Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D 297. TBL. 82. ÁRG. Arabar vilja efla samstöðu Alexandríu. Reuter. LEIÐTOGAR Egyptalands, Sýr- lands og Saudi-Arabíu hittust óvænt og fyrirvaralaust í gær til þess að vega og meta stöðu friðarumleitana í Miðausturlöndum og freista þess að auka samstöðu með arabaríkjum. Áformað var að fundir leiðtog- anna héldu áfram í dag. Egypskir ráðamenn sögðu að megin tilgangur leiðtogafundarins væri að vinna gegn innbyrðis sundurþykkju araba- ríkja. „Þeir munu ræða málefni araba- ríkjanna og hvers vegna friðarum- leitanir eru komnar í öngstræti," sagði Faropuq al-Shara utanríkis- ráðherra Sýrlands. Sýrlendingum finnst sem önnur arabaríki hafi skilið þá eftir með því að þau hafa tekið upp eðlilegt sam- band við Ísraela. ------4 4 4----- Segir upp hjá CIA Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti til- kynnti í gærkvöldi, að James Wools- ey hefði sagt af sér sem yfirmaður leyniþjónustunn- ar CIA. Afsögnin kom ekki öllum á óvart því orðrómur um að hún væri yfir- vofandi hefur verið á sveimi í Washington. Fullyrt hefur verið að and- rúmsloft innan CIA hafi verið þrúgað frá því leyni- þjónustumaðurinn Aldrich Ámes var afhjúpaður sem rússneskur njósnari fyrr á árinu. Woolsey STOFNAÐ 1913 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS BOSNÍSK flóttakona ræðir við pólskan friðargæsluliða í Velika Kladusa á landamærum Króatíu, en þangað vildi hún komast í gær til þess að leita sjúku barni sínu læknishjálpar á sjúkrahúsinu í Karlovac. Zagreb. Reuter. Reuter Heita Rose að hætta átökum MICHAEL Rose, yfirmaður friðar- gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Bosníu, tók í gær loforð af Fikret Abdic, leiðtoga uppreisnarsveita múslima í Bihac, um að hætta bar- dögum. Átti Rose fund með Abdic í stöðv- um hans í Velika Kladusa á landa- mærum Bosníu og Króatíu í gær í þeim tilgangi að tryggja framgang vopnahlés í Bosníu sem Jimmy Cart- er fyrrverandi Bandaríkjaforseti kom til leiðar skömmu fyrir jól. Rose ræddi einnig við Atif Dud- akovic, yfirmann hersveita stjórnar- innar í Sarajevo, sem barist hafa við sveitir Serba og uppreisnarsveitir Abdics við Bihac. Átök í kringum Bihac hafa ógnað vopnahléinu í Bosníu. Stjórnin í Sarajevo hefur hótað því að tjúfa vopnahléð, linni ekki árásum Serba og bandamanna þeirra í Bihac. Rose flaug með þyrlu frá króa- tísku hafnarborginni Spiit til Bihac og var þetta önnur tilraun hans til að komast þangað. í fyrra skiptið komu Króatíu-Serbar, sem sitja urh Bihac, í veg fyrir að hann kæmist á leiðarenda. Rose hugðist fara til fundar við leiðtoga Króatíu-Serba í Knin en komst ekki vegna þoku. Þeir áttu ekki aðild að vopnahléssamkomulag- inu sem Carter kom í kring. Þrátt fyrir spennuna í Bihac virð- ist vopnahléið standast í Sarajevo. Serbnesk leyniskytta særði þó rúm- lega sextuga konu með riffilskotum í fótinn á þriðjudag. Rússneski herinn sækir af miklu afli að Grosní Sljórnin kveðst beita eins miklu hervaldi og þörf krefur Grosní, Moskvu. Reuter. RÚSSNESKAR hersveitir sóttu í gær að Grosní, höfuðstað Tsjetsjníju, og náðu mikilvægum flugvelli í grennd við borgina á sitt vald. Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, sagði að rússneska stjórnin myndi beita eins miklu her- valdi og nauðsynlegt væri til að binda enda á deiluna um uppreisnar- héraðið. Hann sagði þó rússneska ráðamenn ljá máls á viðræðum um friðsamlega lausn. Oleg Lobov, ritari Öryggisráðs Rússlands, sagði að rússneski herinn myndi smám saman hrekja hersveit- ir Tsjetsjena frá Grosní en neitaði því að rússnesku hersveitirnar yrðu látnar ráðast inn í borgina. „Við ætlum að losa Grosní við ólöglegar hersveitir, málaliða og glæpamenn. Ekki verður ráðist inn í borgina, en hún verður frelsuð," sagði Lobov á blaðamannafundi í Moskvu en útskýrði ekki frekar hvernig ætlunin væri að hrekja her- sveitirnar á brott. Sprengjuárásir Fréttaritari Reuters í héraðinu sagði að rússneskar herþotur hefðu varpað sprengjum á Argun, um 15 km austan við Grosní, og að blossað hefðu upp harðir bardagar um mik- ilvægan þjóðveg við höfuðstaðinn. Tsjetsjenskur blaðamaður í Grosní sagði að rússneskar herþotur hefðu einnig gert árásir á úthverfi Grosní, en því vísuðu Rússar á bug. Hann sagði að herþoturnar hefðu m.a. varpað sprengju á munaðarleys- ingjahæli, en mannfall hefði ekki orðið þar sem börnin hefðu komist í kjallara hælisins. Rússneskar her- sveitir hefðu einnig gert stórskota- árásir í grennd við borgina. „Rússneski herinn er að reyna að ráðast inn í höfuðborg Tsjetsjníu í dag,“ sagði Movíadí Udúgov, yfir- maður upplýsingaþjónustu Tsjetsj- níu, og bætti við að gerðar væru stórskotaárásir á Grosní úr öllum áttum og skriðdrekar væru að reyna að rjúfa varnir Tsjetsjena. Stjórnin í Moskvu sagði að rúss- neskar hersveitir væru að sækja í átt að Grosní og hefðu náð Khank- ala-flugvellinum í grennd við borg- ina á sitt vald. Hún vísaði því hins vegar á bug að gerðar hefðu verið loftárásir á úthverfi borgarinnar og að hersveitum hefði verið skipað að ráðast inn í Grosní. Fréttastofan Tass hafði eftir emb- ættismönnum í Tsjetsjníu að gerðar hefðu verið sprengjuárásir á bæinn Urus-Martan, um 25 km suðvestur af Grosní. Hann er einn af stærstu bæjum Tsjetsjníju og flóttamenn frá höfuðstaðnum hafa streymt þangað. Tass sagði bæinn „vígi“ hersveita sem berjast fyrir Dzhokhar Dúdajev, leiðtoga Tsjetsjníu. ■ Varar við hermdarverkum/18 Löndtmar- bannekki leyfilegt ÞórshBfn. Morgunblaðið. VIÐRÆÐUR Færeyinga og Norð- manna um fiskveiðiréttindi eru enn í hnút en fulltrúar þjóðanna hafa átt tvo fundi í mánuðinum. Norð- menn krefjast þess að sett verði lög sem banni að fiski úr Smugunni verði landað í Færeyjum. Stjórnvöld í Þórshöfn hafa hafn- að kröfum Norðmanna og fengu utanríkisráðuneytið í Kaupmanna- höfn til að kanna málið. Niðurstað- an er sú að samkvæmt GATT- samningum frá 1965 geti Færey- ingar ekki sett lög af þvi tagi sem Norðmenn fara fram á. Kjartan Hoydal fiskimálastjóri segist í viðtali við Dimmalætting í dag, fímmtudag, hafa í gærmorgun skýrt norskum yfirvöldum frá nið- urstöðunni í Kaupmannahöfn og jafnframt að landsstjórnin muni hlíta henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.