Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 25 AÐSEIMDAR GREIIMAR ★ Eitt af kosningaloforðum R- iistaflokkanna var að framkvæmd- um við hjúkrunarheimili í Suður- Mjódd „yrði hraðað“. Á þessu fjár- hagsári hyggjast þeir leggja aðeins 20 milljónir króna til þeirra fram- kvæmda, sem tefur þær verulega frá því sem fyrirhugað var. Eins og þessi upptalning gefur til kynna boðar R-listinn auknar álögur á borgarbúa og minni fram- lög til atvinnumála, þvert á stefnu- yfirlýsingar sínar fyrir síðustu kosningar. Það er augljóst að þess- ar aðgerðir boða afturhvarf til þeirrar fortíðar er vinstri flokkarn- ir sátu við stjórnvölinn í borginni á árunum 1978-82 en þá hækkuðu gjöld á borgarbúa svo um munaði, sbr. fasteignagjöld og útsvar. i f! Framlög Reykjavíkurborgar sjálfstæðismanna 1993 og 1994 og ;ta flokkanna 1995 til átaksverkefna í atvinnumálum 600 500 400 300 200 100 0 1992 1993 1994 1995 um 430 milljónir króna í sérstök átaksverkefni og að auki 239 millj- ónir króna í Atvinnuleysistrygg- ingasjóð. Samtals 669 milljónir króna. Þessi framlög hafa alltaf verið talin innan rekstrarliða eins og vera ber. R-listaflokkarnir hafa hneykslast á því að rekstrarkostn- aður borgarinnar væri orðinn jafn- hár skatttekjum og því væri ekkert eftir til framkvæmda. í orði hafa þeir neitað að viðurkenna þessi sérstöku aukaframlög sem tíma- bundinn útgjaldaauka. Nú viður- kennir R-listihn hve þessi málfiutn- ingur hefur verið óvandaður, með því að leggja fram 150 milljónir króna til slíkra verkefna og afnema 519 milljónir króna í rekstrarút- gjöldum með einu pennastriki. Úrræðaleysi R-listaflokkanna Það má hveijum manni ljóst vera, að það fólk sem í vor kaus R-listann hefur keypt köttinn í sekknum. Vinstri menn hafa ekkert lært af reynslunni. Þegar þeir loks komast til valda hafa þeir ekki hugmynd um hvað gera skal, fjárhagsáætlun þeirra er hvorki fugl né fiskur. Á síðustu stundu koma þeir og biðja sjálfstæðismenn að hjálpa sér við niðurskurð. Það eina sem þeir koma sér saman um af eigin rammleik er að hækka skatta borgarbúa og skera framlög til atvinnumála niður um hálfan milljarð. Höfundur er borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri. Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarni málsins! Það eina sem R-lista- flokkarnir koma sér saman um af eigin rammleik, segir Arni Sigfússon, er að hækka skatta borgarbúa og skera framlög til at- vinnumála niður um hálfan milljarð. Raunhæfar tillögur sjálfstæðismanna Öfugt við R-listaflokkana vilja sjálfstæðismenn standa við sín kosningaloforð í þeirra hugmynd- um. I dagvistarmálum hugðust sjálfstæðismenn opna 12 deildir og er gert ráð fyrir rekstrarkostnaði við þær, auk framlags í þróunarsjóð leikskólakennara og framlaga til eflingar dagmæðrakerfis fyrir yngstu börnin. Sjálfstæðismenn leggja til 90 milljóna króna hærri framlög til skólastarfs á þessu ári en R-listinn gerir ráð fyrir. Þar skiptir mestu að áfram verði haldið öflugu skólastarfi með auknum rannsóknar- og þróunarverkefnum, samskiptaverkefnum, tölvuvæð- ingu og nettengingu innanlands sem utan, nýsköpunarkennslu, þjónustu heilsdagsskóla og öflugu starfi Vinnuskólans fyrir unglinga á vorin og sumrin. Uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suður-Mjódd verður haldið áfram, en tillaga sjálfstæðismanna gerir ráð fyrir 85 milljóna króna framlagi til upp- byggingar hjúkrunarheimilisins sem miðast við að hægt verði að taka það í notkun fyrrihluta árs 1997. Sérstakt atvinnuátak Vert er að vekja athygli á að á síðasta ári lagði Reykjavíkurborg um Sjálfstæðisflokksins í nefndinni né öðrum. Það hlýtur að vera umhugsunar- efni fyrir stærsta flokk þjóðarinnar að hugmyndir hans í þessum mikil- væga málaflokki séu jafn illa og óljóst kynntar og raun ber vitni, að því er virðist bæði innan flokks og utan. Tilgangur greinar minnar var að bera saman ýmsar þær leiðir sem ræddar hafa verið í kjördæma- málum, sérstaklega með tilliti til misvægis atkvæða. Lesendur munu áreiðanlega vera sammála mér í því, að það hvort misvægi atkvæða í 11 kjördæmum er mest 1:1,8 eða 1:2,1 er bitamunur en ekki fjár. Eftir stendur að til þess að ná al- gjörri og varanlegri jöfnun þeirra mannréttinda sem atkvæði kjós- enda eru í lýðræðisþjóðfélagi, er aðeins ein leið: að gera landið að einu kjördæmi. Höfundur er kerfisfræðingur og ritari Félags frjálslyndra jafnaðarmanna. SAFIR Frá 588.000,- kr. 148.000,- kr. út og 14.799,- kr. í 36 mánuði. Frá 677.000,- kr. 169.250,- kr. út og 17.281,- kr. í 36 mánuði. SAMARA 677 Frá 624.000,- kr. 156.000,- kr. út og 15.720,- kr. í 36 mánuði. SPORT 624 Frá 949.000,- kr. 237.250,- kr.útog 24.101,- kr. í 36 mánuði. 949 Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika. Tekið hetur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.