Morgunblaðið - 02.06.1995, Síða 14

Morgunblaðið - 02.06.1995, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ESB vill aðild að fundum íbíladeilu Genf. Reuter. Búlandstindur hf. færir út kvíarnar á Breiðdalsvík Kaupir frystihús og kvóta af Gunnarstindi Ljósmynd/Snorri Snorrason BÚLANDSTINDUR ætlar að snúa vörn í sókn í atvinnulífi á Breiðdalsvík og Djúpavog'i. EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur gripið inn í bíladeilu Bandaríkjanna og Japans með formlegri beiðni um að fá að taka þátt í viðræðum um hana. Beiðnin kom fram í bréfi frá Jean- Pierre Leng, sendiherra ESB hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), til viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna í Genf, Booth Gardner, á sama tíma og stjórnvöld í Washington og Tókýó færðust nær samkomulagi um dag- setningu viðræðna. í bréfi sínu kvað Leng það í þágu verulegra viðskiptahagsmuna ESB að reglum WTÓ væri stranglega fylgt í deilunni. Japanar vilja við- ræður við Bandaríkin 17. maí um 100% tolla, sem Bandaríkjamenn hyggjast leggja á japanska lúxus- bíla frá 28. júní. Bandaríkjamenn hafa boðið viðræður í Washington 20. til 21. júní. Japanar hafa hafnað því og segja að viðræðurnar verði að fara fram í Genf fyrir 15.júní í samræmi við reglur WTO um lausn deilumála. Bandarískir embættismenn gefa í skyn að þeir kunni að samþykkja tillögur Japana um stund og stað viðræðna. BÚLANDSTINDUR hf. á Djúpa- vogi mun taka við rekstri frysti- hússins í Breiðdalsvík á morgun, laugardaginn 3. júní, samkvæmt samkomulagi sem stjómir fyrir- tækjanna hafa gert sín á milli. Sam- komulagið felur í sér að Búlands- tindur hf. kaupir þær eignir Gunn- arstinds sem eru á Breiðdalsvík og helming aflaheimilda bv. Kamba- rastar og bv. Hafnareyjar. Frá og með laugardegi verður starfsemi Gunnarstinds hf. því einskorðuð við Stöðvarfjörð. Stöðfirðingar og Breiðdælingar sameinuðu sjávarútvegsfyrirtæki sín í eitt fyrirtæki, Gunnarstind hf., fyrir tæpum fjórum árum..Sam- starfið hefur hins vegar ekki geng- ið vel og fyrir skömmu ákvað stjóm fyrirtækisins að reyna að skipta því og selja Breiðdalseignir þess ásamt helmingi aflaheimilda til Djúpa- vogs. Það hefur nú gengið eftir og verið er að ganga frá skiptingu skulda. Kaupverð eignanna hefur ekki fengist uppgefíð. Búlandstindur gerir út togarann Sunnutind en hinn mikli kvótasam- dráttur á undanfömum ámm hefur gert útgerð ískfisktogara erfíðari um allt land og em Austfirðir þar engin undantekning. Erlendir ferðamenn Tekjur hækkuðu um 51% SAMKVÆMT upplýsingum Seðla- banka íslands vom tekjur af erlend- um ferðamönnum í janúar til mars samtals 3.243 milljónir króna sam- anborið við 2.147 milljónir á sama tímabili árið 1994 og er hækkun 51%. Af þessu em fargjaldatekjur 1.179 milljónir og hækkar sá liður um 22% frá sama tímabili í fyrra. Eyðsla ferðamanna í landinu eykst um 75%, úr 1.200 milljónum fyrstu þijá mánuðina í fyrra í 2.063 milljónir á þessu ári. Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 11% á milli ára. Vom útlending- ar nú 23.376 en 21.105 í janúar- mars árið 1994. Gjaldeyrisskil á gest hækkuðu um 36% og voru 138.732 kr. þessa þrjá mánuði. ----------»-♦ ■+- SHB hefur áhuga áSKOP Stokkhólmi. Reuter. ANNAR stærsti banki Svíþjóðar, Handelsbanken, kveðst hafa sótt um leyfi stjómvalda til að kaupa eignir SKOPBank í Finnlandi. Finnsk blöð hermdu í apríl að Handelsbanken og hollenzki bankinn ABN AMR'O NV ættu í viðræðum um að taka við stjórn SKOPBank af Ríkisábyrgðasjóði Finnlands, GGF. Seinna.bar ABN AMRO það til baka. SKOP varð fyrir miklu lán- atapi 1992-1993 eins og aðrir nor- rænir bankar. GGF segist munu leita að „nýrri lausn“ á vanda bankans eftir tap upp á 1,7 milljarða finnskra marka 1993 og 1,0 milljarð marka 1994. Finnsku bankarnir KOP og Unitas sameinuðust í febrúar og mynduðu Merita Bank, stórbanka upp á 300 milljarða marka. Árni Benediktsson, stjórnarfor- maður Búlandstinds, segir að með kaupunum sé hins vegar ætlunin að snúa vörn í sókn í atvinnulífi, bæði á Djúpavogi og í Breiðdalsvík. „Kvóti Sunnutinds mun næstum því tvöfaldast með kaupunum og verð- ur þannig svipaður og á ámm áð- ur. Okkur gefst því gott tækifæri til framleiðsluaukningar og hag- ræðingar innan fyrirtækisins. Til dæmis aukast möguleikamir í KIRK Kerkorian hefur dregið til baka tilboð upp á 22,8 milljarða dollara í Chrysler - sem var hafnað - en kveðst munu halda áfram að þrýsta á um að fyrirtækið hækki verð hlutabréfa sinna. Tracinda-fyrirtæki Kerkorians í Las Vegas, sem óvænt bauð 55 dollara á hlutabréf 12. apríl, segir hlutabréf sín í Chrysler ekki til sölu. Tracinda hefur hins vegar fengið fjárfestingafyrirtækið Wasserstein Perella & Co í Wall Street til ráðu- neytis um leiðir til að ráðstafa hluta sínum í framtíðinni. Sérgrein Wass- ersteins er samruni fyrirtækja og kaup á fyrirtækjum. „Með því að draga tilboðið til baka getum við tekið málið til end- urskoðunar og metið þá kosti, sem við höfum um að velja,“ sagði í vinnslu loðnu og sildar. Hráefninu verður skipt á milli frystihúsanna eftir möguleikum hveiju sinni. Frystihúsin verða líklega stóran hluta ársins í hefðbundinni vinnslu en annað þeirra verður eftir hentug- leikum notað til að vinna síld og loðnu,“ segir Ámi. Forráðamenn Búlandstinds vonast jafnframt til þess að atvinnuástand batni á Breiðdalsvík og Djúpavogi í kjölfar þessara breytinga. yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra Tracinda, Alex Yemenidjian. Chrysler vill ekkert um málið segja. Fyrrverandi stjórnarformað- ur Chryslers, Lee Iacocca, sem tók þátt í boði Kerkorians og gagn- rýndi frammistöðu Chryslers í gæðamálum, vill heldur ekkert segja. Heimildamaður nátengdur Trac- inda segir fyrirtækið vilja halda ýmsum möguleikum opnum - þar á meðal þeim að bjóða aftur í Chrysler. Tilkynningin kom fjár- festum ekki á óvart og hlutabréf í Chrysler hækkuðu um 1 dollar í 43.625 dollara í New York. Talsmaður Tracinda sagði að Kerkorian viðurkenndi ósigur í bar- áttu sinni fyrir því að hækka hluta- bréf Chryslers í verði. Nesjavallavirkjun Nesjavallavirkjun er opin til skoðunar mánudaga til föstudaga frá kl. 13.30-18.00 og laugardaga frá kl. 9.00-12.00 og 13.00-18.00 fram til 1. september. Tímapantanir fyrir hópa ísíma 482 2604 eða 854 1473. Hitaveita Reykjavíkur. í tilefiii 2ja ára afmælis Blu di Blu bjóðum við gbesileg afmælistilboð í dag og á morgun. Falleg föt á fiábæm verði. Verslun Laugavegi 83 Rcykjavik Hentugar útskriftargjafir Míkið úrval Úr - klukkur Gull- og silfurvörur Nýjung á íslandi: Moli heilsuúrin Hermann Jónsson, úrsmiður, Veltusundi 3b vAngóIfstorg, sími 551 3014. Kerkorian dregur til baka tilboð í Chrysler Detroit. Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.