Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.05.1995, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ■iL FRÉTTIR Alþingi Stjómar- andstaðan í forsæti í 3 nefndum STJÓRNARANDSTAÐAN á Al- þingi fær formennsku í þremur þingnefndum á yfirstandandi þingi, sjávarútvegsnefnd, heilbrigðis- og trygginganefnd og félagsmála- nefnd. Frá þessu var gengið í gær fyrir kosningar í nefndimar. Össur Skarphéðinsson, Alþýðuflokki verður formaður heilbrigðis- og trygginganefndar, Kristín Ást- geirsdóttir, Kvennalista verður for- maður félagsmálanefndar og Stein- grímur J. Sigfússon, Alþýðubanda- lagi verður formaður sjávarútvegs- nefndar. Þá tilnefndi þingflokkur Fram- sóknarflokksins í gær formanns- efni í þeim nefndum sem koma í hans hlut. Stefán Guðmundsson verður formaður iðnaðarnefndar, Ólafur Örn Haraldsson verður for- maður umhverfisnefndar og Guðni Ágústsson verður formaður land- búnaðarnefndar. Áður hafði flokk- urinn samþykkt að Jón Kristjáns- son verði formaður fjárlaganefnd- ar. Af hálfu Sjálfstæðisflokks verð- ur Sólveig Pétursdóttir formaður allshetjarnefndar, Vilhjálmur Eg- ilsson formaður efnahags- og við- skiptanefndar, Sigríður A. Þórðar- dóttir formaður menntamálanefnd- ar, Einar K. Guðfínnsson formaður samgöngunefndar og Geir H. Ha- arde formaður utanríkismálanefnd- ar. Alþingi kaus í gær 11 menn í fjárlaganefnd en 9 menn í aðrar nefndir auk 9 varamanna í utanrík- ismálanefnd. Ekki hefur verið gengið frá því hvetjir verða vara- formenn nefndanna en gert er ráð fyrir að þær komi fyrst saman til fundar á föstudag. Morgunblaðið/Árni Sæberg FÆÐING sveinbarna virðist algild regla í þessari fjölskyldu. í efri röð frá vinstri eru Egill, Siguijón, Ingvi Rafn, Sigurður Óli og Styrmir, en í þeirri fremri Bjarki, Jóhann Óli, Þór- björn, Eyþór Smári, Hörður Ingi og Sigurður Óli með yngsta og óskírða karlmanninn í fanginu. Ekki fæðst stúlkubam í 58 ár í 58 ÁR hafa aðeins fæðst sveinbörn í fjölskyldu nokk- urri í Reykjavík. Fyrir nokkrum vikum fæddist tólfti drengurinn frá 1937, sonarsonarsonur Jóhönnu Sigurjónsdóttur frá Vest- mannaeyjum og Sigurðar Guðmundssonar frá Núpi undir Eyjafjöllum. Þau eru bæði látin. Þau Jóhanna og Sigurður áttu þrjá syni, Ingva Rafn, sem fæddist 1937, Sigurð Óla, sem fæddist 1941, og Siguijón, fæddan 1949. Guðrún Þórbjarnardóttir, eiginkona Sigurðar Óla, gerði blaðamanni grein fyrir öllum strákunum í fjölskyld- unni. „Þetta er nú bara legg- ur frá tengdaforeldrum mín- um. Maðurinn minn á tvo bræður. Eldri bróðir hans verður 58 ára í júlí og 19. apríl kom einn lítill. Þá eign- aðist yngri sonur okkar sitt fyrsta barn, sem er fjórða barnabarnið okkar,“ segir Guðrún. En þá er að gera grein fyrir þeim sem fæddust þarna á milli. Ingvi Rafn er barnlaus. Siguijón á þijá syni, Styrmi, Egil og Bjarka, og Sigurður Óli á tvo syni, Þórbjörn og Sigurð Óla. Þór- björn á síðan Hörð Inga, Eyþór Smára og Jóhann Óla og Sigurður Óli þann litla, sem er óskírður. Guðrún bætir því við að hún hafi fyrir nokkru ákveð- ið að styrkja barn á Indlandi án þess að taka fram hvort það ætti að vera strákur eða stelpa en auðvitað hafi strák- ur orðið fyrir valinu. Hún segir að tengdamóð- ur sína hafi alltaf langað svolítið í stelpu. Hún hafi alltaf haft gaman af pjatti og punti, sem meira sé hægt að gera við stelpur en stráka. Sjálf sé hún voða hrifin af litlu gaurunum, sonasonum sínum, og segist ekki myndu vilja skipta á þeim fyrir nokkra stelpu. Davíð Scheving ráðinn til Hvera- gerðisbæjar Hveragerði - Davíð Scheving Thorsteinsson hefur verið ráð- inn til Hveragerð- isbæjar til að sinna tímabundn- um verkefnum á sviði atvinnu- mála. Á fundi bæjar- stjóra Hvera- gerðisbæjar sl. fimmtudag var ákveðið að ráða Davíð Scheving Thorsteinsson, fyrrverandi iðnrek- anda, sem atvinnuráðgjafa fyrir bæinn til áramóta. Hveragerðisbær hefur ekki áður ráðið til sín starfsmann sem ein- göngu hefur átt að sinna atvinnu- málum fyrir bæjarfélagið. Að sögn Knúts Bruun, forseta bæjarstjórn- ar, er ætlunin að atvinnuráðgjaf- inn myndi heildstæða stefnu fyrir Hveragerði á sviði atvinnumála og vinni um leið að öðrum sérgreind- um verkefnum á sviði atvinnu- mála. ----» ♦ ♦ Maður féll sjö metra MAÐUR slasaðist á höfði þegar hann féll niður af nýbyggingu á þriðjudag, um sjö metra fall. Maðurinn var að vinna við að losa steypufleka í nýbyggingu við Nesveg. Færa átti flekann með krana, en flekinn losnaði, maður- inn féll niður og flekinn einnig en snerti ekki manninn í fallinu. Davíð Scheving Thorsteinsson. Búið að landa 57.510 tonnum af síld á tíu stöðum Forstjóri Gránges 1 Svíþjóð Óvissa um hvert síldin stefnir ALGJÖR óvissa ríkir um það hvaða stefnu íslenska vorgotssíld- in kann að taka á næstunni, að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar fiskifræðings um borð í hafrann- sóknaskipinu Árna Friðrikssyni. Skipið er nú við rannsóknir á útbreiðslu og aðstæðum vorgots- síldarinnar austan við landið, og í gær var það um 60 sjómílur suð- vestur af þeim stað sem íslensku skipin voru við veiðar innan fær- eysku lögsögunnar. Þá virtist síld- artorfa sem kastað var á stefna í norður, en önnur torfa tók hins vegar stefnuna í suðaustur. „Það er því ekki tímabært að gefa þessu einhveija gönguein- kunn fyrr en menn eru búnir að liggja á þessu svæði yfír einhvem lengri tíma,“ sagði Hjálmar í sam- tali við Morgunblaðið. Mikil áta í sjónum Hjámar sagði að síld í ætisleit hefði tilhneigingu til að halda í ýmsar áttir, þannig að nauðsyn- legt væri að liggja á þeim torfum sem fundist hefðu til að átta sig é hver aðalstefna síldargöngunnar væri. „Það er því ekkert hægt að segja um þetta nema eftir ein- hveija töluverða skoðun, eða þá að menn hafi séð veiðisvæðið fær- ast nokkuð jafnt og þétt í ein- hveija átt. Við verðum á þessari slóð og suður af næstu 4-5 daga, en ég veit ekki hvort eitthvað kem- ur í Ijós á þeim tíma. Síðan ætlum við að halda eitthvað norðureftir," sagði hann. Hjálmar sagði greinilegt að sfld- in hagaði sér öðruvisi núna en í síðustu viku þegar gangan sást færast stöðugt í suðvestur. Hann sagði töluvert mikla átu vera í sjónum á þessum slóðum og því nóg að éta fyrir síldina, og svo háttaði til ekkert síður vestantil á svæðinu en austantil. Tæplega 60 þúsund tonnum landað í gær voru síldveiðiskipin búin að landa samtals 57.510 tonnum á tíu stöðum hér á landi. í Nes- 'kaupstað var þá búið að landa 11.464 tonnum, á Seyðisfirði 10.223 tonnum, á Eskifirði 8.036 tonnum, á Reyðarfirði 6.924 tonn- um, á Hornafirði 4.793 tonnum, á Þórshöfn 4.748 tonnum, á Raufar- höfn 4.521 tonni, á Vopnafírði 3.137 tonnum, á Akranesi 2.090 tonnum og á Siglufirði 1.574 tonn- um. Atlantsálsverkefn- ið lifir góðu lífi GRÁNGES, álframleiðandinn sænski, hefur ekki horfið frá áformum um að byggja álver á Keilisnesi ásamt hinum fyrirtækj- unum í Atlantsálshópnum svo- kallaða, Hoogovens í Hollandi og Alumax í Bandaríkjunum. For- stjóri Gránges segir að þótt áætl- unum hafi ekki verið kastað, sé ekki þar með sagt að ákvarðanir um að byggja hafi verið teknar. Lars Westerberg, forstjóri Gránges, sagði í samtali við Morgunblaðið að engar ákvarðan- ir hefðu verið teknar um byggingu álvers á íslandi. „Það, sem rætt hefur verið um, er að orkustefnan í Svíþjóð sé skammsýn um þessar mundir. Vilji menn fjárfesta í ál- veri í Svíþjóð, þurfi þeir að fá upplýsingar um reglur og stefnu stjórnvalda til mun lengri tíma en hægt er í dag,“ segir Wester- berg. „Blaðamaður spurði mig hvort Atlantsálsverkefnið væri dautt og ég svaraði því til að það lifði góðu lífi. Kosturinn við ísland er að sjálfsögðu að það virðist hafa mun hagstæðari stefnu varðandi orku- verð og orkuverðið er talsvert lægra.“ Tveir kostir til umræðu Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er nú rætt um það innan veggja Gránges að tveir kostir komi einkum til greina varðandi næstu fjárfestingar fyrirtækisins. Annars vegar hafi verið teknar upp að nýju fyrri áætlanir um að stækka álver Gránges í Sundsvall. Hins vegar sé rætt um að byggja, ásamt öðrum fyrirtækjum Atlant- sálshópsins, álverksmiðju á Keilis- nesi. Verði niðurstaðan af stefnumót- un sænskra stjórnvalda í orkumál- um sú, að raforkuverð hækki, sé líklegt að stækkunin í Sundsvall víki fyrir endurnýjaðri áherzlu á Keilisnes. Fundur í Atlantsálshópnum í september Sömu heimildir herma að Gránges hyggist ræða um framtíð- arhorfurnar við hin fyrirtækin j Atlantsálshópnum, Álumax j Bandaríkjunum og Hoogovens i Hollandi, í september næstkorn- andi. Hins vegar sé ekki endilega búizt við ákvörðunum á þeiæ fundi. Þá sé fjármögnun verkefnis- ins ekki tryggð og leggja þurfi mun meiri vinnu í þá hlið mála. i I I i ft r » i i ft Y
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.