Morgunblaðið - 11.11.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 21
Þingleikar
í ljóðum
ÞINGLEIKAR í ljóðum í tengslum
við sýningu Bjarna H. Þórarinssonar
í Nýlistasafninu verða haldnir á
morgun, laugardag, kl. 16.
Flytjendur eru eftirfarandi;
Didda, Friðrik H. Ólafsson, Halldór
Ásgeirsson, Hallgrímur Helgason,
Haraldur Jónsson, Jóhann Hjálm-
arsson, Kokkur Kvæsir, Kristleifur
Bjömsson, Mörður Ámason, Rík-
harður Þórhallsson, Sjón, Tryggvi
Hansen, Þorri Jóhannsson og Þor-
valdur Þorsteinsson.
Bjami H. Þórarinsson sýnir í aðal-
sölum safnsins og Erling Kling-
enberg er gestur Nýlistasafnsins í
setustofu.
Sýningamar em opnar daglega
frá kl. 14-18 og þeim lýkur sunnu-
daginn 20. nóvember.
----------------
Allra síðasta
sýning á Kara-
mellukvörninni
NÚ FER hver að verða síðastur að
sjá sýningu Leikfélags Akureyrar á
fjölskylduleikritinu Karamellu-
kvömin. Allra síðasta sýning verður
á laugardaginn kl. 14.
Karamellukvörnin er framlag LA
á ári fjölskyldunnar og af því tilefni
erii allir aðgöngumiðar seldir á
bamaverði. Þannig vilja leikfélags-
menn koma til móts við fjölskyldur
og auðvelda þeim að fara saman í
leikhúsið. Karamellukvörnin er
gamanleikur með söngvum fyrir alla
fjölskylduna.
BarPar, hin sívinsæla sýning LA,
verður sýnd á föstudags- og laugar-
dagskvöld og vegna mikillar aðsókn-
ar verður eftirmiðdagssýning á
laugardag kl. 16.30. Uppselt er þeg-
ar orðið á föstudagskvöld og fáir
miðar eftir á eftirmiðdagssýninguna
á laugardag. Sýningum á BarPari
lýkur nú í nóvember.
Ríkey sýnir í
íspan
RÍKEY Ingimundardóttir opnar
myndlistarsýningu í sýningarsal
íspan hf. Smiðjuvegi 7, Kópavogi á
morgun, sunnudag, frá kl. 15-18.
Þetta er 33. einkasýning listakon-
unnar. Á sýningunni verða olíumál-
verk og fantasíur bæði í skúlptúr
og myndum. Við opnunina mun einn
besti harmonikkuleikari landsins.
Reynir Jónasson spilar fyrir gesti.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-18 og henni lýkur sunnudag-
inn 20. nóvember. Aðgangur er
ókeypis og em allir velkomnir.
------» ♦ »-------
Birgir í
Gallerí II
LAUGARDAGINN 12. nóvember
opnar Birgir Andrésson sýningu í
Gallerí II, Skólavörðustíg 4a. Þessi
sýning sténdur aðeins yfir í tvo
daga þ.e. þann 12. og 13. nóvember.
Þetta er jafnt um leið síðasta
sýning í þessum sýningarsal, og lýk-
ur þá fimm ára starfsemi gallerísins.
Birgir Andrésson hefur haldið þó
nokkrar einkasýningar og tekið þátt
í fjölda samsýninga þér heima og
erlendis.
Sýningin í Gallerí II verður opnuð
kl. 16.00 á laugardaginn 12. nóv-
ember, eins og áður sagði og er
opin á sunnudaginn frá kl. 14.00
Kristni og samsöngrur-
um hans hrósað í Genf
KRISTINN Sigmundsson hlýt-
ur afbragðs dóma í Sviss fyr-
ir túlkun sína á stóru hlutverki í
óperunni Seldu brúðinni eftir
Smetana. Óperan, sem frumsýnd
var í Genf á mánudaginn, er að
sögn eins gagnrýnanda forskot á
sælu jólanna og uppbót fyrir
þunglamalegt verkefnaval Genfr
aróperunnar í vetrarbyrjun.
Stfll Kristins er lofaður í víðlesn-
asta blaði borgarinnar, Journal de
Geneve. Einkum er þar tekið til
þess hve áreynslulaust hann valdi
raddsviði sínu, sem sé stórt eins
og hann sjálfur. Samleikur allur í
sýningunni er sagður snjall og
greindarlegur.
Kristinn hefur áður sungið í
fimm óperum í borginni og Tri-
bune de Geneve segir Genfarbúa
farna að kannast við hann. Röddin
hafi þó þroskast til muna og dýpk-
að, náð blóma sem setji sérstakan
svip á túlkunina. Tribune lýkur
einnig lofsorði á listræna samsvör-
un í þessari þjóðaróperu Tékka og
frægasta verki Smetana.
Sýningar á Seldu brúðinni verða
fimm í þessum mánuði, en í lok
hans gefst þess kostur í Genf að
heyra í Kristni á öðrum vettvangi.
Það verður á tónleikum ásamt
Jónasi Ingimundarsyni píanóleik-
ara í „Grande salle de Conservato-
ire“. Fastanefnd íslands hjá EFTA
mun undir forystu Gunnars Snorra
Gunnarssonar sendiherra gangast
fyrir tónleikunum mánudaginn 28.
nóvember í tilefni af 40 ára af-
mæli lýðveldisins. Efnisskráin
verður fjöibreytt og búast má við
fjölmörgum íslendingum búsettum
í borginni auk fulltrúum úr sendi-
nefndum annarra ríkja.
Átakið „tryggjum atvinnu -
verslum heima"
tryggjum
( atvinnu
heima
í Morgunbiaðinu
næstu föstudaga
FST HBILSU«iC#77
Gerðu kröfur... veldu íslenskt!
Danskii
aföBum
af Champion
bómutlarfatnað
í mörgum litum
• •• itUtcU VDUHlilMÍÍ
Doro ÍOOO er nýjasta útfærslan af þráðlausum
síma með stórum skji, 10 númcra minni,
stíllanlegri tónhæð og tóntegundum, fríutn
samtölum innanhúss, læsingu á samtölum og
margt, margt fleira.
I garðinn — bílskúrinn eða til nigrannans.
Doro 1000 simtólið er cinstaklcga litið og
handhægt og því auðvelt að setja það í vasann
L eða smella á beltið.
Einmg Doro
faxtæki aðeins
kr.27.400,-
staðer.
29.900\ ~ staðpr.
TÍHíoSsiHf-f ír-. 26.900, "" staSpr.
I nóvember
Sjón er sögu ríkari
V Úrval af klukkum,
\ pennastatífum,
\ reiknivélum
\ „Backgammon“
\ spiliö og einnig S
\ gjafir fyrir /
\ golfar- /
\ ann' /
Fnsport
Opið
Simahær - GJAFABÆR
frá kl. 10-14
ARMULA 32 - SIMI 88 38 40
Fjölbreytt úrval fyrir sérverslanir 09
almennar verslanir
Sérsmíðum úr stáii 09 járni
Þú pantar - við smlðum
HF.OFNASMIBJAN
Háteigsvegi 7, simi 21220,
fax 623120
okkur