Morgunblaðið - 03.06.1995, Síða 3

Morgunblaðið - 03.06.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ1995 C 3 aine Paige, sem verður í hlutverkinu langt fram á haust, var kölluð upp hvað eftir annað enda sannkölluð stórstjama. Grease og fleiri söngleikir í Albery við St Martin’s Lane er verið að sýna söngleikinn Five Guys Named Moe. I Cambridge Theatre verður söngleikurinn Fame sýndur frá 16. júní. Grease hefur gengið nokkuð lengi í Dominion á horni Totten- ham Court Road og Oxford Street. Miss Saigon og Vesalingarnir (Les Misérables) eftir Boublil og Schönberg hafa gengið árum saman í Drury Lane Theatre og Palace við enda Shaftesbury Avenue. Ves- alingamir voru sýndir fyrir örfáum ámm í Þjóðleikhúsinu. The Rocky Horror Showhefur nýhafið göngu sína í Duke of York’s en uppfærslan er of mannfá og of lítið lagt í hana til að ég mæli með henni við íslenska ferða- menn í London. Enda verður Rocky Horror sett upp í Borgarleikhúsinu í júlí í sumar. Oliver er hins vegar meira en þess virði að sjá í London Pallad- ium rétt við Oxford Street. Hin nýja uppfærsla Cameron Mackint- osh er jafnvel betri en gamla upp- færslan sem gekk ámm saman í London eftir að myndin var gerð. Einnig má nefna Blóðbræður (Blood Brothers), söngleik sem sýndur var hér nýlega og söngleiki um tónlistarmenn, Buddy um Buddy Holly, sem óhætt er að mæla með, og Only the Lonely um Roy Orbison, sem er aðeins fyrir harða Orbison-aðdáendur. Ain’t Misbehavin’ er með tónlist Fats Wallers, svo eitthvað er á boð- stólum fyrir djassista. Um Copaca- bana eftir Barry Manilow er best að hafa sem fæst orð. Áhersla á Verdi-óperur í sumar verður lögð mikil áhersla á óperur eftir Verdi í Konunglegu óperunni (Royal Opera House) í Covent Garden. Settar verða upp eftirfarandi óperur eftir hann: Stiff- elio, Un ballo in maschera, I due Foscari, La traviata, Simon Bocc- anegra og Aroldo (konsertupp- færsla). Helstu ballettar sem verða á íjölunum em Giselle og Þyrnirós (The Sleeping Beauty). Konunglegi danski ballettinn er með tvær sýn- ingar á Caroline Mathilde og Hin konunglega danska ópera með eina sýningu á The Love for Three Or- anges eftir Prokofiev um mánaða- mótin ágúst-september. Kristján í Grímudansleik Það sem hlýtur að vekja áhuga íslendinga sérstaklega er að Krist- ján Jóhannsson syngur í Grímu- dansleik (Un ballo in maschera) 14., 17., 19. og 22. júní. Það er oft uppselt á óperusýningar og best að tryggja sér miða með góðum fyrir- vara. Samt er venjulega hægt að ná í einhveija miða samdægurs, annaðhvort ódýra miða á efri svöl- um eða í stæði niðri, sérstaklega ef fólk er tilbúið að standa í röð snemma að morgni sýningardags við miðasöluna sem opnar kl. 10 (venjulega þarf að mæta í röðina mun fyrr). Aðeins er hægt að fá einn miða fyrir hvern sem er í röð- inni. Enska þjóðaróperan (The Engl- ish National Opera - Coliseum) er einnig með óperusýningar en ókosturinn er sá að allt er sungið á ensku. Þeir bjóða iðulega til sölu miða á hálfvirði á Leicester Square samdægurs. Meðal gesta í Colise- um í sumar verða Hinn konunglegi sænski ballett, sem mun dansa Don Quixote eftir Rudolf Nureyev 4.-8. júlí og hinn heimsfrægi Kirov-ball- ett frá Rússlandi sem verður í Lond- on 10. júlí-12. ágúst. Þeir dansa átta balletta, marga þeirra þekkt- ustu í danssögunni. Auðvelt að panta Ef þið hafið áhuga á að fá miða í leikhús í London er auðveldast að panta í gegnum síma og borga með greiðslukorti. Handbærar þurfa að vera upplýsingar um tegund korts- ins, númer, gildistíma, nafn þess sem skráður er fyrir kortinu og heimilisfangið sem reikningurinn er sendur á. Jafnframt þarf sá sem pantar símleiðis að geta stafað þessar upplýsingar á ensku fyrir sölumanninum á hinum enda lín- unnar. Það er auðveldara að fá miða á sýningar í miðri viku en um helgar og sennilega erfíðast að fá miða þegar ferðamannatímabilið í Lond- on stendur sem hæst, en ég hef sjaldan lent í vandræðum með að fá miða, jafnvel samdægurs, nema á allravinsælustu söngleiki. Upplýs- ingar um símanúmer fást í London Theatre Guide sem er gefin út viku- lega og fæst ókeypis á stærri hótel- um og í flestum leikhúsum, í Time Out og svipuðum tímaritum og svo í upplýsingabæklingum frá miða- söluaðilum (dæmi er The Independ- ent Guide to London Shows gefinn út af Rakes á Shaftesbury Avenue). Einnig bjóða mörg hótel upp á þá þjónustu að panta miða fyrir gesti, en það er auðvitað dýrara og þann- ig hafa gestir minni áhrif á val á sætum. Ódýrir miðar Miðar geta verið mjög misdýrir á sömu sýningu og fer það eftir hvar setið er í salnum. Oftast bæt- ist við eitthvert bókunargjald ef greitt er með greiðslukorti í gegn- um síma. Einnig eru í boði betri miðar á hálfvirði á sýningar sam- dægurs í smáhýsi á syðri kanti Leicester Square. Opið er mánu- daga til laugardaga frá 2.30 til 6.30 og frá kl. 12.00 þá daga sem leik- rit eru sýnd eftir hádegi (venjulega annað hvort miðvikudaga, fimmtu- daga eða laugardaga). Athugið að afsláttarmiðana verður að greiða með reiðufé og á þá leggst tveggja punda þjónustugjald. Athugið að algjör undantekning er að sýnt sé á sunnudögum. Fleiri greinar um einstaka höf- unda, leikrit, leikara og sýningar munu birtast á næstu vikum. Fagrnannlegur flutningur TONLIST Fclla- og Hólakirkja EINSÖNGSTÓNLEIKAR John Speight og Sveinbjörg Vil- hjálmsdóttir fluttu verk eftir Schu- bert, Vaughan-Williams og fjóra negrasálma. Fella- og Hólakirkja miðvikudaginn 31. maí, 1995. TÓNLISTARDÖGUM Fella- og Hólakirkju lauk með þessum tón- leikum, en hugmyndin, að kirkjan sjálf hafi frumkvæði að tónleika- haldi er góð og þó aðsókn væri minni en æskilegt væri, þá má ekki leggja árar í bát, því Fella- og Hólakirkja er gott tónleikahús. Listamennirnir hófu tónleikana með átta ljóðasöngvum eftir Schu- bert (1797-1828), fjórum við kvæði eftir Mayrhofer og jafnmörgum við kvæði eftir Goethe. I efnisskrá eru lögin merkt með ópusnúmeri en sú merking er ekki rétt, sé miðað við hvaða ár Schubert samdi þessi snilldarverk sín. Op. 1, Álfakóngur- inn, er saminn 1815 síðla árs en til eru lög samin á vordögum 1811 og þá var Schubert á 15. ári. Fyrsta Goethe-lagið sem John Speight flutti, Scháfers Klagelied, er samið 1814. Næturljóð ferðamanns er til í tveimur útgáfum eftir Goethe og er það fyrra samið 1815 en Uber allen Gipfeln ist Ruh níu árum síðar (1824). Rastlose Liebe er op. 51 (ekki 5 nr. 1, eins og stendur í efnis- skrá) og er samið 1815. Flest lögin eftir Schubert, sem John Speight flutti að þessu sinni, teljast því til æskuverka Schuberts og mörg þeirra eru frekar lítt þekkt. John Speight og Sveinbjörg Vilhjálms- dóttir fluttu þessi frábæru verk vel og a'f kunnáttu. Næst á efnisskránni var laga- flokkurinn Song of Travel, eftir Vaughan-Williams, við kvæði eftir skoska skáldið Robert Louis Stev- enson. Þessir frábæru söngvar voru sérlega vel fluttir og þarna var John Speight heima, sem hvað best kom fram í fyrsta laginu The Vagabond og ekki síður í hinu myndræna The Roadside Fire, svo tvö af frægustu lögum þessa laga- flokks séu nefnd. Tónleikunum lauk með fjórum negrasálmum og eins og fyrri verk- in voru þeir fagmannlega fluttir. Til að finna að, var píanóið oft nokk- uð sterkt og er þar líklega mest um að kenna sterkri enduróman kirkj- unnar, frekar en að ógætilega hafi verið farið um nótur píanósins, en Sveinbjörg lék mjög vel, sérstaklega í lagflokki Vaughans-Williams. Jón Ásgeirsson GUNNAR R. Bjarnason við eina mynda sinna, Bleikan jökul Olía og pastel í SPRON UM þessar mundir stendur yfir málverkasýning Gunnars R. Bjarnasonar í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis að Álfabakka 14 í Breiðholti. Á sýningunni eru 26 verk, olíu og pastelmyndir. Gunnar er löngu kunnur sem leik- myndahönnuður og hefur hannað fjölda leikmynda fyrir Þjóðleikhúsið og önnur leik- hús. Jafnframt starfi sínu við hönnun hefur Gunnar ávallt unnið að myndlist og er þetta fimmta einkasýning hans á mál- verkum, Gunnar hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýn- ingum myndlistarmanna. Sýningin er opin frá mánu- degi til föstudags kl. 9.30-16. Nú fer í hönd síðasta sýningar- vika og lýkur sýningunni föstu- daginn 9. júní. Sumartónleikar Vox Feminae SUMARTÓNLEIKAR Vox Feminae verða haldnir á annan í hvítasunnu kl. 20.30 í Seltjamareskirkju. Einsöngvarar á tónleikunum eru Guðrún Jónsdótt- ir sópran, Björk Jónsdóttir sópran og Jóhanna V. Þórhallsdóttir alt. Ásta Páls í Bláa lóninu MÁLVERKASÝNING Ástu Páls verður opnuð á hvítasunnudag kl. 14 í Veitingahúsinu við Bláa lónið. Þetta er fímmta einkasýning hennar en hún hefur einnig tekið þátt í mörgum samsýningum, heima og erlendis. Sýningin stend- ur fram eftir sumri. Vox Feminae er hópur sem starf- ræktur er innan Kvennakórs Reykja- víkur og hefur einbeitt sér að eldri tónlist, sérstaklega kirkjutónlist. Á tónleikunum verður flutt messa eftir Mozart fyrir fjögurra radda kvenna- kór, einsöngvara og strengjasveit, auk veraldlegra verka eftir Mozart. Hljóðfæraleikarar em Hildigunnur Halldórsdóttir 1. fiðla, Ágústa Jóns- dóttir 2. fíðla, Ólöf Sesselja Óskars- dóttir knéfiðla og Svana Víkingsdótt- ir píanó/orgel. Stjómandi á tónleikunum er Mar- grét J. Pálmadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.