Morgunblaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.03.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARZ 1995 37 MINNINGAR ÞÓRARINN GUÐNASON + Þórarinn Guðnason fæddist í Gerðum í Landeyjum 8. maí 1914. Hann lést i Reykjavík 17. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 28. febrúar. „HANN var mannvinur, hann Þór- arinn,“ sagði gamall sjúklingur er hann frétti lát hans og bætti við, „hann hefði alveg getað látið ógert allt sem hann gerði fyrir mig“. Margir geta sagt hið sama. Þór- arinn var önnum kafinn heimilis- læknir og skurðlæknir í hálfa öld. Það var þó varla hægt að merkja á honum þvi að hann virtist alltaf hafa nægan tíma til að sinna þeim sem leituðu til hans. Hógværð, lipurð og lítillæti einkenndu manninn. Þetta viðmót gerði hann vinsælan lækni sem fólk treysti og hafði að trúnaðar- manni. Því minnast hans nú margir með trega. Þórarinn lifði umbrotatíma og byltingar í lífsháttum og bar gæfu til að nýta sér hið besta af þeim breytingum. Hann ólst upp við bú- skaparhætti sem haldist höfðu lítt breyttir öldum saman, stóð við engja- slátt og stundaði önnur sveitastörf í æsku. En hugur hans stefndi lengra, hann braust til mennta þótt kreppu- tímar væru og sigldi síðan til fram- haldsnáms í London á tímum síðari heimsstyijaldar þegar loftárásir voru hvað harðastar á borgina. Heim kominn varð hann heimilis- faðir á stóru heimili og æ síðan klett- urinn sem ekki haggaðist. Margir í stórfjölskyldunni leituðu til hans bæði sem læknis og hins ráðholla manns og nutu góðs af kunnáttu hans, visku og næmleika. Þar hallað- ist á í samskiptunum því að hann var ávallt veitandinn en við hin þiggj- endur. Hann ætlaðist aldrei til endur- gjalds, honum var eðliiegt að gefa af sjálfum sér. Þó fór ekki hjá því að hann uppskar ævilanga vináttu og þakklæti þeirra sem hann liðs- innti. Starfandi úti í þjóðfélaginu, þar sem hann kynntist misjöfnum kjörum manna, hlaut Þórarinn að taka af- stöðu til stjómmála. Það var áreiðan- lega engin tilviljun að hann varð ein- dreginn sósíalisti, því honum var eðlislæg réttlætiskennd í bijóst borin. Þótt hann væri enginn byltingarmað- ur vildi hann beijast fyrir sann- gjarnri skiptingu arðs vinnunnar og leysa klafa fátæktar af hálsi verka- mannsins. Ætla mætti að við daglegan eril og lýjandi starf hefðu fáar tómstund- ir gefist, en frá ungum aldri var Þór- arinn bókhneigður og unnandi góðrar tónlistar. Hann náði að þroska þessi fagurfræðilegu áhugamál sín svo að hann varð víðlesinn bókmenntamaður og sjálfur snjall ritari með afburðanæ- man stílsmekk. í tónsmíðum klassísku meistaranna var honum fátt ókunn- ugt, því hann var brunnur þekkingar í þeim efnum sem hans nánasti vina- hópur naut góðs af og reyndar fleiri. Þórarinn var símenntamaður og fór reglubundið í námsferðir til út- landa. í þessar ferðir trúi ég að þau hjón hafí ekki farið án þess að leita uppi þær leiksýningar og tónleika sem hæst bar á hverjum stað, því að þeim var það sameiginlegt að kunna að njóta þess sem vel er gert. Nú þegar Þórarinn var hættur læknisstörfum var það e.t.v. tákn- rænt að síðustu klukkustundirnar í lífinu sinnti hann þrennu: Sótti ný- opnaðan bókamarkað til að kanna hvað þar væri nýtilegt að finna, dró að til heimilisins og bjó sig á tóníeika sem hann þó aldrei fékk að heyra. í huga okkar sem eftir stöndum heldur heimilið á Sjafnargötu 11 og húsráðendur þar áfram að vera órjúf- anleg eining þótt Þórarinn sé horfinn af sviðinu. Gylfi Pálsson. Þórarinn Guðnason er látinn. Með honum er genginn einn af þessum hógværu og umburðarlyndu mönn- um, sem var okkur hinum fordæmi án þess að vita af því. Hver þjóð á sér menn, sem auka manngildi hennar með nærveru sinni. Þeir þurfa ekki að slá um sig, standa á verðlaunapalli né berast á til að hljóta virðingu samferða- manna sinna. Þeim nægir að vera til. Þegar öllu er á botninn hvolft vildu allir vera þannig, því með þeim hætti brúum við best bilið milli dag- legs lífs og afreksverka, sem reynd- ar er hin eina sanna mennska og menning. Eins vildum við öll geta kvatt þetta líf eins og þú gerðir; hljóðlega og átakalaust. Samt fórstu alltof snögglega til að okkur, sem eftir sitjum þyki það réttlátt. Þú hefðir að ósekju mátt ná gamalsaldri. En svona óskhyggja jaðrar við frekju, því vissulega ættu allri að fá að fara meðan þeir eru enn svona ungir í anda. Við skulum því ekki kvarta um of heldur harka af okkur og þakka fyrir einstæða samfylgd. Þótt hún væri of stutt var hún engu að síður ógleymanleg. Margrét og Halldór Björn. Ég varð harmi slegin þegar ég frétti lát Þórarins Guðnasonar, en líka svo undrandi, því ég var alla tíð handviss um að þessi mikli mann- vinur myndi lifa okkur öll. Þegar ég var að alast upp var Þórarinn heimilislæknir fjölskyldunnar. Og þvílíkt lán. Hann vitjaði mín stund- um í veikindum og mér batnaði á svipstundu við það eitt að horfa á hann. Augun róandi, röddin þýð og hendurnar hlýjar og traustar. Síðar meir kynntist ég honum betur í gegnum kæra vinkonu mína, hana Helgu dóttur hans. Þá skynjaði ég enn betur þessa óumræðilega sterku nærveru sem Þórarinn hafði. Að hlústa á hann segja frá var engu líkt. Frásögnin ávallt lifandi, litrík og persónuleg. Svo var líka hægt að spyija hann ráða um allt milli himins og jarðar. Af hans fundi fannst mér ég ætíð fara örlítið betri manneskja. Stundum hitti ég Þórar- in í sundi og engu var líkara en laugin breyttist í smápoll þegar hann stakk sér til sunds. Sennilega hefði hann getað stöðvað eldgos með nærveru sinni. Elsku Helga mín, Sigga og fjöl- skylda. Það er ykkar hamingja að hafa fengið að vera samvistum við Þórarin öll þessi ár. Nú, þegar minn- ingarnar streyma fram, fallegar og græðandi, veit ég að lífssýn hans, ástúð og umhyggja mun áfram ráða ríkjum á Sjafnargötunni. Ég og fjöl- skylda mín sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Rósa Hrund Guðmundsdóttir. Kveðjuorð frá Siðaráði landlæknis Með Þórarni Guðnasyni er geng- inn einn virtasti læknir landsins. í læknisstarfi sínu var hann þekktur af að hafa til að bera góða faglega þekkingu byggða á vísinda- legum grunni, góða faglega reynslu og bregðast rétt við hvers kyns vanda. Hann var einnig þekktur af að geta sýnt samhygð, samúð, geta talað við fólk án yfirlætis og geta tjáð sig um tilfinningar annarra og sínar eigin. Þórarinn sameinaði þannig raunvísindi og húmanisma flestum læknum betur. Eins og flestum er kunnugt sinnti Þórarinn öðrum hugðarefnum en lækningum og er einkum minnisstæður fyrir ritstörf sín og þýðingar. Vegna þessara eðliskosta sinna var Þórarinn fenginn til setu í Siða- ráði landlæknis strax við stofnun þess. Meginverkefni Siðaráðs land- læknis er að fjalla um og gefa álit sitt á siðfræðilegum álitaefnum og rannsóknaráætlunum um vísinda- rannsóknir innan heilbrigðisþjón- ustunnar. Siðaráð landlæknis er skipað sjö einstaklingum sem til- nefndir eru af Alþýðusambandi ís- lands, Félagi íslenskra hjúkrunar- fræðinga, Háskóla íslands, Land- lækni og Samtökum heilbrigðis- stétta. í því sitja læknar, hjúkrunar- fræðingar, siðfræðingur og lögfræð- ingur. I Siðaráði kemur þannig sam- an fólk sem býr yfir mismunandi þekkingu og reynslu og situr í ráð- inu fýrir hönd ólíkra hópa. Fjallað er um vandasöm mál í heilbrigðis- þjónustu sem erfitt en nauðsynlegt er að kryfja til mergjar. Þar reynir því á viðhorf og mannkosti ekki síð- ur en þekkingu. í þessum hópi var Þórarinn leið- togi. Hann var formaður ráðsins frá upphafi þar til er hann lét af starfi fyrir um það bil einu ári. Hann sat áfram í ráðinu, var þar aldursfor- seti sem miðlaði 'af visku sinni og reynsiu til samráðsmanna sinna, sem allir voru þremur til fjórum áratugum yngri. Þórarinn var víðsýnn og afstaða hans til viðfangsefna mótaðist ein- att af trú hans á því að mál leyst- ust farsællega, því horfði hann til hins jákvæða í fari hvers mann og í hveiju máli og felldi aldrei áfellis- dóma. Þórarinn kunni á þvi lagið í erfiðum umræðum að segja sögur eða fara með vísur sem vörpuðu ljósi á viðfangsefnin og gerði þau skemmtilegri. Þórarinn sat síðasta fund sinn í Siðaráði rúmum sólarhring fyrir andlát sitt. Þórarinn vissi mörgum mönn- umm betur, bæði úr starfi og einka- lífí, að „það ynni aldrei neinn sitt dauðastríð", eins og Steinn Steinarr sagði einhvern tíma. Nú hefur hann háð sitt. Það var stutt og snarpt, og flest myndum við líklega kjósa að fá að kveðja heiminn á þennan veg, eftir jafn gifturíkt og langt ævistarf. Við viljum þakka honum sam- fylgdina. Bryndís Hlöðversdóttir, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Ragnheiður Haraldsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Vilborg Ingólfsdóttir, Vilþjálmur Árnason. Þórarinn Guðnason er látinn. Ég kynntist Þórami fyrst er við unnum saman hjá Læknafélagi ís- lands fyrir 25 árum. Áður hafði ég kynnst Sigríði, er seinna varð eigin- kona hans, og fjölskyldu hennar er ég ásamt skólafélögum Páls bróður hennar vomm heimagangar á Sjafn- argötu 11. Systurnar Soffía og Sig- ríður stjómuðu þar heimilishaldi en foreldrar þeirra systkina höfðu látist frá þeim ungum. Á Sjafnargötu- heimilinu ríkti menningarbragur, gestrisni og hlýja. Umræðuefnið var málefnið frekar en náunginn. Er Þórarinn kom heim frá fram- haldsnámi í London settu þau Sig- ríður og Þórarinn niður bú sitt á Sjafnargötunni. Þó að málið sé mér ekki vel kunnugt er ég viss um að Þórarinn hafí fallið vel inn í heimil- ishætti þar. Þórarinn stundaði skurðlækning- ar á Hvítabandinu og síðan á Borg- arspítalanum en auk þess sinnti hann störfum á stofu. Þórarinn var fæddur læknir. Hóværð, traustvekj- andi framkoma og sjálfsgagnrýni einkenndu störf hans. Honum var líklega ljósara en flestum að læknir- inn er ráðgjafí fólksins og ber að breyta á þann hátt, því að fáar eða engar stéttir geta haft jafn afdrifa- rík áhrif á örlög fólks en læknar. Hann ráðskaðist því ekki með fólk. Ýmsir sjúklingar hans og félagar hafa tjáð mér að þeir hafi fyrst skilið inntak og þýðingu „bedside manners" er þeir sáu hann að verki. Þar var hann fremstur meðal jafn- ingja. Án efa hefur það að nokkru mótað Þórarin að hann var óvenju- vel lesinn í heimsbókmenntum og læknisfræði. Hann þvingaði ekki skoðunum sínum inn á aðra. Margir leituðu því til hans og þar á meðal eiginkona mín, sem starfar sem skólahjúkrunarfræðingur. Vill hún færa honum þakkir fyrir góðar úr- lausnir. Góðir eiginleikar Þóararins urðu til þess að ég kallaði hann til þess að taka við formennsku í Siðaráði Landlæknisembættisins er það var stofnað 1987. Siðaráðið fjallar um viðkvæmustu samskiptamál sjúk- lings og læknis. Sem að líkum lætur leysti Þórarinn það starf vel af hendi og verður því að teljast brautryðj- endastarf. Þórarinn var óvenju ritfær maður og kunni flestum læknum betur að skýra flóknustu læknisfræðileg vandamál á þann veg að leikmenn skildu. Með þessum orðum vil ég færa Þórami þakkir Landlæknisembætt- isins fyrir brautryðjandastarf. Við Inga flytjum Sigríði og böm- um innilegustu samúðarkveðjur. Ykkar einlægur, Olafur Ólafsson. Flest kynnumst við góðu fólki. En sjaldan hittir maður mann sem skiptir sköpum, hefur djúp og sívirk áhrif, skilur við mann í þakkarskuld sem aldrei verður goldin. Þórarinn Guðnason læknir var mér slíkur maður. Hann og Sigríður kona hans opnuðu mér hús sín og fóstmðu mig um skeið, þegar mest lá við. Aðrir munu gera góðan róm að athöfnum hans og afrekum, me#to' réttu. Góðsemin og hógværðin, tig- inmannlegt áreynsluleysið, er mér ofar í huga. Engum manni hef ég kynnst sem hefur verið svo athafna- samur og áhrifaríkur sem Þórarinn án sýnilegrar áreynslu. Nálægðin var mest um verð. Hann uppörvaði og hvatti en krafðist einskis, hafði áhuga en forvitnaðist ekki, kenndi án þess að leiðbeina, gaf án þess að taka eftir því, var fyrirmynd með því einu að vera. Og fegurðin bjó sér stað í hjarta hans. Ég hef átt því láni að fagna að kynnast ýmsum góðum mönnum og fáeinum ágætum en ágætastur þeirra allra var Þórarinn Guðnason. Vertu sæll fóstri. Halldór Ármann Sigurðsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÍSLEIFUR ARASOIM, Lindargötu 57, iést í Landakotsspítala að morgni 27. febrúar. y Klara Karlsdóttir, Karl ísleifsson, Steinunn Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, áður Hólagötu 29, Vestmannaeyjum, lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans mánudaginn 27. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Gréta Guðjónsdóttir, Haukur Þorkeisson, Friðrik Guðjónsson, Sigrún Birgit Sigurðardóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ELÍAS JÓN DAGBJARTSSON, Brúarflöt 7, Garðabæ, sem andaðist 22. febrúar í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. mars kl. 13.30. Jóna Kristin Jónasdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ENSKA ER OKKAR MAL SÉRMENNTAÐIR ENSKIR KENNARAR - LIFANDI NÁMSKEIÐ FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN, UNGLINGA OG FULLORÐNA V.R. OG FLEIRI VERKALÝÐSFÉLÖG TAKA ÞÁTT í NÁMSKEIÐSKOSTNAÐI Julie Samuel Victoria ■Áhersla á talmál ■10 kunnáttu stig ■Hámark 10 nem. í bekk Julia Lorcan Enskuskólinn TÚNGATA 5 - SÍMI 25330
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.