utan að talsverð brunalykt var enn í húsinu. Þegar til kastanna kom þótti það eiginlega eðlilegt á veitingastað sem grillar matinn inn- anhúss! Þá bar að sögn félaganna nokkuð á því í byijun að fólk teldi Argentínu vera ekkert annað en bar. Þar er vissulega bar, en einungis fyrir matargesti. Menn voru að rangla inn og panta tvö- og þrefalda. Var þeim jafnan bent kurteislega á hvers eðlis staðurinn væri og tóku því flestir vel og hófu þegar leit að brynning- armiðstöð. Fyrir kom þó að illa var tekið í slíkar athugasemdir og einn vel drukkinn náungi gerði sér lítið fyrir í reiðikasti og dró skammbyssu úr pússi sínu og sveiflaði henni um sig ófriðlega. Fóru leikar þannig, að þeir félagar flug-ust báðir á við manninn og barst atgangurinn út á götu. Þar gat að líta tvo kokk- klædda menn snúa niður byssu- mann. Byssan reyndist vera plat, en undrandi vegfarandi spurði í sak- leysi hvort manninum hefði ekki lík- að maturinn! „Skemmtilegast fínnst okkur þegar pör opinbera hjá okkur, ég tala nú ekki um þegar brúðhjón koma. Helst viljum við fá að vita af því fyrirfram ef eitthvað þannig stendur til, því við viljum gera eitt- hvað sérstakt til að gefa kvöldinu aukið gildi," segir Óskar. Sammála eru þeir um að leiðinlegast sé, og raunar ömurlegt, er fólk kemur með öll sín vandamál óleyst, drekkur ótæpilega og reynir síðan að leysa málin með rifrildi og háreysti. „Þetta er sem betur fer mjög sjald- gæft, en kemur fyrir. Sjálfsagt hafa allir veitingamenn lent í því einu sinni eða oftar. í einu tilviki komu miðaldra hjón, nokkuð við skál. Þau bættu vel á sig áður en þau settust að borðum og karlinn fór fljótlega að ausa úr skálum reiði sinnar yfir konuna. Hún gat ekki borið hönd fyrir höfuð sér og á endanum strunsaði hann út og skildi hana eftir grátandi í fullu húsi matargesta. Það er ekki margt sem við getum gert við slíkar kring- uinstæður annað en að leggja til vingjarnleg orð,“ segir Kristján Þór. Þungur en kemur til... Alkunna er, að veitingastaðir hafa margir hveijir átt erfitt um vik í samdrættinum síðustu árin. Margir farið á hausinn og aðrir barist í bökkum. Óskar og Kristján eru spurðir hvernig gengi þeir hafi átt að fagna í þessum efnum. Krist- ján Þór hefur séð meira um rekstur og bókhald á meðan Óskar hefur unnið meira að markaðsmálunum. Kristján hugsar sig því um og seg- ir síðan að reksturinn hafi verið þungur og erfiður um nokkurt skeið, en hann sé að koma til. „Aðal- atriðið er, að vextir hafa lækkað og það hefur lækkað rekstrarkostn- að. Ég myndi segja að ástandið hafi ekki versnað neitt um nokkurt skeið. Síðasti skellurinn var, sem ég hygg að allir í bransanum hafi fengið, 17. júní 1992 þegar Perlan var opnuð. Þar renna í gegn þús- undir manna í hveijum mánuði og augljóst að allir veitingastaðir finna fyrir því. Okkur hefur þó tekist nokkuð vel að hlúa að og halda okkar viðskiptavinahópi og við er- um mjög stoltir af þeim árangri sem Argentína náði í skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir nokkru. Spurt var: - Ef þú værir að fara fínt út að borða, hvaða staðir kæmu helst til greina?" Holtið trónaði hæst í nokkrum sérflokki með 38 prósent, síðan kom Perlan með 23 prósent, en við vorum í þriðja sæti með 19 prósent. Aftar á listanum voru 18 önnur veitingahús," segir Kristján. Óskar bætir við þetta að það hafí hjálpað þeim að halda kostnaði niðri, að eiga traustan og góðan hóp ráðgjafa og velunnara sem hafi hjálpað þeim að þróa hugmynd- ir og ýta úr vör markaðsátökum. „Við höfum ekki þurft að hlaupa með allt á auglýsingastofur. Þetta er svona 3-4 manna kjarni sem hefur lagt kapp á og alúð í að halda nafni okkar á lofti,“ segir Óskar. Vöggu ruggað... Það er mál að ljúka þessu spjalli og við endum á spurningu til þeirra félaga hvort eitthvað fleira í sama dúr sé í augsýn? Óskar er rokinn í símann og það kemur í hlut Krist- jáns að svara: „Næsta haust er Argentína steikhús fimm ára og má segja að við Óskar séum búnir að sitja við og rugga vöggu Argent- ínu í bráðum fimm ár. Það er ekki fyrr en að öryggi er komið í rekst- ur fyrirtækisins að við leggjum í þá viðbót sem við höfum talað hér um, að stofnsetja og reka Carpe diem og fleira í sama húsi. Ætli við ruggum ekki vöggu nýja staðar- ins eins lengi og þurfa þykir áður en við leiðum hugann að frekari útþenslu.“ LOKAUTKALL ■ ■ EDINBORG tabranba: Við seljum allra síðustu sætin til Edinborgar á skotheldu verði. FRÁBÆR AFSLÁTTUR II OTTFÖR: 11. okt.t 15 sæt 15. okt. ^ 8 sæt 16. okt. ► 14 sæt Pantaðu strax! Fyrstur kemur - fyrstur fær. i<xbx<xnb<x 2. VISA og Orval-lltsýn bjóda ótrúleg greiðslukjör. Þú greiðir ferðina á 8 mánuðum VAXTALAUST Upplýsingar og bókanir aóeins á söluskrifstofum Urvals-Utsýnar og hjá umboösmönnum Ekki í síma. 44 ^URVAL-IITSÝN tn'ggíng fyrir gæflum Ldgmúla 4, ( Hafnarfiröi, ( Keflavík, á Akureyri, á Selfossi - og bjá umboðsmönnum um iand alll. V/SA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.