Morgunblaðið - 11.03.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D/E/F
STOFNAÐ 1913
59. TBL. 83. ÁRG.
LAUGARDAGUR 11. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Mannréttindafulltrúi rússnesku dúmunnar rekinn
Gagnrýndi hemaðinn
gegn Tsjetsjenum
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKA dúman eða neðri
deildin rak í gær mannréttindafuli-
trúann Sergej Kovaljov úr embætti
en hann hefur gagmýnt hernaðinn
gegn aðskilnaðarsinnum í Tsjetsjníju
mjög harðíega. Formaður varnar-
málanefndar dúmunnar hefur gefíð
í skyn, að hann muni segja af sér
vegna þessa máls.
Brottreksturinn var samþykktur
með 240 atkvæðum kommúnista og
öfgafullra þjóðernissinna gegn 75,
sumir þingmenn sökuðu Kovaljov um
hlutdrægni. Þeir sögðu hann hafa
gengið miklu lengra í gagnrýni sinni
en hann hefði haft umboð til.
Zhírínovskíj hneykslaður
„Sergej Kovaljov getur ekki borið
ábyrgð á mannréttindum. Hann vill
fá útlenda hermenn til landsins,“
sagði þjóðemissinninn Vladímír Zhír-
ínovskíj. Kovaljov vill fá alþjóðlega
eftirlitsmenn til Tsjetsjníju.
Nokkrir fijálslyndir þingmenn
tóku upp hanskann fyrir Kovaljov.
„Hann er einlægari og heiðarlegri
en nokkur þeirra, sem hér hafa talað
að sjálfum mér meðtöldum," sagði
Vladímír Lúkín, formaður utanríkis-
nefndar þingsins.
Þingmenn samþykktu einnig van-
traust á innanríkisráðherra landsins,
Viktor Jerín, og starfandi ríkissak-
sóknara, Alexej Iljúsenko, vegna
þess að þeim hefði ekki tekist að
stöðva glæpafárið í landinu.
■ Rússar fá lán/20
Trylltist
í dómsal
HJÚKRUNARFÓLK ber slasaða
konu á brott úr dómhúsi í borg-
inni Linz í Austurríki í gær. 64
ára gamall eftirlaunaþegi hóf
skyndilega skothríð og banaði
fimm manns, þ. á m. tveim dóm-
urum, auk þess sem að minnsta
kosti fimm særðust. Maðurinn,
sem sagður er hafa verið vanstillt-
ur og afar hrifinn af skotvopnum,
flúði í sumarhús sitt eftir verknað-
inn og fyrirfór sér þar. Hann hafði
tapað meiðyrðamáli gegn ná-
granna sínum sem tekið var fyrir
i dómhúsinu.
Balladur
dragi
sig í hlé
ÁHRIFAMENN í röðum franskra
hægrimanna hvöttu í gær Edouard
Balladur forsætisráðherra til að
hætta við forsetaframboð, að sögn
Reuters-fréttastofunnar.
Skoðanakannanir, sem gerðar
voru fyrri hluta vikunnar og birtar
í fyrradag, benda til þess að fylgi
Jacques Chiracs, borgarstjóra í Par-
ís, fari vaxandi, einkum á kostnað
Balladurs.
Af þeim sökum, og til þess að
stuðla að einingu meðal franskra
hægrimanna, hvöttu stuðningsmenn
Chiracs til þess í gær að Balladur
drægi sig í hlé. Fyrr í vetur, þegar
kannanir sýndu að Balladur nyti yfír-
burðafylgis, voru það stuðningsmenn
forsætisráðherrans, sem réðu Chirac
frá framboði.
Aukatekjur Balladurs
gagnrýndar
Komið hefur í ljós, að Balladur
þáði 100.000 franka á mánuði eða
sem svarar 12,6 milljónum króna
árlega í þóknun fyrir ráðgjöf hjá
einkafyrirtækinu GSI á árunum
1988-1993 en hann var þingmaður
á sama tíma.
Stjómmálaskýrendur vinstri blað-
anna bentu á það í gær, að ráðgjafa-
launin ein á þessu sex ára tímabili
væru hærri en sem næmi ævitekjum
venjulegs launamanns.
Finnskir hjúkrun-
arfræðingar
80.000 í
verkfalli
Helsinki. Reuter.
UM 80.000 hjúkrunarkonur í
Finnlandi eru nú í verkfalli en
í gær bættust 6.000 við þær
74.000, sem verið hafa í verk-
falli í tvær vikur. Krefjast þær
allt að 10% launahækkunar.
Finnsku sveitarfélögin hafa
boðið hjúkrunarkonum 2,6%
launahækkun og segja, að
meira sé svigrúmið ekki. Hefur
sáttasemjari reynt að miðla
málum en hann segir, að svo
mikið beri á milli, að lítil von
sé um samninga á næstunni.
Rekja má dauða konu nokk-
urrar óbeint til verkfallsins en
hún lést úr lungnabólgu á heim-
ili sínu. Fékk hún ekki pláss á
sjúkrahúsi vegna manneklu.
Hefur rannsfekn verið fyrirskip-
uð á málinu og svo verður einn-
ig gert komi upp önnur tilfelli
af þessu tagi.
Reuter
BRIAN Tobin, sjávarútvegsráðherra Kanada, sýnir með aðstoð sjónvarpstækis hvar spænskir og
portúgalskir togarar hafa veitt grálúðu rétt utan við 200 mílna landhelgi Kanada.
ESB mótmælir töku spænsks togara fyrir utan 200 mílna lögsögu Kanada
Málshöfðun boðuð gegn
spænska skipstjóranum
Ottawa, Brusscl. Reutcr, Thc Daily Telegraph.
KANADAMENN neituðu í gær að láta spænskan
togara lausan eftir að hafa tekið hann á umdeild-
um miðum utan 200 mílna lögsögu sinnar. Þeir
boðuðu málshöfðun gegn skipstjóranum og hótuðu
að taka fleiri togara sem staðnir yrðu að grálúðu-
veiðum á miðunum. Evrópusambandið, ESB, brást
ókvæða við töku togarans og hótaði að grípa til
refsiaðgerða gegn Kanada.
Kanadískir embættismenn sögðu að svo virtist
sem taka togarans hefði borið tilætlaðan árangur,
því 14-18 spænskir togarar hefðu hætt veiðum
og haldið sig utan miðanna í gær. Kanadískur
tundurspillir er á miðunum, auk varðskipa, og
spænska stjórnin hefur sent herskip þangað.
Varðskip tóku spænska togarann eftir fjögurra
klukkustunda eltingarleik og fjögur viðvörunar-
skot. Búist er við að varðskip komi með togarann
til St. John’s á Nýfundnalandi í fyrramálið og þar
verður hann kyrrsettur.
Brian Tobin, sjávarútvegsráðherra Kanada, sagði
að Kanadamenn myndu ekki verða við kröfu Evr-
ópusambandsins um að láta togarann lausan. Hann
kvað Kanadamenn staðráðna í að halda áfram að
taka skip sem staðin yrðu að veiðum á svæðinu.
Fordæmir rányrkju Spánverja
Sjávarútvegsráðherrann aftók að Kanadamenn
hæfu samningaviðræður við ESB um málið fyrr
en togararnir hættu veiðunum. Spánveijar hefðu
þegar eyðilagt of marga fiskstofna við strendur
Kanada með rányrkju sinni.
Meira en þriðjungur fullorðinna karlmanna í
Nýfundnalandi er á atvinnuleysisbótum vegna
hruns fiskstofnanna. „Spænski flotinn hefur þegar
kostað kanadíska skattborgara þijá milljarða
dala,“ sagði Tobin.
Talsmaður Tobins sagði í samtali við Morgun-
blaðið að höfðað yrði mál gegn skipstjóranum á
grundvelli laga um ofveiði utan 200 mílnanna.
Sendiherrar ESB-ríkjanna efndu til skyndifund-
ar vegna málsins í Brussel og gáfu út harðorða
yfirlýsingu þar sem þess var krafist að togaranum
yrði sleppt þegar í stað. Taka togarans væri „ólög-
leg og algjörlega óviðunandi aðgerð".
Sendiherrarnir fólu framkvæmdastjórn ESB að
leggja fram lista yfir hugsanlegar refsiaðgerðir
gegn Kanada. Þeir ákváðu einnig að fresta fyrir-
huguðum fundum embættismanna ESB og
Kanada og staðfestingu vísindasamnings.
■ Spánverjar senda herskip/21 -