Morgunblaðið - 07.06.1995, Side 1
jðAauxivQiM S8
f:
-öi
£5X:
fn>
ÍHÍ
KNATTSPYRNA
GOLF
Bima tók við
viðurkenningu
fyrir háttvísi
BIRNA Björnsdóttir, hin eitilharða landsliðskona
úr sundinu, tók við háttvísiverðlaunum á lokaat-
höfn Smáþjóðaleikanna í Lúxemborg á laugardag-
inn. Háttvísisverðlaunin átti einhver hópur eða
einstaklingur að fá en þar sem leikarnir fóru það
vel fram í alla staði var ákveðið að íslendingar
fengju verðlaunin. íslendingarnir óskuðu þess að
Birnatæki við verðlaununum fyrir hönd allra
keppenda á leikunum, glæsilegri glerstyttu, sem
hún mun varðveita.
Serbinn Cvijanovic
byrjaður að
skora fýrir Þór
SERBINN Radovan Cvijanovic opnaði marka-
reikning sinn hjá Þór á Akureyri í gærkvöldi
þegar hann gerði tvö mörk í 6:0 sigri U23 ára
liðsins gegn Neista í 2. umferð Mjólkurbikar-
keppninnar. Cvyanovic lék með Dragan Vit-
orovic, landa sínum og samhetja hjá Þór sem var
einnig með norðanmönnum í fyrra, í Serbíu í vet-
ur en kom til landsins fyrir skönunu og hefur
leikið tvo leiki í 2. deildinni, gegn Víkingi og HK.
Lögreglumaður
setti glæsilegt
met í 10 km hlaupi
TUTTUGU og tveggja ára gamall lögreglumaður
frá Eþíópíu, Haile Gebresilasie, setti nýtt heims-
met í 10.000 metra hlaupi,26:43,53 mín., á ftjáls-
íþróttamóti í Hengeló í Hollandi á mánudaginn.
Gamla metið átti Kenýjumaðurinn William Sigei,
26:52,23 mín., sett í Osló í fyrrasumar. Þegar
Haile setti metið var liðið eitt ár og einn dagur
frá því hann setti heimsmet í 5.000 metra hlaupi
á sama velli. Haile var lang fyrstur í hiaupinu,
var rúmum 16 sek. á undan landa sínum Assafua
Mezgebu sem varð annar á 27:59.63 mín., þriðja
sæti hlaut Antonio Pinto Portúgal á 28:06.18 mín.
Annað heimsmet í fijálsíþróttum leit dagsins
ljós um helgina þegar rússneska fljóðið Olga
Kuzenkova kastaði sleggju 68,14 metra á móti í
Moskvu. Byijað var að keppa í sleggjukasti kvenna
í fyrra og er þetta í þriðja skipti sem heimsmet
er sett. Fyrra met var í eigu Mihaelu Melinte frá
Rúmeníu, 66,86 metrar, sett 5. marz á þessu ári.
Keppt verður í fyrsta skipti á stórmóti í sleggjuk-
asti kvenna á Evrópumótinu árið 1998.
orgnnfttat'tö
1995
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ
BLAD
Sigrún með þrennu
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
BREIÐABLIKSSTULKUR áttu ekki í erfiðleikum með stöllur sínar frá Vestmannaeyjum í 1. deild kvenna í gær-
kvöldi og unnu 10:0 eftir að staðan hafði verið 5:0 í hálfleik. Sigrún Óttarsdóttir, sem er til hægri á myndinni,
var með þrennu og gerir hér eitt marka sinna fyrir íslandsmeistarana. Leikirnir/B3, B10.
Birgir Leifur
í 10. sæti og
Sigurpáll
líka áfram
BIRGIR Leifur Hafþórsson og
Sigurpáll Sveinsson komust í
gegnum forkeppni á Breska
áhugamannamótinu í golfi og
byija í 64 manna lokakeppni í
dag en Björgvin Sigurbergsson
er úr leik.
Björgvin fór á 77 höggum á
mánudag en 84 höggum í gær.
Sigurpáll fór á 77 höggum fyrri
daginn og 72 seinni daginn og
varð í 64. sæti en Birgir Leifur
var í 10. sæti eftir forkeppnina,
fór á 73 höggum í fyrradag og
72 höggum í gærkvöldi.
Árang^ur piltanna er mjög góð-
ur, einkum Birgis Leifs, en kepp-
endur koma víða að úr Evrópu.
Sigurjón Arnarsson
Siguvjón Amarsson
var í öðru sæti ytra
Biguijón Arnarsson kylfingur úr
GR hefur verið í miklu formi
síðustu vikurnar en hann leikur
golf í Bandaríkjunum. Hann kórón-
aði þó árangur sinn um helgina er
hann varð í öðru sæti á móti þar
sem 52 kylfingar tóku þátt. Mótið
fór fram á Heathrow vellinum í
Plórída, sem er par 72 og SSS 74.
Siguijón lék á 69 höggum, þremur
undir pari þrátt fyrir að mikill vind-
ur væri.
„Þetta var eins og alvöru rok á
íslandi," sagði Siguijón um veðrið
um helgina. Sigurjón sagðist vera
að spila mjög vel en púttin væru
einna slökust. „Ég er á pari á fjór-
tán til sautján brautum en púttin
hafa ekki gengið nógu vel, þó svo
þau séu að lagast. Eg er búinn að
vera undir pari síðustu sex vikurnar
og meðaltalið hjá hiér á síðasta 21
hring er 72 högg og ég hef alltaf
náð að vera meðal tíu efstu.“
Um mánaðarmótin varð hann í
7. sæti af 42 keppendum á Cypress
Creek vellinum, sem er par 72 og
SSS 74. Þá lék hann fyrsta hring-
inn á 75 höggum, þann næsta á
66 og loks 75 höggum síðasta dag-
inn. Alls á 216 höggum eða pari,
en skor hans annan daginn var
besta skor mótsins. Á laugardaginn
lék hann Harbor Hills völlinn á 71
höggi, einu undir pari, og varð í
6. sæti.
„Það er gaman að sjá árangur
erfiðsins. Ég er búinn að æfa eins
og vitleysingur undanfarna mánuði
og nú er það að skila sér. Sjálfs-
traustið er komið í lag og maður
er bara kátur og hress á meðan það
gengur svona vel.“
En hafa menn mikið upp úr þvi
að vera í verðlaunasætum? „Það er
auðvitað mikilvægt að vera í verð-
launasætum þannig að maður fái
einhvern pening fyrir þetta, en það
eru ekki há verðlaun í þessum mót-
um þannig að ég er enn að vinna
upp fyrstu mánuðina sem ég var
hér þegar ég náði sjaldan peninga-
sætum. Ég reikna með að koma
heim í byijun júlí, bæði er að ég á
ekki mikla peninga eftir til að lifa
af og svo er orðið mjög heitt hérna.
Ætli ég verði ekki heima í tvo
mánuði og reyni síðan að fá stuðn-
ing einhverra fyrirtækja til að geta
farið út aftur með haustinu," sagði
Siguijón.
SMÁÞJÓDALEIKARNIR í LÚXEMBORG / B2, B4, B5, B11