Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 25
MORQUNBUIÐJÐ
LAUGARbXGURJáí jidöXR25
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Sárir karlmenn
ÉG SKRIFAÐI grein er birtist
í Morgnnblaðinu 7. desember sl.,
undir fyrirsögninni Linir karl-
menn. Ekki óraði mig fyrir þeim
alvarlegu viðbrögðum er sú grein
olli. Hún var skrifuð í léttum tón
með alvarlegu ívafi og átti að vekja
menn til umhugsunar.
Það hlýtur að vera greinarhöf-
undi gleðiefni þegar grein veldur
smá titringi eða svolitlu moldroki,
þá má segja að tilgangi sé náð.
En ég verð að segja að þau við-
brögð sem ég hef fengið við grein
minni ganga út yfir það. Ég kem
ekki svo á mannamót lengur en
að fólk, bæði menn og konur, þurfi
ekki að ræða málin við mig. Karl-
menn koma afsakandi og segja
mér frá því að þeir séu nú atvinnu-
lausir sem stendur en þeir hafi nú
samt reynt allt sem í þeirra valdi
stóð til að fá atvinnu og geta ekki
fallist á að vera flokkaðir undir
það að vera linir menn.
Öðrum finnst þetta gott, satt
og rétt. En ég vil árétta hér að
ég ætla ekki öllum karlmennum
þjóðarinnar sem við atvinnuleysi
glíma í dag, að þeir séu gagnslaus-
ir karlmenn, síður en svo. Ég vil
heldur ákæra stjómvöld fyrir það
ábyrgðarleysi að hafa ekki fyrir
löngu haft það í forgrunni að hafa
atvinnu fyrir alla og þá við þeirra
hæfí. Mér hefur einnig verið bent
á það að þessi stóri hópur er sótti
til félagsmálastofnunarinnar hafi
verið karlmenn að koma úr áfeng-
ismeðferð, ekki veit ég sannleiks-
gildi þess, því engum sögum fór
af því í áðurnefndum sjónvarps-
þætti.
Úrræði eða úrræðaleysi er eitt-
hvað sem maður lærir eða lærir
ekki í uppeldinu, það er mér ljóst
nú. Ef til vill er það líka rétt að
við konur höfum meira af úrræð-
um en karlmenn, sökum stöðu
okkar í náttúrunni. Því hvað myndi
gerast ef konur kynnu engin ráð?
Því þarf vart að svara.
Annað mál er að ég hygg að
nokkuð skrifist þetta á fjölskyldu-
sambönd okkar annars ágæta
þjóðfélags, en því miður virðist það
vera þróun okkar tíma að fjöl-
skyldan er ekki sú heild er hún
einu sinni var. Ég tel mitt lán í
ítalskt
menning-
arfélag
stofnað
STOFNUÐ verður íslandsdeild ít-
alsks menningarfélags á íslandi á
Sóloni íslandusi nk. sunnudag.
Deildin er stofnuð í samvinnu við
Stofnun Dante Alighieri í Róm,
en stofnunin leitast við að kynna
fjölbreytt menningarlíf á Ítalíu.
Sendiherra Ítalíu á íslandi, dr.
Antonio Badini, verður á stofn-
fundinum ásamt dr. Cota, forseta
Dantestofnunarinnar í Róm, og
Thor Vilhjálmssyni, sem tilnefndur
hefur verið fyrsti forseti félagsins.
Allir þeir sem skrá sig til þátt-
töku í félaginu fá aðildarskírteini,
sem gefíð er út af móðurstofnun-
inni í Róm, en það veitir félags-
mönnum ýmis hlunnindi á Ítalíu.
Stofnun Dante Alighieri, sem
nefnd er eftir höfuðskáldi ítala,
rekur víðtæka menningarstarf-
semi um heim allan, svo Sem skóla
og námskeið ásamt því að standa
fyrir listyiðburðum og menningar-
ferðum.
Það er mitt lán í þessu
lífi, segir Margrét
Sölvadóttir, að tilheyra
einhuga, samstæðri
fjölskyldu.
þessu lífí vera það að tilheyra ein-
huga, samstæðri fjölskyldu. Ekk-
ert það sem hendir
mig er þeim óvið-
komandi sem til
minnar fjölskyldu
teljast. Ekkert það
sem þarf að takast á
við, er tekist á við
án samstöðu innan
hennar. Þetta er
gæfa mín, en þetta
er það sem ég tel að
hafí glatast í ís-
lensku þjóðlífi, og
segi ég, því miður.
Ungu hjónin í dag
eru útaf fyrir sig,
ömmumar, mín kyn-
slóð þarf að lifa fyrir
Margrét
Sölvadóttir
sig. Ömmur dagsins í
dag, hálfrar aldar
gamlar, eru samt ekki
nógu gamlar til að
vera ömmur, eins og
mömmur okkar voru í
gamla daga. „Ég er í
fullu starfí og hef nóg
með að hvíla mig um
helgar þó ég sé ekki í
því að passa barna-
bömin líka.“ Þetta
heyrir maður og skilur
en því miður hjálpar
það ekki þjóðfélaginu.
Ég vildi óska sem
greinarhöfundur að
ömmurnar tækju þetta
pínulítið til sín, svo mér finnist
tilgangi náð, þó ég viti að ekki er
þetta auðvelt.
Að endingu, kæru karlmenn,
era mín lokaorð til ykkar. Linir,
harðir eða mjúkir: Ég ætla að ís-
lenskar konur séu mér sammála
um að við erum: Miklar konur,
stórar konur, sem þið eigð að vera
stoltir af, en athugið samt, að þó
við séum venjulegum karlmanni
handfylli, eram við raunveralegum
karlmanni perla í lófa.
Ég óska öllum íslenskum karl-
mönnum velfarnaðar á komandi
ári.
Höfundur er ritböfundur.
UTSOLUR
hefjast um helgina í KRINGLUNNI
Nú eru útsölurnar að byrja í KRINGLUNNI.
Þess vegna er einnig opið
sunnudaginn 15. janúar.
Eftirtaldar verslanir hefja útsölu um helgina:
5. stræti
AHA
Blazer
Bossanova
Byggt og Búið
Cosmo
Dfdó
Einn, tveir, þrír
Hagkaup - sérvara
Hanz
Heimsljós
Herragarðurinn
Hjartað
íþróttaskóversl. Á fætur
Jack & Jones
Japis
Joss
Kókó
Krakkar
Lipurtá
Mikki og Mína
Monsoon
Olympia
Polarn & Pyret
RR-skór
Skóverslunin Skæði
Sportkringlan
Vero Moda
, Nú getur öll fjolskyldan
kptið helgarinnar saman
\ í Kringlunni
Lau^rdas kl. 10-16
SunAjdag kl. 13-17
l<BMG I
l\\ Utsoluhe/si framundaO