Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.04.1995, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 9. APRÍL 1995 ERLEINIT MORGUNBLAÐIÐ BAKSVIÐ Húsleit í hjá Claes Brusscl. Reuter. BELGÍSKA lögreglan gerði húsleit á heimili og skrifstofu Willy Claes, framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, á föstudagskvöld. Að £ sögn Claes voru bankareikningar hans einnig skoðaðir. ™ Claes nýtti sér ekki rétt sinn til að njóta friðhelgi diplómata, þar sem hann vildi sýna lögreglunni fullt samstarf. Leitin var gerð í tenglslum við rannsókn á spillingar- máli sem Claes hefur verið bendlað- ur við. Menem sig’lir krappan sjó í kosningabaráttunni & € v í C 4 CARLOS Menem Argent- ínuforseti á í vök að verjast vegna efna- hagslegra þrenginga og pólitískra áfalla. Stuðnings- menn hans eru ekki lengur full- vissir um að hann nái endurkjöri í fyrri umferð kosninganna 14. maí. Menem komst til valda árið 1989 og næstu árin kom hann á efnahagslegum umbótum, sem fylgismenn hans kalla „efnahag- sundrið". Gripið var til spam- aðaraðgerða, vísi- tölubinding launa afnumin, svo og höft á gjaldeyrisviðskipti, með þeim árangri að verðbólgan var nán- ast kveðin niður. Þetta „efnahagsund- ur“ er nú í mikilli hættu vegna fjár- hagskreppunnar í Mexíkó í janúar. Eins og í öðrum ríkjum í Rómönsku Ameríku hafði kreppan í Mexíkó alvarleg áhrif á efnahagsmál Arg- entínu. Sérfræðing- ar segja að mjög hafí dregið úr fjárfestingum í þessum heims- hluta síðustu mánuði. Gengið hefur verulega á varasjóði arg- entínska seðlabankans. Vinstrimönnum varpað í hafið Menem beið ennfremur álits- hnekki þegar fjölmiðlar birtu Iista yfir 1.000 Argentínumenn sem voru drepnir á ------------ valdatíma herforingja- stjórnarinnar í Arg- entínu á áttunda ára- tugnum. Forsetinn og ráðherrar hans höfðu áður neitað því að slík- ur listi væri til. Birt- ingin kynti undir kröfum um að glæpir herforingjastjórnarinnar yrðu rannsakaðir frekar, en Menem hefur hingað til verið tregur til þess. Talið er að a.m.k. 10.000 Arg- entínumenn hafi verið drepnir eða „horfið" í stríði herforingja- stjórnarinnar gegn vinstrimönn- um á þessum tíma. Leiðtogar herforingjastjórnarinnar voru dæmdir í fangelsi en Menem veitti þeim sakaruppgjöf, þótt hann hefði sjálfur verið fangi herforingjastjórnarinnar. Fyrrverandi höfuðsmaður í argentínska sjóhemum, Adolfo Scilingo, viðurkenndi nýlega að hann hefði tekið þátt í að drepa vinstrimenn á þessum tíma. Hann sagði að mönnunum hefði verið rænt og gefin svefnlyf áður en þeim hefði verið hent nöktum úr flugvélum í Atlantshafið. Talið er að 1.750 manns hafi verið drepnir með þessum hætti á árunum 1976-78. Telur skriftir nægja Menem brást ókvæða við játn- ingu höfuðsmannsins. „Það að menn skuli enn velta sér upp úr fortíðinni og sú staðreynd að fréttastofur og blaðamenn skuli taka málið upp aftur til að reka hníf í sár- ið sem við erum að reyna að græða, er óeðlilegt og ógeð- fellt að mínu mati.“ Forsetinn bætti við að þegar menn iðruðust gjörða sinna ættu þeir að leita til prests og skrifta. Hann lýsti Scilingo sem glæpa- manni og svipti hann höfuðsmanns- tigninni á þeirri for- sendu að hann hefði Carlos Menem Verið sakfelldur fyrir „svik“ árið 1991. Scilingo hafði þá keypt bíl sem reyndist hafa verið stolið. Umdeild vopnaviðskipti Menem varð þó fyrir meira áfalli fyrir hálfum mánuði þegar argentínsk stjórnvöld voru sök- uð um að hafa selt Ecuador vopn, fyrir milligöngu stjórnar- innar í Venezuela. A sama tíma háði Ecuador landamærastríð gegn Perúmönnum, elstu og nánustu bandamönnum Arg- entínumanna í Róm- önsku Ameríku. Ríkisrekin vopna- verksmiðja í Argentínu hefur einnig verið sök- uð um að hafa selt byssur til Króatíu, þar sem argentínskir hermenn stunda friðargæslu á vegum Sameinuðu þjóðanna. Knappara forskot Menem er leiðtogi Peronista og ef marka má nýjustu skoð- anakannanir hefur fylgi hans minnkað um sex prósentustig síðustu vikur og er komið niður í 41%. Jose Bordon, leiðtogi FREPASO, bandalags miðju- og vinstrimanna, hefur hins vegar sótt í sig veðrið og aukið fylgi sitt úr 26% í 30%. Ef þetta yrðu úrslit fyrri um- ferðarinnar myndi Menem ná endurkjöri því samkvæmt nýrri kosningalöggjöf, sem samþykkt Fylgi Menems minnkar og óvíst er að hann nái endurkjöri KONUR í samtökum mæðra þeirra sem „hurfu“ i stríði herfor- ingjastjórnárinnar í Argentínu gegn vinstrimönnum á áttunda áratugnum krefjast þess að birtur verði listi yfir fórnarlömb- in. Talið er að a.m.k. 10.000 manns hafi verið látnir hverfa og ættingjum þeirra haldið i óvissu um örlög þeirra. var í fyrra, nægir honum að fá 40% atkvæða, að því tilskildu að hann fái 10% meira en sá sem verður í öðru sæti. Á eftir þeim kemur Horacio Massaccesi, forsetaefni Róttæka sambandsins, sem er aldargam- alt og hefur verið erkifjandi Per- onista síðustu áratugina. Fylgi hans er 19%. Fréttaskýrendur segja að Me- nem leggi mikla áherslu á að ná endurkjöri strax í fyrri umferð- inni af ótta við að kjósendur Róttæka sambandsins fylki sér um Bordon í síðari umferðinni. Þess vegna sé það nú --------- Peronistum í hag að stuðla að auknu fylgi gömlu erkifjendanna í Róttæka sambandinu til að dreifa atkvæðum andstæðinganna í fyrri umferðinni. Fjórði er Aldo Rico, fyrrver- andi ofursti, með 4% fylgi. Hann tók þátt í Falklandseyjastríðinu gegn Bretum árið 1982 og var ennfremur forsprakki einnar af mörgum valdaránstilraunum í sögu Argentínu. Rico er ieiðtogi hægrihreyfingar sem fékk 10% í kosningum á miðjum síðasta áratug. Óspilltur andstæðingur Skoðanakannanir sýna að Bordon nýtur æ meiri vinsælda í ijölmennustu kjördæmunum - Buenos Aires, Santa Fe, Rosario og Cordoba. Hann kveðst nú vera sannfærður um að geta komið í veg fyrir að Menem nái endurkjöri strax í fyrri umferð Vinstrimönn- um varpað nöktum og sofandi í Atl- antshafið kosninganna 14. maí. Bordon er hófsamur þing- maður og fyrrverandi héraðs- stjóri í Mendoza við rætur An- des-fjalla. Hann var atkvæða- mikill í flokki Peronista þar til hann sagði sig úr honum til að bjóða sig fram gegn forsetanum. Bordon nýtur stuðnings óánægðra Peronista og hreyf- inga sem höfða til millistétt- arfólks i borgunum. Vinsældir Bordons eru raktar til þess að hann þykir heiðarlegur stjórnmálamaður og líklegur til að stemma stigu við spillingunni -------- sem hefur sett mark sitt á stjóm Menems. Forsetinn hefur nokkr- um sinnum þurft að stokka upp í stjóm sinni á síðustu áram vegna ________ spillingarmála. Stuðningsmenn Me- nems segja að þótt svo fari að forsetinn nái ekki endurkjöri í fyrri umferðinni fari hann með sigur af hólmi í þeirri síðari þar sem kjósendur veigri sér við að skapa óvissu í argentínskum stjórnmálum með því að kjósa yfír sig nýjan forseta. Stuðningsmenn Bordons telja hins vegar fullvíst að takist þeim að koma í veg fyrir sigur Me- nems í fyrri umferðinni muni •fylgismenn þeirra flokka, sem tapa, fylkja sér um Bordon og tryggja honum sigur í seinni umferðinni. Heimildir: The Daily Tele- graph, The Independent og The Economist. —-.-— Reutcr Skæruliðar myrtu gísla ÍBÚAR í þorpi á Mindanao, einni af Filippseyjum, bera á brott lík af gísl sem skæruliðar múslima myrtu. Múslimarnir tóku tugi gísla er þeir gerðu morðárás sína á borgina Ipil á þriðjudag en þá féllu yfir 40 manns. Gíslana nota skæruliðar sem „skildi“. Her- sveitir stjórnvalda í Manila beij- ast enn við uppreisnarliðið en að minnsta kosti fimm gíslar og sex skæruliðar hafa fallið. Hörðnuðu bardagar enn í gær, skömmu áður en Fidel Ramos, forseti Filippseyja, var væntanlegur til Ipil. Þúsundir óbreyttra borgara hafa flúið frá átakasvæðunum. Breti líflátinn Jackson. Reuter. BRETINN Nicolas Ingram var tek- inn af lífi í rafmagnsstól í Georgíu- ríki kl. 1.15 í fyrrinótt. Þá hafði áfrýjunardómstóll hnekkt úrskurði umdæmisdómara um frestun frá því fyrr um daginn. Að sögn vitna hrækti Ingram að fangavörðum þegar hann var spurð- ur hvort hann vildi segja eitthvað að lokum og afþakkaði síðustu máltíðina. Lögfræðingur Ingrams segir hann hafa verið miður sín og ófæran um að koma upp orði. Harður skjálfti á V-Samóa Wellington. Reuter. ÖFLUGUR jarðskjálfti skók í gær Vestur-Samóa en að sögn yfirvalda á eyjunum höfðu engar fregnir bor- ist af skemmdum eða manntjóni. Ástralska jarðvísindastofnunin sagði skjálftann hafa mælst 7,8 stig á Richter. ♦ ♦ ♦------ Börn fórust í skógareldi Peking. Reuter. 29 kínversk skólabörn fórust í skóg- areldi í norðurhluta Kína í gær■ Alls voru 195 börn og fjórir kenn- arar í skógarferð og tókst flestum að flýja undan eldinum- Carlos Menem, forseti Argentínu, hefur orðið fyrir hverjum hnekkinum á fætur öðrum að undanfömu og nýjustu skoðana- kannanir benda til þess að fylgi hans fari minnkandi fyrir forsetakosningarnar í næsta mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.